Skessuhorn - 03.02.2016, Blaðsíða 16
MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRÚAR 201616
Gerri Griswold er frá bænum
Winchester í Connecticut fylki í
Bandaríkjunum. Hún hefur starf-
að sem kokkur, er listakona, söng-
kona og síðustu 17 ár hefur hún
lýst umferðinni í gegnum útvarpið.
Gerri starfar einnig sem stjórnandi
á menntasetrinu White Memori-
al Conservation Center í Winc-
hester. Hún er mikill dýravinur
og hefur varið tveimur áratugum
í að vinna með leðurblökum. Ný-
verið beindist áhugi hennar einnig
að broddgöltum. Að eigin sögn er
hún forvitin manneskja að eðlisfari,
sem elskar að ferðast, hlæja, borða
nammi og hún segist vera með of-
vaxna ástríðu fyrir Íslandi. Hún
segir Ísland vera besta stað jarðar-
innar og er mest heilluð af landinu
yfir vetrartímann. Hún rekur litla
ferðaskrifstofu í Winchester og fer
í nokkrar Íslandsferðir á ári. Með
í för eru áhugasamir og lífsglað-
ir ferðamenn, sem vilja upplifa Ís-
land með augum Gerri. Hún sneri
nýverið heim til Bandaríkjanna úr
einni slíkri ferð, þar sem hún heim-
sótti Vesturland ásamt 14 manna
hópi. Blaðamaður Skessuhorns tók
leðurblöku- og Íslandsvininn Gerri
tali og getur fullvissað lesendur um
að leiðinlegri konur eru til.
Þekkt sem
leðurblökukonan
Hefðbundinn dagur hjá Gerri
Griswold hefst á því að hún vaknar
klukkan 04:15 og fer í göngu með
hundinn Bradley. Eftir það gefur
hún gæludýrum sínum, þar á meðal
afrískum grápáfa sem blótar eins og
versti sjóari. Klukkan hálf sex byrjar
hún að lýsa umferðinni í útvarpi. Það
gerir hún að heiman, þar sem hún
sest niður við tölvu á sveitabæ sín-
um og skoðar aðstæður á vegunum
í gegnum myndavélar sem staðsett-
ar eru víðsvegar um bæinn. Klukk-
an 9:30 mætir hún á skrifstofu sína
á safninu, þar sem hún starfar sem
stjórnandi og fræðir gesti um leð-
urblökur. Í Bandaríkjunum er hún
þekkt sem leðurblökukonan. Fyr-
ir rúmum tveimur áratugum fundu
Gerri og Eddie eiginmaður henn-
ar lítinn leðurblökuunga liggjandi í
grasinu. Hún tók hann inn, hjúkr-
aði honum og gaf honum geita-
mjólk. Unginn fékk nafnið Poppy
og lifði hjá þeim hjónum næstu
þrettán árin. Síðan þá hefur Gerri
menntað sig og kynnt sér lifnaðar-
hætti leðurblaka. Hún er talsmaður
þeirra í Connecticut enda veit hún
flest sem hægt er að vita um þessi
fleygu spendýr og hefur frætt bæði
börn og fullorðna um leðurblökur á
hundruðum safna, skóla og jafnvel í
sjónvarpi. „Leðurblökur eru mikil-
vægar fyrir mannkynið. Það er ekk-
ert annað dýr sem gerir jafn mik-
ið fyrir manninn eins og leðurblak-
an. Sumar tegundir éta allt að 5000
moskítóflugur á einni nóttu og
sumar éta einnig mölflugur. Mað-
ur getur rétt ímyndað sér til dæmis
hversu mörg malaríutilfelli myndu
greinast ef leðurblökur væru ekki
til,“ segir leðurblökukonan.
Byrjaði sem spaug
Fyrir fjórtán árum vaknaði áhugi
Gerri á Íslandi. Þá fundu hún
og Eddie ódýrt flug frá Boston
til Keflavíkur og skelltu sér í frí.
„Þegar vélin flaug yfir landið sá ég
hraunbreiðurnar og svartar strand-
ir og heillaðist alveg. Eddie varði
mestum tíma sínum á kaffihús-
um í Reykjavík en ég fór og skoð-
aði landið,“ útskýrir Gerri. Eft-
ir þetta fór hún í tuttugu Íslands-
ferðir til viðbótar. Með hverri ferð
kynntist hún landinu betur og árið
2010 ákvað hún að stofna ferða-
skrifstofuna Krummi Travel. „Það
byrjaði í raun sem hálfgert djók.
Ég hafði farið svo oft til Íslands og
mig langaði að deila þeirri reynslu
með fólki sem hugsar svipað og ég.
Þá datt mér í hug að skipuleggja
fuglaferð í Mývatnssveitina og mér
tókst að smala saman sextán ham-
ingjusömum ferðamönnum. Mað-
urinn minn hélt að ég væri orð-
in rugluð. Ég bjó til gervimiða til
að merkja töskur og græddi akk-
úrat ekkert á þessu,“ segir hún.
En ferðin heppnaðist ótrúlega vel
og Gerri var fljótlega spurð að
því hvað væri næst á dagskrá. „Þá
blaðraði ég því út úr mér að næsta
ferð yrði klikkuð sundlaugarferð
á Vestfirðina. Það seldist upp í þá
ferð líka og það var þá sem ég átt-
aði mig á því að ég ætti kannski að
hitta lögmann og stofna fyrirtækið
formlega.“
Vill breyta lífi fólks
Aðspurð um nafnið á fyrirtæk-
inu segir hún hrafninn vera sinn
uppáhalds fugl. „Reyndar þýðir
„crumby“ allt annað á ensku. Það
þýðir sjúskað eða ömurlegt, sem er
auðvitað frábært sem nafn á fyrir-
tæki. Þegar orðið Krummi er borið
fram á ensku, þá hljómar þetta eins
og ég sé að bjóða upp á algerlega
ömurlega ferðir. Þetta nafn passaði
því fullkomlega,“ segir hún í dálít-
illi kaldhæðni og hlær. Hún seg-
ir markmiðið með ferðunum vera
að ná saman hópi af fullorðnu fólki
og láta því líða eins og börn á ný.
„Við skreytum bílinn með fárán-
legu heimatilbúnu skrauti og borð-
um nammi. Mig langar svo að leyfa
þeim að upplifa eitthvað sem breyt-
ir lífi þeirra. Ég veit að það hljóm-
ar kannski eins og ég sé egóisti en
þetta gerist, ferðirnar hafa breytt
lífi fólks,“ segir Gerri. Hún seg-
ir landið hafa þessi áhrif en þá sér-
staklega þjóðina. „Ég hef komið til
Íslands fjörutíu sinnum og hef hitt
svo mikið af yndislegu fólki hérna.
Það má líkja ferðunum mínum við
auðan striga og Íslendingarnir eru
litirnir sem gera myndina. Fólkið
sem ferðast með mér á raunveru-
lega vini þegar það kemur heim
eftir að hafa kynnst Íslendingum,“
útskýrir Gerri. Hún er ekki hrifin
af massaferðamennsku og segir alla
geta farið í rútu og séð stórkostlega
náttúruna sem landið hefur upp á
að bjóða. „Með því að kynnast fólk-
inu felst sanna reynslan og gleðin í
að ferðast. Ferðirnar eiga að vera
litlar, nánar og fullar af skemmt-
un. Ferðamenn eiga ekki að vera
bara partur af stórum hópi, ein-
hver almúgi. Ég vil að fólki líði eins
og það sé eins sérstakt og eyþjóðin
sem það er að heimsækja.“
„Þú ert of sérstakur
fyrir gullna hringinn“
Gerri leggur mikla áherslu á að
ferðirnar séu persónulegar og neit-
ar því að taka fleiri en fjórtán manns
með. „Ég vil hafa fáa með í för, hver
vill ferðast með heilli hjörð hvort
sem er?“ Hún hefur boðið upp á
fjölbreyttar ferðir um landið, svo
sem jarðfræðiferðir um hringveg-
inn, sundlaugarferðir á Vestfirði,
norðurljósaferðir og síðast en ekki
síst ferðir sem hún kallar „Þú ert of
sérstakur fyrir Gullna hringinn“. Í
þeim ferðum er Vesturland heim-
sótt, enda er Gerri sérlega hrifin af
landshlutanum. „Þessar ferðir snú-
ast um að forðast troðninginn og
skoða hið fallega Vesturland, sem
hefur upp á allt að bjóða - allt nema
endalausar rútur, fullar af túristum.
Í vetur verð ég líka með spa-ferð og
vonast svo til að koma með lítinn
hóp í september í réttir.“ Gerri seg-
ir Krummaferðirnar vera fyrir alla,
en samt sem áður ekki hvern sem
er. Það er ákveðin tegund fólks sem
hún vill ekki fá með í för. „Ég krefst
þess að væluskjóður og aumingjar
skrái sig ekki. Annars eru allir vel-
komnir, óháð aldri og kyni,“ seg-
ir Gerri og rifjar það upp að í eitt
skipti hafi 85 ára gömul kona verið
með í för. „Hún hoppaði upp á snjó-
sleða í fyrsta sinn og þaut á honum
yfir frosið vatn! Þetta er nefnilega
spurning um andann, en ekki ald-
urinn.“ Hún segir það síðasta sem
hún vilji gera sé að koma með ein-
hvern vandræðalegan ferðamann að
hitta vini sína á Íslandi og að þetta
viðskiptamódel hafi virkað mjög
vel fram til þessa. „Það hafa auðvit-
að komið nokkur skemmd epli en
ekkert sem hefur náð að eyðileggja
ferð fyrir neinum hópnum,“ bætir
hún við.
Fullt af óvæntu
Hver ferð hjá Krumma Travel hef-
ur ákveðið þema en Gerri segir þó
allar ferðirnar vera fjölbreyttar og
menningarlegar. „Þó að ferðin heiti
jarðfræðiferð um hringveginn, þá
þarftu ekkert að hafa áhuga á jarð-
fræði. Það er alltaf slatti af tónlist,
nestisferðum, gönguferðum og
heimsóknum á sveitabæi. Ég reyni
alltaf að færa fólk aðeins frá þess-
um vinsælustu ferðamannastöð-
um landsins og sýni því eitthvað
óvænt.“ Gerri segist vera nemandi
Íslands, að hún lifi og andi land-
inu að sér og því sé engin ferð eins.
„Ég er alltaf að læra eitthvað nýtt.
Ferðirnar eru fullar af einhverju
óvæntu og það er það sem læt-
ur fólki líða eins og börnum á ný,
allt er fullt af undrum. Maður veit
nefnilega aldrei hvað býr á bakvið
næsta stein í Krummaferð, enda er
ég svolítið skrítin og mjög skap-
andi í hugsun,“ útskýrir hún. Gerri
býður upp um það bil þrjár ferðir á
hverju ári. Hún vildi þó óska að þær
væru mun fleiri. „Ég varð fyrir al-
veg gífurlegum vonbrigðum þegar
mínar tölur komu ekki upp í lott-
óinu nýlega, þegar milljarður doll-
ara var í vinning. Þá hefðu bæði líf-
ið mitt og Krummaferðirnar aldeil-
is breyst,“ segir hún og hlær. „En
við reynum alltaf að gera eitthvað
skemmtilegt, svo sem að ríða yfir
frosið vatn á íslenskum hestum,
skella okkur í sund í miðjum snjó-
byl og vera dregin af sleðahundum
yfir svartar hraunstrendur, svo eitt-
hvað sé nefnt.“
Elskar Vesturland
Gerri hefur ferðast um allt land-
ið, nema hálendi Íslands. Hún seg-
ir flestar ferðirnar eiga sér stað á
þannig tíma að ekki hafi hentað
að fara þangað. „Það er eiginlega
eina afsökunin fyrir því að hafa
ekki farið á hálendið. Ég vil reynd-
ar ekki fara með fólk á staði sem ég
hef ekki heimsótt sjálf þannig að
ég þarf greinilega að taka mig á.“
Hún segir Reykjanestánna vera í
miklu uppáhaldi hjá sér. Þar líkar
henni svo vel að hún talar um að
hún vilji láta dreifa öskunni sinni
þar eftir andlát sitt. „En annars er
ég líka hamingjusöm þegar ég er
stödd á toppi Hverfjalls í Mývatns-
sveit. En allra bestu staðirnir, sem
eru í mestu uppáhaldi hjá mér eru
Ensku húsin á Mýrum og Skálanes
fyrir austan. Ég myndi verða ótrú-
lega hamingjusöm ef ég gæti dval-
ið á þessum stöðum þar til ég verð
gömul og grá, ef ég væri ekki orðin
það nú þegar,“ segir hún og hlær.
Hún segist elska Vesturland af öllu
hjarta. „Vesturland hefur allt. Ég
myndi aldrei fara þangað án þess
að heimsækja Hilmar í Akranes-
vita, Önnu og Hjörleif í Ensku
húsunum og hina yndislegu Jó-
hönnu á Háafelli. Mig dreymir um
að flytja til Íslands og þegar af því
verður, þá held ég að ég yrði ham-
ingjusömust að búa á Vesturlandi,“
segir Gerri dreymin. Hún segir
landshlutann einnig hitta í mark
Leðurblökukonan sem elskar Ísland af öllu hjarta
Rætt við Gerri Griswold sem kveðst hafa ofvaxna ástríðu fyrir landi okkar
Gerri að spjalla við eina af geitum Jóhönnu á Háafelli.
Gerri Griswold er sérfræðingur í leðurblökum en starfar sem stjórnandi á safni og
menningarsetri í Winchester. Hún rekur einnig ferðaskrifstofuna Krummi Travel
sem sérhæfir sig í ferðum til Íslands.
Hópur sem kom til Íslands á vegum Krummi Travel á Snæfellsnesinu.