Skessuhorn - 02.09.2015, Page 13
MIÐVIKUDAGUR 2. SEPTEMBER 2015 13
Spinning:
Guðrún Daníelsdóttir og Anna Halldórsdóttir
Mánudaga og miðvikudaga kl. 17:30
Hefst 7. september
Kvenna-púl:
Leiðbeinandi: Guðrún Daníelsdóttir
Þriðjudaga kl 18.00
Hefst í byrjun september
Hádegispúl:
Íris Grönfeld íþróttafræðingur
Þriðjudaga og föstudaga kl 12.10
Vatnsleikfimi:
Kennari: Íris Grönfeld íþróttafræðingur
Konur:
Þriðjud. kl. 17.00
Fimmtud. kl. 17.00
Föstud. kl. 14.00
Karlar:
Þriðjud. kl. 18.00
Fimmtud. kl. 18.00
Þjálfari í þreksal:
Íris Grönfeld íþróttafræðingur
Mánud. kl. 14.30 – 17.30
Þriðjud. kl. 13.00 – 16.30
Fimmtud. kl. 15.00 – 16.30
Föstud. kl. 13.00 – 14.00
Íþróttamiðstöðin Borgarnesi
Vetrarstarfið 2015 – 2016
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
5
Ungbarnasund:
Byrjar í september
Auglýst nánar síðar
Leikfimi og púl hjá Þórdísi:
Mánud. og miðvikud. kl. 6:30 - 7:15
Mánud. og fimmtud. kl. 12:00 - 13:00
Þriðjud. og fimmtud. kl. 17:15 - 19:15
fundið fyrir fjölgun ferðamanna hjá
okkur með hverju árinu. Þá bæði
hvað varðar fjölda fólks og svo hef-
ur sumartímabilið okkar verið að
lengjast í báða enda.“ María segir
meira vera um erlenda ferðamenn
hjá þeim en Íslendingar hafa alveg
verið að koma líka. „Íslendingarn-
ir eru meira að koma til okkar um
helgar en erlendu ferðamennirnir
eru bæði um helgar og einnig virku
dagana. Við höfum ekkert sérstak-
lega orðið vör við fleiri Íslendinga
hjá okkur nú í sumar heldur en síð-
ustu ár, þetta er bara svipað og hef-
ur verið myndi ég haldi“. Að sögn
Maríu er enn nóg að gera hjá þeim
nú í upphafi septembermánað-
ar. „Það fer að róast, það er aldrei
jafn mikið svona á haustin eins og
á sumrin en það er samt alveg nóg
að gera hjá okkur. Framundan eru
t.d. Unaðsdagar fyrir eldri borg-
ara. Þá bjóðum við eldri borgur-
um að vera hjá okkur í fjórar næt-
ur og erum með dagskrá fyrir þá,
gönguferðir, safnaskoðanir, sigling-
ar, kvöldskemmtanir og böll. Einn-
ig eru þriggja rétta máltíðir,“ segir
María að lokum.
Mikið um Íslendinga á
tjaldsvæðinu
Húsafell hefur í áratugi verið einn
vinsælasti ferðamannastaður á Vest-
urlandi einkum yfir sumartímann.
Bergþór Kristleifsson í Húsafelli seg-
ir í samtali við blaðamann að fjölgun
ferðamanna í sumar hafi verið veru-
leg, bæði hvað varðar Íslendinga
og erlenda ferðamenn. „Hvað Ís-
lendinga og tjaldsvæðið varðar hef-
ur veðrið haft sitt að segja. Ég gæti
trúað því að það sé að minnsta kosti
helmings aukning íslenskra ferða-
manna á tjaldsvæðinu á milli ára. Ég
hef þó ekki enn nákvæmar upplýs-
ingar um það en aukningin er veru-
leg. Um leið og það fór að hlýna í
júní fór fólk að streyma til okkar, Ís-
lendingar fara þar sem veðrið er gott.
Umferðin hér í gegn hefur líka auk-
ist til muna. Þá bæði fólk sem er að
koma á tjaldsvæðið og dvelur í ein-
hvern tíma og einnig þeir sem eru
að koma í dagsferðir. Þessa aukn-
ingu má eflaust tengja við margt,
veðrið augljóslega en svo hefur ís-
hellirinn í Langjökli aðdráttarafl.
Það hafa margir verið að koma hér
við á leið upp á jökul,“ segir Berg-
þór. Hótel Húsafell var opnað nú í
sumar og að sögn Bergþórs hefur
aðsókn þangað verið vonum fram-
ar. „Það hefur ekki verið algjörlega
fullbókað, enda bjuggumst við ekk-
ert við því. Það voru þó ekki margar
nætur sem ekki voru fullbókaðar og
hefur þetta allt gengið mjög vel hjá
okkur. Við hér í Húsafelli erum al-
mennt mjög ánægð með sumarið,“
segir Bergþór að lokum.
Íslendingarnir koma
mest á ættarmót
Sumarið hefur verið mjög gott hjá
þeim á Snorrastöðum í Kolbein-
staðahreppi, segir Branddís Mar-
grét Hauksdóttir ferðaþjónustu-
bóndi í samtali við blaðamann. „Það
var fullbókað hjá okkur í næstum
allt sumar. Það var svona ein og ein
nótt sem eitthvað var laust en þær
voru þó ekki margar. Ég hef ekki
nákvæmar tölur um það hvort þetta
sumar hafi verið betra en það síðasta
en þó hef ég það á tilfinningunni að
fleiri hafi komið við hjá okkur í ár.
Það hefur verið meira um bókanir
en einnig hefur umferð hér í gegn
aukist og fólk er meira að kíkja hér
við. Ég get þó ekki sagt að við höf-
um fundið eitthvað sérstaklega fyr-
ir aukningu íslenskra ferðamanna
hjá okkur. Þetta eru meira erlendir
ferðamenn sem koma hingað. Við
höfum góða aðstöðu fyrir hópa og
Íslendingar hafa mest verið að nýta
sér þá aðstöðu, t.d. fyrir ættarmót og
slíkt,“ segir Branddís. Á Snorrastöð-
um er góð gistiaðstaða, bæði í sum-
arhúsum, sem eru að sögn Branddís-
ar mikið bókuð af ferðaskrifstofum,
en einnig er stærra húsnæði þar sem
boðið er upp á svefnpokapláss. „Það
hefur verið nóg að gera og margt
fólk hefur komið til okkar í sumar.
Við erum almennt mjög ánægð með
sumarið, þetta var heilmikið ferða-
sumar hjá okkur.“
Besta sumarið frá
upphafi í Geirabakaríi
Haldið var sumarslútt um liðna
helgi í Geirabakaríi en starfsmenn
þar eru á þriðja tug. Sigurgeir Er-
lendsson bakari segir að sumar-
ið hafi verið ævintýri líkast í við-
skiptum. „Það er einfaldlega búið
að vera brjálað að gera hjá okkur í
allt sumar. Hér hefur verið stöðug-
ur straumur ferðafólks, bæði útlend-
ingar og Íslendingar. Ég er ekki frá
því að Íslendingar hafi verið mun
fleiri en venjulega og helgast það
af góðu veðri á Vesturlandi í sum-
ar í samanburði við aðra landshluta.
Hér í héraðinu voru sumarhúsin líka
kjaftfull af fólki. Útlendingar fóru að
koma fyrr og eru enn að koma,“ seg-
ir Geiri. Hann segir að á álagstímum
hafi þau verið 15-16 að vinna í einu
í bakaríinu við framleiðslu og af-
greiðslu en það rúmist ekki fleiri en
sex við afgreiðsluna í einu. Því hafi
ekki verið hægt að anna meiri sölu.
„Þetta er búið að vera besta sumarið
frá upphafi en ég hóf rekstur bakarís
árið 1988,“ segir Geiri. Hann kveðst
hafa þurft að sjá á eftir tíu starfs-
mönnum daginn sem Menntaskóli
Borgarfjarðar hóf starfsemi sína, en
sumir þeirra standi þó helgarvaktir
samhliða náminu.
arg/grþ/mm
Hótel Stykkishólmur.
Mjög góð aðsókn hefur verið að tjaldsvæðum á Húsafelli eftir að hlýnaði í byrjun
júní. Þá hafa ísgöngin laðað fólk á svæðið og nú síðast hótelið.
Sumarhúsin á Snorrastöðum hafa verið vinsæl.
Starfsfólkið í Geirabakaríi, á myndina vantar þrjá. Geiri sjálfur er lengst til vinstri.