Skessuhorn - 22.07.2015, Page 31
MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ 2015 31
Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
eBOX er ný, þægileg og einföld lausn til að flytja minni sendingar
frá Evrópu til Íslands. Á ebox.is er reiknivél sem segir þér á
augabragði hver flutningskostnaðurinn er. Traust og áreiðanlegt
leiðakerfi Eimskips á Norður-Atlantshafi tryggir að sendingin þín
kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt.
auðveldar smásendingar
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA
SMÆRRI SENDINGAR
������� ���������
� e���.��
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
Leikmenn Víkings Ó. ferðuð-
ust suður í Mosfellsbæ og mættu
Hvíta Riddaranum á Tungubakka-
velli í fyrstu deild kvenna síðast-
liðinn miðvikudag. Leikmenn
Hvíta Riddarans hafa átt erfitt
uppdráttar í sumar og voru fyrir
leikinn án stiga í neðsta sæti rið-
ilsins. Þegar liðin mættust á Ólafs-
víkurvelli fyrr í sumar sigraði Vík-
ingur örugglega með sjö mörk-
um gegn engu. Leikmenn Víkings
hafa því mætt suður í Mosfellsbæ
fullir sjálfstrausts.
Skemmst er frá því að segja að
Víkingur var betra liðið á vellin-
um strax frá upphafi. Hrafnhildur
Fannarsdóttir skoraði fyrsta mark
leiksins strax á 11. mínútu og
kom Víkingi yfir. Hún bætti öðru
marki sínu við á 61. mínútu og að-
eins tveimur mínútum síðar jók
Sigrún Gunndís Harðardóttir for-
ystu gestanna í þrjú mörk. Hrafn-
hildur Fannarsdóttir fullkomnaði
svo þrennu sína á 82. mínútu og
innsiglaði öruggan sigur Víkings,
4-0.
Úrslitin þýða að Víkingur er
enn í fjórða sæti riðilsins með 14
stig eftir átta leiki. Næst mæt-
ir liðið Álftanesi á Ólafsvíkurvelli
fimmtudaginn 23. júlí.
kgk
Óhætt er að hvetja Skagamenn og
nágranna til að fjölmenna og fylgj-
ast með Íslandsmótinu í golfi sem
fer fram á Garðavelli á Akranesi
dagana 23. til 26. júlí. Þar munu
allt að 150 bestu kylfingar landsins
etja kappi. Hér er því um stærsta
og glæsilegasta golfmót sumars-
ins að ræða hér á landi, sem eng-
inn áhugamaður um íþróttina ætti
að láta framhjá sér fara. Gera má
ráð fyrir fjölda gesta í tengslum við
mótið. Þá verður sjónvarpað frá
mótinu og á mótssvæðinu verður
hægt að fylgjast með meisturunum
að leik á risaskjá.
Í viðtali fyrir síðasta tölublað
Skessuhorns sagði Guðmundur
Sigvaldason, framkvæmdastjóri
Golfklúbbsins Leynis, að umgjörð
mótsins yrði öll hin glæsilegasta.
Áhorfendastúka verði sett upp við
18. flöt þar sem áhorfendum gefist
kostur á að fylgjast með kylfing-
um leika bæði 9. og 18. holu. Enn
fremur hafi verið sett upp hljóðk-
erfi við fyrsta teig þar sem kylfin-
gar verða kynntir til leiks og ræstir
út, eins og þekkist víða í mótum er-
lendis. „Félagsmenn og starfsfólk
klúbbsins hafa lagt á sig mikla vin-
nu til að gera umgjörð mótsins sem
besta,“ sagði hann. „Ég vil hvet-
ja sem flesta til að gera sér ferð á
Garðavöll að horfa á bestu kylfinga
landsins og sjá glæsilegan völl skar-
ta sínu fegursta,“ sagði Guðmun-
dur enn fremur.
mm/kgk
Veður og færð hafa ekki verið rallý-
keppendum hliðholt í sumar en
fresta þurfti annarri umferð Íslands-
mótsins, sem fram átti að fara í byrj-
un júlí, vegna snjóa á fyrirhuguðum
akstursleiðum. Hins vegar er veður
og færð ákjósanleg í Skagafirði um
þessar mundir og mun Bílaklúbb-
ur Skagafjarðar standa fyrir þriðju
umferð mótsins dagana 24.-25.
júlí næstkomandi. Keppnin verður
hörð í ár þar sem helstu rallýáhafnir
landsins eru skráðar til leiks og ljóst
að barist verður um verðlaunasætin
en þau gefa dýrmæt stig í keppninni
um Íslandmeistaratitilinn. Valdimar
Jón Sveinsson og Skapti Skúlason
eru í fyrsta sæti eftir fyrstu umferð-
ina með 20 stig en TímON-félag-
arnir Baldur Haraldsson úr Skaga-
firði og Aðalsteinn Símonarson úr
Borgarnesi í öðru sæti með 15 stig.
Baldur og Aðalsteinn mæta vel und-
irbúnir til leiks með sigur frá því í
fyrra í reynslubankanum, er ljóst að
þeir ætla sér sigur í ár.
Valdimar og Skapti ætla sér einn-
ig stóra hluti en báðar áhafnir fá
harða keppni frá nokkrum fyrr-
um Íslandsmeisturum, m.a. Henn-
ing Ólafssyni og Árna Gunnlaugs-
syni, systkinunum Daníel og Ástu
Sigurðarbörnum og Sigurði Braga
Guðmundssyni og Ísak Guðjóns-
syni. Allar þessar áhafnir eru van-
ar að aka í Skagafirði og ljóst að
spennandi verður að fylgjast með
keppninni. Keppnin hefst föstudag-
inn 24. júlí kl 18:00 en ekið verð-
ur um Þverárfjall og Sauðárkróks-
höfn í fyrsta áfanga. Eru báðar þess-
ar leiðir áhorfendavænar og hæfi-
lega stuttar til að koma keppend-
um „í gírinn.“ Að því loknu verð-
ur ný rásröð gefin út, þ.e. sú áhöfn
sem hefur bestan tíma eftir föstu-
dagskvöldið hefur keppni á laugar-
dagsmorgun. Fyrsta sérleið laug-
ardagsins er um Mælifellsdal og er
hún rúmlega 23 km löng. Sú leið
verður ekin tvisvar og því nauðsyn-
legt að halda góðri einbeitingu alla
leiða þar sem heildarlengd keppn-
innar er rétt um 100 km. Að lokn-
um Mælifellsdal verður haldið yfir
í Vesturdal en það er önnur lengsta
leið keppninnar, rúmir 10 km. Þar
þurfa keppendur m.a. að aka yfir
eina á en það getur verið flókið þeg-
ar keppnisskapið er komið í hæstu
hæðir. Síðasta sérleiðin er síðan hin
vinsæla leið um Nafir sem eru í út-
jaðri Sauðárkróksbæjar. Byrjar leið-
in í iðnaðarhverfinu nyrst í bænum,
liggur síðan í gegnum beitarsvæði
hrossa og kinda uppi á Nöfum og
endar skammt frá golfskálanum.
Keppninni lýkur síðan með tilkynn-
ingu úrslita við Skagfirðingabúð kl
16:00 en hægt er að fylgjast með
framvindu keppninnar á heimasíðu
Bílaklúbbsins bks.is mm/gg
Leikmenn ÍA mættu Íslandsmeist-
urum Stjörnunnar í tólftu umferð
úrvalsdeildar karla í knattspyrnu
á gervigrasinu í Garðabænum síð-
astliðinn laugardag. Heimamenn
í Stjörnunni byrjuðu mun betur í
leiknum, sóttu stíft og það kom í
hlut Skagamanna að verjast bróð-
urpart fyrri hálfleiks. Þeir fengu
þó mjög gott færi á 17. mínútu eft-
ir langa aukaspyrnu frá vinstri. Jón
Vilhelm Ákason skrúfaði boltann
inn á teiginn þar sem Ármann Smári
reis manna hæst í teignum, skallaði
boltann niður og í átt að marki en
Gunnar Nielsen í marki Stjörnunn-
ar varði glæsilega og varnarmaður
kom boltanum frá áður en Ármann
náði til hans aftur. Eftir þetta færi
var svipað upp á teningnum og ver-
ið hafði, Stjörnumenn sóttu stíft,
Skagamenn voru mikið til á sínum
vallarhelmingi og mark lá í loftinu.
Það var svo á 38. mínútu sem Ólaf-
ur Karl Finsen fékk boltann rétt
fyrir utan vítateig. Hann hefði geta
skotið að marki en kaus að gera það
ekki. Þess í stað hófst hann handa
við að rekja boltann framhjá varnar-
mönnum ÍA. Ólafur komst framhjá
fjórum áður en hann lét skotið ríða
af hægra megin úr teignum, beint í
fjærhornið og sá til þess að Stjörnu-
menn höfðu forystu þegar flautað
var til hálfleiks.
Síðari hálfleikur hófst þar sem
þeim fyrri lauk. Stjörnumenn voru
betra liðið á vellinum en sköp-
uðu sér engin afgerandi marktæki-
færi framan af. Á 63. mínútu urðu
Skagamenn fyrir því áfalli að missa
Albert Hafsteinsson af velli með
sitt annað gula spjald. Stjörnu-
menn héldu áfram að sækja en það
voru Skagamenn sem jöfnuðu gegn
gangi leiksins á 76. mínútu. Jón Vil-
helm átti þá frábæra stungusend-
ingu inn fyrir vörn Stjörnunnar á
Garðar Gunnlaugsson. Hann tók
boltann með sér og hnitmiðað skot
hans frá vítateigsjaðrinum hafnaði í
fjærhorninu.
Jöfnunarmarkið virtist slá heima-
menn út af laginu, þeim gekk illa að
finna sig og leikur þeirra varð til-
viljanakenndur. Þegar fimm mínút-
ur lifðu leiks fengu þeir hins vegar
vítaspyrnu. Halldór Orri Björnsson
steig á punktinn en boltinn small í
stönginni og út. Leiknum lauk því
með 1-1 jafntefli og Skagamenn
ná því dýrmætu stigi gegn Íslands-
meisturunum sem enn hafa ekki
sigrað leik á heimavelli í sumar.
Úrslitin þýða að Skagamenn sitja
í áttunda sæti deildarinnar með 13
stig eftir tólf leiki. Næst taka þeir á
móti Leikni á Akranesvelli sunnu-
daginn 26. júlí. Leikurinn hefst
kl. 19:15 og verður að sjálfsögðu
í beinni textalýsingu á vef Skessu-
horns.
kgk
Tveir Vestlendingar hafa ver-
ið valdir í U-17 landsliðið í knatt-
spyrnu. Þetta eru Borgfirðingurinn
Helgi Guðjónsson sem æfir og spil-
ar með Fram og Skagamaðurinn
Arnór Sigurðsson ÍA. Þeir verða
í landsliðshópnum sem heldur til
Svíþjóðar 3. ágúst næstkomandi til
að keppa á Norðurlandamótinu í
knattspyrnu. Auk Íslands
keppa Færeyjar, Svíþjóð,
Noregur, Finnland, Dan-
mörk, Pólland og Banda-
ríkin á mótinu.
mm
Leikmenn Víkings Ó.
heimsóttu Hauka í Hafn-
arfjörðinn í tólftu um-
ferð fyrstu deildar karla í
knattspyrnu föstudaginn
17. júlí síðastliðinn. Gest-
irnir frá Ólafsvík byrjuðu
mun betur og náðu for-
ystunni strax á 13. mínútu
leiksins. William Dom-
inguez da Silva átti þá
góðan sprett, lagði bolt-
ann á Kenan Turudija
sem klíndi boltanum upp
í samskeytin. Eftir mark
gestanna róaðist leikur-
inn, Haukar héldu boltan-
um vel, sköpuðu sér nokk-
ur ágæt færi en vantaði
alltaf herslumuninn. Und-
ir lok hálfleiksins fékk Emir Dok-
ara sannkallað dauðafæri, einn á
móti opnu markinu en skaut bolt-
anum framhjá og tókst ekki að auka
forystu Víkinga. Staðan í hálfleik
0-1, gestunum í vil.
Víkingar komu ákveðnir til síð-
ari hálfleiks og hann var ekki nema
rétt rúmlega tíu mínútna gam-
all þegar þeir bættu öðru marki
sínu við. Kristófer Eggertsson
sendi hnitmiðaða stungusendingu í
gegnum vörn Hauka
á William sem var
kominn einn í gegn
og skoraði auðveld-
lega framhjá mark-
verðinum.
Eftir síðara mark
sitt sóttu Víkingar
enn frekar í sig veðr-
ið og hefðu geta auk-
ið forystuna. Krist-
ófer Eggertsson átti
skot í vítateignum sem
var varið út í teiginn.
Brynjar Kristmunds-
son náði frákastinu en
skot hans beint í þver-
slána. Nokkru síðar
átti William skot rétt
framhjá sem og Alfreð
Már Hjaltalín, eftir góðan undir-
búning Ingólfs Sigurðssonar. Fleiri
mörk voru hins vegar ekki skoruð
og niðurstaðan því tveggja marka
sigur Víkings.
Eftir leikinn eru Víkingar í öðru
sæti deildarinnar með 26 stig, eft-
ir tólf leiki, aðeins einu stigi færra
en Þróttur. Næst mæta þeir Gróttu
á Ólafsvíkurvelli föstudaginn 24.
júlí.
kgk
William Dominguez da
Silva hefur leikið vel
með Víkingi í sumar.
Hann lagði upp fyrra
markið í útisigrinum
gegn Haukum síðast-
liðinn föstudag. William
bætti svo um betur og
skoraði seinna mark
liðsins.
Víkingur Ó. nálgast
topp fyrstu deildar
Það liðu ekki fimm mínútur frá því
Garðar Gunnlaugsson kom inn á sem
varamaður þar til hann jafnaði leikinn
fyrir Skagamenn.
Skagamenn jöfnuðu gegn
Íslandsmeisturunum manni færri
Annar stórsigur Víkings á Hvíta riddaranum
Helgi og Arnór
eru fulltrúar
Vesturlands í
liðinu.
Tveir af Vesturlandi í U-17 landsliðið
Næsta umferð Íslandsmótsins ekin um helgina
Baldur og Aðalsteinn ætla sér stóra hluti um helgina, enda er Baldur á heimavelli.
Golfveisla framundan á Akranesi