Skessuhorn - 24.02.2016, Side 20
MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRÚAR 201620
Svokallað skólaþing var haldið í
Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akra-
nesi í annað sinn í síðustu viku. Er
markmiðið með því að nemend-
ur hafi áhrif á skólann á lýðræðis-
legan hátt og þær ákvarðanir sem
eru teknar. Á þinginu var nemend-
um skólans skipt í ellefu hópa sem
funduðu tvisvar yfir daginn. Þing-
ið lagði alls til 39 tillögur og hver
hópur valdi svo þær fimm tillögur
sem þeim þóttu bestar. Í ljós kom
að einfalt væri að framkvæma sum-
ar tillögurnar án mikils kostnað-
ar en aðrar þyrftu skoðunar við,
hvort þær væru framkvæmanlegar
eða hvort þær brytu í bága við regl-
ur skólans. Nemendur voru sam-
mála um að þingið hafi verið gagn-
legt og skemmtilegt. Rætt hafi ver-
ið um málefni skólans sem þeir geri
ekki oft. Þátttaka nemenda var góð
og hélt Garðar G. Norðdahl stærð-
fræðikennari utan um skólaþingið.
Tillögur nemenda á skóla-
þinginu voru af ýmsum toga. Sem
dæmi um verkefni sem nemendur
vildu að yrðu framkvæmd má með-
al annars nefna að þeim væri gert
kleift að geta skráð veikindi í ein-
staka tímum innan hvers dags; að
hægt væri að sleppa við lokapróf ef
meðaleinkunn er 8 eða hærri í ein-
stökum áföngum og að gerður yrði
samningur við íþróttamiðstöðina
um frítt í ræktina fyrir nemendur.
Sumum tillögum má koma í fram-
kvæmd með litlum fyrirvara, svo
sem að setja upp myndavélar á bíla-
stæði skólans, sótthreinsispritt á
salerni, bjalla í sal sem hringir inn
í tíma og að sjúkrakössum verði
fjölgað í skólanum. Þá er einnig í
skoðun að boðið verði upp á hafra-
graut fyrir alla í fyrstu frímínútum.
grþ
Nemendur komu með tillögur til úrbóta á skólaþingi FVA
Farið yfir tillögurnar í hópavinnu. 39 tillögur komust á blað og svo voru þeim gefin atkvæði.
Beðið eftir því að kjósa bestu tillögurnar. Málin rædd áður en gengið er til kosninga.
Margvísleg ágreinings- og deilu-
mál koma reglulega upp bæði í
persónulegum samskiptum fólks en
einnig innan atvinnulífsins, svo sem
í fyrirtækjum og stofnunum. Lilja
Bjarnadóttir er lögfræðingur sem
á rætur sínar að rekja í Grundar-
fjörð og Borgarfjörð. Hún sérhæf-
ir sig í því að leysa slík mál með að-
ferð sem kallast sáttamiðlun. Í fyrra
stofnaði hún fyrirtækið Sáttaleiðin,
þar sem hún býður þjónustu sem
miðar að því að hjálpa fyrirtækjum
og stofnunum að leysa ágreinings-
og deilumál ásamt því að veita ráð-
gjöf um bætt samskipti á vinnustað,
sem skilar sér í bættum afköstum
og framleiðni. Lilja segir að hægt
sé að nýta sáttamiðlun í fjölmörg-
um tilvikum og að málin geti verið
mjög ólík en hún hefur sérhæft sig í
sáttamiðlun fyrir viðskiptalífið, svo
sem deilum á vinnustað, viðskipta-
deilum og deilum á vinnumarkaði.
Deiluaðilar sér-
fræðingar í sinni deilu
„Sáttamiðlari aðstoðar við að leysa
málin á einfaldan hátt og skemmri
tíma. Kosturinn er að ferlið er
sveigjanlegt og sérstaðan er sú að
það er fenginn hlutlaus aðili til
að hjálpa til að finna lausn. Hug-
myndafræðin byggist á því að deilu-
aðilar séu sérfræðingar í sinni deilu
og því eru þeir best til fallnir til
að leysa vandann, með hjálp sátta-
miðlarans sem er hlutlaus,“ útskýr-
ir Lilja. Hún segir sáttamiðlunina
vera fljótvirkt ferli sem geti spar-
að umtalsverðan tíma og peninga í
samanburði við þau mál sem þurfa
að bíða úrlausnar dómstóla. „Ferl-
ið er þó allt undir aðilunum sjálfum
komið. Það þurfa báðir deiluaðilar
að vilja fara þessa leið og þetta er
valfrjálst ferli,“ segir hún. Þegar um
er að ræða deilumál geta aðstæður
verið mjög misjafnar. Ferlið er því
sveigjanlegt og hægt að haga því
eftir þörfum hverju sinni. Einnig er
hægt að semja um niðurstöðu sem
ólíklega hefði komið fyrir dómstól-
um. „Allt sem fer fram í sáttamiðl-
un er trúnaðarmál, sem getur skipt
miklu máli fyrir fyrirtæki þegar um
er að ræða viðkvæm málefni. En
það sem heillar mig mest við sátta-
miðlun er ekki bara að hjálpa aðil-
um að komast að lausn í ákveðnu
máli, heldur möguleikinn á að
koma í veg fyrir framtíðardeilur
með því að vinna í því með aðilum
að leysa úr undirliggjandi ástæðum
ágreiningsins,“ segir Lilja. „Því oft
þegar deilur koma upp, þá er það á
yfirborðinu um eitthvað eitt atriði
en undirliggjandi ástæðan er önn-
ur,“ bætir hún við.
Sáttamiðlun er
draumastarfið
Lilja útskrifaðist sem lögfræð-
ingur frá Háskólanum í Reykja-
vík 2011 og starfaði í framhaldinu
sem lögmaður í tvö ár og í eitt ár
sem gæðastjóri hjá verkfræðistofu
Bjarna Viðarssonar. „Í störfum
mínum sem lögfræðingur tók ég
eftir því hversu mörg mál hefði ver-
ið hægt að leysa ef þau hefðu komið
fyrr á borð til sérfræðinga svo sem
sáttamiðlara. Oft er það þannig að
það er lokaúrræði að senda mál til
lögfræðings og þá er oftar en ekki
búið að brenna allar brýr til kaldra
kola og sambandið milli aðila orðið
mjög stirt eða jafnvel ekkert.“
Lilja ákvað því að fara í fram-
haldsnám í lausn deilumála við há-
skólann í Missouri í Bandaríkjun-
um. „Þar kynntist ég sáttamiðlun,
sem er ein aðferðafræðin við lausn
deilumála, og heillaðist alveg af
þessari hugmyndafræði. En eftir að
ég lauk náminu sá ég fram á að ég
yrði að skapa mér sjálf umhverfi á
Íslandi ef ég ætti að geta unnið við
draumastarfið mitt sem sáttamiðl-
ari. Hér er sáttamiðlun ekki enn
orðin jafn útbreidd eins og í ná-
grannalöndum okkar og í Banda-
ríkjunum,“ segir Lilja.
Tekur skamman tíma
Úr varð að Lilja stofnaði Sáttaleið-
ina ehf. og hefur fengið góðar und-
irtektir og jákvæða umfjöllun. Hlaut
Lilja til að mynda viðurkenninguna
„Outstanding Women in Law
2015,“ frá Acquisition International
í lok árs 2015 ekki síst fyrir að hafa
stofnað fyrirtækið. Hún segir fagið
vera ungt en aðferðafræðin hefur þó
náð nokkurri fótfestu á Íslandi þó
ekki séu margir starfandi sáttamiðl-
arar á landinu. Sýslumannsembætt-
in séu til að mynda farin að nota
sáttamiðlun í umgengnismálum
með góðum árangri. „Mér fannst
vanta eitthvað svona í viðskiptalíf-
inu á Íslandi. Ég vildi bjóða upp á
þjónustu sem hægt er að nýta sér á
fyrri stigum, enda er auðveldara að
leysa ágreining fyrr en síðar þar sem
hann á það til að stigmagnast með
tímanum. Ég vil geta hjálpað aðilum
áður en í óefni fer og reyna að koma
í veg fyrir að fólk fari í gegnum allan
tilfinningaskalann, fyrir utan að það
sparar bæði tíma og kostnað að leysa
ágreining sem fyrst.“ Hún segir að
yfirleitt taki skamman tíma að leysa
ágreininginn þegar leitað hefur ver-
ið til sáttamiðlara. „Yfirleitt er reynt
að hittast og oftast dugar að hittast í
eitt skipti. Ef vilji er fyrir hendi, þá
er oftast hægt að leysa málin á ein-
um degi.“
Einnig með námskeið
Sáttaleiðin býður einnig upp á
fræðslu og námskeið fyrir fyrirtæki
sem vilja bæta samstarfsandann og
stuðla að betri samskiptum. Þar
heldur Lilja fyrirlestur um hvern-
ig má koma í veg fyrir ágreining.
„Það þarf ekki alltaf að vera komið
upp eitthvað ágreiningsmál, heldur
má benda fyrirfram á úrlausnir og
hvernig má grípa inn í sem fyrst. Ég
vil endilega hvetja fólk til að hugsa
um þetta, það er hægt að nýta sátta-
miðlun á svo víðtækan hátt. Deilu-
mál eru oft erfið og fólk lætur þau
sitja á hakanum vegna þess, þegar
það er í raun best ef gripið er inn í
sem fyrst.“
grþ
Sérhæfir sig í að leysa deilumál í atvinnulífinu
Rætt við Lilju Bjarnadóttur sáttamiðlara
Lilja Bjarnadóttir starfar sem sáttamiðlari og sérhæfir sig í deilumálum í atvinnulífinu.