Skessuhorn


Skessuhorn - 15.10.2015, Síða 22

Skessuhorn - 15.10.2015, Síða 22
MIÐVIKUDAGUR 14. OKTÓBER 201522 Landssamtök skógareigenda hélt sinn átjánda aðalfund í Stykkis- hólmi dagana 2. og 3. október í samstarfi við Félag skógarbænda á Vesturlandi. Um 90 skógarbændur og gestir mættu til fundar. Dagskrá- in hófst kl 14 á föstudag með venju- legum aðalfundarstörfum, skýrslum formanns Lse, Jóhanns Gísla Jó- hannssonar og framkvæmdastjóra Lse, Hrannar Guðmundsdóttur. Gestir sem ávörpuðu fundinn voru Sigrún Magnúsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra, Sigurgeir Sindri Sigurgeirsson formaður Bænda- samta Íslands og Þröstur Eysteins- son fagmálastjóri Skógræktar ríkis- ins. Málþing var haldið í teng- slum við aðalfundinn. Í fyrri hluta málþingsins var rætt um fjölbreyttar nytjar úr skógi. Hulda Guðmunds- dóttir flutti erindi um asparnytjar á Fitjum og Hraundís Guðmunds- dóttir erindi um vinnslu á ilmkjar- naolíu úr skógarnytjum á Rauðsgi- li. Í seinni hluta málþingsins flut- ti Valgerður Jónsdóttir framkvæm- dastjóri Norðurlandsskóga erindi um árangursmat í skógrækt. Ges- tum málþingsins var skipt í fimm hópa þar sem farið var yfir nokkrar spurningar um skógræktarfram- kvæmdir og leiðir til úrbóta. Aðalfundi var framhaldið á lau- gardeginum með afgreiðslu mála og kosningu. Af málum sem voru til umfjöllunar má nefna fyrirhuguða sameiningu landshlutaverkefnan- na og Skógræktar ríkisins, fjárveit- ingar til skógræktarmála og greiðs- lu vegna kolefnisbindingar til skó- garbænda. Að loknum aðalfundi tók Félag skógarbænda á Vesturlandi við og bauð til skógargöngu og þar á eftir til árshátíðar skógarbænda. Áður en haldið var út í skóg fengu skógarbændur kynningu hjá Sigur- birni Einarssyni á sprotafyrirtækinu Rootopia og nýja tækni við vé- lvæðingu á framleiðslu lífefldra hnausaplantna. Síðan var gengið út í skóg þar sem Trausti Tryggvason formaður Skógræktarfélag Styk- kishólms leiddi hópinn í gegnum skóginn í Grensási og sagði frá star- fi skógræktarfélagsins. Jötunnvélar ehf. var með kynningu m.a. á skó- garverkfærum, eldstæðum og tor- færubíl meðan á fundi stóð og út í skógi. Þar var einnig til sýnis kep- pavél frá fyrirtækinu Rootopia sem Haraldur Magnússon í Belgsholti hefur hannað og smíðað að hluta og kurlara frá Daníel Þórarinnssyni Stapaseli. Vesturlandsskógar og Jö- tunn vélar ehf. buðu upp á veitingar í skjólgóðum lundi í skóginum. Að lokinni skógargöngu var ár- shátíð skógarbænda haldin undir öruggari stjórn Sigurgeirs Sindra sem var veislustjóri. Lárus Ástmar Hannesson söng, Ingi Hans Jóns- son sagði skemmtisögur og Sig- urkarl Stefánsson sá um undirleik fyrir fjöldasöng. Stykkishólmsbær, Vesturland- sskógar, Jötunnvélar ehf, Barri ehf, Eðalfiskur og Steðji Brugghús voru styrktaraðilar aðalfundarins og þak- kar Félag skógarbænda á Vestur- landi þessum aðilum fyrir góðan stuðning. Fh. Félags skógarbænda á Vesturlandi Guðmundur Sigurðsson Þessi fimm orða setning er tiltölu- lega ný í orðanotkun okkar Íslend- inga, reyndar alls ekkert gömul ef spáð er í það. Nú gengur tölu- verður hluti af besserwisserum með höfuðið hátt inn í kaffistofuna vopnaðir 4G tengingu og baða sig upp úr því að geta loks rekið ofan í fólk hrein- an og ófilteraðan sannleik- ann beint af beljunni. Ég hef orðið vitni að svona umræðu, hún var stórbrot- in ef eitthvað er. En hún er að vissu leyti ósann- gjörn því hún byggist fyrst og fremst á hæfni einstak- lingsins til að finna upplýs- ingarnar á netinu sem og snjallputtafimi. Byrjað var hægt á að ræða um innihaldslýsingar á kexpökkum því tveir af pallborðsmeðlimum voru í aðhaldi og niðurstaðan hjá tveim- ur var að þetta kex var gríðarlega óhollt og beinlínis stórhættulegt til manneldis. Það ætti að banna þetta kex og ég veit ekki hvað. En þá stökk upp sannindariddar- inn sem hafði setið í einu horninu, vopnaður einu nothæfu netteng- ingunni og sagði að frumflytjend- ur umræðunnar hefðu rangt fyrir sér. Orkuinnihald kexins væri ekki mælt í kalóríum heldur kílójúlum og það væri ekki eins óhollt og þau vildu meina. Veifandi björtum snjallsímaskjá framan í andlitið á andmælendum sínum þá sá ég beinlínis vellíðunar- straumana streyma um andlit bes- serwissersins því hann hafði rétt fyrir sér. Upphófst mikil og hat- römm umræða, því önnur hliðin hafði ekki tryggt sér nýjustu upp- færslu hugbúnaðarrisans og var því að vinna einungis á vinstri heila- stöðinni. Upphafsmaður umræðu- nar hélt því fram að það væri alger fásinna að mæla orku kexpakkans í kílójúlum, hvað væru kílójúl eig- inlega og efaðist um tilvist þeirra. Kalóríur væru það sem verið væri að skoða og eins og við vitum þá eru kalóríur helsti óvinur miðaldra manna og fólks í yfirvigt. Mér stóð hreinlega ekki á sama um stund því jú vissulega er orka matvæla mæld með kílójúlum, sérstakur brennslu- ofn er notaður til að fá nákvæma tölu en þetta eiga nerðir bara að vita. Ég blandaði mér ekk- ert í umræðuna því mér var annt um heilsu mína, var líka að borða ávöxt frá fjar- lægu landi sem ég veit ekk- ert um hvort hafi verið úð- aður formalíni því hann leit út eins hann væri nýtínd- ur. Svo var líka um að ræða tvo besserwissera, annar með nettengingu en hinn ekki svo að umræðan var í baklás. Með sveitta putta á báðum símum gaf hvorugur sig og málið var látið niður falla, eða hjá öðrum þeirra. Þá segir hinn að lok- um; ,,við skulum vera sammála um að vera ósammála,” en það er óljós viðurkenning þverhaussins á því að hafa rangt fyrir sér. Ég sakna gamla tímans, tímans þar sem fólk eyddi tíma í að undirbúa sig undir kapp- ræður kaffistofunar. Ef engin nið- urstaða fékkst í málið urðu báðir aðilar að sætta sig við að hafa hvor- ugt rétt fyrir sér, niðurstaðan kom síðar. Axel Freyr Eiríksson, Borgarfirði Í tilfefni af Rökkurdögum sem nú standa yfir í Grundarfirði var sleg- ið upp markaði í Samkomuhúsi bæjarins laugardaginn 10. október. Þar kenndi ýmissa grasa og hægt að gera góð kaup. Kvenfélagið var svo með kaffisölu á markaðnum. Auk þessa hafa verið tónleikar, sýningar, skrafl og skemmtilegheit í Grund- arfirði, svo fátt eitt sé nefnt. Rökk- urdagar ná hámarki sínu og enda með fiskiveislunni miklu næstkom- andi laugardag og kvikmyndahátíð- inni Northern Wave. tfk Pennagrein Ég sá það á gúgle Aðalfundur Landssambands skógareigenda Hluti fundarmanna á aðalfundi Lse. Slegið var upp harmonikkuballi á Dvalarheimilinu Fellaskjóli. Þar lék Tryggvi Gunnarsson vel valin lög fyrir gesti og vistmenn og féllu ljúfir tónarnir vel að eyrum. Svo voru einhverjir sem stóðust ekki mátið og stigu léttan dans. Rökkurdagar standa yfir í Grundarfirði Frá markaðnum í Samkomuhúsinu. Á fimmtudaginn var sýningin „Konurnar okkar“ haldin í Sögumiðstöðinni. Vegleg myndasýning var í Bæringsstofu og hinir ýmsu munir til sýnis. Meðal efnis á sýningunni voru afrit af upprunalegum undirskriftarlistum Snæfellskra kvenna frá því um aldamótin 1900 þar sem þær hvöttu Alþingi til að setja lög um frjálsan kosningarétt kvenna. Það voru þær Guðrún Björg Guðjónsdóttir, Sunna Njáls- dóttir og Þórunn Kristinsdóttur sem stóðu fyrir þessari áhugaverðu sýningu. Hljómsveitin Ylja spilaði á Rúben sl. miðvikudag. Þetta var fyrsti dagskrárliður Rökkurdaga. Vel var mætt og voru gestir staðarins himinlifandi með flutning hljómsveitarinnar.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.