Skessuhorn


Skessuhorn - 02.09.2015, Page 23

Skessuhorn - 02.09.2015, Page 23
MIÐVIKUDAGUR 2. SEPTEMBER 2015 23 Síðastliðinn föstudag hófst söfnun á vefnum Karolinafund, þar sem safnað er fyrir stofnun kennsluvefs- ins reidmenn.com. Um er að ræða kennsluvef fyrir hestamenn, byggð- ur á hugmyndafræði Reynis Aðal- steinssonar, sem lést 2012. Reynir var lengst af búsettur í Borgarfirði og var vel þekktur í heimi íslenskr- ar hestamennsku. Er efni kennslu- vefsins byggt á efni, hugmyndum og hugmyndafræði hans. Kennslu- efnið er unnið af Reyni sjálfum og fjölskyldu hans. „Við vorum byrj- uð að vinna efnið með pabba, við vorum í raun búin að vinna við það í áraraðir að búa til kennsluefni. Sumarið 2011 vorum við kom- in með hugmynd að því að gera kennsluvef og því er töluvert til af efni sem tekið er upp það sumar,“ segir Soffía Reynisdóttir í samtali við Skessuhorn. Stigskipt námsefni Að sögn Soffíu mun vefurinn inni- halda stigskipt námsefni, upplýs- ingar um reiðkennara og fleira. „Í rauninni skiptist þetta svolítið í áfanga. Fyrstu áfangarnir eru fyr- ir byrjendur og svo er efni fyrir þá sem eru lengra komnir. Þetta er hugsað þannig að allir geti fund- ið eitthvað við sitt hæfi,“ útskýrir Soffía. Tilgangur kennsluvefsins er að auka og bæta aðgengi notenda að fróðleik og námsefni um ís- lenska hestinn, eðli hesta og reið- mennsku. „Þarna eru ýmsar að- ferðir og fróðleikur, til dæmis æf- ingar sem reiðkennarar geta not- að í sinni reiðkennslu og verkefni.“ Á vefnum ættu notendur einnig að geta fundið upplýsingar um reið- kennara og lesið sér til um hug- myndafræði þeirra og kennsluað- ferðir. „Hægt er að nálgast náms- efni, lesa um kennara og finna upp- lýsingar um námskeið á þeirra veg- um, skipuleggjendur og staðsetn- ingu námskeiða. Við viljum nota þennan vef til að styðja við okkar íslensku reiðkennara. Hluti af vefn- um er því helgaður þeim, þannig að þeir geti komið sér á framfæri.“ Nýta það besta af gömlu og nýju Soffía segir að hugmyndafræðin bak við efnið á vefnum sé að nota hest- vænar aðferðir við tamningar og þjálfun, nákvæmni í vinnubrögð- um og samskiptum við hrossin. „Og að hafa alltaf eðli og skynjun hestsins í huga. Við nýtum gaml- ar hefðir í bland við nútíma þekk- ingu um eðli og skynjum hesta. Viljum nýta það besta af gömlu og nýju.“ Efnið á vefnum skipt- ist í fjögur stig og byggist á náms- efni sem hefur verið kennt í Land- búnaðarháskóla Íslands í mörg ár. „Þetta efni hefur aldrei verið gefið út á íslensku. Þetta er bæði mynd- efni, tugir stuttra myndbanda og hellingur af texta. Efnið hefur ver- ið notað við kennslu til margra ára, bæði á námskeiðum erlendis og hefur verið uppistaðan í Reið- manninum í LbhÍ frá því að pabbi stofnaði þá deild 2005. Við getum því byrjað svolítið sterk en svo vilj- um við gera meira af efni og láta vefinn stækka. Það er draumur- inn,“ segir Soffía. Hægt að styrkja verkefnið Það er stórt og kostnaðarsamt verkefni að koma slíkum vef í loft- ið. Aðstandendur Reiðmanna og fjölskylda Reynis hafa því sett af stað söfnun á vefnum Karolina- fund, til að standa straum af þeim kostnaði sem fylgir. „Til að verk- efnið verði öflugt og skili þeim ár- angri sem stefnt er að þurfum við aðstoð. Þetta gengur þannig fyrir sig að fólk getur styrkt verkefnið og ákveðið fyrir hve háa upphæð. Kennsluvefurinn verður áskriftar- vefur og því fær fólk eitthvað fyr- ir styrkinn. Við gerum ráð fyr- ir að söfnunin sjálf taki enda eft- ir rúman mánuð. Ef ekki næst að safna þeirri upphæð sem stefnt er að, þá fellur söfnunin um sjálfa sig og við verðum að reyna að fjár- magna þetta á annan hátt.“ Soffía segir vefinn langt kominn en enn sé eftir að ljúka við að útbúa efni hans til útgáfu. „Það sem okkur vantar núna er að setja myndbönd- in inn, það er smá eftirvinnsla að gera þau. Það má því segja að vef- urinn sé sjálfur tilbúinn en innvið- irnir ekki alveg.“ Mikilvægt að miðla þekkingunni Aðstandendur vefsins vilja byrja á því að ná til íslenskra reiðmanna en sjá þó fyrir sér að hann verði þýdd- ur á fleiri tungumál þegar fram í sækir. „Þannig að Íslendingar geti miðlað sinni þekkingu til annarra landa. Sumt af þessu efni hefur nú þegar verið gefið út á þýsku og það yrði því fyrsta tungumálið sem við færum í. Þar er stærsti markhóp- urinn og mest af íslenska hestin- um. Svo væru norðurlandamál og enska næstu skref,“ segir Soffía. Hún segir marga íslenska reið- kennara fara erlendis til að kenna og þá væri gott fyrir nemend- ur þar að geta undirbúið sig fyr- ir þau námskeið. „Þá yrðu nám- skeiðin markvissari og tíminn nýt- ist betur. Við getum selt hross en við þurfum að fylgja því betur eftir með fróðleik og kennslu. Þá geta þeir sem kaupa hrossin lært að fara með þau og fengið það besta út úr þeim.“ Hún segir íslenska reið- menn sækja töluvert af þekkingu til annarra landa en það vanti upp á að íslenskri þekkingu sé miðlað út. „Og því skyldu þeir ekki geta sótt efni til okkar? Það eru margir þættir sem gætu átt erindi við aðra en þá sem eiga íslenska hestinn. Við höfum mikla þekkingu hérna á Íslandi og eigum að miðla henni, ekki bara að sækja hana annars staðar frá.“ Hægt er að styrkja verkefnið með því að fara inn á Karol- inafund eða með því að slá inn slóðina https://www.karolina- fund.com/project/view/909. grþ Stofna kennsluvef fyrir hestamenn CLARVISTA STURTUGLER FYRIR VANDLÁTA Allt í gleri ÚTI OG INNI M ynd: Josefine Unterhauser Soffía Reynisdóttir hannaði og heldur utan um kennsluvefinn, en efnið er unnið af henni og systkinum hennar. Reynir Aðalsteinsson var frumkvöðull í íslenskri hestamennsku. Fjórar sýningar að eigin vali á besta verðinu. Áskriftarkort Borgarleikhússins Vertu með í vetur! Miðasala 568 8000 | borgarleikhus.is FRUMHERJI HF. – ÞEGAR VEL ER SKOÐAÐ www.frumherji. is Búðardalur 2015 Bifreiðaskoðun verður hjá K.M. þjónustunni ehf. Vesturbraut 20 Miðvikudaginn 9. september Fimmtudaginn 10. september Föstudaginn 11. september Lokað í hádeginu kl. 12.00 – 13.00 Tímapantanir í síma 570 – 9090 Allar stærðir ökutækja skoðaðar SK ES SU H O R N 2 01 5

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.