Skessuhorn - 03.02.2016, Blaðsíða 6
MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRÚAR 20166
Óskað eftir verk-
efnum frá varðlið-
um umhverfisins
LANDIÐ: Umhverfis- og auð-
lindaráðuneytið, Landvernd og
Náttúruskóli Reykjavíkur óska nú
eftir verkefnum til þátttöku í hinni
árlegu verkefnasamkeppni, Varð-
liðum umhverfisins. Þetta er í tí-
unda sinn sem samkeppnin er hald-
in meðal grunnskólabarna í 5. til
10. bekk. Markmið keppninnar er
að hvetja ungt fólk til góðra verka í
umhverfisvernd, vekja athygli á sýn
ungs fólks á umhverfismál og kalla
eftir leiðsögn yngri kynslóðarinn-
ar á því sviði. Verkefnin mega vera
af fjölbreyttum toga, t.d. ritgerðir,
ljósmyndir, ljóð, veggspjöld, bækl-
ingar, myndbönd og hljóðverk. Í
stuttu máli er frjálst að skila inn
verkefnum í hvaða formi sem er
svo lengi sem þau eru sannarlega
unnin af nemendunum sjálfum og
umfjöllunarefni þeirra eru um-
hverfismál í víðum skilningi þess
orðs. „Samkeppnin er kjörið tæki-
færi fyrir nemendur og kennara að
koma á framfæri verkefnum sem
þeir fyrrnefndu hafa þegar unn-
ið í skólanum því ekki er skilyrði
að verkefnin séu sérstaklega unnin
fyrir samkeppnina,“ segir í tilkynn-
ingu. Skilafrestur verkefna er til 1.
apríl 2016 og skal senda þau á net-
fangið postur@uar.is eða í bréfpósti
á umhverfis- og auðlindaráðuneyt-
ið, Skuggasundi 1, 101 Reykjavík,
merkt ,,Varðliðar umhverfisins“.
–mm
Óþarfa offorsi
BORGARFJ: Leikdeild Ung-
mennafélags Reykdæla í Loga-
landi hefur byrjað æfingar á leikrit-
inu Óþarfa offarsa eftir Paul Slade
Smith í þýðingu Harðar Sigurðs-
sonar. Leikstjóri er Ármann Guð-
mundsson. Stefnt er að frumsýn-
ingu 4. mars næstkomandi. Í til-
kynningu frá félaginu kemur fram
að félagið vanti tvo eins snúrusíma
að láni og sömuleiðis tvö eins rúm,
120 eða 140 cm á breidd. Einnig
vantar rúmteppi á rúmin ef ein-
hver vildi vera svo vinsamlegur að
vilja lána ungmennafélaginu þessa
hluti. –mm
Vesturlands-
deildin hefst á
föstudaginn
BORGARNES: Nú líður að
því að Vesturlandsdeildin í hesta
íþróttum hefji göngu sína í fyrsta
sinn. Keppt verður í fimm grein-
um hestaíþrótta á fjórum kvöld-
um og er fyrsta kvöldið næst-
komandi föstudag, 5. febrúar en
þá verður keppt í fjórgangi og er
fjórgangsmótið dyggilega styrkt
af Límtré Vírnet ehf. „Skráð eru
til leiks sex lið með fjórum liðs-
mönnum hvert. Hvert lið send-
ir síðan þrjá liðsmenn til keppni
í hverja grein. Hér er því um
að ræða stutt kvöldmót með 18
skráningum og einum úrslit-
um. Svo sannarlega uppskrift af
góðu föstudagskvöldi enda all-
ir bestu reiðmenn Vesturlands
skráðir til leiks,“ segir í tilkynn-
ingu. Eins og fyrr segir fer mótið
fram föstudagskvöldið 5. febrúar
í Faxaborg í Borgarnesi og hefst
klukkan 19.00. Aðgangseyrir er
1500 krónur en frítt fyrir 10 ára
og yngri. Þá gildir aðgangsmið-
inn sem happdrættismiði og í
verðlaun er folatollur undir Auð
frá Lundum II. Ráslisti verður
gefinn út miðvikudagskvöldið 3.
febrúar. „Við hvetjum alla til að
taka kvöldið frá og fjölmenna í
Faxaborg og minnum á að það er
örstutt í Borgarnes úr öllum átt-
um.“ –mm
Viskukýrin í
næstu viku
HVANNEYRI: Viskukýr-
in 2016, árleg spurningakeppni
Nemendafélags LbhÍ, verður
haldin fimmtudaginn 11. febrú-
ar næstkomandi í matsal skól-
ans. Þar munu nemendur, starfs-
fólk og heimamenn etja kappi í
stórskemmtilegri keppni. Spyr-
ill kvöldsins verður að sjálfsögðu
Logi Bergmann Eiðsson. Eftir
að keppni er lokið verður slegið
upp stórballi á barnum.
–mm
Spilarar í
fantaformi
BORGARFJ: Sveitakeppni
Bridgefélags Borgarfjarðar hélt
áfram á mánudagskvöldið síð-
asta. Menn voru sumir hverj-
ir komnir í fínt spilaform eft-
ir fjögurra daga Briddshátíð í
Reykjavík, þar sem gullkálf-
ar félagsins, Sveinbjörn og Lár-
us, stóðu sig með miklum sóma
og urðu í öðru sæti í 145 para
tímenningi. En í sveitakeppn-
inni voru það ungstirnin Logi
og Heiðar sem fóru hamförum
og tryggðu sveit sinni 38,9 stig
af 40 mögulegum. Sveit Önnu
Heiðu skoraði 27,56 og Dóra
og drengirnir 26,15. Staðan er
þá þannig að sveit Önnu Heiðu
leiðir mótið með 58,22 stig en
með henni spila Einar Guð-
mundsson, Guðmundur Steinar
Jóhannsson og Magnús Heiðarr
Björgvinsson. Dóra og dreng-
irnir; Rúnar Ragnarsson, Stef-
án Kalmansson og Sigurður Már
Einarsson, eru í öðru sæti með
57,57 stig og Pörupiltarnir; Logi
Sigurðsson, Heiðar Baldursson,
Jón H Einarsson og Ingimund-
ur Jónsson eru þriðju með 56,67
svo spennan er svo sannarlega til
staðar. Helgina 12. og 13. febrú-
ar verður Vesturlandsmótið í
sveitakeppni haldið á Akranesi.
Skráning er hjá Ingimundi í síma
861-5171 eða zetorinn@visir.is.
–ij
Legið hefur fyrir að húsnæði leik-
skólans Hnoðrabóls í Reykholts-
dal er of lítið og óhentugt fyrir
þann fjölda barna sem er á svæð-
inu á leikskólaaldri. Sveitarstjórn
Borgarbyggðar ákvað á liðnu ári að
stefna að færslu skólans að Klepp-
járnsreykjum. Í framhaldi af því var
leitað til Ómars Péturssonar bygg-
ingafræðings hjá Nýhönnun um að
leggja fram lauslegt mat á tveim-
ur leiðum til að leysa húsnæðismál
skólans. Annars vegar var kann-
að hversu vænlegt það gæti reynst
að breyta tveimur parhússíbúðum
á Kleppjárnsreykjum, sem eru í
eigu sveitarfélagsins, í leikskóla. Sú
leið er ein af þeim tillögum sem til
skoðunar voru hjá vinnuhópi um
húsnæðismál Hnoðrabóls í upp-
hafi kjörtímabilsins. Hins veg-
ar var skoðað að gera breytingar
á og hugsanlega einnig að stækka
húsnæði grunnskólans á staðnum
þannig að það gæti bæði rúmað
starfsemi leikskóla og grunnskóla.
Með því væri hægt að ná fram hag-
ræði svo sem með samnýtingu eld-
húss og mötuneytis. Að sögn Kol-
finnu Jóhannesdóttur sveitarstjóra
býður sú leið einnig upp á sveigj-
anleika í nýtingu húsnæðis, auð-
veldar að mæta sveiflum á nem-
endafjölda milli skólastiga og skap-
ar tækifæri til að byggja upp núver-
andi skólahúsnæði á Kleppjárns-
reykjum og þá aðstöðu sem þar er.
Tillögur Ómars eru nú til skoðun-
ar hjá fræðslunefnd sem fjallað hef-
ur um málið.
Engin ákvörðun
verið tekin
Að sögn Kolfinnu hefur ekki verið
tekin ákvörðun í sveitarstjórn um
hvort önnur hvor fyrrgreindra leiða
verður farin. Nú liggi hins vegar
fyrir að báðar leiðir eru færar. Hún
segir að fulltrúar sveitarfélagsins
muni mæta á íbúafund sem boðað
hefur verið til í Logalandi í kvöld,
miðvikudaginn 3. febrúar klukkan
20, þar sem íbúar vilja ræða fram-
tíðarsýn leikskólans Hnoðrabóls og
fleiri málefni tengd búsetu. „Við
munum á fundinum útskýra stöðu
þessa máls fyrir íbúum og þá val-
möguleika sem við höfum ver-
ið að skoða til að leysa megi á far-
sælan hátt húsnæðismál leikskólans
Hnoðrabóls. Engin ákvörðun hef-
ur verið tekin um málið og það er
gott að íbúar vilji eiga þetta samtal
við okkur um næstu skref og allir
eiga á þessum fundi að getað komið
skoðunum sínum á framfæri,“ seg-
ir Kolfinna. Hún segir að ekki hafi
verið í umræðunni í hugmynda-
vinnu sveitarfélagsins að sameina
rekstur Hnoðrabóls og Kleppjárns-
reykjadeildar Grunnskóla Borgar-
fjarðar, jafnvel þótt rekstur beggja
skólanna verði færður undir eitt
þak. „Við munum hins vegar leita
allra leiða til að finna hentuga lausn
sem bæði sveitarstjórn og íbúar geti
sætt sig við,“ segir Kolfinna.
Fræðslunefnd ályktaði
Á fundi fræðslunefndar Borgar-
byggðar síðastliðinn fimmtudag
var lögð fram ályktun þar sem seg-
ir um úttekt Nýhönnunar á tveim-
ur fyrrgreindum leiðum: „Sá sam-
anburður á hönnunarvinnu sem
hér hefur verið lagður fram hef-
ur leitt að því að báðar leiðir eru
færar. Það er ljóst að eftir á að fara
fram nánari greiningarvinna með
hliðsjón af áætluðum barnafjölda
næstu ára og framkvæmdaráætlun
fjárhagsáætlunar 2016. Fræðslu-
nefnd leggur til að fram fari vinna
með stjórnendum og starfsfólki
sem miði að því að horfa heildstætt
á húsnæðismál leik- og grunn-
skólans í grunnskólahúsnæð-
inu á Kleppjárnsreykjum og mætt
verði þörfum leik- og grunnskóla-
barna á næstu árum. Áhersla verði
lögð á að framkvæmdin verði að-
löguð að núverandi fjárhagsáætl-
un þannig að hægt verði að fara í
framkvæmdir vorið 2016. Mikil-
vægt er að leikskólinn Hnoðra-
ból haldi sjálfstæði sínu og gott
samstarf verði við stjórnendur og
starfsmenn um hönnun og skipu-
lag leikskólans.“
mm
Skoða hugmyndir sem leyst gætu
húsnæðisvanda Hnoðrabóls
Horft yfir Kleppjárnsreyki. Ljósm. úr safni Mats Wibe Lund.