Skessuhorn - 13.07.2016, Page 23
MIÐVIKUDAGUR 13. JÚLÍ 2016 23
Hvanneyrarhátíðin fór fram laug-
ardaginn 9. júlí. Nokkuð fjöl-
mennt var á hátíðinni og mikið
líf og fjör. Hátíðin var sett klukk-
an 13:30 af Gunnlaugi A Júlíus-
syni sveitarstjóra Borgarbyggð-
ar. Eftir formlega setningu las
Bjarni Guðmundsson upp úr nýrri
bók sinni; Konur breyttu búhátt-
um, um sögu mjólkurskólanna á
Hvanneyri og Hvítárvöllum. Yfir
daginn voru ýmsir menningar-
viðburðir á dagskrá og má þar
nefna að danshópurinn Sporið
steig dans við Frúargarðinn. Tón-
listin fékk að njóta sín í kirkjunni
þar sem Heimir Klemenzson, Eva
Margrét Eiríksdóttir og Reynir
Hauksson spiluðu og sungu. Ým-
islegt annað var í gangi yfir dag-
inn. Frítt var í Landbúnaðarsafn-
ið meðan á hátíðinni stóð, Forn-
bílaklúbburinn var með sýningu
og síðan voru leikir og skemmtun
fyrir börnin. Það er ekki hægt að
segja annað en að Hvanneyrarhá-
tíðin hafi tekist vel til og fólk hafið
yfirgefið hátíðina með brosi á vör.
bþb
Hvanneyrarhátíðin var vel sótt og menningarleg
Það voru flottir tónlistarmenn sem spiluðu í kirkjunni á Hvanneyr-
arhátíðinni. Hér spilar Heimir Klemenzson fyrir kirkjugesti.
Landbúnaðarsafnið og Ullarselið stóðu opin fyrir gesti hátíðar-
innar. Hér sýna ullarselskonur réttu handbrögðin á rokkana.
Danshópurinn Sporið sýndi þjóðdansa og tókst þeim afskaplega
vel til.
Bjarni Guðmundsson, höfundur nýjustu
íslensku bókarinnar á markaðinum,
heldur hér á fyrsta eintakinu af Konur
breyttu búháttum. Ljósm. Facebook.
Á hátíðinni höfðu nokkrir klætt sig upp, flestir í þjóðbúning en síðan voru aðrir sem
virtust ætla sjá um mjólkina. Hér eru þær Ásdís Helga og Sólrún Halla Bjarnadætur
sem klæddar voru upp í stíl kvennanna í mjólkurskólanum. Faðir þeirra gaf út og
áritaði nýja bók sína á laugardaginn.
Margir gestir voru á hátíðinni. Myndin er tekin á gamla bæjarhlaðinu þar sem fornbílar og dráttarvélar voru til sýnis.
Þjóðlega klæddar. Bára Sif, Sólrún Halla, Ásdís Helga og Stefanía.
Ljósm. Facebook.
Nóg var um að vera á Hellis-
sandi og Rifi um síðustu helgi
þegar Sandara- og Rifsara-
gleðin fór fram. Fjölbreytt
dagskrá var í boði fyrir gesti
og gangandi. Dagskráin hófst
á fimmtudag í Tröð með
keppni í Vestfjarðavíkingnum.
Þar var keppt í réttstöðulyftu
og uxagöngu. Ari Eldjárn sá
svo um uppistand í Frystiklef-
anum um kvöldið.
Á föstudeginum var vígsla á
minningarbekk um Skúla Al-
exandersson fyrrverandi odd-
vita og alþingismann og síð-
an var farið í síðdegisrölt með
Gunnu Láru. Um kvöldið var
svo stórdansleikur með hljóm-
sveitinni í svörtu fötum.
Hátíðin náði svo hámarki
á laugardeginum, en leiðinda
veður setti strik í reikninginn.
Gestir létu það þó ekki á sig
fá og skemmtu sér hið besta.
Einn gestanna orðaði það
svo: „Sandarar eru með sól í
hjarta, enda er sólin allt árið
hjá þeim.“ Farið var í göngu-
túr með Sæmundi Kristjáns-
syni og ratleikur var fyrir alla
fjölskylduna í Krossavík. Fjöl-
menni skoðaði svo forndrátt-
arvélar sem voru til sýnis og
barnaskemmtun með ömmu
DíDí og Stefáni var í Tröð.
Einnig voru markaðir, slysó-
súpa og sýningar í gangi alla
helgina.
af
Sandara- og Rifsaragleði var um helgina
Amma DÍDÍ og Stefán skemmtu börnin í Tröð með ýmsum uppátækjum. Frá markaði í Röst.
Hoppukastalinn er ávallt vinsæll. Forntraktorar vöktu mikla athygli.