Skessuhorn - 02.09.2015, Síða 19
MIÐVIKUDAGUR 2. SEPTEMBER 2015 19
Í hlýlegri íbúð á Akranesi býr Pét-
ur Gissurarson, fyrrum sjómaður og
þýðandi. Hann hefur verið búsett-
ur og starfað í landshlutanum stóran
hluta ævi sinnar, lengst af á Akranesi.
Pétur starfaði framan af sem stýri-
maður og skipstjóri hjá ýmsum út-
gerðum en sneri sér svo að þýðing-
um bóka. Hann hefur þýtt margar
bækur, meðal annars fjölda bóka eft-
ir metsöluhöfundinn Mary Higgins
Clark ásamt fleirum. Pétur er mikill
áhugamaður um stjörnuvísindi og líf
í alheiminum. Nú hefur hann sjálfur
skrifað bók og hyggur á útgáfu henn-
ar. Blaðamaður Skessuhorns settist
niður með Pétri og fékk hann til að
segja frá bókinni.
Hinn lifandi alheimur
Bók Péturs ber titilinn „Hinn lifandi
alheimur - Dans sólkerfa og vetrar-
brauta um himingeiminn. Lifandi
vitund er undirstaða Alheimsins.“
Líkt og titillinn gefur til kynna kem-
ur Pétur víða við í bók sinni. Hann
fjallar í víðum skilningi um himin-
geiminn, sólkerfið, vetrarbrautina
og breytingar á henni. Pétur lagði
mikla vinnu í skrif bókarinnar og
segist hafa endurskrifað hana þrisv-
ar sinnum. Honum hafði lengi vel
langað að skrifa bók en aldrei komist
neitt áfram í þeim málum. „Ég byrj-
aði á henni fyrir fjórum árum, þeg-
ar ég kom frá Danmörku. Ég kom
þá til Seyðisfjarðar með Norrænu
og leigði þar íbúð af dóttur minni.
Ég hafði reyndar reynt að byrja á
bók áður en gafst alltaf upp. Ég vissi
eiginlega ekki hvar ég átti að byrja,“
segir Pétur. Hann segir svo frá því að
hann hafi farið í einkatíma til Þór-
halls Guðmundssonar miðils. „Hann
segir þá við mig að ég eigi að skrifa
bók. Að ég hafi kynnt mér ýmis mál
sem fólk hafi áhuga á og vilji fá meiri
vitneskju um. Ég sagði honum að ég
hefði oft reynt en alltaf gefist upp.
Þá sagði hann mér að lesa bók Jós-
úa í Gamla testamentinu, þá viti ég
hvernig ég eigi að byrja.“
Vetrarbrautin byggð
plánetum með lífi
Pétur segir frá því að í fyrrnefndri
bók í Gamla testamentinu hafi ver-
ið sagt frá flækingshnetti sem kem-
ur nálægt jörðu löngu fyrir fæðingu
Krists og veldur ýmsum náttúru-
hamförum. „Ég fór að kynna mér
þetta og kemst að því að það skrifuðu
fimmtán mismunandi menningar-
þjóðir um þennan atburð, þegar stór
hnöttur kemur nálægt jörðu, kemur
inn í okkar sólkerfi. Aðdráttarafl hans
kippir jörðinni utar á braut umhverf-
is sólu. Aðeins stór aðvífandi him-
inhnöttur getur orsakað slíkt og af-
leiðingarnar eru jarðskjálftar, eldgos
og flóðbylgjur. Fyrir þennan atburð
var jörðin nær sólu en hún er í dag og
það þurfti því að búa til nýtt tímatal
eftir þessa heimsókn,“ útskýrir Pét-
ur. Þarna var hann kominn af stað
og upphaf bókarinnar komið. Í fram-
haldinu lýsir Pétur áhrifum hnattar-
ins á aðrar plánetur sólkerfisins og
lýsir tvíburastjörnu jarðarinnar, tví-
burasólkerfum og útbrunnum sólum.
Þá fræðir hann lesandann um sköp-
unarsögu mannsins út frá kenning-
um fræðimannsins Zekharia Sitchin,
sem tengjast meðal annars utanjarð-
arverum kölluðum Anunnaki. „Ég
varpa fram þeirri spurningu hvort
drottinn Biblíunnar gæti hafa ver-
ið flokkur geimbúa, sem jarðarbúar
kölluðu Guð og engla, vegna þess að
þeir áttu ekkert betra orð yfir þessa
gesti sem komu fljúgandi úr háloft-
unum.“ Pétur segir margt benda til
þess að Anunnaki hafi haft afskipti
af jörðu og jarðarbúum. „Það eru til
mjög gamlar frásagnir af Anunnaki í
rúnaletri Súmera og fleiri fræðimenn
hafa velt þessari spurningu fyrir sér.
Það hlýtur að vera alveg ljóst að vetr-
arbrautin er öll byggð plánetum þar
sem finna má líf. Vísindamaðurinn
Steven Hawking er sammála því,“
segir Pétur.
Ætlaði alltaf að
verða sjómaður
Pétur fæddist í Vestmannaeyjum
1935, er sonur Gissurar Ólafs Erl-
ingssonar og Mjallhvítar Linnet. Sex
ára gamall var hann sendur í sveit í
Hítarnesi í Kolbeinsstaðarhreppi,
þegar foreldrar hans skildu. Þar bjó
hann næstu tólf árin og var orðinn
átján ára þegar hann fór frá Hítar-
nesi. Pétur fór þá beint til föður síns
sem bjó að Eiðum fyrir austan. „Ég
tek landsprófið þar en vildi ekki fara
í menntaskóla. Ég ætlaði mér allt-
af að verða sjómaður.“ Pétur ræður
sig á togara og fer svo í Stýrimanna-
skólann sex árum síðar. Eftir það
var hann á sjó í Norðfirði og það-
an fór hann til Patreksfjarðar. „Þar
kynntist ég konu. Hún varð seinna
eiginkona mín og við eigum þrjú
börn saman.“ Eftir dvölina á Pat-
reksfirði fluttist Pétur út í Flatey.
Þar var hann ráðinn á bátinn Kon-
ráð sem rannsakaði lífið í Breiða-
firði áður en Þörungaverksmiðjan á
Reykhólum var reist. „Ég var ráðinn
á þennan bát í Breiðafirðinum við
að krafsa upp þang og þara. Þarna
voru kafarar með í för, það var mjög
gaman að þessu. Sigurður Hallsson
var fyrir þessu og hann var viss um
að það væri hörpudiskur í Breiða-
firði. Þarna fiskuðum við hörpu-
disk sem var landað í Stykkishólmi
og seldur til HB&Co. Við vorum
alltaf með bestu skelina, hún veidd-
ist þarna við Flatey,“ segir Pétur og
brosir. Nokkrum árum síðar flutti
fjölskyldan á Akranes þar sem Pét-
ur starfaði sem stýrimaður á ýmsum
skipum.
Missti togarann vegna
þorskastríðs
„Það endar með því að ég fæ skip-
stjórastöðu á Ver, pólskum togara
af stærri gerðinni. En þá voru ban-
sett þorskastríðin. Ég lendi þarna
í því að gæslan vill fá pólska tog-
ara til leigu. Það voru tveir togar-
ar sem komu til greina, Engeyin úr
Reykjavík og Ver á Akranesi.“ Land-
helgisgæslan leigði Ver og til stóð
að áhöfnin myndi fylgja með. „En
þeir vildu það ekkert. Ég var foxill-
ur yfir þessu, nýorðinn skipstjóri á
glæsilegu skipi og allt gekk vel, það
var gott fiskirí á þessum tíma. En ég
samþykkti að fara með þeim í fyrstu
ferðina. Í þessum túr gerðist það að
það er keyrt á Tý þannig að honum
var nánast sökkt en við forðuðumst
allar hremmingar í túrnum,“ út-
skýrir Pétur. Hann segir að siglt hafi
verið á skipið í næsta túr og sem bet-
ur fer hafi ekki verið bræla, því þá
hefði skipið sokkið.
Eftir þetta hélt Pétur áfram að
starfa hjá ýmsum útgerðum, með-
al annars hjá Guðmundi Runólfs-
syni í Grundarfirði. „Ég var í tvö ár
á Runólfi, þá hætti ég og réði mig til
Þorlákshafnar. Það voru mestu mis-
tök í atvinnu sem ég hef gert í líf-
inu að hætta á Runólfi. Það er það
eina sem ég hef virkilega séð eft-
ir,“ segir Pétur svekktur. Haustið
1980 réði Pétur sig til Kanada þar
sem hann starfaði hjá stórri útgerð
næstu fimm árin. „Þeir voru með 54
skuttogara og tólf þúsund manns á
launum. En fimm árum síðar fór ég
heim vegna barnanna.“
Snýst ekki bara um nöfn
á stjörnum
En nú hefur Pétur vent kvæði sínu í
kross og einbeitir sér að stjörnunum
í stað hafsins. „Þessi áhugi á stjörn-
unum og alheiminum hefur reyndar
blundað í mér alla tíð. Ég fór ein-
hvern tímann í svona fyrrilífslest-
ur og þar kom fram að stjörnufræ-
ðiáhuginn hefði fylgt mér í gegn-
um margar aldir, ef eitthvað er að
marka svoleiðis,“ segir Pétur léttur
í bragði. Hann segir að oft hafi ver-
ið stjörnubjart fyrir vestan. „Þá lá ég
oft á bakinu í snjónum og velti þessu
öllu mikið fyrir mér, fjarlægð stjarn-
anna og hvað skyldi vera fyrir ofan
þær og svo framvegis. Á sjónum var
ég oft fyrsti stýrimaður og mikið
einn í brúnni. Þá mátti ég passa mig
á að gleyma mér ekki við þetta. En
mín stjörnufræði snýst ekki bara um
nöfn á stjörnum, heldur alheimsvís-
indi. Þetta er allt lifandi,“ segir hann
með blik í augum. „Ég er búinn að
lesa um þetta frá því ég man eftir
mér. Ég lærði fljótt að lesa á ensku
og las ýmsar bækur og nú les ég líka
um þetta á netinu.“
Nú vinnur Pétur að útgáfu bók-
arinnar Hinn lifandi alheimur. „Ég
er búin að láta prenta hana og binda
inn og nú er bara verið að undirbúa
útgáfu hennar.“ Hann bendir á að
þeir sem hafi áhuga á að nálgast ein-
tak eftir að bókin kemur út geti afl-
að sér upplýsinga á vefsíðunni til-
vist.com.
grþ
Auglýst er laust til umsóknar starf markaðsstjóra Faxaflóahafna sf.
Í starfinu felst meðal annars
� umsjón með markaðsmálum Faxaflóahafna sf.
� umsjón viðburða, svo sem Hátíðar hafsins og fleira.
� stjórn og eftirlit með gæðamálum.
� ritstjórn heimasíðu Faxaflóahafna sf., samfélagsmiðla og útgáfa kynningarefnis.
Leitað er eftir starfsmanni sem hefur eftirfarandi til að bera:
� Að minnsta kosti þriggja til fimm ára reynslu af markaðsmálum og/eða gæðamálum.
� Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
� Færni í samskiptum við fólk og fyrirtæki.
� Góð kunnátta og færni í ensku.
� Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
Umsókn, ásamt ferilskrá með nöfnum umsagnaraðila, sendist til Faxaflóahafna sf.,
á netfangið sara@faxi.is eigi síðar en föstudaginn 18. september 2015.
Nánari upplýsingar veitir hafnarstjóri í síma 525 8900.
Markaðs- og gæðastjóri
Faxaflóahafna sf.
Skrifaði bók um stjörnuvísindi og alheiminn
Ljósmynd tekin um borð í Krossvík AK 1975. Þetta er 35 tonna hal, veitt í flottroll í
kantinum austan við Halann. Hluti áhafnarinnar sést á myndinni en Pétur sjálfur
var skipstjóri í þessari ferð og var í brúnni þegar myndin var tekin.
Pétur Gissurarson á Akranesi skrifaði bók um stjörnuvísindi og hinn lifandi alheim.