Fréttablaðið - 07.11.2019, Qupperneq 6
SAMGÖNGUR Sigurður Friðleifs-
son, framkvæmdastjóri Orkuset-
urs, segir að RARIK sem hafi haft
umsjá með ljósastaurum í mörgum
sveitarfélögum sé að færa þeim þá
aftur. Alls eru um 81 þúsund staurar
í landinu. „Sveitarfélögin hafa þurft
að taka ákvörðun um að skipta yfir
í LED og mér, sem áhugamanni um
orkusparnað, finnst mikilvægt að
þau nýti tækifærið nú þegar þau eru
að fá þá í fangið,“ segir hann.
Að sögn Sigurðar hefur LED aug-
ljósa kosti. Ekki aðeins orkusparnað
upp á um 70 prósent, heldur einn-
ig langtum minni viðhaldsþörf,
vinnusparnað og betri endingu. Í
f lestum núverandi staurum þarf að
skipta um perur á 3 til 5 ára fresti,
en LED-perur duga í áratugi. Annar
kostur er betri stýring stauranna,
bæði á styrk og hvert ljósinu er
beint. „Hægt er að deyfa ljósið þegar
fáir eru á ferð eða lýsa eftir skynj-
urum,“ segir Sigurður.
LED-væðing Reykjavíkurborgar
er komin af stað að sögn Ársæls
Jóhannssonar, verkefnastjóra.
Hópur skipaður af borgarstjórn er
nú að fara yfir tillögur þverfaglegrar
nefndar um ljósvist. Býst Ársæll
við því að þetta verði tilkynnt sem
stefna borgarinnar eftir áramót.
„Við erum búin að setja upp 2.200
LED-lampa í Fossvoginum og í
Vesturbænum eru komnir um 600
lampar með gamaldags útliti. Þá
erum við einnig í lokaútboðsferli
varðandi lampa í Efra-Breiðholti og
Seljahverfi sem á að skipta út í heild
sinni,“ segir Ársæll. Alls eru tæplega
30 þúsund ljósastaurar í Reykjavík.
Borgin sjálf hefur umsjón með 24
þúsund staurum en Vegagerðin sex
þúsund. „Við gerðum nýlega saman-
tekt á þessu og áætlum að LED-væð-
ingin klárist á fimm árum. Í útboði
gerum við kröfu um 100 þúsund
logtíma, sem er um 25 ár.“
Reykjavíkurborg kaupir alla LED-
lampa með ákveðnum tengli sem
gerir kleift að eiga samtal við staur-
inn. Hægt er að fylgjast með ástandi
lampans í rauntíma og hann lætur
vita af bilunum. „Við þurfum ekki
lengur að vera að kveikja á heilu
hverfunum og keyra um til að finna
ónýtar perur. Þetta breytir öllu
verkferlinu,“ segir Ársæll.
Helsti ókosturinn við LED er að
startkostnaðurinn er nokkuð hár,
en skipta þarf um allan kúpulinn
á staurnum. Gert er þó ráð fyrir
að þetta borgi sig upp á sex til sjö
árum. Í Hafnarfirði þar sem LED-
væðing hófst í mars árið 2018 fyrir
5.900 staura, var gert ráð fyrir að
hver lampi kostaði á bilinu 30-50
þúsund krónur.
A nd r i Teit s son, for maðu r
umhverfis- og mannvirkjasviðs
Akureyrar, segir að búið sé að setja
upp lampa í nokkrum hverfum og
stefnt að því að klára LED-væðing-
una á fimm til átta árum. „Við fáum
markvissari og sumir segja betri
lýsingu. Til dæmis getum við beint
ljósinu beint niður og þá verður
minni ljósmengun,“ segir hann.
kristinnhaukur@frettabladid.is
Sveitarfélög LED-væða
ljósastaura næstu árin
Sveitarfélögin vinna nú að því að LED-væða ljósastaura. Reykjavík áætlar að
verkefninu ljúki á 5 árum og Akureyringar ætla því 5 til 8 ár. LED-lamparnir
þýða mun betri stýring og viðhald. Hver lampi borgar sig upp á 6 til 7 árum.
Sveitarfélögin hafa
þurft að taka
ákvörðun um að skipta yfir
í LED og mér, sem áhuga-
manni um orkusparnað,
finnst mikilvægt að þau nýti
tækifærið nú þegar þau eru
að fá þá í fangið.
Sigurður Friðleifs-
son, framkvæmda-
stjóri Orkuseturs
31. okt — 14. nóv hverfidmitt.is
Kosning
Afgreiðslutímar á www.kronan.is
til jóladagana ...
Teljum niður
Pssst ...
Úrvalið er
mismunandi eftir
verslunum
Stendur undir nafni
STJÓRNSÝSLA Stöðugildum hjá Rík-
islögreglustjóra hefur fjölgað um
átta á síðustu tíu árum. Þau fóru úr
126 árið 2008 í 134 árið 2018. Mest
er fjölgunin í hópi aðalvarðstjóra
og lögreglufulltrúa. Á sama tíma
hefur stöðugildum hjá lögreglunni á
höfuðborgarsvæðinu fækkað um 42
stöðugildi. Þau voru 411 árið 2008 en
369 á síðasta ári. Þetta kemur fram í
svari dómsmálaráðherra við fyrir-
spurn Unnar Brár Konráðsdóttur,
varaþingmanns Sjálfstæðisflokksins.
Greiðslur til beggja embætta
hækkuðu umtalsvert á tímabilinu.
Ríkislögreglustjóri fékk 1.200 millj-
ónir úr ríkissjóði árið 2008. Í fyrra
fékk embættið 1.901 milljón úr ríkis-
sjóði. Greiðslur úr ríkissjóði til lög-
reglunnar á höfuðborgarsvæðinu
voru 2.930 milljónir árið 2008 en
hækkuðu jafnt og þétt og voru 4.847
milljónir í fyrra. – aá
Fjölgað hefur í starfsliði Ríkislögreglustjóra
Haraldur Johannessen er ríkislögreglustjóri. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Alls standa 81 þúsund ljósastaurar um land allt. Nokkrir LED-staurar lýsa upp Hringbraut. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
7 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
7
-1
1
-2
0
1
9
0
5
:0
2
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
2
B
-E
F
2
0
2
4
2
B
-E
D
E
4
2
4
2
B
-E
C
A
8
2
4
2
B
-E
B
6
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
5
6
s
_
6
_
1
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K