Skessuhorn - 13.07.2016, Qupperneq 16
MIÐVIKUDAGUR 13. JÚLÍ 201616
Júlí 2016 er merkismánuður í sögu
Reykholts í Borgarfirði. Um þessar
mundir eru 20 ár síðan fyrsta sýn-
ingin var sett upp í Snorrastofu.
Markar það upphaf ferðaþjónustu í
stofnuninni. Dagana 22. til 24. júlí
munu sóknarbörn og fleiri fagna 20
ára vígsluafmæli Reykholtskirkju,
en hún var vígð 28. júlí árið 1996 af
herra Sigurði Sigurðarsyni vígslu-
biskupi í Skálholti. Þessa daga verð-
ur Reykholtshátíð haldin í tuttug-
asta skipti, en hún hefur árlega verið
haldin í tengslum við kirkjudaginn.
Skessuhorn var á ferð í Reykholti
síðastliðinn fimmtudag og ræddi við
síra Geir Waage sóknarprest, Dag-
nýju Emilsdóttur móttökustjóra
Snorrastofu og Berg Þorgeirsson,
forstöðumann Snorrastofu, um þessi
merku tímamót sem framundan eru
í Reykholti.
Margt breyst
frá fyrstu sýningu
Starfsemi hófst í Snorrastofu með
undirritun skipulagsskrár stofnun-
arinnar árið 1995 og sumarið 1996
var ferðaþjónustunni Heimskringlu
ehf. komið á fót í tengiálmu kirkj-
unnar og Snorrastofu. Þremur dög-
um síðar var fyrsta sýningin opnuð.
Það var sýning um verk Snorra sem
Jónas Kristjánsson fyrrum forstöðu-
maður Stofnunar Árna Magnússonar
á Íslandi gerði og sýning í millibygg-
ingunni sem unnin var af Geir og
Hlyni Helgasyni myndlistarmanni
sem þá kenndi við Héraðsskólann.
Myndlistarkonurnar Elísabet Har-
aldsdóttir og Ólöf Erla Bjarnadóttir
frá Hvanneyri sýndu einnig verk sín
hér í Snorrastofu,“ segir Dagný. „Á
þessa sýningu kom eitt sinn banda-
rísk kona sem hreifst mjög af lista-
verkunum og spurðist fyrir um lista-
konurnar. Hún hafði síðar samband
við þær Elísabetu og Ólöfu og þessi
heimsókn í Reykholt varð upphafið
að samsýningu fimm íslenskra lista-
kvenna sem sett var upp í Bandaríkj-
unum,“ bætir hún við. „Á þessum
20 árum höfum við sett upp marg-
ar sýningar um sögu staðarins og líka
ýmsar listsýningar, bæði á vegum
Heimskringlu og Snorrastofu, lík-
lega um 30 talsins. Markmiðið með
öllum sýningunum er að miðla þekk-
ingu og sögu til gesta staðarins,“ seg-
ir Dagný. „En grunneiningin er allt-
af sýning um Snorra Sturluson. Nýj-
asta sýningin var opnuð 2013. Hún
er alltaf að stækka og verður að-
gengilegri á stöðugt fleiri tungumál-
um, ekki síst með tilkomu spjald-
tölva. Auk þess erum við að vinna að
hljóðleiðsögn um sýninguna og stað-
inn í heild,“ segir Bergur.
Geir vekur máls á því að Snorra-
stofa hafi haft veruleg áhrif á þróun
og uppsetningu sambærilegra stofn-
ana úti á landi. „Fyrsta sýningin var
í texta og myndum, eins og alþekkt
var á þeim tíma. En strax í upphafi
voru textar á íslensku, ensku, dönsku
og þýsku. Bæklingar voru á þess-
um tungumálum auk frönsku og
ítölsku,“ segir Geir. „Þetta var nán-
ast óþekkt. Á þeim tíma voru slíkir
sýningartextar yfirleitt aðeins hafð-
ir á íslensku,“ útskýrir hann. Í að-
draganda Snorrastofu voru nefni-
lega aðrir tímar í íslenskri ferðaþjón-
ustu. „Á níunda og tíunda áratugn-
um var hugtakið „menningartengd
ferðaþjónusta“ einfaldlega ekki til
hér á landi. Sagt var að útlendingar
kæmu aðeins til að skoða náttúru Ís-
lands. Við þóttum galin að halda því
fram að ferðamenn hefðu nokkurn
minnsta áhuga á menningu lands-
ins,“ segir Dagný. En annað hefur
komið á daginn. Slá má því föstu að
erlendir ferðamenn hafi aldrei haft
meiri áhuga á menningu landsins en
einmitt nú.
Prestar tóku á móti
ferðamönnum
Bergi þykir fara vel á því að tekið sé á
móti ferðamönnum sem sækja Reyk-
holt heim í byggingu sem hýsir einn-
ig kirkjuna. Móttaka ferðamanna
sé samofin sögu kirkjunnar manna.
„Prestar voru í því hlutverki áratug-
um og jafnvel öldum saman að taka á
mót ferðamönnum. Áður en „ferða-
mannaiðnaður“ byggðist upp hér á
landi gátu ferðamenn leitað til prest-
anna og kennara skólans og fengið
upplýsingar um sögu staðarins. Það
er því okkar hlutverk hér að koma á
framfæri grunnupplýsingum um sögu
Reykholts við þá gesti sem hingað
koma,“ segir hann. Þá kemur Geir í
hug saga frá fyrri tíð. „Hér áður fyrr
lauk kennslu í héraðsskólanum í lok
maí en hótelið var aldrei opnað fyrr
en í kringum 17. júní. Í þrjár vikur
var því ekkert opið hér í Reykholti
og fólk bankaði oft hjá okkur og fékk
að fara á klósettið. Einhverju sinni
höfðum við Dagný brugðið okkur af
bæ en ein dætra okkar var heima við
ásamt vini sínum úr Reykjavík þegar
þýskur ferðamaður bankar upp á og
spyr hvort hann megi nota salernið,“
segir Geir. „Dóttir okkar segir að það
hljóti að vera í lagi og þá marseruðu
46 Þjóðverjar inn og stóðu í biðröð
frá tröppunum, gegnum stofuna og
inn að klósettinu á meðan gestur-
inn sat gapandi af undrun við eldhús-
borðið,“ segir hann og hlær við.
Þóttu heimamenn
hálf-galnir
Þegar hugmyndir um uppbyggingu í
Reykholti komust á skrið vakti mál-
ið athygli, en einna helst utan land-
steinanna. „Hér kom t.d. sami mað-
urinn nokkrum sinnum og fylgd-
ist með gangi mála frá upphafi. Það
var Sture Näslund, sænskur útvarps-
maður. Hann kemur hingað síðdegis
í rigningardumbungi og bankar upp
á. Hann var þá að elta slóð sænsks
biskups, Uno von Troil, sem ferðað-
ist hingað í Reykholt á 18. öld,“ seg-
ir Geir. „Við buðum gestinum hress-
ingu og sögðum honum frá hug-
myndum um nýja kirku og Snorra-
stofu. Hann var mjög áhugasamur og
spurði út í áformin. Ég sýndi honum
teikningar og spurði hvernig honum
litist á en hann vildi ekki svara því,“
bætir hann við. Í næstu heimsókn
Sture var búið að steypa upp húsin og
gerði hann þá upptöku af Geir lesa
prologus Heimskringlu í gímaldinu.
„Svo er hann hér næst þegar kirkj-
an var vígð og aftur þegar Snorra-
stofa var opnuð. Þá segir hann mér
loks hvernig honum leist á í upphafi:
„Þetta er spennandi hugmynd en al-
gjörlega galin,“ sagði Sture. Hann
taldi að ekkert yrði úr miðað við þær
aðstæður sem blöstu við honum þá,“
segir Geir „og miðað við það fjár-
magn sem við höfðum í höndunum
þá,“ bætir Bergur við. „Hann kom
síðar og tók viðtal við mig líka, spurði
mig út í áformin og síðan út í fjár-
málin. Ég segi voða brattur: „Jú, við
fáum fimm milljónir,“ og það lá við
að hann pakkaði saman og færi án
þess að ljúka viðtalinu,“ segir Bergur
og hlær við.
Markmiðið að
miðla upplýsingum
En efasemdaraddirnar drógu ekki
kjarkinn úr Reykhyltingum. Heims-
kringla ehf. tók til starfa 14. júlí þegar
fyrsta sýningin var sett upp og gestir
boðnir velkomnir. Alla tíð hefur leið-
arljósið verið hið sama. „Við tókum
þá ákvörðun í upphafi að kjarninn í
þjónustunni væri persónuleg þjón-
usta og markmiðið að gestur færi
glaður út. Það hefur tekist, birtist til
dæmis í því að við eigum fjölda fastra
viðskiptavina erlendis sem senda okk-
ur hópa ár eftir ár. Við tökum t.d. ár-
lega á móti einhverjum þúsundum
erlendra ferðamanna með veitingum
og fyrirlestrum,“ segir Dagný. „Það
er alltaf mjög skemmtilegt líka að
taka á móti blessuðum skólahópun-
um sem koma í Reykholt á vorin eftir
að hafa lesið um Snorrra í skólanum.
Ég ákvað að vera með litla verslun í
móttökunni og hef alltaf lagt áherslu
á að vera með gott úrval bóka á er-
lendum málum og hefur það fallið í
mjög góðan jarðveg. Við erum líka
með handverk og fallega skartgripi
sem smíðaðir eru af gullsmiðum og
það er mjög vinsælt líka.“
Geir bætir því við að aðstandendur
Snorrastofu nálgist ferðaþjónustuna
með öðrum hætti en víða er gert
annars staðar. Þjónustan sé til þess
að mæta þeirri þörf sem er til staðar
vegna þess að fólk sækir staðinn heim.
„Hér er ekki verið að okra á túristum
og starfsfólk sinnir hverjum og ein-
um,“ segja Geir og Dagný. „Allt-
af höfum við verið þeirrar skoðunar
að ganga skuli og hugsað um staðinn
sem þjóðmenningarstað þar sem sýna
skuli gestrisni og miðla upplýsingum
í stað þess að reyna að hafa sem mest
fé af fólki,“ segir Bergur.
Kaflaskil urðu í rekstri Snorrastofu
árið 2005. „Þegar tíu ára samning-
ur við Heimskringlu um gestamót-
töku í Reykholti rann út ákvað stjórn
Snorrastofu að taka að sér þann þátt,“
segir Dagný. „Að gera þetta að einni
stofnun gerði öllum gott. Það hafði
gengið mjög vel undir stjórn Dagnýj-
ar fram að því. En með því að hafa
heildaryfirsýn er hægt að nýta fjár-
magn og starfsfólk betur allt árið þeg-
ar sumarstarfsmennirnir eru farnir, til
dæmis. Einnig þykir okkur þetta já-
kvætt fyrir heildarupplifun gesta. Þeir
eru ekki að koma í gestamóttökuna
heldur eru þeir að koma í Snorra-
stofu,“ segir Bergur. Hann bætir við:
„Undanfarin ár hefur einnig verið
gert mikið átak við gerð stíga og upp-
setningu upplýsingaskilta á svæðinu
öllu og þúsundum trjáa verið plant-
að í skóginum.“
Í heimsókn hjá staðarhöldurum í Reykholti:
Ferðamenn aldrei áhugasamari um menningu okkar
Bergur Þorgeirsson forstöðumaður Snorrastofu, síra Geir Waage sóknarprestur í
Reykholti og Dagný Emilsdóttir móttökustjóri Snorrastofu. Ljósm. kgk.
Reykholt í Borgarfirði
Herra Pétur Sigurgeirsson biskup tók Pálsstungu að Reykholtskirkju-Snorrastofu
á hvítasunnudegi árið 1998.