Skessuhorn


Skessuhorn - 03.02.2016, Blaðsíða 10

Skessuhorn - 03.02.2016, Blaðsíða 10
MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRÚAR 201610 Á þriðjudagskvöld í síðustu viku var tekið fyrir á fundi bæjarstjórnar á Akranesi eitt umdeildasta mál síðari tíma í bæjarfélaginu. Ákveða skyldi hvort auglýsa ætti breytingu á deili- skipulagi sem HB Grandi hefur ósk- að eftir og er liður í framtíðaráform- um fyrirtækisins um uppbyggingu á Akranesi. Breytingin felur í sér að núverandi þurrkvinnsla félagsins sem staðsett er að Breiðargötu og Vestur- götu, verður sameinuð á einum stað að Breiðargötu, byggt verður nýtt hús undir eftirþurrkun og færibanda- þurrkun og verulegar umbætur gerð- ar á mengunarbúnaði. Getur fullbú- in verksmiðja afkastað um 600 tonn- um á viku en starfsleyfi núverandi verksmiðju heimilar um 170 tonna vinnslu á viku. Umrædd stækkun er umdeild meðal íbúa á Akranesi og hafa íbú- ar í nágrenni núverandi verksmiðju kvartað undan óþef sem komið hefur frá starfseminni undanfarin ár. Með nýrri byggingu og bættum mengunarbúnaði vonast HB Grandi hins vegar til þess að mun minni óþægindi verði af þurrkuninni og að lyktarmengun valdi ekki ónæði í ná- lægri íbúabyggð. Samþykkt var með fimm atkvæðum gegn fjórum að deiliskipulagsbreytingin færi í aug- lýsingu. Meirihlutinn í bæjarstjórn klofnaði í afstöðu sinni til málsins. Þeir sem voru fylgjandi voru Ólaf- ur Adolfsson, Einar Brandsson, Sig- ríður Indriðadóttir og Rakel Óskars- dóttir frá Sjálfstæðisflokki auk Ingi- bjargar Valdimarsdóttur frá Samfylk- ingu. Andvígir tillögunni voru Valdís Eyjólfsdóttir Sjálfstæðisflokki, Val- garður Lyngdal Jónsson Samfylk- ingu, Vilborg Þórunn Guðbjarts- dóttir Bjartri framtíð og Ingibjörg Pálmadóttir Frjálsum með Fram- sókn. Því voru einungis fjórir af sex bæjarfulltrúum meirihlutans fylgj- andi tillögunni en með atkvæði ann- ars fulltrúa Samfylkingarinnar var tillagan samþykkt í bæjarstjórn. Ekki til lykta leitt Málið er þó ekki til lykta leitt. Nú verður deiluskipulagsbreyting- in kynnt Akurnesingum í lögboðnu ferli og þeim þannig gert kleift að kynna sér málið og koma athuga- semdum á framfæri í samræmi við ákvæði skipulagslaga. Eftir að aug- lýsing um deiliskipulagsbreytinguna verður birt hafa íbúar sex vikur til að skila inn athugasemdum. Þá stend- ur til að bæjaryfirvöld haldi opinn íbúafund til frekari kynningar á þeim gögnum sem nú liggja fyrir varðandi skipulagsbreytinguna. Að kynningu lokinni fer málið aftur til bæjaryfir- valda þar sem lokaákvörðun um mál- ið verður tekin. Hafa ekki áhrif hver á annan Að sögn Ólafs Adolfssonar, oddvita Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórn og formanns bæjarráðs, hafa ver- ið skiptar skoðanir um málið með- al bæjarfulltrúa. „Það var samið um það í upphafi að bæjarfulltrúar taka ákvörðun í þessu máli á eigin for- sendum og reyna ekki að hafa áhrif hver á annan. Hver og einn greið- ir atkvæði eftir sinni samvisku þar til endanleg ákvörðun í málinu liggur fyrir. Bæjarfulltrúar hafa lagt mik- ið á sig til að komast á þann stað að treysta sér til að taka ákvörðun í þessu máli. Niðurstaða þriðjudags- ins er að meirihluti bæjarfulltrúa vill að deiliskipulagsbreytingin fari í auglýsingu og eftir það lögformlega ferli verður tekin afstaða til málsins að nýju. En ég geri ráð fyrir að mál- ið verði umdeilt alveg þar til end- anleg ákvörðun liggur fyrir,“ segir Ólafur í samtali við Skessuhorn. Lögðu fram nýja tillögu Bæjarfulltrúarnir fjórir sem voru andvígir tillögunni lögðu fram nýja tillögu þess efnis að bæjar- stjórn myndi hafna þeirri tillögu sem fyrir lá um deiliskipulags- breytingu á Breiðinni. Þess í stað yrði leitað að öðrum framtíðarstað fyrir fiskþurrkunarverksmiðjuna, þar sem ekki yrði hætta á lyktar- mengun frá framleiðslunni sem skert gæti lífsgæði íbúa eða rýrt verðmæti eigna. Með tillögunni var lögð fram greinargerð þar sem færð voru rök fyrir því hvers vegna fiskþurrkunin ætti ekki heima ná- lægt íbúðabyggð. „Fiskþurrkun- arverksmiðjur verða aldrei lykt- arlausar, samanber allar skýrslur sem gefnar hafa verið út þar að lútandi. Stærri bæjarfélög hafa al- mennt ekki treyst sér til að hafa slíka starfsemi í íbúabyggð. Nokk- ur bæjarfélög sem eru með slíka starfsemi innanborðs bíða eftir því að starfsleyfin renni út og stefna að því að starfsemin verði byggð upp utan íbúabyggðar. Það er kvíðvæn- legt fyrir framtíð Akraness ef víð- sýnin er ekki höfð að leiðarljósi í þessu máli,“ segir meðal annars í umræddri greinargerð. Var breyt- ingartillaga hópsins felld. Þá lagði Ingibjörg Valdimarsdóttir einnig fram eftirfarandi bókun með sínu atkvæði: „Undirrituð samþykk- ir hér með að senda fyrirliggjandi deiliskipulagstillögu nr. 1509146 vegna breiðarsvæðis - Breiðargötu 8, 8A og 8B í auglýsingu en er þó ekki með því að taka endanlega af- stöðu til deiliskipulagstillögunn- ar sjálfrar. Þá afstöðu mun ég taka þegar allar umsagnir liggja fyrir eftir lýðræðislegt auglýsingarferli og tillagan kemur til endanlegrar afgreiðslu í bæjarstjórn.“ Telja að draga muni úr ólykt Í október síðastliðnum óskaði bæj- arstjórn Akraneskaupstaðar eft- ir frekari gögnum frá HB Granda um það hvernig fyrirtækið hygð- ist lágmarka umhverfisáhrif við stækkun verksmiðjunnar áður en gengið yrði til atkvæðagreiðslu um deiliskipulagsbreytingarnar. HB Grandi vann í framhaldinu um- hverfisskýrslu þar sem gerð er ít- arlega grein fyrir áformum fyrir- tækisins og aðgerðum til að lág- marka lyktarmengun. Einnig er gert ráð fyrir að mæla árangur að- gerða félagsins samkvæmt ákveðn- um viðmiðunum í lyktarskynmati. Meginniðurstaða skýrslunnar er sú að með fyrirhuguðum fram- kvæmdum mun draga verulega úr lyktaráhrifum í nærumhverfi starf- seminnar þrátt fyrir aukna afkasta- getu. „Aldrei verður komist hjá allri lyktarmengun en lykt sem metin er með stöðluðu lyktarskyn- mati í 250 m fjarlægð frá þurrk- uninni ætti ekki að vera meiri en dauf, nema í undantekningartil- fellum, og því gætir lítilla áhrifa í íbúðabyggð,“ segir í samantekt skýrslu HB Granda. Óháðir meta lyktina Til stendur að stækkunin verði í tveimur áföngum, ef af henni verð- ur. Í skipulagstillögunni sem sam- þykkt var til kynningar er gert ráð fyrir að sameina for- og eftirþurrk- un HB Granda undir einu þaki. Í dag er þurrkvinnslan staðsett á tveim- ur stöðum á Neðri Skaga. Í fyrsta áfanga framkvæmdanna er stefnt að því að bæta við eftirþurrkunarhúsi við núverandi forþurrkunarhús. Þá kemur fram í skipulagstillögunni að óheimilt er að veita byggingarleyfi fyrir öðrum áfanga, nema tekist hafi að tryggja viðunandi grenndaráhrif í fyrri áfanga framkvæmdanna sam- kvæmt viðmiðum á lyktarskynsmati sem fyrirtækið hefur sett sér. Bæjar- yfirvöld á Akranesi gera því ráð fyr- ir að setja á laggirnar óháðan lykt- armatshóp sem kemur til með að meta lyktarmengun fyrir og eft- ir framkvæmdirnar, á völdum stöð- um í bænum. Í umhverfisskýrslu HB Granda segir að valdir verði þrír til fimm einstaklingar sem framkvæma muni lyktarmatið einu sinni til tvisv- ar í viku. „Þetta verður að vera hóp- ur sem er óháður fyrirtækinu. Enn á eftir að útfæra hvernig staðið verð- ur að vali í hópinn og framkvæmd lyktarmatsins. Niðurstöður hóps- ins verða svo nýttar til að meta hvort fyrirtækið nái þeim markmiðum sem sett eru fram. Náist þau markmið ekki og mengunarvarnir skili ekki tilætluðum árangri eru skýr ákvæði í deildiskipulagstillögunni að ekki verður heimilt að hefja framkvæmd- ir við seinni áfanga uppbygging- ar þurrkvinnslunnar,“ segir Ólafur. Í umhverfisskýrslu HB Granda má einnig finna töflu sem sýnir saman- burð núverandi ástands og framtíð- arástands með framkvæmdum og ít- arlegar töflur sem sýna alla áhættu- þætti vegna lyktarmengunar, ástæð- ur ólyktar og hvernig má koma í veg fyrir lyktarmengun. Skýr skilyrði Ólafur segir bæjarfulltrúa standa frammi fyrir einni grundvallar- spurningu. Hvort menn treysti HB Granda, einu öflugasta sjávarútvegs- fyrirtæki landsins, til þess að leysa það verkefni að draga svo úr lyktarmeng- un frá þurrkuninni á Akranesi að hún muni ekki valda íbúum ónæði. „Til að svara þeirri spurningu hafa bæjar- fulltrúar viðað að sér gögnum, farið í skoðunarferðir og sett ákveðna var- nagla eins og að heimila ekki áfanga tvö ef áform um lyktarmengun í áfanga eitt nást ekki. Við höfum kall- að til sérfræðinga frá VSÓ til að leið- beina okkur í þessu máli, hvort það sé mögulegt að draga úr lyktarmeng- un af þurrkuninni þannig að hún valdi íbúum í næsta nágrenni verk- smiðjunnar ekki óþægindum. Skýrsl- an liggur fyrir.“ Aðspurður um hvenær búast megi við að endanleg ákvörðun verði tekin í máli Laugafisks segist Ólafur ekki treysta sér til að koma með neinar tímasetningar. „Nú fer þetta í lög- bundið auglýsingaferli, þar sem hægt verður að skila inn ábendingum. Að loknu því ferli eiga að liggja fyrir frekari upplýsingar sem bæjarfulltrú- ar geta þá metið,“ segir Ólafur. Hann segir að á þessum tíma muni bæjaryf- irvöld halda íbúafund til upplýsinga fyrir íbúa Akraness. „Það skiptir máli að íbúar hafi aðgang að þeim gögn- um sem liggja fyrir bæjarfulltrúum og þar á ekkert að draga undan. Til- lagan fer svo aftur fyrir skipulags- og umhverfisráð þar sem innsend- ar athugasemdir eru metnar og þeim svarað. Tillagan kemur síðan vænt- anlega að endingu til bæjarstjórnar til endanlegrar afgreiðslu.“ grþ Samþykkt að auglýsa skipulag vegna stækkunar Laugafisks HB Grandi hyggst stækka fiskþurrkun sína á Neðri Skaga með þeim hætti að lykt af starfseminni muni hafa lítil áhrif á íbúðabyggð. Munur á áhrifasvæði þurrkverksmiðju í dag (efri mynd) og eftir fyrirhugaðar framkvæmdir (neðri mynd). Áfangaskipting framkvæmdanna. Ráðist verður í áfanga 1 eins fljótt og auðið er en þar verður ný eftirþurrkun, rými fyrir þurrkjöfnun og pökkun. Fáist byggingarleyfi fyrir seinni áfanganum munu framkvæmdir við hann hefjast þegar aðgengi fæst að heitu vatni og landfylling verður til staðar.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.