Skessuhorn - 24.02.2016, Page 11
MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRÚAR 2016 11
VERKEFNASTJÓRI
Ungmennafélag Íslands auglýsir eftir verkefnastjóra
vegna Unglingalandsmóts UMFÍ sem haldið verður í
Borgarnesi um verslunarmannahelgina 2016
Um er að ræða starf í ca. tvo mánuði, júní og júlí og þarf viðkomandi
að vera staðsettur í Borgarnesi eða nágrenni. Starfið er skemmtilegt
og gefandi en verkefnastjóri vinnur við hlið framkvæmdastjóra og
hóps fólks sem heldur utan um verkefnið.
Þekking á Ungmennafélagshreyfingunni er kostur.
Frekari upplýsingar veitir Ómar Bragi Stefánsson, sími: 898-1095.
Umsóknarfrestur er til 15. mars 2016 og skal skila umsóknum á
netfangið omar@umfi.is.
Ungmennafélag Íslands S
K
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
Körfuknattleiksfélag Akraness
Íþróttahúsið við Vesturgötu
1. deild
Fimmtudaginn 25. febrúar kl. 19.15
ÍA - Fjölnir
Fjölmennum og hvetjum
ÍA til sigurs!
Deildarfundur
Hvalfjarðardeildar
Kaupfélags Borgfirðinga
Við höldum 1. vetrardag hátíðlegan og
blásum til veislu í Kaupfélagi Borgfirðinga
laugardaginn 25. október 2008 kl. 12-15
Flugger litir veita ráðgjöf og verða með tilboð
Mjólka kynnir vörur sínar
Kynning á hrei siefnum frá Kemi
Kynning og tilboð á Kerckhaert
járningavörum, umboðsmaður
á staðnum, býður upp á ís
* Vetrarskeifurnar með
breiða teininum komnar *
Tískusýning á vetrarfatnaði,
tilboð á fatnaði frá 66°N
10 - 50 % afsláttur af völdum vörum
í versluninni
Royal Canin, glaðningur fylgir
öllum pokum af hunda-og kattamat.
Umboðsmaður á staðnum
Kaffi og rjómaterta
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
Íbúar í Hvalfjarðarsveit – Akranesi.
Deildarfundur Hvalfjarðardeildar Kaupfélags
Borgfirðinga verður haldinn að Laxárbakka
miðvikudaginn 2. mars 2016 kl. 20:30.
Dagskrá:
1. Rekstur KB 2 15 og horfur á rinu 2016.
2. Margrét K. Guðnadóttir dýralæknir og verslunarstjóri
kynnir nýjasta nýtt í verslun KB.
3. Kosning deildarstjóra og fulltrúa á aðalf nd KB 2016.
Félagið býður fundarmönnum uppá kaffi og meðþví!
Íbúar á svæðinu geta gengið í félagið á staðnum.
Inntökugjald er kr. 1.000. Ekkert árgjald er í félaginu.
Kaupfélag Borgfirðinga.
Starfsfólk og íbúar á Dvalar- og
hjúkrunarheimilinu Höfða á Akra-
nesi fengu að prófa og skoða glæsi-
leg reiðhjól þegar verkefnið „Hjól-
að óháð aldri“ var kynnt síðastlið-
inn miðvikudag. Reiðhjólin koma
upprunalega frá Danmörku, þar
sem verkefnið hefur notið mikilla
vinsælda á hjúkrunar- og dvalar-
heimilum. Fremst á hjólinu er sæti
með svuntu og skyggni þar sem
einn eða tveir einstaklingar geta
setið og notið þess að komast í hjó-
latúr á nýjan leik. Sesselja Trausta-
dóttir hjá Hjólafærni er verkefnis-
stjóri Hjólað óháð aldri. Á kynn-
ingu sinni á Höfða sagði hún slík
hjól vera komin á hjúkrunarheim-
ili um allan heim á örfáum árum,
þar með talið á 400 heimili í Dan-
mörku. Hjólafærni á Íslandi hef-
ur leitt innleiðingu og utanum-
hald Hjólað án aldurs á Íslandi frá
því að verkefnið hófst fyrir nokkr-
um mánuðum. Nú þegar eru komin
þrjú hjól á hjúkrunarheimili á höf-
uðborgarsvæðinu og fleiri á leið-
inni á landsbyggðina.
Samtal án orða
Hjólað óháð aldri byggir á því að
rjúfa einangrun og efla lífsgleði
íbúa á hjúkrunarheimilum með því
að gefa þeim kost á að fara út að
hjóla. Sjálfboðaliðar sjá um að hjóla
hjólinu sem er með litlum rafmót-
or sem auðveldar aksturinn. Sjálf-
boðaliðarnir eru kallaðir hjólarar
og geta verið úr röðum nágranna,
ættingja eða jafnvel starfsmanna
hjúkrunarheimilanna. Þá eru skip-
aðir hjólastjórar en þeir halda utan
um verkefnið. Að sögn Sesselju eru
haldin hjólaranámskeið fyrir alla þá
sem hafa áhuga á að gerast hjólarar.
„Eldra fólk hefur verið ánægt með
þetta. Það fær þarna tækifæri til að
finna vindinn í vangann á nýjan leik,
að upplifa fuglasöng, gróðurinn og
ferðast um göngustíga sem það hef-
ur ekki séð lengi,“ sagði Sesselja í
erindi sínu. Reynslan hefur sýnt
að hjólaferðirnar hafa aukið vel-
líðan þeirra sem þær stunda og að
þarna skapist einstök leið fyrir að-
standendur til að njóta tilverunnar
með þeim sem ef til vill er ekki auð-
velt að eiga samtal við. „Með þessu
er hægt að njóta þess að vera sam-
an, að vera úti og að upplifa. Ekki
að vera alltaf bara að tala saman. Í
hjólatúr er nefnilega hægt að eiga
samtal án orða.“ Sesselja benti jafn-
framt á að hjólin væri hægt að nota
árið um kring og aðstæður á Akra-
nesi væru einstaklega góðar til hjól-
reiða.
Leitað að áhugasömum
aðilum
Íbúum á Höfða leist vel á reiðhjól-
in og biðu spenntir eftir því að fá
að prófa þau. Í samtali við Skessu-
horn sagði Helga Atladóttir hjúkr-
unarforstjóri á Höfða að næstu
skref væru að safna fyrir slíku hjóli,
sem kostar um 800 þúsund krónur.
„Við vitum að það yrði frábært fyr-
ir fólkið okkar að hafa aðgang að
svona hjóli. Nú er verið að leita eft-
ir áhugasömum aðilum til að halda
utan um verkefnið á Höfða og
einnig eftir einhverjum sem geta
haldið utan um slíka söfnun,“ seg-
ir Helga.
Kristján Ásgeirsson íbúi á Höfða
var einn þeirra sem prófaði hjólið í
síðustu viku og í kjölfarið setti hann
fyrstu 1000 krónurnar í söfnunina.
„Líknarfélög gætu til dæmis styrkt
þetta málefni, sem og fyrirtæki eða
einstaklingar sem hafa áhuga. Við
höfum einnig haft samráð við ÍA
um verkefnið. Þetta er hópur sem
á tilkall til þjónustu frá ÍA eins og
aðrir bæjarbúar, þó þeir nýti þá
þjónustu sjaldan,“ segir Helga. Þeir
sem hafa áhuga á að leggja verk-
efninu lið á einhvern hátt geta haft
samband við Maríu Ásmundsdótt-
ur iðjuþjálfa eða Elísabetu Ragn-
arsdóttur sjúkraþjálfara á Höfða.
grþ
Hjóla óháð aldri á
glæsilegum reiðhjólum
Hjólið góða prufukeyrt á Höfða.
Íbúar á Höfða fylgdust áhugasamir með þegar verkefnið Hjólað án aldurs var
kynnt síðastliðinn miðvikudag.