Skessuhorn - 24.02.2016, Síða 10
MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRÚAR 201610
Á fundi sveitarstjórnar Borgar-
byggðar síðastliðinn föstudag tók
nýr meirihluti formlega við völdum
í sveitarfélaginu. Á dagskrá fundar-
ins voru sex atriði sem tók sveitar-
stjórnarfulltrúa 11 mínútur að af-
greiða. Kosið var í allar helstu
nefndir og ráð og málefnasamning-
ur Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks
lagður fram. Þá var samþykkt með
sex atkvæðum að segja upp ráðning-
arsamningi við Kolfinnu Jóhann-
esdóttur fráfarandi sveitarstjóra og
samþykkt að auglýsa starf sveitar-
stjóra laust til umsóknar. Guðveig
Eyglóardóttir oddviti Framsókn-
arflokks þakkaði í ávarpi sínu Kol-
finnu Jóhannesdóttur góð störf og
sagði m.a.: „Hún hefur á þeim tíma
sem hún hefur starfað sem sveitar-
stjóri áorkað af miklum krafti og
dugnaði að framfylgja þeim fjöl-
mörgu, og mörgum mjög krefjandi,
verkefnum sem sveitarstjórn hef-
ur falið henni á þessum tíma. Þegar
hefur náðst mikil hagræðing í rekstri
og sjóðsstaða sveitarfélagsins hefur
stórlagast á þeim tíma sem liðinn er
af þessu kjörtímabili.“
Björn Bjarki Þorsteinsson (D)
verður áfram forseti sveitarstjórnar
en því embætti gegndi hann einn-
ig í meirihlutasamstarfi með Fram-
sóknarflokknum. Geirlaug Jóhanns-
dóttir (S) verður formaður byggðar-
ráðs. Magnús Smári Snorrason (S)
formaður fræðslunefndar, Hulda
Hrönn Sigurðardóttir (D) formað-
ur velferðarnefndar og Jónína Erna
Arnardóttir (D) formaður umhverf-
is,- skipulags- og landbúnaðar-
nefndar.
Samvinna og traust að
leiðarljósi
Í sáttmála meirihlutaflokkanna seg-
ir að Borgarbyggð framtíðar verði
leiðarstefið í samstarfi flokkanna og
verði kappkostað að innleiða í ríkara
mæli langtímahugsun með skýrum
markmiðum og framtíðarsýn. „Til
þess að slík vinna öðlist gildi þarf
að leita eftir frumkvæði og þátttöku
íbúa í stefnumótun sveitarfélagsins.
Því verða gildi á borð við samvinnu,
auðmýkt og traust höfð að leiðar-
ljósi,“ segir í sáttmálanum. Með-
al þess sem fram kemur er að unn-
in verði upplýsinga- og lýðræðis-
stefna fyrir samfélagið, ný gagnvirk
heimasíða verði opnuð á vormánuð-
um, fundargerðir verði ýtarlegri og
mannauðsmál og mannauðsstjórn-
un eiga að fá aukið vægi í stjórn-
sýslu sveitarfélagsins. Þá segir að
mikilvægt sé að aðhalds verði gætt
í rekstri og hagræðingaraðgerðum
verði framhaldið. Áfram verði unn-
ið markvisst samkvæmt þeim „vörð-
um“ sem settar voru inn í aðgerð-
aráætlunina „Brúin til framtíðar“.
Unnin verði greining á arðsemi og
markmiði með eignarhaldi á hlut
Borgarbyggðar í Orkuveitu Reykja-
víkur með hugsanlega innlausn
eigna í huga. Skal þeirri greiningu
verða lokið í september á þessu ári.
Lokið við gerð
skólastefnu
Þá segir í meirihlutasamningn-
um að ný skólastefna verði klár-
uð fyrir Borgarbyggð. Áfram verð-
ur unnið að endurskipulagningu á
Grunnskóla Borgarfjarðar með það
að leiðarljósi að nýta fjármuni sem
best, gæði kennslu og þjónusta við
nemendur verði sem best og í sátt
við íbúa. Unnið verði áfram að því
að bæta aðstöðu starfsfólks og leik-
skólabarna á Hnoðrabóli og horft til
þess að leikskólinn færist að Klepp-
járnsreykjum sem fyrst, undirbún-
ingur verði unninn í samstarfi við
starfsfólk og foreldra. Á Hvanneyri
verði áfram unnið að hagræðingu í
rekstri skóla, í samstarfi við starfs-
fólk, foreldrasamfélagið og aðra
hagsmunaaðila. Skoðað verði með
mögulega samþættingu stjórnunar
og húsakosts. Áfram verði unnið að
undirbúningi á endurbótum og við-
byggingu við Grunnskólann í Borg-
arnesi, sumarlokun leikskóla verði
stytt í tvær vikur, unnið verði að
útfærslu í samstarfi fræðslunefnd-
ar og forstöðumanna leikskólanna.
Unnið verður að útgáfu Frístunda-
korts til barna og unglinga í Borgar-
byggð og stutt verði við framkvæmd
á Unglingalandsmóti UMFÍ sem
halda á í Borgarbyggð 2016. Geng-
ið verður frá skipan í ungmennar-
áð og hlutverk þess eflt. Menning-
arstefnu Borgarbyggðar verði fylgt
við mögulegt endurmat á safnastarf-
semi sveitarfélagsins og unnið að því
að auka nýtingu á menningarhúsinu
Hjálmakletti.
Vegamál og ljósleiðari
sett í samstarfssamning
Varðandi umhverfi, skipulag og
samgöngur segir að sveitarfélagið
stefni í fremstu röð í umhverfis- og
sorpmálum og mikilvægt sé að vinna
að því með íbúum og auka þar með
virkni hvað varðar umhverfisvitund
alla. Unnið verði að uppbyggingu
ferðamannastaða í samvinnu við
landeigendur og aðra hagsmunaaðila
sem og ríkisvaldið. Rammaskipu-
lag varðandi nýtingu á Kárastaða-
landi og Hamarslandi verði unnið
á næstu tveimur árum, hugað verði
að fjölgun lóða í sveitarfélaginu þar
sem íbúaþróun hefur verið jákvæð
undanfarið ár og þarf lóðaframboð
að vera í takt við þá þróun. Heildar-
skipulag fyrir miðsvæði Borgarness
verði unnið og hugað verði að um-
ferðaröryggi samhliða þeirri vinnu.
Þrýst verði enn og aftur á Vegagerð-
ina um að undirgöng verði gerð á
móts við leikskólann Klettaborg
og samhliða því verði horft til um-
ferðaröryggis við þjóðveg 1 í gegn-
um Borgarnes. Þrýst verði á Vega-
gerðina um endurbætur í vegamál-
um, vegalengdir séu miklar í Borg-
arbyggð og víða er óviðunandi staða
í vegamálum. Borgarbyggð verði
virkur þátttakandi í ljósleiðaramál-
um og ljósleiðaravæðingu landsins
alls, líkt og í vegamálum er óviðun-
andi staða hvað varðar nettengingar
víða í sveitarfélaginu.
mm
Nýr meirihluti tekinn við í Borgarbyggð
Fulltrúar meirihlutaflokka Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks sem mættir voru á fundinn á föstudaginn, en vegna forfalla
voru kallaðir inn tveir varafulltrúar. F.v. Jónína Erna, Björn Bjarki, Magnús Smári og varafulltrúarnir Lilja Björg og Björk.
Niðurstöður liggja nú fyrir í út-
tekt vinnusálfræðinga og skýrsla
stjórnunarráðgjafa sem fengnir
voru um miðjan október síðastlið-
inn til að gera úttekt á ágreinings-
málum og samskiptavanda sem
kominn var upp í röðum starfs-
fólks í Fjölbrautaskóla Vestur-
lands. Sneru umkvartanir einkum
að samskiptaháttum skólameistara.
Í skýrslu ráðuneytisins kemur fram
að efla beri mannauðsþátt stjórn-
unar og er skólameistara gert að
leggja fram umbótaáætlun innan
tveggja vikna.
Það var að beiðni mennta- og
menningarmálaráðuneytisins sem
sérfræðiteymið var fengið að skól-
anum síðastliðið haust. Ráðuneyt-
ið fékk Martein Steinar Jónsson,
fyrirtækja- og vinnusálfræðing, til
að gera úttekt og benda á lausnir
í ágreiningsmálum innan skólans.
Framkvæma skyldi úttekt á að-
stæðum, starfsanda og samskiptum
með það að markmiði að leita leiða
til úrbóta og sátta meðal starfs-
manna og stjórnenda. Auk Mar-
teins kom stjórnunarráðgjafinn
Hildur Jakobína Gísladóttir að út-
tektinni sem samstarfsaðili. Í krafti
upplýsingalaga hefur ráðuneytið
svarað fyrirspurn Skessuhorns um
hverjar væru helstu niðurstöður
úttektarinnar. Starfsmönnum FVA
var kynnt niðurstaða úttektarinnar
á fundi sem fram fór í ráðuneytinu
fyrir miðjan þennan mánuð.
Síðastliðið haust var Þor-
steinn Þorsteinsson fyrrverandi
skólameistari Fjölbrautaskólans
í Garðabæ ráðinn sem sérstakur
stjórnunarráðgjafi við skólann og
skyldi hann vera skólameistara til
ráðgjafar við úrlausn á þeim sam-
skiptavanda sem kominn var upp
innan skólans. Ásamt því að funda
reglulega með stjórn og starfsfólki
skólans, vera tiltækur til viðræðna
og leggja á ráðin um úrlausn vand-
ans, var honum ætlað að upplýsa
menntamálaráðuneytið um gang
mála og skila niðurstöðum og til-
lögum um úrbætur. „Tilefni þess-
arar tvíþættu aðgerðar ráðuneyt-
isins var formlegt erindi starfs-
manna skólans í október um að-
komu ráðuneytis vegna samskipta-
vanda sem þeir töldu að hefði slæm
áhrif á skólastarfið,“ segir í skýrslu
ráðuneytisins.
Gagnrýni á
stjórnunarhætti
Niðurstöður liggja nú fyrir og kom
fram í viðtölum vinnusálfræðinga
sem fóru fram í byrjun nóvember
og könnunum í kjölfarið að starfs-
andinn væri neikvæður og starfs-
fólk upplifði óöryggi, kvíða og
vantraust. Þá kom fram gagnrýni á
stjórnun skólans þess efnis að sam-
ráð og upplýsingastreymi væri ekki
nægilegt og opin samskipti skorti.
Í skýrslunni segir að úttektaraðilar
telja að gögn málsins gefi til kynna
að meginorsök vandans mætti rekja
til stjórnunarhátta og vantraust
hafi skapast vegna skorts á sam-
ráði. Þess var þó getið að tiltekn-
ir einstaklingar hafi verið skóla-
meistara afar mótdrægir. „Tillög-
ur úttektaraðila um úrbætur felast
að mestu í að efla þurfi mannauðs-
þátt stjórnunar og að leggja beri
áherslu á innleiðingu viðurkenndra
vinnuverndarsjónarmiða og sam-
skiptahefða sem stuðla að góðum
starfsanda, heilbrigði og öryggi á
vinnustaðnum,“ segir í niðurstöð-
um skýrslunnar.
Lögð verði fram
umbótaáætlun
Í niðurstöðum Þorsteins Þorsteins-
sonar kemur fram að hans aðkoma
að skólanum snerist fyrst og fremst
um að veita leiðsögn sem byggði
á jákvæðum og uppbyggilegum
stjórnunarstíl með skýrum skila-
boðum, góðum starfslýsingum og
einföldu en virku upplýsingaflæði.
„Stjórnandi veiti svigrúm til sköp-
unar, beiti virkri hlustun og sýni
samstarfsvilja. Með þeim aðferðum
sé stuðlað að starfsanda sem bygg-
ir á virðingu, opnum samskiptum
og trausti. Ýmsar breytingar hafa
verið innleiddar með aðkomu ráð-
gjafans m.a. valddreifing í formi
stjórnunarteymis,“ segir í skýrslu
ráðuneytisins um málið.
Tillögur Þorsteins um úrbæt-
ur byggja á því að bæta starfs-
anda með ofangreind viðmið um
jákvæða stjórnunarhætti í huga.
„Hann telur að skólameistari hafi
tekið ábendingum, tillögum og
hvatningum hans með jákvæðu
viðhorfi og hafi burði til að vera og
verða farsæll stjórnandi FVA. Hún
þekki skólaumhverfið vel og hafi
áhuga á starfinu og metnað fyr-
ir hönd skólans. Að þessum niður-
stöðum fengnum hefur ráðuneyt-
ið nú mælst til þess að skólameist-
ari leggi fram umbótaáætlun inn-
an tveggja vikna. Áætlunin miðist
við þá þætti sem bæta þarf úr sam-
kvæmt niðurstöðum úttektar og
mats frá ráðgjafa og skal hún unnin
í samstarfi og samráði við starfsfólk
og ráðgjafa eftir nánari ákvörð-
un.“ Loks segir að úttekt á starfs-
anda í skólanum fari fram í byrjun
nóvember 2016. mm
Niðurstaða úttektar um samskiptavanda innan FVA