Skessuhorn


Skessuhorn - 02.09.2015, Side 12

Skessuhorn - 02.09.2015, Side 12
MIÐVIKUDAGUR 2. SEPTEMBER 201512 Sólin lét bíða eftir sér í upphafi sumars, maímánuður var frem- ur kaldur og byrjun júnímán- aðar einnig. Það rættist þó úr og sólin fór að láta sjá sig upp úr miðjum júní, þá einna helst á Vesturlandi. Ferðaþjónustan hef- ur verið á hraðri uppleið á Íslandi og fjöldi erlendra ferðamanna er alltaf að aukast. Íslendingar hafa einnig alltaf verið duglegir við að elta sólina og því kom Vesturland sterkt út í sumar. Skessuhorn tók nokkra ferðaþjónustuaðila á Vest- urlandi tali og forvitnaðist um hvernig sumarið hafi verið. Það er samdóm álit þeirra að sumar- ið hafi verið jafn gott eða betra en undanfarin ár. Sumsstaðar er gríðarleg aukning milli ára. Allir eru því kátir í lok sumars. Vestlendingar þurfa að byggja betur upp Gísli Ólafsson hjá Hótel Framnesi í Grundarfirði segir sumarið 2015 hafa verið fínt. „Það var allt full- bókað hjá okkur á hótelinu eins og undanfarin ár. Þetta gekk ljómandi vel. Það var þó ekkert sem kom á óvart, þetta er orðin hálfgerð rút- ína hjá okkur,“ segir hann í samtali við blaðamann. Gísli kemur víða við í ferðaþjónustunni og rekur einn- ig kaffihúsið Láki Hafnarkaffi og ferðaþjónustuna Láki Tours, sem býður upp á siglingar frá Grundar- firði og Ólafsvík. Hann segist hafa orðið var við töluverða aukningu á milli ára. „Ferðamönnum fjölgaði, bæði erlendum og innlendum. Inn- lendir ferðamenn sáust ekki í fyrra í rigningunni en nú mátti sjá einn og einn á stangli,“ segir Gísli. Hann segir sumarið ekki enn vera búið í ferðaþjónustunni í Grundarfirði. „Það er alveg vel bókað út septem- bermánuð, en eftir það róast alltaf. Þó það tínist eitthvað aðeins meira, þá eru engar stórar breytingar á hausttraffíkinni. Hún er mest inni í Reykjavík, ekki á landsbyggðinni.“ Gísli segist ekki eiga von á miklum breytingum á næsta ári. „Það breyt- ist ekkert annað en að ferðamönn- um mun halda áfram að fjölga. Vest- lendingar þurfa að byggja betur upp og auka við afþreyingu ef þeir vilja taka þátt í þessu,“ segir Gísli. Sumarið gekk vonum framar Að sögn Brynju Brynjarsdóttur hjá sveitahótelinu Hraunsnefi í Borgar- firði gekk sumarið vonum framar. „Við vorum að stækka við hjá okkur, bæta við herbergjum og færa mat- salinn, þannig að það voru svolitlar breytingar. Við vorum vongóð um aukningu í kjölfar breytinganna en það var talsvert mikið meiri aukning en við bjuggumst við,“ segir Brynja. Veitingastaðurinn var fluttur um páskana og þá var hafist handa við að búa til fimm ný herbergi. „Her- bergin voru öll komin í notkun 1. júlí og hvoru tveggja hefur gengið alveg ótrúlega vel. Það er mikil aukning í að fólk komi við hjá okkur, bæði Ís- lendingar og erlendir ferðamenn,“ heldur hún áfram. Brynja segir til marks um þá aukningu sem verið hafi þá sé hægt að nefna að veitinga- staðurinn er enn opinn í hádeginu, þrátt fyrir að komið sé fram í sept- ember. „Við höfum yfirleitt lokað honum upp úr miðjum ágúst og ein- ungis haft opið á kvöldin. En nú er svo mikið að gera að við verðum að hafa opið.“ Húsdýrin vekja lukku Brynja segir að veitingastaðurinn sé bæði vinsæll hjá Íslendingum og út- lendingum. „Það er nokkuð jafnt en það er talsvert meira af erlendum ferðamönnum í gistingunni. Á vet- urna breytist það svolítið, þá koma fleiri fundahópar og Íslendingar í árshátíðarferðum en samt í bland við túrista sem ferðast á eigin veg- um.“ Hún segir það hafa komið á óvart hversu vinsælt það hefur ver- ið hjá ferðamönnum að kíkja á dýr- in á bænum. „Við erum með svolít- ið af dýrum í lausagöngu hjá okkur og það er mjög skemmtilegt að sjá hvað fólk hefur gaman af því að fá að komast í snertingu við venjuleg hús- dýr. Hér eru kindur, kálfar og grís- ir í snertingarfjarlægð og fólk sýn- ir þeim mikinn áhuga.“ Einhverj- ar breytingar verða áframhaldandi á Hraunsnefi í vetur, þó ekki verði byggt meira í bili. „Þegar maður fer í svona framkvæmdir þá tekur svolítinn tíma að klára. Það sem er framundan er að klára utandyra og svo stefnum við á að bæta aðgengi að dýrunum. Til dæmis að það sé hægt að sitja úti á palli og horfa yfir flóruna,“ segir Brynja. Hraunsnef er opið allan ársins hring en Brynja segir ferðamenn frekar koma á eigin vegum á veturna en í gegnum ferða- skrifstofur á sumrin. „Á veturna er fólk meira að horfa á ódýrari lausn- ir en norðurljósaferðirnar eru samt mjög vinsælar. Svo erum við með opið um jólin, þar sem erlendir ferðamenn geta upplifað íslensk jól með íslenskum fjölskyldum á að- fangadag og jóladag. Við erum með jólatré og gjafir, þetta er mikil kynn- ing á íslenskum jólahefðum. Þetta hefur verið fullbókað ár eftir ár en nú erum við með meira pláss þann- ig að við erum spennt fyrir hvern- ig þetta verður í ár,“ segir Brynja að endingu. Mikið líf á Akratorgi Kaffihúsið Skökkin á Akranesi var opnað fyrir tæpu ári síðan. Fyrsta sumarið gekk vonum framar að sögn Hildar Björnsdóttur, eins eig- anda kaffihússins. „Þetta var alveg ótrúlegt, það var mjög mikil um- ferð af fólki og útisvæðið hafði mik- ið að segja,“ segir Hildur. Skökkin er við Akratorg og hefur Akranes- kaupstaður staðið fyrir matar- og antikmarkaði á torginu alla laug- ardaga í sumar. „Það komu margir gestir, bæði Skagamenn og útlend- ingar og var oft mikið fjör á torginu fyrir framan. Guðmundur B. Hann- ah úrsmiður sagði að það hefði ekki verið svona mikið líf á torginu í 25 ár.“ Hildur reiknar með að margir þættir hafi hjálpast að við að mynda líf á Skaganum. „Það var sólríkt sumar, þó ekki hafi verið hlýtt og fólk nýtti sér óspart að geta setið úti. Það var brjálað að gera á írsk- um dögum, við höfum bara aldrei lent í öðru eins. Svo er auðvitað markaðurinn, það er meira um að vera í bænum og við hjálpumst öll að í þessum bransa, þetta hefur margföldunaráhrif.“ Hildur segir að margir ferðamenn hafi heimsótt Akranes í sumar. „Það eru enn að koma ferðamenn í bæinn á hverjum einasta degi. Svo er líka smá traf- fík af aðkomufólki sem kemur við á Skaganum. Einnig hópar úr Borg- arnesi og nærsveitum sem gera sér dagsferð á Skagann.“ Þar sem þetta var fyrsta sumar Skakkarinnar vissu eigendur kaffi- hússins ekki við hverju mátti búast. Sumarið hafi verið ánægjulegt og þær vonast til þess að næsta sumar verði jafn gott. „Við erum líka bú- nar að læra aðeins af reynslunni og vitum nú hvaða daga við þurfum að vera vel undirbúnar undir mikið álag.“ Hildur nefnir í framhaldinu að það standi til að vera með ým- sar uppákomur í vetur. „Það verður alls konar í gangi. Við vorum með söngstund og upplestur fyrir börn í fyrra og langar að fjölga svoleiðis stundum, vera með stemningu í kringum hrekkjavöku og gera mei- ra úr kvöldopnunum með föstum viðburðum, jafnvel í samstarfi við aðra. Það eru ýmsar hugmyndir í gangi,“ segir Hildur að lokum. Samstarf í samkeppni Ragna Ívarsdóttir hótelstjóri á Hótel Glymi í Hvalfjarðarsveit hefur sömu sögu að segja og margir aðrir ferða- þjónustuaðilar í landshlutanum og segir sumarið 2015 hafa verið mjög gott. „Þetta var samt svipað og árið áður, sumarið í fyrra var nefnilega mjög gott líka. En við verðum engu að síður vör við það að við þurfum að hafa meira fyrir hlutunum en áður, enda hefur samkeppni aukist,“ segir Ragna í samtali við Skessu- horn. Hún nefnir að gistirýmum hafi fjölgað gríðarlega á höfuðborg- arsvæðinu og auk þess sé komin mikil samkeppni frá einstaklingum sem leigja út fasteignir sínar. „Það er mikið framboð á svörtum mark- aði, þar sem fólk býður lægri verð en við getum boðið. Þar eru ekki allir með leyfi og þetta eru svartar tekjur sem hvergi eru taldar fram. Þann- ig að við erum ekki bara að keppa við samkeppnisaðila sem hafa til- skilin leyfi heldur þetta óséða líka.“ Hún segir jafnframt hafa fundið fyr- ir annarri breytingu. „Það kemur minna inn af götunni. Fólk virðist vera farið að skipuleggja sig betur.“ Að sögn Rögnu eru flestir gestirnir á Glymi erlendir ferðamenn, þó eitt- hvað af Íslendingum slæðist með. „Í ljósi samfélagsumræðunnar um erlenda ferðamenn, sem hefur ver- ið svolítið neikvæð, er það ekki al- veg það sem við erum að finna. Fólk segir enn að landið sé ósnortið, feg- urðin sé til staðar og að hér sé mikið pláss. Svo er það jákvæður punktur að þjónustuafþreying við ferðamenn er að aukast. Þetta styður hvert ann- að mjög mikið og það er mikil sam- keppni og samkennd meðal þeirra sem eru í bransanum á Vesturlandi. Það er samstarf í samkeppninni,“ segir Ragna. Hefðbundin íslenskur matur og kökur bakaðar á staðnum Í Leifsbúð í Búðardal er hægt að setjast niður og gæða sér á góðum þjóðlegum íslenskum mat eða ný- bökuðum kökum og kaffi. „Kökurn- ar okkar bökum við sjálfar frá grunni og eru þær mjög vinsælar, sérstak- lega hjónabandssælan. Ferðamenn eru alltaf að biðja um uppskrift af henni,“ segir Valdís Gunnarsdótt- ir forstöðukona í Leifsbúð. Að sögn Valdísar hafa mun fleiri ferðamenn komið við í Leifsbúð þetta sumar heldur en það síðasta, bæði erlend- ir og íslenskir. „Það hefur verið svo gott veður hér á Vesturlandi, nú eig- inlega bara besta veðrið á landinu hefur verið hér. Íslendingar elta oft veðrið og sólina og hafa þeir verið mun meira áberandi hjá okkur þetta sumar heldur en í fyrra,“ segir hún. „Við auglýstum líka mun meira núna í vor og vorum bara mjög dugleg í því. Við fórum líka að auglýsa meira á Vestfjörðum en umferðin þangað liggur mikið hér í gegnum Búðar- dal. Þó höfum við orðið vör við að fólk viti ekki af þessum stað og þrátt fyrir að hafa jafnvel oft keyrt í gegn- um bæinn. Við erum hér alveg nið- ur við sjó en þeir sem fara í gegn aka oftast bara beint í gegn um bæinn. Við höfum sérstaklega orðið vör við að eldri borgarar segist oft hafa far- ið hér í gegn en ekki órað fyrir því að þessi staður væri til. Það hefur þó fleira fólk verið að koma hingað núna í sumar, kannski er það veðr- ið,“ segir Valdís. Sumarið hefur verið að lengjast í báða enda Að sögn Maríu Bryndísar Ólafsdótt- ur var sumarið sem er að líða afar gott á Hótel Stykkishólmi. Á hótel- inu eru 79 góð herbergi sem öll hafa verið gerð upp nýlega og að auki er ein lúxussvíta. „Það hefur verið full- bókað hjá okkur í allt sumar og raun hefur verið yfirbókað,“ segir María í samtali við blaðamann. „Við höfum Gott sumar hjá ferðaþjónustuaðilum á Vesturlandi Gestir á Hraunsnefi eru ánægðir með að komast í snertingu við húsdýrin. Hótel Framnes í Grundarfirði. Gott sumar var í Skökkinni á Akranesi þaðan sem þessi mynd er. Horft út úr svítunni yfir Hvalfjörðinn á einu sumarhúsinu sem leigt er út frá Hótel Glymi. Leifsbúð í Búðardal.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.