Skessuhorn - 15.10.2015, Side 8
MIÐVIKUDAGUR 14. OKTÓBER 20158
Áskorun um
nýjan vara-
formann VG
„Ung vinstri græn skora á
Daníel Hauk Arnarsson að
gefa kost á sér til embætt-
is varaformanns Vinstri-
hreyfingarinnar græns fram-
boðs á landsfundi hreyfing-
arinnar sem fram fer á Sel-
fossi 23.-25. október,“ seg-
ir í tilkynningu. Núverandi
varaformaður VG er Björn
Valur Gíslason. Í álykt-
un ungra í VG segir jafn-
framt: „Daníel Haukur hefur
sýnt það í verki fyrir hreyf-
inguna hversu metnaðarfull-
ur, duglegur og góður leið-
togi hann er. Rekstur hreyf-
ingarinnar hefur umturnast
síðan Daníel Haukur tók við
embætti starfsmanns Vinstri
grænna. Þá telja Ung vinstri
græn að móðurflokkurinn
þurfi á ungu fólki að halda í
stjórn hreyfingarinnar. Ung
vinstri græn telja að Daníel
Haukur Arnarson sé hæfasti
maðurinn til að leiða for-
ystu Vinstrihreyfingarinnar
græns framboðs ásamt for-
manni hreyfingarinnar Katr-
ínu Jakobsdóttur.“ Ályktun-
in var samþykkt samhljóða af
landstjórn UVG.
–mm
Karlakóramót á
Suðurnesjum
LANDIÐ: Fimmtán kór-
ar og sönghópar af Austur-,
Suður- og Vesturlandi stefna
nú á kóramót á Suðurnesj-
um næstkomandi laugardag.
Alls munu 600 manns koma
saman á Kötlumóti. Katla er
samband sunnlenskra karla-
kóra og nær sambandið aust-
an frá Höfn í Hornafirði,
vestur um Suðurland og höf-
uðborgarsvæðið, að Snæ-
fellsnesi. Í sambandinu eru
nú 18 karlakórar og munu
15 þeirra taka þátt í Kötl-
umótinu sem haldið er á
fimm ára fresti. Mótið fer
þannig fram að kl. 13:00 til
15:00 verða tónleikar ein-
stakra kóra í Stapa og Bergi í
Hljómahöll, í Ytri-Njarðvík-
urkirkju og að Nesvöllum.
Fjórir kórar syngja á hverj-
um stað í 20 mínútur hver.
Tónleikagestir geta valið
úr kórum til að hlusta á og
gengið á milli staða á þá tón-
leika sem þeir kjósa. Síðdeg-
is hefjast svo stórtónleikar
kl. 16:30 í Atlantic Studios á
Ásbrú. Þá koma allir kórarn-
ir saman í einum 600 manna
risakór og syngja við undir-
leik stórhljómsveitar Tón-
listarskóla Reykjanesbæjar
sem sett er saman úr Lúðra-
sveit Tónlistarskóla Reykja-
nesbæjar og Léttsveit Tón-
listarskóla Reykjanesbæjar
undir stjórn Karenar Stur-
laugssonar. Tónleikunum
stjórnar Guðlaugur Vikt-
orsson fráfarandi stjórnandi
Karlakórs Keflavíkur. Dag-
skráin er sett saman úr tón-
list sem tengist Suðurnesj-
um. Höfundar spanna allt frá
Sigvalda Kaldalóns til Rún-
ars Júlíussonar. Einsöngvarar
verða Jóhann Smári Sævars-
son og Eyþór Ingi. Allt þetta
er í boði fyrir sama aðgöngu-
miðann sem kostar 4.900 kr.
–fréttatilk.
Rafmagnslaust
eitt kvöld
DALIR: Vinnuflokkur Rarik
fann bilun á háspennulínu á
milli Dunkárbakka og Gunn-
arsstaða í Dölum um kl. 23:15
að kvöldi síðastliðins fimmtu-
dags og lauk bráðabirgðavið-
gerð laust fyrir miðnætti. Var
þá rafmagn komið á alla not-
endur í Dalabyggð, en hluti
svæðisins var án straums
mestallt kvöldið, mislengi þó.
Fyrst tókst að gera við raf-
magnslínur áleiðis í Saurbæ
og Búðardal þar sem straum-
ur komst á að nýju klukkan
19:20.
-mm
Aflatölur fyrir
Vesturland
3. - 9. október
Tölur (í kílóum)
frá Fiskistofu
Akranes 6 bátar.
Heildarlöndun: 23.878 kg.
Mestur afli: Ebbi AK: 7.220
kg í tveimur löndunum.
Arnarstapi 1 bátur.
Heildarlöndun: 3.160 kg.
Mestur afli: Tryggvi Eð-
varðs SH: 3.160 kg í einni
löndun.
Grundarfjörður 5 bátar.
Heildarlöndun: 171.491 kg.
Mestur afli: Hringur SH:
66.590 kg í einni löndun.
Ólafsvík 6 bátar.
Heildarlöndun: 83.747 kg.
Mestur afli: Brynja SH:
23.915 kg í fimm löndunum.
Rif 10 bátar.
Heildarlöndun: 182,824 kg.
Mestur afli: Örvar SH:
64.792 kg í einni löndun.
Stykkishólmur 8 bátar.
Heildarlöndun: 55.297 kg.
Mestur afli: Hannes Andr-
ésson SH: 31.867 kg í fimm
löndunum.
Topp fimm landanir á
tímabilinu:
1. Hringur SH – GRU:
66.590 kg. 7. október
2. Örvar SH – RIF:
64.792 kg. 7. október
3. Berglín GK – GRU:
54.483 kg. 8. október
4. Saxhamar SH – RIF:
50.302 kg. 7. október
5. Helgi SH – GRU:
46.440 kg. 4. október
mþh
Skólanefnd Fjölbrautaskóla Akra-
ness lýsir í áskorun til Illuga Gunn-
arssonar menntamálaráðherra yfir
þungum áhyggjum vegna þess
ástands sem nefndin segir nú ríkja
innan veggja Fjölbrautaskóla Vest-
urlands. Nefndin krefst þess að
menntamálaráðuneytið grípi þeg-
ar inn í til lausna á þeirri ágrein-
ingsstöðu sem komin er upp innan
skólans. Síðastliðinn föstudag sendi
skólanefndin eftirfarandi áskorun:
„Fulltrúar í skólanefnd FVA hafa
miklar áhyggjur af þeirri stöðu sem
nú er komin upp í skólanum. Að-
stoðarskólameistara hefur verið sagt
upp störfum eftir aðeins tvo mán-
uði í starfi og mikil ólga hefur verið
í hluta kennarahópsins vegna sam-
skipta við skólameistara frá því á
sl. vorönn. Nefndin krefst þess að
mennta- og menningarmálaráðu-
neytið grípi nú þegar inn í og leiti
leiða til að leysa úr þeim vanda sem
verður ósennilega leystur án aðstoð-
ar utanaðkomandi sérfræðinga.“
Reynir Eyvindarson formað-
ur skólanefndar segir í samtali við
Skessuhorn að nefndin hafi ekki
fengið formleg svör við þessu frá
ráðuneytinu. „Ég heyri það í fjöl-
miðlum að Illugi Gunnarsson
menntamálaráðherra sé víst búinn að
lofa því að fara í málið. Ég og skóla-
meistari FVA áttum stuttan fund nú
á mánudag en það kom frekar lítið
fram á honum. Hún sagði mér þó að
það yrði eitthvað að frétta af málinu
í lok vikunnar.“
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir þá
náði Skessuhorn ekki tali af Illuga
Gunnarssyni menntamálaráðherra
við vinnslu fréttarinnar.
Kennarar ævareiðir
Kennarar við Fjölbrautaskóla
Vesturlands sendu menntamála-
ráðuneytinu kvörtun í vor vegna
þeirra aðstæðna sem þá voru uppi
hjá skólanum, en ráðuneytið ákvað
að aðhafast ekki. Í ljósi atburða
síðustu daga og uppsögn aðstoðar-
skólameistara sendu kennarar aðra
kvörtun til ráðuneytisins síðastlið-
inn föstudag og óskuðu eftir fundi
með ráðherra. Þá hafa þeir verið í
sambandi við forráðamenn Félags
framhaldsskólakennara. Óánægja
þeirra nú snýr aðallega að upp-
sögnum, kostnaðarsömum nið-
urskurði sem ráðist hefur verið í
við skólann og stjórnunarháttum
skólameistara. Nokkrir starfsmenn
skólans hafa í samtali við Skessu-
horn lýst ástandinu innandyra sem
algjörlega óþolandi, skólinn sé
vart starfhæfur nú eftir að aðstoð-
arskólameistara var sagt upp störf-
um og hann látinn yfirgefa bygg-
inguna.
mþh
Skólanefnd kallar eftir því
að ráðherra grípi inn í
Í frétt á síðu 14 í Skessuhorni
7. október sl. er sagt frá brott-
rekstri Hafliða Páls Guðjónsson-
ar úr stöðu aðstoðarskólameistara
við Fjölbrautaskóla Vesturlands. Í
fréttinni er það haft eftir Reyni Þór
Eyvindssyni formanni skólanefndar
að ráðning Hafliða nú í sumar hafi
verið án samráðs við skólanefnd og
ekki rengi ég það. En það er einnig
haft eftir Reyni Þór að fyrrverandi
skólameistarar hafi ekki borið ráðn-
ingar í stöðu aðstoðarskólameistara
undir nefndina. Sé þetta rétt eft-
ir honum haft þá hefur hann trú-
lega ekki kynnt sér málið, því ráðn-
ing aðstoðarstjórnenda í minni tíð
var í góðu samráði við skólanefnd-
armenn.
Ég var skólameistari frá 2011 til
2014 og í ágúst 2011 réð ég aðstoð-
arskólameistara. Ég sendi öllum
skólanefndarmönnum afrit af um-
sóknum sem bárust um starfið þann
3. ágúst 2011. Ég kallaði nefndina
á fund um ráðninguna daginn eft-
ir, þann 4. ágúst. Einnig ráðfærði
ég mig við nefndina þann 12. ágúst
sama ár vegna ráðningar áfanga-
stjóra.
Eftir þetta réð ég einu sinni að-
stoðarskólameistara tímabund-
ið þegar sá sem ég réð 2011 fór í
námsorlof á miðju ári 2014. Ég
greindi skólanefnd frá fyrirhug-
aðri ráðningu á fundi 4. mars 2014
og bar val mitt á umsækjanda und-
ir þáverandi formann nefndarinnar,
Dagbjörtu Guðmundsdóttur, áður
en ég gekk frá ráðningu. Þar sem
aðeins var um tímabundna afleys-
ingu að ræða var ekki haldinn sér-
stakur skólanefndarfundur um mál-
ið.
Kær kveðja,
Atli Harðarson
Athugasemd frá Reyni
Eyvindarsyni
Eftir að tilkynning Atla Harð-
arsonar fv. skólameistara, hér að
ofan, birtist á vef Skessuhorns,
vildi Reynir Eyvindarson formað-
ur skólanefndar FVA koma eftir-
farandi að: „Það var haft eftir mér
í grein í Skessuhorni 7. október sl.
að fyrrverandi skólameistarar hafi
ekki borið ráðningar í stöðu að-
stoðarskólameistara undir nefnd-
ina. Atli Harðarson leiðrétti mig
hér í blaðinu í dag. Þetta er rétt
eftir mér haft. Ég hafði mínar upp-
lýsingar frá þeim nefndarmanni
sem starfað hefur lengst í nefnd-
inni. Þessar upplýsingar mínar
virðast hafa verið rangar, og biðst
ég velvirðingar á því. Hinsveg-
ar hefði það ekki haft nein áhrif á
framvindu þessa máls núna, hvort
nefndin teldi sig eiga að vera með
í ráðum eða ekki, því búið var að
ákveða ráðninguna þegar ég fékk
upplýsingar um hana. Reynir Ey-
vindsson, formaður skóanefndar
FVA.“
mm
Fyrrum skólameistari bar
ráðningar undir skólanefnd
Reynir Þór Eyvindarson.Atli Harðarson var skólameistari FVA
frá 2011 til 2014.