Fréttablaðið - 07.11.2019, Page 46

Fréttablaðið - 07.11.2019, Page 46
ALLT FRÁ FYRSTA SLAGI ERUM VIÐ STÖDD Í MIÐPUNKTI FRÁ- SAGNAR, ÞETTA ER EINS OG AÐ VERA KOMINN INN Í MIÐJA BYLTINGU EÐA MITT ELDGOS, MAÐUR KEMUR INN Í EITTHVAÐ KRAUMANDI.Sinfóníuhljómsveit Íslands er á leið í tónleikaferð til Þýskalands og Austurrík-is með hljómsveitarstjóra sínum, Daníel Bjarnasyni, og Víkingi Heiðari Ólafs- syni píanóleikara. Á tónleikum hljómsveitarinnar í Hörpu í kvöld, fimmtudagskvöld, og föstudags- kvöld verða leikin verk sem verða á efnisskránni erlendis, eftir Grieg, Mozart, Sibelius og Daníel Bjarna- son. Sterk viðbrögð Verk Daníels er píanókonsertinn Processions sem hann samdi fyrir tíu árum fyrir Víking Heiðar sem flutti hann fyrst á Myrkum músík- dögum. Spurður af hverju hann hafi valið að skrifa konsert fyrir Víking Heiðar segir hann: „Það eru ekki margir aðrir sem hefðu komið til greina. Ég lærði á píanó hjá mömmu hans og þannig kynntist ég Víkingi fyrst. Eftir að hafa lært tónsmíðar hér heima lærði ég hljómsveitar- stjórnun í Þýskalandi og var með annan fótinn í New York. Um það leyti varð efnahagshrun hér á landi og þá var þessi konsert skrifaður, í búsáhaldabyltingu sem ég fylgdist með að hluta til frá New York en síðan nánast úr stofuglugganum hér á Íslandi. Konsertinn var frum- f luttur á Myrkum músíkdögum í miðri búsáhaldabyltingu í febrúar 2009 og viðbrögðin voru mjög sterk. Ég fann að þessi konsert talaði til Íslendinga. Það var svo mikil þörf fyrir betri fréttir,“ segir Víkingur. „Á þessum tíma voru Myrkir músíkdagar ekki sú hátíð sem hún er í dag hvað vin- sældir varðar. Hún var mikil jaðar- hátíð en á þessum tónleikum var nær fullur salur og viðtökurnar voru stórkostlegar. Síðan hefur verið mikil eftirspurn eftir þessu verki úti um allan heim. Slíkt gerist ekki alltaf þegar ný tónlist á í hlut, jafnvel þótt hún sé frábær.“ Ríkulegur heimur Víkingur Heiðar hefur leikið verkið nokkuð oft, víða um heim. „Við Daníel flytjum þetta verk oft saman sem tvíeyki, ég við píanóið og hann sem hljómsveitarstjóri. En svo hafa aðrir frábærir hljómsveitarstjórar líka sóst eftir að flytja verkið og það er líka spennandi. Mér er sérstak- lega minnisstæður f lutningur sem Daníel stjórnaði fyrir einu og hálfu ári í Toronto með þeirri frábæru hljómsveit Toronto Symphony og svo f lutningur með Gustavo Gimeno fyrir tæpu ári í Stokkhólmi með Sænsku útvarpshljómsveitinni sem er ein skemmtilegasta hljóm- sveit sem hægt er að spila með. Þetta er verk sem maður finnur að virkar á tónleikum.“ Spurður hvað það sé við verkið sem gerir að verkum að fólk tengir svo vel við það segir Víkingur Heið- ar: „Það er svo mikil frásögn í því. Allt frá fyrsta slagi erum við stödd í miðpunkti frásagnar, þetta er eins og að vera kominn inn í miðja byltingu eða mitt eldgos, maður kemur inn í eitthvað kraumandi. Píanistinn er mjög mikill sögu- maður í verkinu og hljómsveitin skapar ríkulegan heim. Píanóið leiðir frásögnina áfram en á sama tíma er hljómsveitin mjög virk. Hljóðfæraleikurum í hljómsveitum hefur þótt virkilega skemmtilegt að spila verkið. Þetta er ekki eins og stundum er með einleikskonserta að hljóðfæraleikararnir hlakki minna til þeirra en sinfóníanna vegna þess að þar eru þeir í undir- leikshlutverki. Það á ekki við hér, þetta er píanó sinfónía.“ Nú mun konsertinn hljóma í Þýskalandi og Austurríki og annað íslenskt verk eftir Önnu Þorvalds- dóttur verður einnig á efnisskrá Sinfóníuhljómsveitarinnar. „Ég hef einu sinni áður spilað píanókonsert Daníels í Þýskalandi með útvarps- hljómsveitinni í Leipzig árið 2017,“ segir Víkingur Heiðar. „Núna verða tónleikar í Berlín og München, tveimur leiðandi tónlistarborgum.“ Hluti af Íslandshátíð Í Berlín eru tónleikarnir hluti af mikilli Íslandshátíð þar sem fram koma fjölmargir íslenskir f lytj- endur og tónskáld. Hátíðin er hugarfóstur Víkings Heiðars sem er staðarlistamaður Konzerthaus í Berlín. „Í Þýskalandi er mikill áhugi á íslenskri menningu og öllu því sem íslenskt er. Það er alltaf gaman að koma fram þar og það verður ein- stakt að vera með hljómsveitinni í Þýskalandi.“ „Þetta er í fyrsta sinn sem hljóm- sveitin fer í ferðalag með íslenskan hljómsveitarstjóra og heims- frægan íslenskan einleikara og hefur íslenska tónlist á efnisskrá. Það segir nokkuð mikið um stöðu íslenskrar samtímatónlistar, sem hefur fengið mikla athygli undan- farið,“ segir Daníel. „Það verður gaman að fara í þessa ferð með Sinfóníuhljómsveit Íslands, f lagga okkar bestu listamönnum og hafa íslenska tónlist með í för.“ Píanistinn sem sögumaður Á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Ís­ lands leikur Víkingur Heiðar píanó­ konsert eftir Daníel Bjarnason. Báðir eru á leið til Þýskalands og Austurríkis. Víkingur Heiðar og Daníel eru æskuvinir. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is BÆKUR Korngult hár grá augu Sjón Útgefandi: JPV Blaðsíður: 117 Hvað mótar mann og gerir hann að sjálfum sér og hvernig hættulegar hugmyndir finna fólkið sitt er við- fangsefni Sjóns í þessari bók. Hún spannar stutt og snarpt lífs- hlaup hins norsk- íslenska Gunn- ars Pálssonar Kampen sem nær 24 ára aldri áður en hann finnst látinn um borð í lest í Bretlandi árið 1962. Bókin byrjar á þessu en svo er líf hans rakið í þremur bókarhlutum, sá fyrsti er samsettur úr æskuminn- ingum Gunnars og leiddar að því líkur að það séu þær minningar og upplifanir sem helst móta hann og þá stefnu sem hann tekur í lífinu, miðhlutinn er bréf frá Gunnari til nokkurra lykilpersóna í lífi hans og lokin segja frá síðustu ævidögum hans og aðdraganda þess að hann finnst í lestinni. Titill bókarinnar, Korngult hár grá augu, er svo lýsing lögreglumannanna á líki hans. Við kynnumst Gunnari þannig á þrennan hátt, í minningum hans sem við sjáum líkt og kvikmynd, bréfum þar sem við kynnumst því sem hann hugsar og hvernig hann vill að aðrir sjái hann og svo sjáum við hann eins fullnustaðan og hann verður síðustu ævidagana. Hinn rauði þráður er ástríða Gunnars fyrir nasisma, ástríða sem verður honum allt. Í henni finnur hann tilgang og sama- stað, hann finnur fyrir- myndir í norskum ætt- mennum sem voru ha ndgeng in Þjóð - verjum á hernáms- á r u nu m og ha nn leggur síðustu andar- tökin í sölurnar fyrir málstaðinn. Sjón hefur marg- sýnt sína fínpúss- uðu st í lg á f u og hennar gætir einnig hér. Bókin er stutt í orðum talið en hvert orð er valið a f n á k v æ m n i , setningar meitl- aðar gaumgæfilega og málsgreinum raðað saman þannig að söguheim- urinn er dýpri en sést, það eru v ísbend i ng a r út um allt og ek kert af til- viljun. Áherslan er þó mest á frá- sögnina, kannski á kostnað sög- unnar, ekki eru fel ld i r dóm a r sem veldur því að Gunnar sem per- sóna er í forgrunni en síður það sem hann stendur fyrir. Gunnar Kamp- en er byggður á manni sem var til og ýmsar persónur sem voru til í raunveruleikanum koma við sögu hans, sögu sem virkar svo ótrúleg í ljósi þess hve stutt er frá lokum síðari heimsstyrjaldar þegar sagan gerist og sem kallast á við þann óhugnanlega raunveruleika að nas- ismi er í dag á uppleið í heiminum. Þær aðferðir sem Gunnar nýtir til að afla hugmyndum sínum fylgis eru við lýði enn í dag og Sjón bendir á að ærin ástæða er til að vera á varð- bergi og gefa þessum samtökum gaum. Þannig má segja að í bókinni sé aðvörunarbjalla en sem slík kannski ekki nógu hvell. Brynhildur Björnsdóttir NIÐURSTAÐA: Eftirminnileg bók um það sem mótar einstakling og hvernig hugmyndir finna fólkið sitt. Hvernig hugmyndir finna fólkið sitt 7 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R34 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð MENNING 0 7 -1 1 -2 0 1 9 0 5 :0 2 F B 0 5 6 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 4 2 B -E F 2 0 2 4 2 B -E D E 4 2 4 2 B -E C A 8 2 4 2 B -E B 6 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 5 6 s _ 6 _ 1 1 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.