Skessuhorn - 24.02.2016, Blaðsíða 30
MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRÚAR 201630
Hvað ætlar þú að
gera um páskana?
Spurning
vikunnar
(spurt í Snæfellsbæ)
Jón Þór Magnússon
Ætli ég verði ekki að vinna eitt-
hvað og svo tek ég því rólega.
Unnur Emanúelsdóttir
Ég verð erlendis.
Sigurmar Gíslason
Leika mér uppi á fjalli á snjó-
sleða ef veður leyfir.
Michelle Viera Dos Santos
Ég er ekkert búin að ákveða það
ennþá.
Þórarinn Steingrímsson
Ég geri eitthvað skemmtilegt ef
það verður gott veður.
Í tilefni af 30 ára afmæli Knatt-
spyrnufélags ÍA var boðað til sér-
staks afmælis-aðalfundar í hátíðarsal
ÍA á Jaðarsbökkum á Akranesi síð-
astliðið fimmtudagskvöld. Magnús
Guðmundsson formaður setti fund-
inn og hélt stutta tölu. Í máli hans
kom fram að rekstur félagsins gengi
vel og iðkendum færi fjölgandi milli
ára í yngstu aldursflokkunum. Því
næst kynnti Haraldur Ingólfsson
framkvæmdastjóri ársskýrslu félags-
ins. Kom þar fram að fjármál félags-
ins væru í góðu jafnvægi. Á síðasta
ári varð tap af rekstrinum sem nam
rétt rúmum 400 þúsund krónum.
Eigið fé KFÍA í árslok 2015 nam 4,4
milljónum króna samkvæmt efna-
hagsreikningi.
Að loknum hefðbundnum aðal-
fundarstörfum, þar sem formað-
ur var meðal annars endurkjörinn,
tók við sérstök dagskrá. Fundurinn
var sveipaður hátíðaryfirbragði í til-
efni þess að Íþróttabandalag Akra-
ness stendur á sjötugu um þessar
mundir og 30 ár eru liðin frá stofn-
un Knattspyrnufélag ÍA innan vé-
banda bandalagsins.
Fyrrum leikmenn
sæmdir heiðurs-
merkjum KSÍ
Geir Þorsteinsson formaður KSÍ
flutti stutt ávarp á fundinum. Hann
lýsti ánægju sinni með að ÍA ætti
lið í úrvalsdeildum karla og kvenna
á komandi keppnistímabili og að
bjartir tímar væru framundan í
knattspyrnunni á Akranesi. Raun-
ar taldi hann bjarta tíma framund-
an á landinu öllu. Þátttaka íslenska
karlalandsliðsins á Evrópumeistara-
mótinu í sumar myndi færa knatt-
spyrnuhreyfingunni miklar tekjur
sem myndu koma aðildarfélögum
KSÍ verulega til góða á komandi
árum.
Að loknu ávarpi, í tilefni afmælis-
ins, sæmdi Geir fyrrum leikmenn ÍA
gull- og silfurmerkjum knattspyrnu-
sambandsins. Þær sem sæmdar
voru silfurmerki voru: Laufey Sig-
urðardóttir, Halldóra Gylfadótt-
ir, Magnea Guðlaugsdóttir, Jónína
Víglundsdóttir, Steindóra Steins-
dóttir, Margrét Ákadóttir, Ragn-
heiður Jónasdóttir og Kristín Að-
alsteinsdóttir fyrsta landsliðskona
ÍA. Einnig voru Pálmi Haraldsson,
Kári Steinn Reynisson, Gunnlaugur
Jónsson, Sturlaugur Haraldsson og
Guðbjörn Tryggvason sæmdir silf-
urmerkinu. Sigmundur Ámunda-
son og Karl Þórðarson voru sæmdir
gullmerki KSÍ.
Gullmerki og heiðurs-
viðurkenningar KFÍA
Ennfremur voru félagsmönnum og
velunnurum KFÍA veitt gullmerki
félagsins og heiðursviðurkenningar
fyrir störf sín í þágu félagsins, hvort
heldur innan eða utan vallar.
Þeir sem sæmdir voru gullmerki
að þessu sinni eru: Ólafur Þórðarson,
margfaldur Íslands- og bikarmeist-
ari í knattspyrnu með ÍA, bæði sem
leikmaður og þjálfari. Sigmundur
Árnason, fyrrverandi stjórnarmað-
ur KFÍA. Halldóra Sigríður Gylfa-
dóttir, fyrrverandi leikmaður og
margfaldur Íslands- og bikarmeist-
ari. Hún hefur um margra ára skeið
sinnt þjálfun yngri flokka félagsins.
Guðjón Guðmundsson læknir, sem
var um áratugaskeið læknir knatt-
spyrnufélagsins.
Heiðursviðurkenningar
fyrir störf í þágu
félagsins fengu:
Pétur Ottesen, vallarþulur á Akra-
nesvelli til margra ára, fyrrver-
andi knattspyrnudómari hjá KFÍA
og fyrrum bæjarfulltrúi á Akranesi.
Sigríður Þorsteinsdóttir, sem hef-
ur unnið ýmis störf fyrir félagið í
gegnum tíðina. Hún vann lengi að
foreldrastarfi innan félagsins og
sat meðal annars í uppeldissviði.
Brandur Sigurjónsson, fyrrverandi
leikmaður og einn af forvígismönn-
um Norðurálsmótsins sem haldið er
ár hvert fyrir 7. flokk drengja. Þórð-
ur Þórðarson, ötull stuðningsmað-
ur sem líkt og faðir sinn og afi hef-
ur alla tíð stutt knattspyrnustarf á
Akranesi með ráðum og dáð gegn-
um Bifreiðastöð ÞÞÞ. Sæmundur
Víglundsson, fyrrum knattspyrnu-
dómari hjá KFÍA. Hann var meðal
fremstu dómara landsins, dæmdi í
úrvalsdeild og í verkefnum erlend-
is. Þá sat hann í framkvæmdastjórn
KFÍA um skeið.
kgk
Leikmenn og velunnarar KFÍA
heiðraðir á aðalfundi félagsins
Fjölmennt var á fundinum.
Magnús Guðmundsson var endur-
kjörinn formaður KFÍA.
Sigmundur Ámundason var sæmdur
gullmerki KSÍ.
Karl Þórðarson var sæmdur gullmerki
KSÍ.
Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, hélt
stutta tölu áður en hann sæmdi fyrr-
verandi leikmenn ÍA heiðursmerkjum
knattspyrnusambandsins.
Þeir voru sæmdir silfurmerki KSÍ. F.v. Kári Steinn Reynisson, Gunnlaugur Jónsson,
Guðbjörn Tryggvason og Haraldur Sturlaugsson sem tók við viðurkenningunni
fyrir hönd föður síns Sturlaugs Haraldssonar og Pálma Haraldssonar föðurbróður
síns.
Þær voru sæmdar silfurmerki KSÍ. F.v. Laufey Sigurðardóttir, Kristín Aðalsteins-
dóttir, Ragnheiður Jónasdóttir, Magnea Guðlaugsdóttir, Halldóra Gylfadóttir,
Steindóra Steinsdóttir, Jónína Víglundsdóttir og Margrét Ákadóttir.
Pétur Ottesen, Brandur Sigurjónsson, Sigríður Þorsteinsdóttir, Þórður Þórðarson
og Sæmundur Víglundsson voru sæmd sérstakri heiðursviðurkenningu KFÍA.
Ólafur Þórðarson, Sigmundur Ámundason, Halldóra Sigríður Gylfadóttir og Guð-
jón Guðmundsson læknir voru sæmd gullmerki fyrir störf sín í þágu félagsins.