Skessuhorn - 02.09.2015, Síða 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 36. tbl. 18. árg. 2. september 2015 - kr. 750 í lausasölu
Arion
hraðþjónusta
– hafðu það eins og þú vilt
Arion appið • Netbanki • Hraðbankar
Lúsina burt!
Restaurant Munaðarnes
Borgarfirði
525 8441 / 898 1779
Njótið veitinga
í fallegu umhverfi
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
OPIÐ
15.00 – 21.00
Hópapantanir í
síma 898-1779
Rafræn áskrift
Ný áskriftarleið
Pantaðu núna
Umhverfisviðurkenningar Akranes-
kaupstaðar voru veittar síðastliðinn
fimmtudag við athöfn á Akratorgi.
Veittar voru viðurkenningar fyrir
fallega einbýlishúsalóð og snyrtilega
fyrirtækja- eða stofnanalóð. Einn-
ig voru veitt hvatningarverðlaun og
samfélagsverðlaun. Einar Brandsson
formaður skipulags- og umhverfis-
ráðs Akraness kynnti niðurstöður og
ástæður fyrir vali valnefndar. Regína
Ástvaldsdóttir bæjarstjóri afhenti
síðan viðurkenningarnar. Valnefnd
var skipuð af skipulags- og umhverf-
isráði en í henni sátu Drífa Gústafs-
dóttir skipulagsfræðingur, Helena
Guttormsdóttir brautarstjóri um-
hverfisskipulags LbhÍ, Kristbjörg
Traustadóttir landlagsarkitekt, Jón
Þór Guðmundsson garðyrkjufræð-
ingur og Íris Reynisdóttir garð-
yrkjustjóri Akraneskaupstaðar.
Fyrir fallega einbýlishúsalóð voru
þrjár lóðir sem hlutu viðurkenn-
ingu. Skólabraut 20 hlaut viður-
kenningu fyrir fjölbreytta nýtingu.
Kirkjubraut 21 hlaut viðurkenningu
fyrir gróskumikla ræktun og Voga-
braut 42 hlaut viðurkenningu fyrir
tegundafjölbreytileika í trjágróðri.
Teigur gistiheimili, Háteigi 1,
hlaut viðurkenningu fyrir snyrtilega
fyrirtækjalóð. Lóðin þykir skemmti-
leg og snyrtileg með skemmtilegum
rýmum sem gestir gistiheimilisins
geta nýtt. Þar að auki er annar eig-
andinn dagmamma og er garðurinn
nýttur fyrir börnin. Þetta er lóð sem
önnur fyrirtæki gætu tekið til fyrir-
myndar.
Hvatningarverðlaunin hlutu íbú-
ar að Melteigi 7 og Suðurgötu 126.
Melteigur 7 hlaut verðlaunin vegna
endurgerðar á húsi og lóð sem þyk-
ir til fyrirmyndar. Þar hefur húsinu
einnig verið breytt í upprunalega
mynd. Suðurgata 126 hlaut einnig
verðlaunin vegna endurgerðar á húsi
og lóð sem þykir til fyrirmyndar.
Samfélagsverðlaunin voru veitt í
tveimur flokkum. Annars vegar verð-
laun til hóps og hins vegar verðlaun
til einstaklings. Íbúar á Grenigrund
hlutu verðlaun fyrir byggingu grills-
kála á opnu svæði en þar þykir hóp-
urinn hafa sýnt frumkvæði og sam-
stöðu. Adam Þór Þorgeirsson, Há-
holti 5, hlaut verðlaun fyrir viðhald
húss og lóðar sem hann hefur alltaf
sinnt með miklum sóma. arg
Umhverfisviðurkenningar Akraneskaupstaðar afhentar
Hópmynd af þeim sem tóku við viðurkenningum fyrir snyrtilegt umhverfi 2015.
Óhlýðinn þátttakandi á nýnemadegi í Fjölbrautaskóla Vesturlands, að mati eldri nemenda, er hér í refsingarskyni í þann mund að smella kossi á nýslægðan þorsk. Sumir
hafa viljað halda því fram að hefðbundnum busavígslum sé lokið þar sem ýmislegt hafi verið gert til að smána nýnema. Líklega staðfestir þessi mynd að það er orðum
aukið. Sjá nánar bls 25. Ljósm. kgk.