Skessuhorn - 24.02.2016, Síða 25
MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRÚAR 2016 25
Krossgáta Skessuhorns
Hér er ný krossgáta fyrir lesendur að leysa. Þeir sem
vilja geta sent Skessuhorni lausnarorð/in á netfang-
ið: krossgata@skessuhorn.is fyrir klukkan 15 á mánu-
dögum. Athugið að fullt nafn og heimilisfang þarf að
fylgja með lausninni. Þeir sem ekki hafa aðgang að
tölvupósti sendi lausnir á Kirkjubraut 56, 300 Akra-
nesi (athugið að póstleggja þarf lausnir í síðasta lagi
á föstudegi). Dregið verður úr réttum innsendum
lausnum og fær vinningshafinn bókargjöf frá Skessu-
horni.
54 lausnir bárust við krossgátu í blaðinu í síðustu
viku. Lausnin var: „Sígandi lukka er best.“ Vinnings-
hafi er: Svandís Bára Steingrímsdóttir, Þórólfsgötu 4,
310 Borgarnesi. mm
Spjátr-
ungur
Meið-
irnir
Kerald
Nes
Vissa
Ánægð
Ber
Stefnu-
merki
Muldur
Sendill
Rómur
Maður
Orðlaus
Farva
Rendur
Naut
Orðtak
Ról
1
Ríki
Fas
Lúi
Erfiði
Gutl
8
Ullin
Tölur
Hljóta
5
Næla
Röð
Örlæti
Áfall
Æstum
Líka
Kliður
Athygli
Hætta
Sk.st.
Upphr.
Fugl
Fregn
Rölt
Dreitill
Býsn
Brestir
7 Þegar
Röð
Rasar
Tuldur
Torfan
Titill
Leyfist
Þvaga
Vigt
Fjöldi
Gróði
Uppnám
3
Sýl
Kjáni
Grípa
Angan
Rifa
Rimla-
kassi
Sérhlj.
Form
Vopn
Hóta
Reifi
Spil
Gjöfull
Féll
Uggar
Mæt
Strit
Á fæti
Svell
Tekt
Voði
Kjagar
Slóðar
Grugg
Rödd
Tæpar
Törn
Stillti
Tóku
8 Flínkur
Skán
1000
Mýri
Múl-
asni
Laust
Tví-
hljóði
Flana
Myrkvi
Spjall
Æsa
Í æsku
Málæði
Æll
Hvíldir
Dropi
Rugl
2 6
1 2 3 4 5 6 7 8
Eyrarrósin var afhent við hátíðlega
athöfn í Frystiklefanum í Rifi síð-
astliðinn fimmtudag. Viðurkenn-
ing sú er veitt árlega framúrskar-
andi menningarverkefni á lands-
byggðinni og er Frystiklefinn ein-
mitt fráfarandi handhafi verð-
launanna. Verksmiðjan á Hjalt-
eyri er listamiðstöð með sýning-
arsali og gestavinnustofur í gam-
alli síldarverksmiðju Kveldúlfs á
Hjalteyri við Eyjafjörð. Frá því að
nokkrir frumkvöðlar og listamenn
tóku sig saman og stofnuðu Verk-
smiðjuna árið 2008 hefur þar verið
haldið úti framsæknu myndlistar-
og menningarstarfi. Aðstandendur
Verksmiðjunnar þykja vel að verð-
laununum komnir, ekki síst fyrir
þrautseigju, hugmyndaauðgi og út-
sjónarsemi við flókin rekstrarskil-
yrði, en starf Verksmiðjunnar hef-
ur eflst mjög frá stofnun og tekið
á sig óvæntar myndir. Í Verksmiðj-
unni þykir hafa tekist vel til með þá
grundvallarhugmynd að listin sé
ekki einungis til sýnis í Verksmiðj-
unni, heldur verði hún þar til og sé
því mótuð af aðstæðum.
Verðlaunin sem Verksmiðjan
hlýtur er fjárstyrkur að upphæð
1.650.000 auk flugmiða frá Flug-
félagi Íslands. Forsvarsmenn al-
þjóðlegu listahátíðarinnar Ferskra
vinda í Garði og Eldheima í Vest-
mannaeyjum, sem einnig voru til-
nefnd, tóku hvort um sig við 300
þúsund króna fjárstyrk, auk flug-
miða.
Til stóð að Dorrit Moussaieff
forsetafrú afhenti verðlaunin, en
hún hefur verið verndari Eyrar-
rósarinnar frá upphafi, eða í tólf ár.
Hún forfallaðist vegna veikinda og
því afhenti Þórunn Sigurðardótt-
ir, stjórnarformaður Listahátíðar
í Reykjavík, verðlaunin fyrir hönd
forsetafrúarinnar. Kristinn Jónas-
son bæjarstjóri í Snæfellsbæ ávarp-
aði samkomuna og það gerði einn-
ig Hanna Styrmisdóttir, listrænn
stjórnandi Listahátíðar í Reykja-
vík. Einnig voru viðstaddir fulltrú-
ar Byggðastofnunar, Flugfélags Ís-
lands og Listahátíðar í Reykjavík,
sem standa sameiginlega að viður-
kenningunni, auk annarra góðra
gesta. mm
Verksmiðjan á Hjalteyri hlaut Eyrarrósina
Á myndinni eru f.v. Árni Gunnarsson framkvæmdastjóri Flugfélags Íslands, Aðal-
steinn Þorsteinsson forstjóri Byggðastofnunar, Hanna Styrmisdóttir listrænn
stjórnandi Listahátíðar í Reykjavík, Herdís Sæmundardóttir stjórnarformaður
Byggðastofnunar, Kristín Jóhannsdóttir forstöðukona Eldheima, Mireya Samper
stjórnandi Ferskra vinda, Gústav Geir Bollason einn af stofnendum Verksmiðj-
unnar, Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir menningarfulltrúi Eyþings og Þórunn
Sigurðardóttir stjórnarformaður Listahátíðar í Reykjavík. Ljósm. af.
Verksmiðjan á Hjalteyri. Ljósm. Guðbjörg Ólafsdóttir.
Rótarýdagurinn verður haldinn í
annað sinn um land allt laugardag-
inn 27. febrúar næstkomandi. Þema
dagsins að þessu sinni er „fjöl-
menning“ í víðu samhengi. Mark-
mið Rótarýdagsins eru að vekja at-
hygli á starfi Rótarý og að styrkja
ímynd klúbbsins. Þá er einnig vak-
in athygli á þeirri fjölmenningu
sem til staðar er í nærumhverfinu, á
alþjóðaverkefnum Rótarý og þeirri
fjölmenningu sem innan Rótarý-
hreyfingarinnar er. Í tilefni dagsins
ætlar Rótarýklúbbur Akraness að
halda opinn fund sem nefnist Út-
lendir Skagamenn.
„Við ætlum að efna til málþings
til að vekja athygli á því hvern-
ig erlendir einstaklingar finna sér
starf og heimili á Akranesi. Það
munu því fimm einstaklingar víðs-
vegar að úr heiminum koma fram
og segja frá bakgrunni sínum og
ástæðunni fyrir því að þeir settust
að á Akranesi,“ segja Lárus Ársæls-
son og Guðmundur Páll Jónsson
félagar úr Rótarýklúbb Akraness.
Þar sem rótarýhreyfingin er starfs-
greinaklúbbur munu einstakling-
arnir meðal annars segja frá starfi
sínu, kynna landið sem þeir koma
frá og sinn uppeldisbæ. „Fyrirles-
ararnir eru Jóhannes Símonsen
frá Færeyjum, Ruth Jörgensdótt-
ir Rauderberg frá Þýskalandi, Uc-
hechukwu Michael Eze frá Niger-
íu, Shyamali Ghosh frá Indlandi og
Tuyet Anhthi Nguyen frá Víetnam
sem ætla að segja frá bakgrunni sín-
um og sjálfum sér. Við vildum nálg-
ast fjölmenninguna með þessum
hætti því að á Akranesi býr margt
fólk sem er af erlendu bergi brot-
ið,“ útskýrir Guðmundur. Erindin
verða öll haldin á íslensku og eft-
ir þau verða umræður í salnum og
spurningum svarað.
Rótarý er fjölmenn-
ingarsamfélag
Rótarýklúbbur Akraness er einn
af þrjátíu Rótarýklúbbum á Ís-
landi. Allir hafa þeir það að mark-
miði að vinna að ýmsum samfélags-
verkefnum, sem mismunandi eru
eftir klúbbum. Hreyfingin stendur
fyrir sameiginlegum styrktarsjóð á
heimsvísu sem meðal annars hef-
ur verið nýttur til þess að útrýma
mænuveiki á heimsvísu í sameigin-
legu átaki við Alþjóðaheilbrigðis-
málastofnun, Unicef og sjóð Bill og
Melindu Gates. Rótarý er atvinnu-
greinahreyfing í grunninn, þar
sem fólk úr ýmsum áttum kynnist
og miðlar þekkingu sinni. Megin-
markmið hreyfingarinnar eru þó
ýmis viðfangsefni á sviði mann-
úðar- og menningarmála um all-
an heim. „Rótarýhreyfingin starfar
í flest öllum löndum heims og tel-
ur yfir 1,3 milljónir félagsmanna í
tæplega 3.500 klúbbum. Það má því
segja að Rótarý sé fjölmenningar-
samfélag sem slíkt,“ segja Lárus og
Guðmundur.
Fundurinn „Útlendir Skaga-
menn“ verður haldinn í Garðakaffi
á Akranesi næstkomandi laugardag,
27. febrúar frá klukkan 11 til 13.
Fundurinn er öllum opinn og boð-
ið verður upp á kaffi og léttar veit-
ingar. grþ
Rótarýklúbbur Akraness kynnir
„Útlenda Skagamenn“
Lárus Ársælsson, Guðmundur Páll Jónsson og Jóhannes Símonsen.
Zsuzsanna Budai fékk rós vikunnar
í Vetrar-Kærleik Blómasetursins –
Kaffi kyrrðar. Rósina fékk hún fyr-
ir hvað hún er, eins og segir í til-
nefningunni: „Yndisleg kona, ljúf,
skemmtileg, góður vinur, flottur
tónlistarmaður og góður kórstjórn-
andi. Hún spilar stórt hlutverk í
lífi fólks í Borgarbyggð. Við erum
heppin að hafa hana hér. Í alla staði
frábær kona.“
mm
Zsuzsanne er rósahafi vikunnar