Skessuhorn - 03.02.2016, Side 2
MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRÚAR 20162
semin öll verða flutt tímabundið
á jarðhæðina. Að sögn Bernhards
Þórs Bernhardssonar svæðisstjóra
Arionbanka er stefnt að því að nýtt
útibú verði opnað í lok mars og að
verslunin verði síðan opnuð á jarð-
hæðinni í júní.
„Fyrr í vetur var auglýst eftir að-
ilum sem vildu deila húsnæði með
bankanum. Í kjölfar þess var sam-
ið við Nordic Store um leigu á
jarðhæðinni og verður húsnæðinu
breytt með það að leiðarljósi að það
henti sem verslunarhúsnæði. Sett-
ur verður annar inngangur á fram-
hlið hússins og gluggar stækkaðir,“
segir Bernhard. Þriðja hæð húss-
ins er einnig laus til útleigu og seg-
ir Bernhard að átt hafi sér stað við-
ræður við aðila um opnun veitinga-
staðar þar en ekkert sé þó enn frá-
gengið í þeim efnum.
Bernhard segir að þessar breyt-
ingar eigi ekki að koma sér illa fyr-
ir viðskiptavini bankans til lengri
tíma. Jafnvel þótt bankinn flytji
starfsemi sína á aðra hæð hússins sé
í því lyfta og góðar tröppur og að-
gengi verður því gott. Áfram verð-
ur hraðbanki á jarðhæð sem verð-
ur aðgengilegur allan sólarhringinn
og sjálfsafgreiðsluvél verður einnig
í útibúinu. Áfram verður boðið upp
á alla þjónustu í bankanum eins og
verið hefur til þessa.
Arionbanki hefur samið við Ei-
rík J. Ingólfsson byggingaverktaka
um að framkvæma breytingarnar á
húsinu og mun Límtré-Vírnet sjá
um raflagnavinnu. „Það er sérlega
ánægjulegt að svo öflugir aðilar í
heimabyggð skuli hafa fengist að
verkinu. Framkvæmdir munu hefj-
ast í næstu viku og það er ljóst að
þær munu hafa einhver óþægindi í
för með sér fyrir bæði viðskiptavini
og starfsfólk. Vonum við að fólk
sýni því skilning og biðlund,“ seg-
ir Bernhard.
mm
Dagur leikskólans er 6. febrúar næstkom-
andi. Viðburðir tengdir honum verða víða
í leikskólum á Vesturlandi daginn áður,
föstudaginn 5. febrúar. Er deginum ætlað
að vekja athygli á starfinu út á við og eru
áhugasamir foreldrar hvattir til að taka þátt
í viðburðum og kynna sér það merka starf
sem unnið er innan veggja leikskólanna á
Vesturlandi.
Það verður austan hvassviðri eða storm-
ur með snjókomu og jafnvel slyddu syðst
á landinu á morgun, fimmtudag. Hægari
vindur norðaustan til fram eftir degi. Frost
0 til 10 stig en frostlaust með suðurströnd-
inni. Hvöss norðaustanátt á föstudag með
snjókomu á Norðvesturlandi. Annars staðar
snýst í suðlæga átt 5-13 m/s. Víða úrkomulít-
ið en snjóar með köflum á Suðurlandi. Frost
0 til 8 stig. Á laugardag spáir norðaustanátt
með éljum norðan til. Hvassast á Vestfjörð-
um og mest úrkoma þar. Snjókoma eða
slydda suðaustan lands, annars úrkomu-
lítið. Dregur úr frosti. Norðaustlæg átt með
snjókomu eða éljum um landið norðan- og
austanvert á sunnudag og mánudag. Að
mestu bjart á Suðurlandi. Kólnandi veður.
Í síðustu viku var spurt á vef Skessuhorns: „Í
hvora buxnaskálmina klæðir þú þig fyrst?“
Flestir sem tóku afstöðu klæða sig í hægri
skálmina fyrst, eða 49,61% á meðan 30,71%
klæða sig fyrst í þá vinstri. 14,44% sögðu
misjafnt hvora skálmina þeir fara fyrst í en
aðeins 5,25% segjast slá tvær flugur í einu
höggi og fara í báðar skálmarnar í einu.
Í næstu viku er spurt:
Hvern eftirtalinna daga heldur
þú mest upp á: Bolludag,
sprengidag eða öskudag?
Skallagrímur vann á föstudag þrettánda sig-
urinn í röð í 1. deild kvenna í körfuknattleik
áður en sigurgangan tók endi á sunnudag.
Þrettán leikir án taps er ótrúlegur árang-
ur og næst ekki nema með vel þjálfuðum,
hæfileikaríkum leikmönnum sem mynda
góða liðsheild. Skallagrímskonur eru Vest-
lendingar vikunnar.
Til minnis
Veðurhorfur
Spurning
vikunnar
Vestlendingur
vikunnar
Mikið um óhöpp
í umferðinni
VESTURLAND: Þrátt fyr-
ir töluvert umferðareftirlit tók
Lögreglan á Vesturlandi eng-
an ökumann fyrir ölvun við
akstur eða akstur undir áhrif-
um fíkniefna alla síðustu viku,
sem verður að teljast nokk-
uð gott, að sögn Theódórs
Þórðarsonar upplýsingafull-
trúa LVL. Í dagbók hans kem-
ur fram að alls urðu átta um-
ferðaróhöpp í umdæminu í
vikunni. Nær öll vegna hálku
og vetrarfærðar. Tveggja bíla
árekstur varð á Leirársveit-
arvegi, annar bíllinn hafnaði
ofan í vegskurði. Þá fipaðist
ungum ökumanni við akstur-
inn innanbæjar í Borgarnesi
þegar hann kom að snjóruðn-
ingstæki og hafnaði bíllinn inn
í húsagarði við götuna, hálfur
í gegnum grindverkið. Allir
sluppu þarna án meiðsla. Öku-
maður pallbíls lenti í snjóruðn-
ingi á Vesturlandsvegi sunnan
Borgarfjarðarbúar síðastlið-
inn föstudag og missti stjórn
á ökutækinu sem hafnaði utan
vegar, valt en endaði á réttum
kili í kjarrgróðri. Ökumaður-
inn slapp án meiðsla. Fimm
erlendir ferðamenn veltu bíl
sínum við Sanddalsá neðan
við Sveinatungu í Norðurár-
dal um helgina. Töluverð-
ur snjór var í vegköntum og
fengu ferðamennirnir „mjúka
lendingu,“ að sögn sjónvar-
vottar, og sluppu án meiðsla.
Bíllinn var hins vegar óöku-
fær. Jeppi fór útaf við mæt-
ingu á Vatnaleiðinni og hafn-
aði á hliðinni. Ökumaðurinn
hlaut minnihátar meiðsli og
leitaði sjálfur til læknis. Fjall-
göngumaður rann á svelli í Il-
lagili sem er upp af Hafnardal
og fór úr axlarlið. Gekk hann
til móts við sjúkralið sem flutti
hann til læknis. Loks voru er-
lendir ferðamenn aðstoðað-
ir þar sem þeir höfðu fest bíla
sína, annar vestur á Snæfells-
nesi en hinn á Uxahryggjum.
-mm
Staðfesta
ákvörðun um
skólahald
HVANNEYRI: Á fundi
byggðarráðs Borgarbyggð-
ar síðastliðinn fimmtudag var
samþykkt tillaga fræðslunefnd-
ar um skólahald á Hvanneyri,
að fenginni umsögn skóla-
og foreldraráða. „Fræðslu-
nefnd leggur til að í Andabæ
[á Hvanneyri] verði frá haust-
inu 2016 samrekinn leik- og
grunnskóli fyrir börn 18 mán-
aða til loka þriðja bekkjar. Frá
hausti 2017 verði 12 mán-
aða börnum boðin skólavist
í Andabæ. Skólaakstur verði
frá Hvanneyri að Kleppjárns-
reykjum.“ Í bókun byggðar-
ráðs er lögð áherslu á að lokið
verði við gerð skólanámskrár
hið allra fyrsta í samvinnu við
hagsmunaaðila þar sem byggt
verði á þeirri vinnu sem þegar
hefur farið fram. Stjórn Íbúa-
samtaka Hvanneyrar og ná-
grennis er afar óánægð með
þessa afgreiðslu byggðarráðs
og hefur sent frá sér sérstaka
yfirlýsingu þar sem rökstudd
eru mótmæli samtakanna. Yf-
irlýsinguna má lesa í heild
sinni á bls. 22 í blaðinu í dag.
–mm
Eins og Skessuhorn greindi frá í
síðustu viku er Þörungaverksmiðj-
an eitt þeirra fyrirtækja sem styrkt
hefur söfnun björgunarsveitarinn-
ar Heimamanna í Reykhólasveit
til kaupa á nýjum og hraðskreiðum
björgunarbáti. Styrkti verksmiðjan
söfnunina um tvær milljónir króna.
Ekki er það eina velvildin sem Þör-
ungaverksmiðjan hefur sýnt björg-
unarsveitinni á undanförnum miss-
erum. Á dögunum voru endurnýj-
aðar sjúkrabörur í skipi verksmiðj-
unnar, Gretti BA-39. Var þá ákveð-
ið að nýta tækifærið og panta tvenn-
ar börur. Öðrum var komið fyrir í
skipinu en hinar voru færðar björg-
unarsveitinni að gjöf.
kgk
Þörungaverksmiðjan færði
Heimamönnum sjúkrabörur
Sjúkrabörurnar afhentar. F.v. Finnur Árnason framkvæmdastjóri Þörungaverk-
smiðjunnar og björgunarsveitarmennirnir Eiríkur Kristjánsson, Brynjólfur
Sveinsson formaður, Egill Sigurgeirsson og Bjarni Þór Bjarnason, sem jafnframt er
starfsmaður verksmiðjunnar. Ljósm. Þorgeir Samúelsson.
Sveitarstjórn Dalabyggðar hef-
ur samþykkt að ráða Hlöðver Inga
Gunnarsson í stöðu skólastjóra
Auðarskóla í Búðardal og kemur
hann til starfa að loknu yfirstand-
andi skólaári. Hlöðver Ingi hef-
ur verið deildarstjóri Varmalands-
deildar Grunnskóla Borgarfjarð-
ar frá árinu 2012 og er í vetur sett-
ur skólastjóri í fjarveru Ingibjarg-
ar Ingu Guðmundsdóttur. Þorkell
Cýrusson er settur skólastjóri Auð-
arskóla þar til nýr skólastjóri kem-
ur til starfa.
sm
Hlöðver Ingi ráðinn skólastjóri Auðarskóla
Á næstu vikum og misserum mun
verða vart við ýmsar framkvæmd-
ir í húsi Arionbanka við Digranes-
götu í Borgarnesi. Á undanförnum
árum hefur bankastarfsmönnum
fækkað og nú er svo komið að tíma-
bært þykir að þjappa starfseminni
saman. Ein hæð af þremur í hús-
inu dugar fyllilega fyrir bankann.
Arionbanki hefur gert samning við
eigendur verslanakeðjunnar Nordic
Store um leigu á neðstu hæð húss-
ins undir verslun fyrir ferðamenn
og stefnt að hún verði opnuð í júní
í sumar. Við þessa breytingu mun
starfsemi Arionbanka í Borgarnesi
verða flutt á miðhæð hússins. Til
að undirbúa breytingar á húsnæð-
inu mun í næstu viku bankastarf-
Aukin starfsemi færist í bankahúsið í Borgarnesi
Nú verður ráðist í breytingar á Digranesgötu 2. Í sumar verður Nordic Store ferða-
mannaverslun opnuð á jarðhæð, en starfsemi bankans verður á miðhæðinni.
Stefnt er að opnun veitingastaðar á efstu hæðinni þaðan sem glæsilegt útsýni er.
Svo virðist sem gríðarlega mikið
af síld sé nú að ganga inn í Breiða-
fjörðinn. Skipstjórinn á Hákoni EA
mældi á fimmtudagskvöldið síðasta
stærstu síldartorfu sem hann hefur á
ævinni séð. Var hann þá staddur á ut-
anverðum Breiðafirði. Fréttavefur-
inn kvotinn.is greinir frá þessu. Haft
er eftir Guðjóni Jóhannssyni skip-
stjóra að torfan hafi verið 1,7 sjómíl-
ur að lengd og upp í þúsund metra
breið og hundrað faðma þykk þar
sem hún var þykkust. „Þetta er það
langmesta sem maður hefur nokk-
urn tímann á ævinni séð af síld og
hefur maður þó verið á síldveiðum
við Norður-Noreg á gullárunum,“
sagði Guðjón Jóhannsson skipstjóri
í samtali við kvotinn.is á föstudag-
inn. „Við erum nú á síld fyrir vestan,
erum að klára það litla sem var eftir
af kvótanum. Við eigum eftir að taka
einhver 100 tonn, þá er það búið, en
kvótinn var um 6.000 tonn.
Maður þorir ekkert að kasta nót
í þetta, maður er alltaf að leita að
einhverju litlu til að skila hæfilegu
magni fyrir vinnsluna. Ef maður
setti nót ofan í þetta, fengi maður
ekkert nema teinana upp, kannski
korka- og blýateininn. Ég er hrædd-
ur um að garnið myndi allt hverfa
og þó er ég með sterka loðnunót. Ég
þori alls ekki að kasta í þetta,“ sagði
skipstjórinn á Hákoni.
mm
Mældi stærstu síldartorfu sem
hann hefur nokkru sinni séð
Hákon EA á siglingu. Ljósm. af.