Skessuhorn


Skessuhorn - 15.10.2015, Page 27

Skessuhorn - 15.10.2015, Page 27
MIÐVIKUDAGUR 14. OKTÓBER 2015 27 Vinir Elísu Margrétar, tveggja ára stúlku sem ættuð er af Snæfellsnesi, söfnuðu töluverðum upphæðum á styrktartónleikum sem fram fóru í Austurbæ í Reykjavík í síðustu viku. Elísa Margrét fæddist með al- varlegan og sjaldgæfan heilasjúk- dóm sem kallast Lissencephaly og þarf stöðuga umönnun allan sólar- hringinn. Innan við þúsund börn í heiminum eru með sjúkdóminn. Markmið styrktartónleikanna var að safna fyrir sérútbúnum bíl fyr- ir foreldra Elísu Margrétar, þau Gyðu Kristinsdóttur og Hafstein Vilhelmsson. Elísu Margréti fylgja margvísleg tæki vegna sjúkdómsins og var núverandi bíll fjölskyldunn- ar orðinn of lítill. Eru í skýjunum Það voru bræðurnir Nökkvi Fjal- ar og Jóhann Fjalar Orrasynir sem stóðu fyrir tónleikunum. Að sögn Nökkva fór söfnunin fram úr björt- ustu vonum og eru vinir Elísu Mar- grétar í skýjunum. „Þetta byrjaði með því að bróðir minn segir mér að hann vilji halda styrktartónleika til að safna fyrir bíl handa þeim. Svo vatt þetta upp á sig og það voru margir sem tóku þátt í því að gera þetta að veruleika. Það er svo dásamlegt þegar boltinn fer að rúlla svona. Þannig að það sem byrjaði sem eitt símtal varð mun stærra og við erum bara í skýjunum,“ segir Nökkvi í samtali við Skessuhorn. Fjölmargir listamenn komu fram á tónleikunum, ásamt bræðrunum sjálfum. „Það var fullt af fólki sem lagði sitt af mörkum og allir voru tilbúnir til að taka þátt í þessu, það var mikil fjölbreytni. Þarna voru Friðrik Dór, MC Gauti, Hafdís Huld og fleiri. Við tókum svo lag- ið sjálfir í lokin og fundum stemn- inguna sem var í salnum. Þetta var eftir þriggja tíma dagskrá en það var ennþá orka í salnum og allir glaðir,“ útskýrir hann. Fengu afhenta bíllykla á tónleikunum Húsfyllir var á tónleikunum og í tvígang þurfti að prenta fleiri miða í happadrætti sem haldið var samhliða. Ekki hefur verið tek- ið saman hversu mikið safnaðist en Nökkvi telur það vera á fjórðu milljón króna. „Ég myndi halda að á þessu kvöldi hafi safnast í kring- um þrjár milljónir og svo komu um 700 þúsund inn á styrktarreikn- inginn. Þetta kom úr mörgum átt- um. Nemendur Verzló og MR fóru til dæmis í keppni um hvor myndi safna meiri peningum og það komu 570 þúsund þaðan.“ Á tónleikun- um afhentu svo bræðurnir foreldr- um Elísu Margrétar lykla að nýjum Toyota Avensis hlaðbak. „Við sett- um okkur markmið og þeir hjá To- yota voru tilbúnir að brúa bilið ef þyrfti. Markmiðið náðist og þar af leiðandi var tilbúinn bíll fyrir þau fyrir utan Austurbæ. En bílakaupin eru auðvitað eitthvað sem þau velja sér sjálf en þessi bíll er tilbúinn fyrir þau ef þau vilja,“ segir Nökkvi. Að endingu vill hann nota tækifærið og færa öllum þeim sem komu að tónleikunum þakkir. „Við bræður stóðum ekki einir í þessu, það voru fjölmargir aðrir sem gerðu þetta að veruleika og við viljum þakka þeim fyrir allt og fyrir að gera draum okkar og þeirra foreldranna að veruleika.“ Styrktarreikningur Elísu Mar- grétar er alltaf opinn fyrir frjáls framlög til styrktar fjölskyldunni: 0326-22-953 og kt: 510714-0670. grþ Söfnun vina Elísu Margrétar fór fram úr björtustu vonum Elísa Margrét með foreldrunum Gyðu Kristjánsdóttur og Hafsteini Vilhelmssyni. Ljósm. mbl/Golli. Eins og Skessuhorn hefur greint frá áður stendur yfir ritun á sögu Borg- arness. Hófst vinnan í ársbyrjun 2014 og var áætlað að gefa hana út í mars 2017 þegar 150 ár verða liðin frá því að Borgarnes varð löggiltur verslun- arstaður. Egill Ólafsson, sagnfræð- ingur og blaðamaður, vann að ritun- inni en eftir skyndilegt fráfall hans í janúar síðastliðnum var Heiðar Lind Hansson, einnig sagnfræðingur og blaðamaður, ráðinn til verksins. Að sögn Heiðars var í upphafi gert ráð fyrir því að sagnaritari skilaði af sér handriti í lok þessa árs og eins og staðan er í dag bendi ekkert til annars en að þær áætlanir standist. Frá byrj- un hafi legið fyrir að á næsta ári verði unnið að frágangi og öðrum undir- búningi fyrir prentun. Allt útlit sé því fyrir að saga Borgarness komi út á 150 ára afmæli bæjarins í mars 2017, eins og áætlað var í upphafi. kgk Ritun á sögu Borgarness er vel á áætlun Heiðar Lind Hansson vinnur að ritun sögu Borgarness. Hann segir ekkert benda til annars en að áætlaður útgáfutími standist. Sjéntilmannaklúbburinn á Bifröst lét gott af sér leiða á dögunum með því að gefa börnum á leikskólan- um Hraunborg smá glaðning líkt og klúbburinn hefur gert undanfar- in fimm ár. „Þetta árið var börnun- um gefin buff, mappa og sundpoki sem allt eru mikilvægir hlutir hjá börnum á þessum aldri. Sundpok- inn nýtist vel í sundferðir fjölskyld- unnar í pottasvæðið á Bifröst eða sundlaugina í Borgarnesi og buffið getur kemur sér vel utan um blautt hárið. Mappan hentar svo mjög vel fyrir öll listaverkin sem börnin gera á Hraunborg og því gott að nýta hana þegar kemur að því að ferja listaverkin heim úr leikskólanum,“ segir í tilkynningu frá klúbbnum. Sjéntilmannaklúbburinn Bifröst leitaði stuðnings Arion banka og Vífilfells líkt og undanfarin ár og voru þessi fyrirtæki tilbúin í verk- efnið. „Fyrir það erum við þakklát- ir og það er okkar von að gjafirnar hafi komið að góðum notum og að börnin séu ánægð með þær,“ sagði Hallur Jónasson formaður Sjen- tilmannaklúbbsins á Bifröst. Árin áður hafa Sjéntilmenn meðal ann- ars gefið leikskólabörnum vatns- brúsa, derhúfur, buff, sundpoka, handklæði, endurskinsmerki og fleira. mm Séntilmenn gáfu leikskólabörnum gjafir Nýverið var haldin nokkurs kon- ar listahelgi í Borgarnesi. Um var að ræða svokallaða pop-up listahá- tíð og voru viðburðir á nokkrum stöðum í bænum, svo sem leirlista- smiðja, gjörningar og fleira. Þá var opin vinnustofa í húsnæði Hug- heima þar sem Michelle Bird, Kúba Urbaniak og Marcin Stachewicz stóðu fyrir verkefninu „Búa marg- ir í snjóhúsi á Íslandi?“. Reisti lista- fólkið „snjóhús“ úr hvítum plast- fötum sem búið var að skreyta. „Einn af þeim sem var með þet- ta verkefni vinnur á veitingahúsi í Reykjavík og hann hafði tekið eft- ir því að eftir hverja vakt er plast- fötum hent í ruslið. Hver fata ko- star á bilinu þrjú til fjögurhundruð krónur og honum fannst það mikil sóun. Hann fékk því að eiga fötur- nar sem átti að henda og nýtti þær í að búa til þetta snjóhús,“ segir Sig- ursteinn Sigurðsson formaður Vit- brigða Vesturlands. Það fengu svo allir sína fötu til að skreyta og að endingu var fötunum raðað saman í eitt snjóhús. Tilgangurinn með verkinu var að nýta sköpunarhæ- fileikana til að finna gömlum hlu- tum nýjan tilgang og endurvinna. Að sögn Sigursteins mun verkef- nið halda áfram en hugmyndir eru uppi um að halda aðra sambærile- ga hátíð og þá verði verkið klárað. „Snjóhúsið mun standa í miðrými hússins við Bjarnarbraut 8 í Borgar- nesi í nokkrar vikur. Það er hægt að skoða það og svo geta gestir og gan- gandi líka komið og skreytt lokin, “ segir Sigursteinn að endingu. grþ / Ljósm. Rosso & Urbaniak. Snjóhús úr fötum reist í Borgarnesi Snjóhúsið stendur í miðrými Stjórnsýsluhússins í Borgarnesi. Hægt er að taka þátt í að skreyta lokin sem enn eru óskreytt. Sumar föturnar eru skreyttar að innan með ýmsum hlutum sem annars hefðu endað í ruslinu.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.