Skessuhorn - 20.01.2016, Síða 16
MIÐVIKUDAGUR 20. JANÚAR 201616
Á Oddsstöðum í Lundarreykjadal
í Borgarfirði er rekið glæsilegt bú.
Þar er stunduð hrossarækt, tamn-
ingar og ferðaþjónusta á íslenska
hestinum og einnig verður boð-
ið upp á reiðkennslu í vetur. Einn-
ig er stunduð sauðfjárrækt og skóg-
rækt á Oddsstöðum. Það eru hjón-
in Sigurður Oddur Ragnarsson og
Guðbjörg Ólafsdóttir sem hafa rek-
ið búið síðan þau tóku við af for-
eldrum hans árið 1984. „Ég er þriðji
ættliður hér á Oddsstöðum af minni
fjölskyldu. Reyndar hef ég ekki búið
hér alla tíð. Ég fór nú í skóla, var í
Menntaskólanum á Laugavatni og
fór svo í Bændaskólann á Hvann-
eyri í búfræði og svo í búvísinda-
deild. Síðan hélt ég til Svíþjóðar og
lærði líffæra- og lífeðlisfræði í tvö ár
við Dýralæknaháskólann þar í landi.
Þá var ég að skoða hreyfingarfræði
íslenska hestsins, gangtegundirn-
ar. Þau fræði byggjast á líffæra- og
lífeðlisfræðinni. Svo kom ég heim
og fór að kenna við grunnskólann í
Borgarnesi og var tvö ár kennari við
Bændaskólann á Hvanneyri,“ segir
Sigurður. Reyndar er hann oftast
kallaður Oddur og við höldum því
hér í þessu spjalli.
Skemmtilegt starf
að stunda búskap
Guðbjörg Ólafsdóttir er líka borinn
og barnfæddur Borgfirðingur eins og
maður hennar. Hún er frá Hvann-
eyri. „Ólafur Guðmundsson faðir
minn starfaði þar og var yfirmaður
við Bútæknideildina. Mamma, Sig-
urborg Ágústa Jónsdóttir eða Bogga
á Báreksstöðum, hefur svo alla tíð
verið mikið í hestum og hrossarækt.
Ég er þannig alin upp við hesta og
var svo líka alltaf að snudda í fjár-
húsum og fjósi á Hvanneyri. Dýr og
búskapur voru mitt áhugamál þó ég
færi aldrei í Bændaskólann. Kannski
var hann of nærri mér. Ekki vildi ég
fara í Húsmæðraskólann því ég ætl-
aði ekki að fara að elda mat að neinu
gagni,“ segir hún og hlær við. „Í
staðinn lærði ég til sjúkraliða en hef
ekki unnið mikið við það. Ég sett-
ist að hér á Oddsstöðum þegar við
tókum við búrekstri 1984. Þetta eru
orðin rúm 30 ár en búin að vera fljót
að líða,“ segir hún.
„Það er búið að vera mikið að
gera og oftast gaman,“ skýtur mað-
ur hennar íhugull inn og eng-
inn sem fer um Oddsstaði þarf að
efast um það. „Það er bara þann-
ig hjá bændum sem hafa gaman af
búskap að þeir njóta þess. Hér eru
alltaf eftirvæntingar. Menn eru ein-
att svo bjartsýnir og svo er alltaf að
kvikna nýtt líf og nýjar vonir. Í fyrra-
sumar héldum við hryssum undir
nokkra af betri stóðhestum lands-
ins. Núna erum við að bíða eftir
því hvað kemur undan þeim næsta
vor. Svo eru það eftirvæntingar með
að sjá hvernig hrossin koma út sem
við erum að byrja að temja núna. Í
sauðfénu er það þannig að við bíð-
um eftir að sjá í vor hvað kemur út
úr sæðingunum. Haustið þar á eft-
ir þá kemur féð af fjalli og þá verður
spennandi að sjá lömbin og hver út-
koman verður.“ Guðbjörg bætir hér
við að það sé nú kannski ekki mik-
ið upp úr sauðfénu að hafa, það sé
meira svona hugsjón að halda því.“
Oddur bóndi samsinnir því að af-
koman í sauðfjárræktinni sé kannski
ekki upp á marga fiska í dag en hún
sé nú samt mikilvægur hluti af bú-
skapnum.
Loðdýraræktin
var mikill skóli
Oddur segir að það hafi alltaf verið
draumurinn að verða bóndi. „Þetta
var upp úr 1980. Þá þótti nú ekki
vænlegt að ætla að slá sér upp í bú-
skapnum á hrossarækt þannig að við
hugsuðum okkur fyrst í sauðfjár-
rækina. Þar fengum við lítinn fram-
leiðslukvóta svo við fórum einnig
út í loðdýrarækt. Á þeim tíma var
hægt að fá fyrirgreiðslu í það. Við
byggðum langan skála þar sem ann-
ar helmingurinn var fyrir refi og
hinn fyrir minka. Hugsunin með því
var að dreifa áhættunni. Þetta hófst
1985 og við vorum í því fram yfir
1990. Þá vorum við búin að safna
mjög miklum skuldum þó við hefð-
um byrjað með mjög litlar skuld-
ir, áttum t.d. skuldlaus bæði dýr og
búr í upphafi. Þegar þarna var kom-
ið, kom eitt gott ár. Við gátum greitt
niður lausaskuldirnar og ákváðum
þar með að hætta þessu. Ég var
svo viðriðinn Fóðurstöð Vestur-
lands sem stóð líka höllum fæti eins
og reyndar allt í kringum loðdýra-
ræktina. Þar var ég í forsvari í ein-
hver tvö ár í lokin, þar til hægt var
að gera hana upp skuldlausa. Þann-
ig tókst okkur að losa okkur út úr
loðdýrunum. Árin í loðdýrarækt-
inni voru mjög erfið en mikil lexía
sem kenndi manni að fara varlega
og treysta á sjálfan sig,“ segir Sig-
urður þegar hann rifjar þetta upp í
dag. „Við höfðum alltaf verið með
sauðfjárrækt hér á Oddsstöðum. En
þarna þegar loðdýrarækinni var hætt
endanlega upp úr 1990 þá fórum við
að líta í kringum okkur með annað.
Valið var að fara út í ferðaþjónustu.
Það voru hestaferðirnar, að bjóða
ferðafólki upp á lengri ferðir á hest-
baki um náttúru Íslands um sumar-
tímann. Við byrjuðum í því 1991.
Árið eftir fórum við að vinna mikið
með Eldhestum og urðum hluthaf-
ar þar. Leiðir skildu svo 2006 og við
höfum verið sjálfstæð síðan, reyndar
með samstarfsaðila á ýmsum stöð-
um og gott fólk í kring um okkur,
bæði heima og heiman.“
Hestaferðirnar
skila mestu
Hestarnir eru þannig búnir að vera
megin stoðin í búrekstri þeirra á
Oddsstöðum síðan í upphafi tí-
unda áratugarins. Nú eru þar einn-
ig um 250 fjár á vetrarfóðrun. „Það
má alveg segja að hestaútgerðin hafi
gengið betur og betur með árunum
og þannig mikilvægari hluti af okkar
framfærslu og afkomu. Nú eru horf-
ur á að næsta sumar verði það um-
fangsmesta frá upphafi,“ segja þau
hjón.
Á heimasíðunni oddsstadir.is má
einmitt skoða hvaða hestaleiðangr-
ar eru í boði hjá þeim næsta sumar.
Þar er svo til uppselt nú þegar, í all-
ar ferðirnar. Mest eru það erlendir
ferðamenn og Íslendingar sem búa
erlendis sem fara í hestaferðirnar.
Sumir hafa komið oft og koma jafn-
vel árlega. „Hestaferðirnar eru það
sem við lifum af, þó kaupið sé sjálf-
sagt ekki hátt ef það yrði reiknað-
ur hver tími sem er á bak við þessa
vinnu. Það er mikil útgerð í kring-
um þetta og stöðug vinna allt árið.
Sjálft ferðatímabilið er svona frá
miðjum júní fram í miðjan septem-
ber. Svo erum við með réttarferð
á haustin og bjóðum einnig upp á
stutta reiðtúra allt árið,“ segir Odd-
ur. Í sumar ætla þau að einskorða sig
við sjálft Vesturland en áður hafa
þau á Oddsstöðum skipulagt leið-
angra víðar um landið. „Svo er líka
heyjað hér á jörðinni og víðar, um
þúsund rúllur, en sonur okkar Sig-
urður Hannes, ásamt öðrum, hefur
farið fyrir heyskapnum undanfarin
ár, því við erum svo mikið í burtu.
Þó er það þannig að ef við erum í
hestaferðum hér heima í Borgarfirði
eða á Vesturlandi þá keyrum við oft
heim á kvöldin. Auk íbúðarhússins
okkar hér á Oddsstöðum eigum við
60 fermetra sumarhús inn við Jöt-
nabrúarfoss í Grímsá sem við nýt-
um mikið yfir sumartímann, þegar
mest er að gera. Reyndar er ætlun-
in að auka gistiaðstöðuna fyrir kom-
andi sumar.“
Nota mest eigin hross
Þegar Oddur er spurður að því hvort
svona ferðir séu ekki erfiðar þá jánk-
ar hann því. „Þessar löngu ferð-
ir reyna vissulega á, bæði líkamlega
en ekki síður andlega. Maður er ekki
bara með manneskjur heldur líka
dýr og þarf að geta borið skynbragð
á og kunna að umgangast hvoru
tveggja. Það geta auðveldlega orð-
ið slys. Þarna kemur inn mikilvægi
þess að vera með eigin hesta í þess-
um ferðum eða lánshesta sem mað-
ur hefur reynslu af. Þar af leiðandi
þekkir maður hrossin vel, hvernig
skapgerð þau hafa og þar fram eftir
götunum. Það skiptir miklu máli að
vera vakandi og finna út hvaða hest-
ar henta hverjum ferðamanni. Þetta
er sérlega mikilvægt í upphafi ferð-
anna.“
Hestaferðirnar og ferðaþjónust-
an tengd þeim eru í dag lang mik-
ilvægasti þáttur Oddsstaðabús-
ins. Þau halda stórt stóð og stunda
hrossarækt. Árið 2015 áttu þau t.d.
hæst dæmda fimm vetra stóðhestinn
á Vesturlandi, Loga frá Oddsstöðum
„Við seljum mjög lítið af hestum en
reynum samt að vanda okkur í rækt-
uninni til að ná fram góðum hest-
um til að nota í okkar rekstri. Vand-
inn við það að selja hross úr svona
hestaferðum er að fólk vill alltaf
kaupa bestu töltarana. Ef þeir eru
seldir þá erum við að láta frá okkur
bestu hestana fyrir þessa starfsemi.
Við erum fyrst og fremst að rækta
til eigin nota, ná fram auðsveipum
og geðgóðum gæðingum. Eðlisgæð-
ingum, góðum ferðahestum. Töltið
þarf að vera eðlislægt í þeim en ekki
að þeir sæki í brokk eða skeið. Hest-
ar sem eru ekki takthreinir á tölti
eru erfiðir fyrir ferðamenn, sem
vilja bara setjast á bak og njóta þess
sem hesturinn býður þeim,“ útskýr-
ir Oddur.
Fólk kynnist Íslandi með
einstökum hætti
Hestaferðirnar um Ísland eru marg-
vísleg upplifun fyrir viðskiptavinina.
Fólkið sem margt er með íslenska
hesta erlendis, kynnist þeim við ís-
lenskar aðstæður, það upplifir nátt-
úru Íslands með einstökum hætti en
Sigurður Oddur og Guðbjörg á Oddsstöðum í Lundarreykjadal:
„Hestaferðirnar veita okkur mikla ánægju“
Hjónin Sigurður Oddur Ragnarsson og Guðbjörg Ólafsdóttir hafa setið Oddsstaði í rúm 30 ár, eða síðan þau tóku við búi þar
1984. Oddur er auk þess alinn þar upp.
Riðið með hóp ferðamanna um Löngufjörur á Snæfellsnesi.
Ferðlangar og hross í hestaferð um Vesturland taka sér hádegishvíld.
Íslenski maturinn slær í gegn og er hluti af ferðaupplifuninni. Hér er það hákarl
og brennvín. Mestu karlmennskuna þykir ferðamönnunum þeir sýna ef þeir geta
borðað augað úr sviðakjammanum. Augun þykja minnst árennileg.