Skessuhorn - 24.02.2016, Qupperneq 19
MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRÚAR 2016 19
Akraneskirkja efnir til sérstakrar
kirkjuviku um næstu mánaðamót.
Tilgangur hennar er að vekja athygli á
safnaðar starfinu og brydda upp á nýjungum.
Akurnesingar og nær sveitungar eru hvattir
til þess að kynna sér vel þá dagskrá sem
er í boði.
Sunnudagur 28. febrúar
Kl. 11.00 Sunnudagaskóli.
Kl. 14.00 Guðsþjónusta í Akranesvita.
Mánudagur 29. febrúar
Kl. 10.00 - 16.00
Sýning á kirkjugripum og skrúða í anddyri
safnaðarheimilisins. Heitt á könnunni.
Kl. 20.00
Mikill hlátur og smá grátur.
Fyrirlestur í Vinaminni.
Arndís Halla Jóhannesdóttir
mark þjálfi og þroska þjálfi fjallar
um lífið og tilveruna, vinnuna
og einka lífið – og viðfangs efnin
stór og smá. Sjálf hefur hún
þurft að takast á við krabba-
mein og mun hún m.a. segja frá þeirri reynslu
sinni.
Þriðjudagur 1. mars
Kl. 10.00 - 16.00
Sýning á kirkjugripum og skrúða í anddyri
safnaðarheimilisins.
Kl. 16.00 - 17.00
Opið hús í safnaðarheimilinu. Fólki gefst
kostur á að spjalla við starfsfólk og formann
sóknarnefndar um störf þess. Frjálsleg stund.
Gestir mega koma og fara að vild. Kaffi og
kleinur.
Kl. 18.00
Leiksýning í Akraneskirkju.
Stoppleikhópurinn sýnir leikritið „Upp, upp“,
eftir Valgeir Skagfjörð, sem fjallar um æsku
séra Hallgríms Péturssonar. Stuðst er m.a.
við skáldsögu Stein unnar Jóhannes dóttur:
„Heimanfylgja“. Leik ritið er ætlað börnum og
unglingum frá 12 - 16 ára og þá sérstaklega
fermingarbörnum.
Það var frumsýnt í fyrra í tilefni
af 400 ára afmæli Hallgríms
Péturssonar og hefur hlotið
góðar undirtektir. Allir aldurshópar
velkomnir! Enginn aðgangseyrir!
Miðvikudagur 2. mars
Kl. 10.00 - 16.00
Sýning á kirkjugripum og skrúða í anddyri
safnaðarheimilisins.
Kl. 12.00
Kyrrðarstund í Akraneskirkju.
Beðið fyrir sjúkum og sorgmæddum. Ljúfir
tónar frá orgeli. Léttar veitingar í Vinaminni
eftir stundina.
Fimmtudagur 3. mars
Kl. 10.00 - 16.00
Sýning á kirkjugripum og skrúða í anddyri
safnaðarheimilisins.
Kl. 11.00
„Meðmælaganga með lífinu!“
Prestar Akraneskirkju, þeir Eðvarð og Þráinn,
bjóða fólki á öllum aldri í létta morgun göngu
(tekur hálftíma). Byrjað og endað í safnaðar-
heimilinu. Heitt súkkulaði í lokin.
Kl. 20.00
Píanótónleikar í Vinaminni
á vegum Kalmans – listafélags.
Helga Bryndís Magnúsdóttir píanó leikari leikur
efnisskrá sem er að mestu frá róman tíska
tímabilinu og er stærsta verkið hin mikil-
fenglega sónata Chopins númer 3 í h-moll.
Þá verða einnig leikin verk eftir Gabriel Fauré
og Franz Liszt, smástykki eftir Couperin
og skemmtileg lítil sónatína eftir spænska
tónskáldið Xavier Montsalvatge.
Aðgangseyrir kr. 2.000 / Kalmansvinir kr. 1.500.
Föstudagur 4. mars
Kl. 10.00 - 16.00
Sýning á kirkjugripum og skrúða í anddyri
safnaðarheimilisins.
Sunnudagur 6. mars
Kl. 11.00 Sunnudagaskóli.
Kl. 14.00 Æskulýðsdagurinn. Fjölskyldu sam-
koma í Vina minni. Ungmennakór Akranes-
kirkju og Patrekur Orri Unnarsson flytja tónlist.
Safnaðarheimilið Vinaminni er opið virka daga
kl. 10.00 - 16.00
Kirkjuvika í Akraneskirkju
28. febrúar – 6. mars 2016
Dagskrá Kirkjuvikunnar er einnig birt á
heimasíðu kirkjunnar www.akraneskirkja.is
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
Grundarfjarðarbær auglýsir laust til umsóknar starf deildarstjóra nýrrar deildar 5 ára barna
Deildarstjóri óskast til starfa við nýja 5 ára deild í Grundarfirði.
Deildin verður til húsa í Grunnskóla Grundarfjarðar.
Um er að ræða nýtt, krefjandi og spennandi starf.
Vakin er athygli á stefnu Grunnskóla Grundarfjarðar um jafnan hlut kynja í störfum.
Frekari upplýsingar um starfið
Um er að ræða 100 % starf.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og
Kennarasambands Íslands vegna Félags Leikskólakennara.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigurður Gísli Guðjónsson skólastjóri í
síma 430-8550 eða með því að senda fyrirspurn í netfangið sigurdur@gfb.is
Umsóknum skal skilað eigi síðar en 10. mars nk. á netfangið
grundarfjordur@grundarfjordur.is eða sigurdur@gfb.is
Umsóknum fylgi starfsferilsskrá ásamt greinargerð þar sem fram kemur
ástæða umsóknar og rökstuðningur viðkomandi fyrir hæfni í starfið.
Skólastjóri
Deildarstjóri leikskóladeildar Grunnskólans í Grundarfirði
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
Helstu verkefni og ábyrgð
Þróun 5 ára deildar í samstarfi við aðra stjórnendur.
Vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna
samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara.
Taka þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfs.
Mikið er lagt upp úr foreldrasamvinnu og góðum samskiptum.
Hæfniskröfur
Leikskólakennaramenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi.
Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum
æskileg.
Áhugi á að vinna með börnum.
Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum.
Frumkvæði í starfi.
Góð íslenskukunnátta.
BORGARBRAUT 16, 350 GRUNDARFIRÐI
SÍMI: 430 8500, FAX: 430 8501
Grundarfjarðarbær
Akraneskirkja efnir nú í
þriðja sinn til sérstakr-
ar kirkjuviku. Tilgang-
ur hennar er að vekja
athygli á því fjölbreytta
starfi sem fer fram í
söfnuðinum. Hjá Akra-
neskirkju eru sex manns
í föstu starfi, að tveim-
ur prestum meðtöldum.
Auk þess eru nokkr-
ir leiðtogar í barna- og
unglingastarfi og margir
sjálfboðaliðar sem koma
að þjónustunni á einn
eða annan hátt, svo sem
kórfólk, sóknarnefndar-
fólk og konur í Kirkju-
nefndinni.
Að sögn séra Eðv-
ars Ingólfssonar sókn-
arprests verður dagskrá
kirkjuviku í ár, sem fyrr,
fjölbreytt í tali og tón-
um. Hér eru nokkur
dæmi um það: „Guðsþjónusta verð-
ur haldin í Akranesvita nk. sunnu-
dag, kl. 14. Arndís Halla Jóhann-
esdóttir, markþjálfi og þroskaþjálfi,
mun halda fyrirlestur á mánudags-
kvöld kl. 20 sem nefnist: Mikill hlát-
ur og smá grátur. Þar mun hún tala
um lífið og tilveruna, vinnuna og
einkalífið. Sjálf hefur hún þurft að
takast á við krabbamein og mun hún
m.a. segja frá þeirri reynslu sinni.
Sýning á kirkjugripum og skrúða
verður í anddyri safnaðarheimilisins
alla vikuna.“
Á þriðjudaginn kl. 18 sýnir Stopp-
leikhópurinn leikritið „Upp, Upp“
eftir Valgeir Skagfjörð í Akranes-
kirkju. Byggir það á æskuárum séra
Hallgríms Péturssonar. Enginn að-
gangseyrir. Allir velkomnir, sérstak-
lega fermingarbörnin. Á fimmtu-
daginn kl. 11 bjóða prestarnir,
þeir Eðvarð og Þráinn, fólki á öll-
um aldri í létta morgungöngu (tek-
ur hálftíma). Heitt súkkulaði í Vina-
minni í lokin. Á fimmtudagskvöldið
kl. 20 verða píanótónleikar á vegum
Kalmans-listafélags í safnaðarheim-
ilinu. Helga Bryndís Magnúsdótt-
ir leikur. Að síðustu má geta þess að
haldin verður fjölskyldusamkoma á
æskulýðsdaginn 6. mars nk. Ung-
mennakór Akraneskirkju og Patrek-
ur Orri Unnarsson flytja tónlist.
Dagskrá kirkjuvikunnar er nánar
kynnt á heimasíðu Akraneskirkju og
í auglýsingu hér fyrir neðan.
mm
Kirkjuvika framundan
á Akranesi