Skessuhorn - 24.02.2016, Qupperneq 13
MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRÚAR 2016 13
Bambo Nature bleiurnar eru einstaklega mjúkar og
þægilegar. Þær eru afar rakadrægar og ofnæmisprófaðar
auk þess sem gott snið og teygjur í hliðum gera það að
verkum að þær passa barninu fullkomlega.
Bambo Nature
PI
PA
R\
TB
W
A
•
SÍ
A
Snorrastofa í Reykholti
Fyrirlestrar í héraði
Snorrastofa, menningar- og miðaldasetur
í Reykholti
Sími 433 8000
www.snorrastofa.is
snorrastofa@snorrastofa.is
Þriðjudagurinn 1. mars 2016
kl. 20:30
í Bókhlöðu Snorrastofu
Landnámabók sem (landa)kort
Nokkrar hugleiðingar
Dr. Emily Lethbridge flytur (á íslensku)
Dr. Emily fjallar um þá hug-
mynda fræði að hlut verki
landa korta og bókmennta svipi
saman við að koma skipulagi á
og halda utan um þekkingu
á landi og lífi. Emily tekur við Hagnýtingarverðlaunum
Háskóla Íslands 2015 fyrir verkefnið
Icelandic Saga MapUmræður og kaffiveitingar
Aðgangur kr. 500
Ákveðið hefur verið að stofnuð verði
sérstök fimm ára deild í Grunnskóla
Grundarfjarðar. Að sögn Sigurðar
Gísla Guðjónssonar skólastjóra er
ástæðan meðal annars sú að þann-
ig má nýta betur húsnæði skólanna.
„Eins og staðan er núna eru tæp-
lega 70 nemendur í 440 fermetra
húsnæði leikskólans en 92 nemend-
ur í rúmlega 3000 fermetrum skóla.
Það var því stofnaður stýrihópur í
febrúar til að skoða möguleikana á
betri nýtingu húsnæðis. Það var svo
ákveðið að fara þá leið sem stýri-
hópurinn lagði til, þ.e að leikskóla-
deildin komi inn í grunnskólahús-
ið undir handleiðslu leikskólakenn-
ara,“ segir Sigurður í samtali við
Skessuhorn. Leikskóladeildin mun
starfa eftir lögum um leikskóla og
eftir aðalnámskrá leikskóla. Skóla-
stjóri grunnskólans mun hafa um-
sjón með deildinni. Sigurður seg-
ir muninn því ekki vera mikinn á
fimm ára deild og hefðbundinni
deild á leikskóla. „Leikskólagjöld-
in verða áfram þau sömu og vistun-
artími sá sami. Systkinaafsláttur og
allt slíkt mun standa óbreytt. Þessi
hugmynd hefur verið í samfélaginu
lengi og þetta hefur mikið verið
rætt á undanförnum árum. Þetta
var kosningaloforð beggja flokka í
síðustu kosningum og með þessu
næst að taka tólf mánaða börn inn á
leikskólann.“
Enn óbreyttur leikskóli
Sigurður segir stofnun deildar-
innar bjóða upp á ýmsa spennandi
möguleika. Húsnæðið sé stórt og
að mögulega verði hægt að nýta
íþróttahúsið og heimilisfræðistofu
í meira mæli en nú er gert. „Svo
kemur í ljós hvernig við þróum
þetta áfram. Auglýst hefur verið
eftir leikskólakennara sem kemur
til með að móta þetta starf í sam-
starfi við aðra stjórnendur. Við
höfum verið með verkefnið „Brú-
um bilið“ og gerum má ráð fyrir að
samstarfið á milli leik- og grunn-
skóla eflist enn frekar þegar deild-
in er tilbúin. Þess ber að geta að
þarna er ekki um fimm ára bekk að
ræða, heldur er þetta áfram leik-
skóladeild,“ segir hann. „Í aðal-
námskrá leikskóla er gerð krafa um
að börnin læri í gegnum leik. Það
verður því til dæmis meiri útivera
en hjá nemendum í 1. bekk,“ held-
ur hann áfram. Áætlað er að um-
rædd deild verði færð yfir í grunn-
skólann með vorinu. „Það þarf
fyrst að ganga frá ráðningu leik-
skólakennara og fara í innanhúss
breytingar. Þau fara í núverandi
myndmenntastofu og það þarf því
að gera einhverjar breytingar á
húsnæðinu. Svo þarf bara að vinna
hratt og gera þetta vel,“ segir Sig-
urður Gísli skólastjóri í Grundar-
firði.
grþ
Fimm ára deild stofnuð í
Grunnskóla Grundarfjarðar
Sigurður Gísli Guðjónsson skólastjóri
Grunnskóla Grundarfjarðar.
Tvær umferðir fóru fram í
Spurningakeppni Snæfellsbæjar síð-
astliðið föstudagskvöld. Að þessu
sinni kepptu GSNB strákar í Ólafs-
vík á móti Valafelli í fyrri umferðinni.
Þar var um hörkukeppni að ræða sem
endaði með sigri Valafells. Í seinni
umferðinni kepptu Iðnaðarmenn á
móti saumaklúbbnum Preggí. Í báð-
um umferðum réði gleðin og glens
ferðinni þó keppnisskapið væri ekki
langt undan. Stelpurnar í Preggí
voru í dúndurstuði og sigruðu Iðn-
aðarmennina. Var þetta hin besta
skemmtun fyrir þá sem mættir voru.
Það hefði þó verið enn skemmti-
legra að sjá fleiri áhorfendur en eins
og allir vita rennur ágóðinn af þess-
um keppnum til Smiðjunnar í Ólafs-
vík. Þetta framtak er í boði Lions-
klúbbsins Þernunnar á Hellissandi og
er hugsað sem tilbreyting í skemmt-
analíf íbúa Snæfellsbæjar.
þa
Valafell og Preggí báru sigur úr býtum
Ung Skagastúlka hefur verið feng-
in til að vera á sýningarleik dip-
lómahóps á Íslandsmeistaramótinu í
hnefaleikum sem fram fer um næstu
helgi. Tinna Gísladóttir Waage
mun þar taka þátt í sýningarleik
ásamt þremur öðrum krökkum úr
hnefaleikastarfinu. Tinna þykir góð-
ur efnisviður í íþróttamann en hún
keppir í diplómahópi Hnefaleika-
félags Akraness. Eingöngu verður
um sýningarleik að ræða þar sem
Tinna sjálf er ekki komin með aldur
til keppni. mm
Sýnir hnefaleika á
Íslandsmeistaramóti