Fréttablaðið - 07.11.2019, Side 6

Fréttablaðið - 07.11.2019, Side 6
SAMGÖNGUR Sigurður Friðleifs- son, framkvæmdastjóri Orkuset- urs, segir að RARIK sem hafi haft umsjá með ljósastaurum í mörgum sveitarfélögum sé að færa þeim þá aftur. Alls eru um 81 þúsund staurar í landinu. „Sveitarfélögin hafa þurft að taka ákvörðun um að skipta yfir í LED og mér, sem áhugamanni um orkusparnað, finnst mikilvægt að þau nýti tækifærið nú þegar þau eru að fá þá í fangið,“ segir hann. Að sögn Sigurðar hefur LED aug- ljósa kosti. Ekki aðeins orkusparnað upp á um 70 prósent, heldur einn- ig langtum minni viðhaldsþörf, vinnusparnað og betri endingu. Í f lestum núverandi staurum þarf að skipta um perur á 3 til 5 ára fresti, en LED-perur duga í áratugi. Annar kostur er betri stýring stauranna, bæði á styrk og hvert ljósinu er beint. „Hægt er að deyfa ljósið þegar fáir eru á ferð eða lýsa eftir skynj- urum,“ segir Sigurður. LED-væðing Reykjavíkurborgar er komin af stað að sögn Ársæls Jóhannssonar, verkefnastjóra. Hópur skipaður af borgarstjórn er nú að fara yfir tillögur þverfaglegrar nefndar um ljósvist. Býst Ársæll við því að þetta verði tilkynnt sem stefna borgarinnar eftir áramót. „Við erum búin að setja upp 2.200 LED-lampa í Fossvoginum og í Vesturbænum eru komnir um 600 lampar með gamaldags útliti. Þá erum við einnig í lokaútboðsferli varðandi lampa í Efra-Breiðholti og Seljahverfi sem á að skipta út í heild sinni,“ segir Ársæll. Alls eru tæplega 30 þúsund ljósastaurar í Reykjavík. Borgin sjálf hefur umsjón með 24 þúsund staurum en Vegagerðin sex þúsund. „Við gerðum nýlega saman- tekt á þessu og áætlum að LED-væð- ingin klárist á fimm árum. Í útboði gerum við kröfu um 100 þúsund logtíma, sem er um 25 ár.“ Reykjavíkurborg kaupir alla LED- lampa með ákveðnum tengli sem gerir kleift að eiga samtal við staur- inn. Hægt er að fylgjast með ástandi lampans í rauntíma og hann lætur vita af bilunum. „Við þurfum ekki lengur að vera að kveikja á heilu hverfunum og keyra um til að finna ónýtar perur. Þetta breytir öllu verkferlinu,“ segir Ársæll. Helsti ókosturinn við LED er að startkostnaðurinn er nokkuð hár, en skipta þarf um allan kúpulinn á staurnum. Gert er þó ráð fyrir að þetta borgi sig upp á sex til sjö árum. Í Hafnarfirði þar sem LED- væðing hófst í mars árið 2018 fyrir 5.900 staura, var gert ráð fyrir að hver lampi kostaði á bilinu 30-50 þúsund krónur. A nd r i Teit s son, for maðu r umhverfis- og mannvirkjasviðs Akureyrar, segir að búið sé að setja upp lampa í nokkrum hverfum og stefnt að því að klára LED-væðing- una á fimm til átta árum. „Við fáum markvissari og sumir segja betri lýsingu. Til dæmis getum við beint ljósinu beint niður og þá verður minni ljósmengun,“ segir hann. kristinnhaukur@frettabladid.is Sveitarfélög LED-væða ljósastaura næstu árin Sveitarfélögin vinna nú að því að LED-væða ljósastaura. Reykjavík áætlar að verkefninu ljúki á 5 árum og Akureyringar ætla því 5 til 8 ár. LED-lamparnir þýða mun betri stýring og viðhald. Hver lampi borgar sig upp á 6 til 7 árum. Sveitarfélögin hafa þurft að taka ákvörðun um að skipta yfir í LED og mér, sem áhuga- manni um orkusparnað, finnst mikilvægt að þau nýti tækifærið nú þegar þau eru að fá þá í fangið. Sigurður Friðleifs- son, framkvæmda- stjóri Orkuseturs 31. okt — 14. nóv hverfidmitt.is Kosning Afgreiðslutímar á www.kronan.is til jóladagana ... Teljum niður Pssst ... Úrvalið er mismunandi eftir verslunum Stendur undir nafni STJÓRNSÝSLA Stöðugildum hjá Rík- islögreglustjóra hefur fjölgað um átta á síðustu tíu árum. Þau fóru úr 126 árið 2008 í 134 árið 2018. Mest er fjölgunin í hópi aðalvarðstjóra og lögreglufulltrúa. Á sama tíma hefur stöðugildum hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu fækkað um 42 stöðugildi. Þau voru 411 árið 2008 en 369 á síðasta ári. Þetta kemur fram í svari dómsmálaráðherra við fyrir- spurn Unnar Brár Konráðsdóttur, varaþingmanns Sjálfstæðisflokksins. Greiðslur til beggja embætta hækkuðu umtalsvert á tímabilinu. Ríkislögreglustjóri fékk 1.200 millj- ónir úr ríkissjóði árið 2008. Í fyrra fékk embættið 1.901 milljón úr ríkis- sjóði. Greiðslur úr ríkissjóði til lög- reglunnar á höfuðborgarsvæðinu voru 2.930 milljónir árið 2008 en hækkuðu jafnt og þétt og voru 4.847 milljónir í fyrra. – aá Fjölgað hefur í starfsliði Ríkislögreglustjóra Haraldur Johannessen er ríkislögreglustjóri. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Alls standa 81 þúsund ljósastaurar um land allt. Nokkrir LED-staurar lýsa upp Hringbraut. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI 7 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 7 -1 1 -2 0 1 9 0 5 :0 2 F B 0 5 6 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 2 B -E F 2 0 2 4 2 B -E D E 4 2 4 2 B -E C A 8 2 4 2 B -E B 6 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 5 6 s _ 6 _ 1 1 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.