Skessuhorn - 13.07.2016, Side 8
MIÐVIKUDAGUR 13. JÚLÍ 20168
Víðtæk leit á
Ófeigsfjarðar-
heiði
Um hádegisbil á laugardag-
inn voru björgunarsveitir
á Ströndum, Húnavatns-
sýslum og Vesturlandi, alls
16 björgunarsveitir, kallað-
ar út vegna boða sem komu
frá neyðarsendi á Ófeigs-
fjarðarheiði við Hvalá á
Ströndum. Neyðarsendi-
rinn var skráður erlendis
og ekki var vitað hver eða
hversu margir voru þar á
ferð. Miklir vatnavextir
voru í ám á svæðinu og þær
því varhugaverðar til yfir-
ferðar sem og slæmir vegir.
Hvasst var í veðri og rign-
ing. Um miðjan dag náð-
ist til þess sem hafði sent
út boðin og var það þyrla
Landhelgisgæslunnar sem
bjargaði erlendum ferða-
manni sem komið hafði sér
í sjálfheldu í vatni. Maður-
inn var blautur og kaldur
en heill á húfi.
-mm
Nýr skipulags-
og umhverfis-
fulltrúi
HVALFJ.SV: Mánudaginn
4. júlí síðastliðinn tók Lulu
Munk Andersen bygginga-
fræðingur við starfi skipu-
lags- og umhverfisfulltrúa
í Hvalfjarðarsveit af Ólafi
Melsted. Lulu hefur undan-
farin ár starfað sem skipu-
lags- og byggingafulltrúi í
Borgarbyggð. Áður hafði
hún starfað sem bygginga-
fulltrúi í Fjarðarbyggð frá
árinu 2008 og aðstoðar-
maður skipulags- og bygg-
ingafulltrúa frá árinu 2006.
-bþb
Hesteigenda-
félagið kaupir
hesthús
GRUNDARFJ: Hesteig-
endafélag Grundarfjarðar
hefur fest kaup á hesthúsi
og eignast hlut í reiðhöll.
Með því hefur verið lagð-
ur grunnur að markvissu
og skipulögðu barna- og
fræðslustarfi á sviði hesta-
mennsku í Grundarfirði.
Samstarf við skólastofnan-
ir um skipulagða barna- og
unglingafræðslu er farin af
stað og mun Hesteigenda-
félagið taka á móti hóp-
um og einstaklingum. Með
bættri aðstöðu mun félagið
geta gefið meira til sam-
félagsins.
-bþb
Reynt að
uppræta
Skógarkerfil
BORGARB: Byggðarráði
Borgarbyggðar hafa borist
ábendingar um þær afleið-
ingar sem það getur haft ef
skógarkerfill nær að dreifa úr
sér nær óhindrað um sveitar-
félagið. Telur bæjarráð brýnt
að brugðist verði við þess-
ari miklu útbreiðslu kerfils-
ins áður en hann verður ill-
viðráðanlegur. Bæjarráð tel-
ur það þó ekki vera hlutverk
sveitarfélagsins heldur hvet-
ur það íbúa og félagasamtök
að taka höndum saman og
hindri frekar útbreiðslu jurt-
arinnar.
-bþb
Aflatölur fyrir
Vesturland
2. – 8. júli
Tölur (í kílóum)
frá Fiskistofu:
Akranes bátar 18.
Heildarlöndun: 66.285 kg.
Mestur afli: Klettur MB:
34.342 kg. í fjórum löndun-
um.
Arnarstapi 4 bátar.
Heildarlöndun: 6.458 kg.
Mestur afli: Blíðfari AK:
2.687 kg. í fjórum löndun-
um.
Grundarfjörður 19 bátar.
Heildarlöndun: 301.307
kg.
Mestur afli: Þórunn Sverr-
isdóttir VE: 202.524 kg. í
tveimur löndunum.
Ólafsvík 43 bátar.
Heildarlöndun: 141.174
kg.
Mestur afli: Egill SH:
12.901 kg. í tveimur lönd-
unum.
Rif 28 bátar.
Heildarlöndun: 78.824 kg.
Mestur afli: Guðbjartur SH:
5.740 í einni löndun.
Stykkishólmur 23 bátar.
Heildarlöndun: 84.692 kg.
Mestur afli: Kári SH: 10.894
kg. í fjórum löndunum.
Topp fimm landanir á
tímabilinu:
1. Þórunn Sverrisdóttir VE
– GRU: 114.986 kg. 3. júlí.
2. Þórunn Sverrisdóttir VE
– GRU: 87.538 kg. 6. júlí.
3. Steinunn SF – GRU:
63.154 kg. 6. júlí.
4. Klettur MB – AKR:
10.461 kg. 7. júlí.
5. Egill SH – ÓLA:
9.274 kg. 5. júlí.
Nú í byrjun þessa mánaðar fór
Norðurlandamót öldunga í frjálsum
íþróttum fram í Óðinsvéum í Dan-
mörku. Alls kepptu 535 á mótinu
frá öllum Norðurlandaþjóðunum.
Sjö keppendur tóku þátt fyrir Ís-
lands hönd á mótinu og var einn
þeirra Kristófer Sæland Jónasson
úr Snæfellsbæ. Kristófer, sem er 81
árs, keppti í spjótkasti og kastþraut.
Þess má geta að Kristófer gerði sér
lítið fyrir og varð í 2. sæti í spjót-
kasti. Frábær árangur hjá þessum
síunga frjálsíþróttamanni úr Snæ-
fellsbæ.
íj/mm
Snæfellsbæingur vann til verðlauna á
Norðurlandamóti öldunga
Minningarbekkur um Skúla Al-
exandersson, Strandamanninn og
Sandarann, fyrrum oddvitann og
alþingismanninn, var vígður við
Bjarmahúsið á Hellissandi síðast-
liðinn föstudag. Anton Ingólfsson
smíðaði bekkinn og var það Drífa
dóttir Skúla, sem afhjúpaði bekkinn
að viðstöddu fjölmenni.
Skúli fæddist og ólst upp á
Ströndum, flutti til Hellissands árið
1952 eftir nám í Samvinnuskólan-
um til að vinna í Kaupfélagi Hellis-
sands. Þar kynntist hann konu sinni
Hrefnu Magnúsdóttir. Hann starf-
aði að sveitarstjórnarmálum og sat
á Alþingi fyrir Vesturland. Skúli var
athafnamaður á ýmsum sviðum allt
til síðasta dags. Hann rak m.a. fisk-
vinnsluna Jökul hf og útgerð á Hell-
issandi. Þá rak Skúli ásamt eigin-
konu sinni bókabúðina Gimli og
gistiheimilið Gimli til margra ára.
Skúli hafði mikinn áhuga á ferða-
þjónustu og framgangi atvinnu-
greinarinnar og sá nauðsyn þess að
byggja hótel í sveitarfélaginu. Var
hann einn helsti hvatamaður að
byggingu Hótel Hellissands. Skúli
var vinsæll leiðsögumaður á Snæ-
fellsnesi og þekkti þar hverja þúfu og
hvern stein. Hann var mikill áhuga-
maður um friðlýsingu lands. Fisk-
byrgin á Gufuskálum og allt svæð-
ið þar var honum t.d. mjög hug-
leikið. Einnig var hann hvatamaður
að koma upp sjóminjasafni og sjó-
mannagarði á Hellissandi, auk fjölda
annarra verka, svo sem skógrækt og
umhverfismálum. Skúli var sæmdur
heiðursmerki hinnar Íslensku fálka-
orðu árið 2011 fyrir störf sín í þágu
atvinnulífs, menningar og sögu
heimabyggaðar. Þess má geta að
Skúli hefði orðið 90 ára á þessu ári,
en hann lést á síðasta ári. Æviminn-
ingabókin Þá hló Skúli, kom út fyr-
ir síðustu jól, en hana skráði Óskar
Guðmundsson rithöfundur í Véum.
af
Minningarbekkur vígður um
Skúla Alexandersson
Hluti af afkomendum Skúla og Hrefnu saman kominn á bekknum góða.
Byggðastofnun hefur fengið Þjóð-
skrá Íslands til að reikna út fast-
eignamat og fasteignagjöld á sam-
bærilegri fasteign á nokkrum þétt-
býlisstöðum á landinu eins og
undanfarin ár. Viðmiðunareignin
er einbýlishús sem er ríflega 161
fermetri að grunnfleti og á um
800 fermetra lóð. Gjöldin eru nú
hæst í Borgarnesi, eða 351 þús-
und krónur á slíka eign. Næsthæst
eru þau í Keflavík 344 þúsund og
þriðju hæst á Húsavík 330 þúsund.
Í fjórða og fimmta sæti eru síðan
Stykkishólmur og Grundarfjörð-
ur. Akranes er í tólfta sæti með um
275 þúsund krónur.
Á síðasta ári voru gjöldin upp
á 329 þúsund hæst á Húsavík.
Lægstu gjöldin líkt og í fyrra eru
á Vopnafirði 180 þúsund en voru
167 þúsund árið á undan. Mesta
hækkun fasteignagjalda á milli ár-
anna 2014 og 2015 var um 23%
eða 59 þúsund krónur í Borgar-
nesi. Þetta árið er 25% hækkun
eða sem nemur 55 þúsund krónum
á Siglufirði þar sem gjöldin lækk-
uðu mest í fyrra. Nú lækka gjöldin
mest á Blönduósi. Fasteignagjöld-
in eru reiknuð út samkvæmt nú-
gildandi fasteignamati sem gild-
ir frá 31. desember 2015 og sam-
kvæmt álagningarreglum ársins
2016 eins og þær eru í hverju sveit-
arfélagi. Til að forðast skekkjur var
útreikningur fasteignagjaldanna
sendur á viðkomandi sveitarfé-
lag og óskað eftir að athugasemd-
ir yrðu gerðar ef um skekkjur væri
að ræða. Tekið hefur verið tillit til
þeirra ábendinga sem bárust.
Mest hefur fasteignamatið hækk-
að milli ára í Suður-Þingholtunum
í Reykjavík, um 11,1% og á Sel-
fossi um 10,4%. Það lækkar hins
vegar á þremur stöðum, um 5,1%
í Grindavík, um 3,0% á Hólmavík
og um 2,4% á Blönduósi. Tekið er
fram að horft er til allra svokall-
aðra fasteignagjalda, það er fast-
eignaskatts, lóðarleigu, fráveitu-
gjalds, vatnsgjalds og sorpgjalda.
Meðaltalið á höfuðborgarsvæðinu
gefur ekki hæstu fasteignagjöld-
in. Mismunandi álagningarreglur
einstakara sveitarfélaga skipta þar
mestu.
mm
Hæstu fasteignagjöldin á
landinu eru í Borgarnesi
Graf sem sýnir í hvaða sveitarfélög fasteignaeigendur greiða hæstu gjöldin.
Heimild: Byggðastofnun.