Skessuhorn - 03.02.2016, Qupperneq 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 5. tbl. 19. árg. 3. febrúar 2016 - kr. 750 í lausasölu
Framtíðin er
full af möguleikum
Traust fjármálaráðgjöf leggur grunn
að farsælli framtíð
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
–
1
5
-0
0
5
0
Coldfri munnúði
Fluconazol
ratiopharm
- við kvefi og hálsbólgu
Eru bólgur og verkir
að hrjá þig?
ÚTSÖLULOK
Síðustu dagar
útsölunnar
50%
afsláttur af öllum
útsöluvörum
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
Ekta tælenskur matur
Stillholt 23, Akranesi
Sími: 867-3655
Í Klettaborg í Borgarnesi eru haldnir krakkafundir þegar ræða þarf ýmis málefni
leikskólans. Fundirnir eru haldnir hvort heldur sem er að frumkvæði starfsfólks
eða barnanna. Þannig taka börnin virkan þátt í starfinu og fá að koma sínum
sjónarmiðum á framfæri. Hér er Steinunn Baldursdóttir leikskólastjóri á krakka-
fundi. Ljósm. kgk.
Þau eru ólík verkefnin sem berast
á borð Róberts Arnar Stefánssonar
og annarra starfsmanna Náttúru-
stofu Vesturlands í Stykkishólmi.
Um miðja síðustu viku var látið
vita af erni í vanda sem sést hafði
til í Berserkjahrauni. Reyndist hér
um að ræða ungan kvenfugl frá síð-
asta sumri með laskaðan væng. Var
hann handsamaður og komið með
fyrstu ferð undir læknishendur í
Reykjavík. Talið er að örninn nái
sér að fullu en hann reyndist ekki
vængbrotinn heldur höfðu svokall-
aðar handflugfjaðrir losnað. Gest-
um Húsdýragarðsins í Laugardal
gefst nú kostur á að skoða fuglinn
næstu daga, en eftir að hann hefur
náð sér verður hann fluttur á ný á
heimaslóðir við Breiðafjörð.
Ljósm. Sumarliði Ásgeirsson.
Löskuðum
erni komið
til hjálpar
Ár hvert er Dagur leikskólanna
haldinn hátíðlegur hér á landi 6.
febrúar. Þar sem hann ber upp á
laugardag að þessu sinni eru há-
tíðarhöld víða færð fram á föstu-
dag. Í tilefni dagsins brá blaðamað-
ur Skessuhorns sér í heimsókn í
tvo leikskóla; Andabæ á Hvanneyri
og Klettaborg í Borgarnesi. Þar er
fræðst um lífið og tilveruna, en ekki
síst rætt við starfsmenn um kynja-
hallann í leikskólum landsins. Töl-
ur sýna að einungis eitt prósent
starfsmanna eru karlmenn. Þessu
vilja menn breyta og beina menn
sjónum sérstaklega að þessu á Degi
leikskólanna 2016. Sjá bls. 24-25.
mm
Dagur leikskólanna framundan
Unglingadeild Auðarskóla í Búð-
ardal stefnir að utanlandsferð í lok
skólaárs og eru ýmsar leiðir farnar
til að safna fyrir ferðinni. Nýlega
settu nemendur upp auglýsingu
í heimabyggð þar sem þeir buðu
fram starfskrafta sína gegn styrk-
veitingu. Meðal fyrstu verkefna
sem þeim bárust á borð var skít-
mokstur í fjárhúsunum á Hrapps-
stöðum. Þessu verkefni var vel tek-
ið og fóru nemendahópar þrjá daga
í röð til að sinna verkefninu. Þeg-
ar fréttaritara Skessuhorns bar að
garði seinasta mokstursdaginn voru
þrír hressir strákar að stöfum, þeir
Bjartur Máni, Helgi Fannar og
Vignir Smári, allir nemendur í 10.
bekk. Félagarnir voru á sama máli
um að þetta væri ein skemmtileg-
asta fjáröflunarleið sem þeir hefðu
tekið þátt í enda var þetta annar
dagurinn sem þeir létu til sín taka
í skítmokstrinum. Þess má geta að
unglingadeildin er enn að leita að
verkefnum og geta áhugasamir haft
beint samband við skólann ef verk-
efni eru fyrir hendi. sm
Skítmokstur í fjáröflunarskyni