Skessuhorn - 03.02.2016, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRÚAR 2016 11
Eins og Skessuhorn greindi frá 20.
janúar síðastliðinn hefur verið lögð
fram tillaga að breyttu deiliskipu-
lagi við Borgarbraut 55-59 í Borg-
arnesi. Gildandi deiliskipulag mætti
á sínum tíma mikilli andstöðu íbúa
í nágrenninu, meðal annars vegna
skuggavarps og skerts útsýnis sem
háreist hús og mikið bygginga-
magn á lóðinni myndi hafa í för
með sér. Einnig höfðu íbúar lýst
áhyggjum af auknum vindstyrk. Á
föstudag fékk sveitarstjórn afhent-
an undirskriftalista 188 íbúa þar
sem breytingartillögunni er harð-
lega mótmælt. Í gögnum sem fylgja
undirskriftalistanum kemur fram
að íbúar telji byggingamagn á lóð-
unum ekki minnka, eins og sagt er
í breytingartillögunni. Samkvæmt
tillögunni verður heildarfermetra-
fjöldi sá sami og í gildandi deili-
skipulagi en byggingamagn minnk-
ar um 40 fermetra. Heimild til að
byggja bílakjallara að Borgarbraut
57 og 59 myndi þó auka heildar-
byggingamagnið.
„Það er álit okkar, sem stóðum
að þessari undirskriftasöfnum, að
hér sé ekki um minnkað bygginga-
magn að ræða. Þvert á móti virð-
ist okkur byggingamagn aukast og
við sjáum ekki hvernig sú niður-
staða er fengin að byggingamagn-
ið minnki,“ segir Anna Ólafsdótt-
ir íbúi við Kjartansgötu í samtali
við Skessuhorn. „Enn fremur vilj-
um við vekja máls á því að nýtingar-
hlutfall er líka aukið langt umfram
það sem segir til um í aðalskipulagi,
en þar er tilgreint að nýtingarhlut-
fall miðsvæðis eigi að vera 1,0 að
hámarki. Ef þessar hugmyndir eiga
fram að ganga teljum við að fyrst
þurfi að breyta aðalskipulaginu,“
bætir hún við.
Anna segir engan mótfallinn því
að byggt verði á lóðunum, en það
verði að vera með þeim hætti að
byggingar sem þar rísi í framtíð-
inni samræmist byggingahefðinni í
Borgarnesi. Byggingar á tveimur til
þremur hæðum telur hún að gætu
risið í sátt og samlyndi við íbúa í
nágrenninu en háhýsi á fimm til sjö
hæðum séu allt annar handleggur.
„Það sem ég hef lagt áherslu á, fyr-
ir mitt leyti, er að ég mótmæli fyrst
og fremst gildandi deiliskipulagi,
sem að mínu mati er gjörsamlega
fráleitt,“ segir hún. „Við búum hér í
fallegum, lágreistum bæ þar sem er
ákveðin byggingarhefð. Við búum
hér meðal annars af því við viljum
ekki borgarumhverfi með stórhýs-
um,“ bætir Anna við.
Enn fremur telja íbúarnir að há-
hýsin munu áfram auka hættu á
vindhviðum þar sem svæðið sé
vindasamt fyrir og þær aðferðir til
að draga úr vindstyrk sem gert er
ráð fyrir í breytingartillögu séu ekki
sannfærandi. Einnig telja íbúarnir
að umferðarþungi um Borgarbraut
muni aukast til muna á þessu svæði,
sem beri nú þegar illa þá umferð
sem þar fer um. kgk
Borgnesingar mótmæla tillögum
að breyttu deiliskipulagi
Hugmyndir að útliti Borgarbrautar 55-59 sem settar eru fram í breytingartillögu við gildandi deiliskipulag. Séð frá Hjálmakletti. Grafík: Sigursteinn Sigurðsson, arkitekt.
Heilsárstörf:
Rekstrarstjóri Afþreyingarmiðstöðvar
Umsjón með sundlaug
Starfsmenn í sölu- og markaðsstörf
Gestamóttaka
Þrif á herbergjum
Starfsmaður í þvottahúsi
Næturvörður
Leiðsögumenn
Sumarstörf
Tjaldverðir
Sundlaugarvarsla
Leiðsögumenn
Ræstitæknar
Almenn þjónustustörf
Um er að ræða fjölbreytt, krefjandi og skemmtileg heilsárs- og sumarstörf við ferðaþjónustu hjá
fyrirtækinu. Á Húsafelli er hótel, veitingastaður, bistró, verslun, sundlaug, tjaldsvæði, golfvöllur,
afþreyingar- og upplýsingamiðstöð og sumarhúsabyggð.
Við leitum að öflugu fólki sem brosir, hefur ríka þjónustulund og er sveigjanlegt ásamt því að hafa haldbæra reynslu
af þjónustustörfum og menntun sem nýtist í starfi.
Húsafell Resort auglýsir eftir kraftmiklu fólki til starfa
Óskum eftir fólki í eftirfarandi störf:
Áhugasamir sendi fyrirspurnir og umsóknir
ásamt ferilskrá með meðmælum og mynd
á netfangið: starf@husafell.is
Umsóknarfrestur er til og
með 17. febrúar 2016
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
HÚSAFELL
RESORT