Skessuhorn - 02.09.2015, Side 18
MIÐVIKUDAGUR 2. SEPTEMBER 201518
vaxandi straums ferðamanna þang-
að, sækir um styrki til framkvæmda
til að stýra betur umferð um eyj-
una. Sveitarfélagið hefur verið að
skipuleggja athafnasvæðið á Trölla-
enda,“ segir Ingibjörg.
Flatey er perlan í
Reykhólasveit
Eins og Skessuhorn greindi frá í síð-
ustu viku, auk fleiri miðla, hafa íbú-
ar í Flatey líst því yfir að þeir vilji
að stjórnsýsla eyjunnar verði flutt
til Stykkishólms og eyjan verði
framvegis hluti af Stykkishólmsbæ.
„Okkur hefur enn ekki borist er-
indi frá íbúum Flateyjar en við höf-
um fundað með þeim og rætt málin.
Þau rök sem sett hafa verið fram sem
ástæður snúa flestar að samgöng-
um en mér finnst þetta vera miklu
stærra mál en það,“ segir Ingibjörg.
Hluti þeirrar þjónustu sem nefnt
hefur verið að Flateyingar sæki í
Stykkishólm er meðal annars versl-
un, læknisþjónusta og annað slíkt.
„Sú þjónusta er ekki á vegum sveit-
arfélaganna. Ég held að það myndi
ekki færa Flateyingum neitt að fara
undir Stykkishólm. En ef um það er
að ræða, þá eru sveitarfélög að gera
samninga sín á milli til að koma til
móts við íbúa,“ bætir hún við.
Ingibjörg telur að ef til vill megi
skýra hluta af óánægju Flateyinga
með því að í gegnum tíðina hafi
samskipti mátt vera meiri. „Við get-
um alveg tekið á okkur að eiga meiri
samskipti við íbúana. En við erum
auðvitað ekkert á dyratröppunum
hjá þeim. Ég veit samt ekki hvort
það er rétt að segja að þeir séu í ann-
arri stöðu en fólk á öðrum stöðum
í sveitarfélaginu hvað samskiptin
varði. Fólk velur að búa þar sem það
vill búa. Við vonumst auðvitað til að
Flateyingar skipti um skoðun,“ seg-
ir hún og tekur fram að henni þyki
Flatey órjúfanlegur þáttur af menn-
ingarsvæði Reykhólasveitar. „Flatey
er eiginlega perlan í sveitarfélaginu
og hluti af því sem gerir Reykhóla-
sveit að því sem hún er.“ Okkur
þykir vænt um fólkið sem þar býr.
Enn fremur á sveitarfélagið tölu-
vert land í Flatey, til dæmis hluta
landsins sem gamli kaupstaður-
inn stendur á og Ingibjörg segir að
auðvitað skipti það líka máli. Eng-
ar hugmyndir hafi verið settar fram
um eignarhald á því verði af hug-
myndum Flateyinga af sameiningu
við Stykkishólmsbæ.
Sundlaugin
verður opin í vetur
Á Reykhólum er mikil sundhefð,
enda hafa íbúar frá örófi alda nýtt
jarðhitann til baða. Þess er getið að
í Grettis sögu að Grettir sterki Ás-
mundarson hafi baðað sig í heitri
laug þegar hann dvaldist á Reyk-
hólum og ber núverandi sundlaug
einmitt nafnið Grettislaug. Fyr-
ir skömmu síðan stefndi í að ekki
yrði hægt að hafa sundlaugina opna
á Reykhólum í vetur vegna þess að
enginn hefði sótt um stöðu umsjón-
armanns íþróttamannvirkja. Var
lauginni lokað síðastliðinn föstudag
en nú er ljóst að íbúar Reykhóla-
sveitar geta komist í sund í vetur
líkt og verið hefur. „Tvær umsóknir
hafa borist um starf umsjónarmanns
íþróttamannvirkja og þær eru inni á
borði hjá sveitarstjóra núna. Fjór-
ar konur hér á svæðinu tóku sig
hins vegar til og buðust til að skipta
starfi sundlaugarvarðar á milli sín
og tryggja þannig lágmarksopnun,
þrjá daga í viku, þar til ráðið hefur
verið í starfið,“ segir Ingibjörg. „Ég
er ótrúlega glöð og ánægð með það
framtak og þær eiga þakkir skildar
fyrir það,“ bætir hún við. Þetta segir
hún sýna að fólki sé annt um staðinn
sinn og sé enn til vitnis um dugn-
að og eljusemi íbúanna. Fólk leggist
á eitt við að láta hlutina ganga upp
og það fylli hana bjartsýni. „Ég er
rosalega bjartsýn og trúi því alltaf að
hlutirnir fari á besta veg,“ segir Ingi-
björg Birna að lokum.
kgk
Síðasta laugardag náðist þessi
skemmtilega mynd á bænum Hömr-
um við Grundarfjörð en þarna voru
saman komnir fimm ættliðir í bein-
an karllegg. Frá vinstri eru þetta
Hafþór Orri Harðarson sem heldur
á óskírðum syni sínum. Þá Hörður
Pálsson, Páll Harðarson og Hörð-
ur Pálsson bóndi á Hömrum sem er
langalangafi þess yngsta sem kom í
heiminn nú í sumar.
tfk
Fimm ættliðir í beinan karllegg
Ingibjörg Birna Erlingsdóttir var
ráðin sem sveitarstjóri Reykhóla-
hrepps árið 2010 og hefur því gegnt
starfinu undanfarin fimm ár. Áður
var hún skrifstofustjóri Hvalfjarðar-
sveitar. Þegar Ingibjörg tók við sem
sveitastjóri Reykhólahrepps hafði
Hjalti, maðurinn hennar, unnið um
tíma við Báta- og hlunnindasýn-
inguna á Reykhólum. Að öðru leyti
voru þau ekki tengd sveitinni. „Ég
sá auglýsingu um starf sveitastjóra í
blaðinu og prófaði að sækja um. Þá
fór boltinn að rúlla. Ég fékk starf-
ið reyndar ekki í fyrstu atrennu, það
stóð til að ráða annan mann í það,“
segir hún og vísar til þess þegar þá-
verandi sveitarstjórn dró til baka þá
ákvörðun sína að ráða Gylfa Þór
Þórisson sem sveitarstjóra. „En síð-
an var hringt í mig. Ég trúi á for-
lögin, ég átti að koma hingað,“ segir
Ingibjörg og brosir.
Og hún segist alls ekki vera á leið
í burtu. „Þetta er dásamlegasti stað-
ur á jörðinni. Hann gefur manni svo
mikið til baka. Ég hef ekki fundið
það annars staðar og það á bæði við
um staðinn og fólkið. Maður kem-
ur hér inn í stóra fjölskyldu, tengsl-
in eru öðruvísi en annars staðar. Það
er eins og maður komist einu skrefi
nær fólki. Auðvitað fylgja því bæði
kostir og gallar, en fyrir mér fylgja
því fleiri kostir,“ segir Ingibjörg og
bætir því við að í Reykhólahreppi
búi duglegt og eljusamt fólki. „Við
erum tæplega 300 manna samfé-
lag með allan þennan landbúnað og
í raun frekar mikinn rekstur mið-
að við það. Í skólanum eru nær ein-
göngu menntaðir kennarar, á hjúkr-
unarheimilinu vinna menntaðir
sjúkraliðar og forstöðumaður sem er
menntaður hjúkrunarfræðingur, þá
erum við með þroskaþjálfa og iðju-
þjálfa í báðum stofnunum. Starfs-
menn Þörungaverksmiðjunnar eru
sérfræðingar á sínu sviði og ég gæti
haldið áfram. Fólk er að mennta sig,
bæta við sig þekkingu og gerir allt
af miklum metnaði og áhuga. Þetta
leiðir til þess að við stöndum uppi
með rosalega góðar stofnanir.“
Viðhald fasteigna og
framkvæmdir á döfinni
Aðspurð hvað sé á döfinni hjá
Reykhólahreppi segir Ingibjörg
að sveitarstjórn horfi meðal ann-
ars til frekara samstarfs við ná-
grannasveitarfélögin. Sameingin
sé þó ekki á dagskránni. „Það hef-
ur komið upp umræða um það, við
bæði Strandabyggð og Dalabyggð,
hvort fólk vildi horfa til samein-
ingar. En niðurstaðan er sú að það
verður ekki sameinað á næstunni,“
segir hún. Hins vegar ætla sveitar-
félögin áfram að vinna að sameigin-
legum verkefnum í þágu svæðisins.
„Við deilum til dæmis bygginga-
fulltrúa með Dalabyggð og félags-
málastjóra með Strandabyggð. Við
horfum til þess að öll sveitarfélögin
geti í framtíðinni notið góðs af því
að standa saman að fleiri verkefn-
um. Þá ætti ekki aðeins við um
stjórnsýsluna heldur gæti það líka
átt við um ýmsa stoðþjónustu, til
dæmis sálfræðiþjónustu og þess
háttar,“ bætir Ingibjörg við.
Stendur vel fjárhagslega
Sveitarfélagið stendur mjög vel,
skilaði 36 milljóna afgangi af rekstri
síðasta árs og segir Ingibjörg það
helst skýrast af auknum tekjum til
sveitarfélagsins, bæði í formi skatt-
tekna og fasteignaskatts og eins út-
hlutana úr Jöfnunarsjóði sveitarfé-
laga. „Skuldahlutfall sveitarfélags-
ins er mjög lágt þannig að skulda-
staðan er góð og hefur verið það í
langan tíma, þannig séð.“
Á næstu árum stendur til að sinna
viðhaldi á fasteignum sveitarfélags-
ins. „Við þurfum að fara að huga að
fasteignunum okkar, ganga frá göt-
um hér á Reykhólum og fleira slíkt.
Þetta er sá málaflokkur sem fyrst er
skorið niður í þegar harðnar í ári.
Nú fer einfaldlega að koma tími á
að við sinnum honum,“ segir Ingi-
björg. „Við létum byggja leikvöll
bakvið skólann í sumar og það á að-
eins eftir að ganga frá honum, auk
þess sem við ætlum að láta gróður-
setja plöntur þar næsta sumar,“ seg-
ir Ingibjörg. „Við þurfum líka að
fara að huga að vatnsveitumálun-
um í nánustu framtíð. Ef það kem-
ur til fjölgunar hér á Reykhólum þá
munum við þurfa meira vatn. Þetta
er svona heimaverkefnið okkar en
vonandi getum við á næstu árum
farið að huga að fasteignunum okk-
ar, úr því sveitarfélagið stendur jafn
vel að vígi,“ bætir hún við en tekur
fram að þó verði alltaf að hafa var-
ann á í rekstri lítilla sveitarfélaga.
„Þetta eru auðvitað ekkert miklir
peningar, þannig séð. Framkvæmd-
ir kosta sitt en ég vona að við get-
um gert eitthvað á næstu árum. Við
þurfum samt alltaf að passa okkur
og reyna að eiga einhvern sjóð ef
við skyldum verða fyrir áfalli, það
finnst mér mikilvægt.“
Einnig nefnir hún að skipulag á
innviðum sveitarfélagsins verði á
næstu árum að taka mið af vaxandi
fjölda ferðamanna. „Við verðum að
undirbúa svæðið og höfum unn-
ið deiliskipulag með það í huga að
geta tekið á móti fleira fólki í fram-
tíðinni. Við búum svo vel að Fram-
farafélag Flateyjar hefur tekið að
miklu leyti að sér skipulag vegna sí-
Ingibjörg Birna Erlingsdóttir, sveitarstjóri Reykhólahrepps
„Þetta er dásamlegasti staður á jörðinni“
Ingibjörg Birna Erlingsdóttir.
Leikvöllurinn sem byggður var bakvið skólann í sumar. Aðeins á eftir að ganga
betur frá honum og að sögn Ingibjargar stendur til að gróðursetja þar plöntur
næsta sumar.
Tvær umsóknir hafa borist um starf umsjónarmanns íþróttamannvirkja og
Grettislaug á Reykhólum verður því opin í vetur líkt og verið hefur.