Skessuhorn


Skessuhorn - 03.02.2016, Blaðsíða 28

Skessuhorn - 03.02.2016, Blaðsíða 28
MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRÚAR 201628 Vörur og þjónusta Hönnun prentgripa & alhliða prentþjónusta Drei bréf - Boðsbréf Ritgerðir - Skýrslur Reikningar - Eyðublöð Umslög - Bréfsefni Fjölritunar- og útgáfuþjónustan Getum við aðstoðað þig? sími: 437 2360 olgeirhelgi@islandia.is R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 Sprautu- og bifreiðaverkstæði Sólbakka 5, Borgarnesi • 437-1580 • sbb@simnet.is Tjónaskoðun – Bílamálun – Réttingar – Bílrúðuskipti Þjónustum öll tryggingafélög Borgarness Hilmir B ehf Alhliða pípulagningaþjónusta hilmirb@simnet.is facebook.com/hilmirbehf DAGLEGIR VÖRUFLUTNINGAR Stykkishólmur – Reykjavík B. Sturluson ehf. Nesvegi 13, Stykkishólmi 438 1626 / 862 1189 Vélsmiðja BA Nýsmíði • Vélaviðgerðir Breytingar • Viðhald Vélsmiðja BA • Sólbakka 25 • Borgarnesi • bhk@vortex.is Björn Kristjánsson 894 – 3336 Arnar Björnsson 849 – 9341 SMÍÐAVINNA – MÚRVERK RG ehf Bárugötu 19, Akranesi • Sími 821 2490 • ragnar4646@gmail.com Nýlega kom út bókin Mainstream- ing Landscape Through the Euro- pean Landscape Convention. Hún fjallar um forsögu og framfylgd evrópska landslagssamningsins sem hefur það að markmiði að stuðla að verndun landslags, góðu skipulagi m.t.t. þess og vandaðri landslags- hönnun. Einnig að fylgst sé með breytingum á landslagi svo bregðast megi við ef ástæða þykir til. Mark- mið samningsins eru jafnframt að Evrópulönd byggi upp þekkingu um greiningu, mat, skipulag og stjórnun að því er snýr að landslagi og deili reynslu af verkefnum sem því tengjast. Svæðisgarðurinn Snæfellsnes er eitt af þeim dæmum sem sagt er frá í bókinni og þar er að finna kafla um hann, ritaðan af Matt- hildi Kr. Elmarsdóttur, skipulags- fræðingi hjá Alta. Kaflinn ber heit- ið Snæfellsnes Regional Park in the Light of the European Lands- cape Convention. Kaflinn bygg- ir á reynslu ráðgjafa Alta við gerð svæðisskipulags fyrir Snæfellsnes og undirbúning að stofnun Svæð- isgarðsins Snæfellsness á árunum 2011-2015. Útgangspunktur þess verkefnis var að landslag væri auð- lind sem nýta mætti betur í ferða- þjónustu og öðrum atvinnugrein- um til að styrkja byggð og atvinnu- líf. Í kaflanum er fjallað um svæðis- garðinn og svæðisskipulagið út frá 6. grein Evrópska landslagssamn- ingsins, sem kveður á um landslags- greiningu, mat á landslagi, vitund- arvakningu um landslag, stefnu- mótun og eftirfylgni stefnu. Bókin er gefin út af Routledge og er hægt að panta hana þar, en einnig er hún fáanleg hjá öðrum bóksölum, t.d. á Amazon. mm/alta.is Fjallað um Svæðisgarðinn Snæfellsnes í nýrri bók Júlíana – hátíð sögu og bóka verð- ur haldin í Stykkishólmi dagana 25. – 28. febrúar næstkomandi. Í und- irbúningsnefnd vegna hátíðarinn- ar eru þær Gréta Sigurðardóttir, Dagbjört Höskuldsdóttir, Sigríður Erla Guðmundsdóttir og Þórunn Sigþórsdóttir. Að þessu sinni verð- ur viðfangsefni hátíðarinnar „En hvað það er skrítið.“ Hópur fólks les nú af kappi í tengslum við hátíð- ina bók Einars Más Guðmundsson- ar Hundadaga undir stjórn Ólafs K. Ólafssonar. Stefnt er að fjölbreyttri dagskrá sem hefst formlega í Vatnasafn- inu 25. febrúar og rekur hver við- burðurinn annan næstu þrjá daga. Á föstudeginum verður dagskrá á nokkrum stöðum. Nemendur i grunnskólanum vinna sýningu sem byggir á bókinni Mamma klikk eftir Gunnar Helgason, en höfundurinn verður einn af gestum hátíðarinn- ar og mun hitta nemendur í gömlu kirkjunni. Upplestur verður í Bóka- verzlun Breiðafjarðar og boðið upp á sögustund í tveimur heimahús- um um kvöldið, en dagskránni lýk- ur með sögugerð á Hótel Egilsen. Á laugardeginum munu rithöf- undarnir Sigmundur Ernir Rún- arsson og Einar Már Guðmunds- son fjalla um verk sín í gömlu kirkj- unni. Hrafnhildur Schram fjallar um bók sína um Nínu Sæmundsson í Vatnasafninu en verk þeirra allra byggja á frásögnum um fólk sem farið hefur ótroðnar slóðir. Dag- skrána í heild má innan tíðar finna á Facebook síðu hátíðarinnar: Júlí- ana hátíð sögu og bóka. mm Undirbúa bókahátíðina Júlíönu í Stykkishólmi Leshringur að störfum á Hótel Egilsen undir styrkri stjórn sýslumanns. Ljósm. Facebook/Júlíana - hátíð bóka. Snorrastofa í Reykholti býður til fyrirlestrar næstkomandi þriðju- dag 9. febrúar kl. 20:30 í bókhlöðu stofnunarinnar. Þar fjallar Kristín Á. Ólafsdóttir kennari við Mennta- vísindasvið Háskóla Íslands um list- og verkgreinar í grunnskólum og nefnir fyrirlestur sinn: „List og verkgreinar í grunnskóla: Nauð- syn eða afgangsstærð?“ Hún bygg- ir þar á rannsókninni Starfshætt- ir í grunnskólum við upphaf 21. aldar sem gerð var í 20 íslenskum grunnskólum í fjórum sveitarfé- lögum. Rannsóknin kom út í árs- lok 2014 og að henni unnu á þriðja tug fræðimanna við Háskóla Ís- lands og Háskólann á Akureyri. Fyrirlesarinn skoðaði sérstaklega, ásamt fleirum í rannsóknarhópn- um, list- og verkgreinar í skólun- um og í þeirri athugun voru við- horf nemenda, starfsmanna og for- eldra til námsgreinanna könnuð. Í fyrirlestrinum verður einnig sagt frá öðrum nýlegum rannsóknum á list- og verkgreinum í íslenskum grunnskólum. Gildi og markmið greinanna verða rædd og einnig litið aftur um rúma öld til að rifja upp það sem forkólfar í skólamál- um sögðu þá um menntun hug- ar og handa. Þeir sem gengu í barnaskóla upp úr miðri síðustu öld kannast kannski við að þessar greinar hafi verið kallaðar „auka- greinar“. Getur verið að þess gæti enn í viðhorfum foreldra grunn- skólabarna og jafnvel innan skól- anna? Kristín Á. Ólafsdóttir er búsett í Véum í Reykholti og er kennari við Menntavísindasvið Háskóla Ís- lands. Þar kennir hún meðal ann- ars verðandi kennurum leiklist í skólastarfi og tjáningu í töluðu máli. Kristín er menntaður leik- ari frá Leiklistarskóla Leikfélags Reykjavíkur og hefur bæði leik- ið og leikstýrt auk þess að vinna við dagskrárgerð í sjónvarpi og útvarpi. Hún lauk meistaranámi í uppeldis- og menntunarfræði frá Háskóla Íslands 2007. Aðgang- ur að fyrirlestrinum er 500 krónur og boðið verður til kaffiveitinga og umræðna að honum loknum. -fréttatilkynning Fyrirlestur um hvort list- og verk- greinar eigi undir högg að sækja

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.