Skessuhorn - 13.07.2016, Blaðsíða 28
MIÐVIKUDAGUR 13. JÚLÍ 201628
Vörur og þjónusta
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Drei bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
Hilmir B ehf
Alhliða pípulagningaþjónusta
hilmirb@simnet.is
facebook.com/hilmirbehf
Bifreiðaþjónusta Harðar ehf.
Smur og dekkjaþjónusta
Sala á dekkjum og olíuvörum
Borgarbraut 55 - 310 Borgarnesi
437 1192 / 847 8698 - midgardur@vesturland.is
Daglegar ferðir milli Reykjavíkur og Borgarness
Tvær ferðir í viku í sveitir Borgarfjarðar
Skrifstofan er opin mánudaga – föstudaga
kl. 9.00 – 12.00 og 13.00 – 15.30
Sími 437-2030 - v.v@simnet.is
DAGLEGAR FERÐIR BORGARNES - REYKJAVÍK
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
ÖLL ALMENN GARÐVINNA
• Fjarlægjum tré og kurlum
• Útvegum sand, mold og möl
• Sláum garða
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is
Sprautu- og bifreiðaverkstæði
Sólbakka 5, Borgarnesi • 437-1580 • sbb@simnet.is
Tjónaskoðun – Bílamálun – Réttingar – Bílrúðuskipti
Þjónustum öll tryggingafélög
Borgarness
Ég heiti Rúnar Gíslason og ég
er með ólæknandi áhuga á sam-
félagsmálum. Einmitt þess vegna
hef ég ákveðið að gefa kost á mér
í 1.-3. sæti á lista Vinstrihreyfing-
arinnar – græns framboðs í Norð-
vesturkjördæmi fyrir komandi al-
þingiskosningar. Þeim sem vita
að ég er bara tvítugur drengtittur
úr Borgarfirði finnst það kannski
svolítið djarft, verulega bratt, ör-
lítið klikkað eða hugsanlega jafn-
vel verulega frekt að sækjast eftir
mögulegu þingsæti, þegar vænt-
anlega er völ á eldra og reyndara
fólki í þessi hlutverk. Og kannski
er þetta meira segja allt í senn,
djarft, bratt, klikkað og frekt. Það
er samt alls ekki meiningin og það
skal ítrekað að þessi ákvörðun er
tekin af góðum hug og fyrst og
fremst vegna áhuga á velferð sam-
félagsins. Bein afleiðing af slíkum
áhuga á að mínu mati að vera vilji
til að hafa áhrif á samfélag sitt, til
hins betra.
Það er gjarnan klifað á því að
Alþingi eigi að endurspegla þjóð-
ina, vera einskonar þverskurður af
henni. Stjórnmálaflokkar hvetja
líka gjarnan ungt fólk til þátt-
töku í þjóðfélagsmálum. Stund-
um finnst mér samt að hugur fylgi
ekki endilega máli og að þótt allir
flokkar vilji laða til sín unga kjós-
endur þá vilji þeir ekki endilega
að unga fólkið hafi mikil áhrif.
Allavega er það svo að þegar kem-
ur að kosningum þá er unga fólkið
frekar notað til að skreyta listana
en til að vera raunhæfur valkost-
ur. Ég er ekki að halda því fram
að það eigi að bjóða fram eintóma
barnalista. Ég legg einfaldlega til
að kjósendur hafi meira val. Ég
vil að ungt fólk eigi möguleika að
koma að fulltrúum úr sínum röð-
um. Mér finnst það ekkert sér-
lega frekt heldur bara frekar hóg-
vær uppástunga. Ég kýs að líta á
mitt framboð sem ákveðna tilraun
til að láta á það reyna hvort menn
eru að meina það þegar þeir segja;
„ungt fólk til áhrifa“.
Þótt ég, barnið, vilji fá að vera
með fullorðna fólkinu þá þýðir
það ekki mér þyki fullorðna fólk-
ið ómögulegt. Öðru nær. Ég ber
virðingu fyrir reynslunni en bendi
líka á að enginn hefur sest inn á
þing í fyrsta sinn með mikla þing-
reynslu á bakinu! Á stuttri ævi
hef ég reyndar aflað mér reynslu
á ýmsum sviðum. Reynslu sem
ég er stoltur af og þakklátur fyrir.
Ég hef tekið mikinn þátt í félags-
lífi, hef skipulagt bæjarhátíðir, set-
ið í nefndum á vegum Borgar-
byggðar og Samtaka sveitarfélaga
á Vesturlandi. Síðasta vor útskrif-
aðist ég sem stúdent frá Mennta-
skóla Borgarfjarðar og fjallaði
lokaverkefnið mitt um skólamál í
héraði, sérstaklega út frá sjónar-
hóli barna og ungmenna. Ég hef
sem fyrr segir áhuga á hverju því
málefni er varðar ungt fólk. Ég hef
líka áhuga á málefnum þeirra sem
eldri eru enda eru þeirra vanda-
mál og lausnir oftast af svipuðum
meiði þó áherslur séu kannski aðr-
ar. Ég hef mikinn áhuga á nátt-
úruvernd og líka ferðamálum,
þótt einhverjum finnist það ekki
fara saman. Ég trúi því samt að
hægt sé að nota ferðamennskuna
til að vernda náttúruna, þó það
hafi gengið illa fram að þessu. Ég
hef líka mikinn áhuga á málefn-
um flóttafólks og ég trúi því að við
eigum ekki einkarétt á einhverri
þúfu þótt við höfum verið svo
heppin að fæðast á henni. Vonandi
finnst einhverjum að ég geti verið
verðugur fulltrúi unga fólksins. Ef
ekki þá nær það ekki lengra. Þó ég
sé ekki eldri en ég er þá hef ég nú
þegar lært það af biturri reynslu að
það gengur ekki allt upp sem mað-
ur ætlar sér. Kannski verður þetta
framboð án eftirspurnar. En það
er ekki nema ein leið til að kom-
ast að því.
Til þjónustu reiðubúinn,
Rúnar Gíslason
Ungt fólk til áhrifa eða skrauts?
Pennagrein Pennagrein
Dagana 28. – 31. júlí verður haldið
Unglingalandsmót UMFÍ í Borg-
arnesi. Þessi helgi er mikil ferða-
helgi enda verslunarmannahelgin.
Íbúar í Borgarbyggð munu taka
á móti þúsundum manns þessa
helgina þar sem stefnan er tek-
in á hátt í tvö þúsund keppend-
ur á mótinu. Unglingalandsmót
UMFÍ er vímulaus íþrótta- og
fjölskylduhátíð þar sem allir finna
eitthvað sér til gagns og skemmt-
unar, sama á hvaða aldri þeir eru.
Það er því mikilvægt að við, íbú-
ar í Borgarbyggð, tökum gestum
okkar fagnandi og sýnum þeim
hvað sveitarfélagið okkar er frá-
bært. Við búum í víðfeðmu sveit-
arfélagi þar sem náttúrufegurðin
er ólýsandi. Styrkleikar íbúanna
eru mismunandi og ef við tökum
höndum saman eru okkur allar
leiðir færar.
Til þess að Unglingalandsmót
og umgjörð þess gangi sem best
þá treystum við á ykkur, kæru fé-
lagar, til aðstoðar. Á Unglinga-
landsmóti eru mörg sjálfboðaliða-
störf sem þarf að fylla og veit ég
að margir eru klárir í slaginn. All-
ir þeir sem hafa áhuga á því að að-
stoða á mótinu geta haft samband
við verkefnastjóra Unglingalands-
mótsins, Evu Hlín Alfreðsdóttur
– evahlin@umfi.is Framlag sjálf-
boðaliða styrkir aðildarfélögin
sem standa að mótinu. Hvetjum
við alla til að leggja hönd á plóg-
inn og sýnum landsmönnum hvað
Borgarbyggð er flott sveitarfélag.
Virkjum samstöðuna!
Sólrún Halla Bjarnadóttir
Sambandsstjóri UMSB
Kæru Ungmennafélagar
og aðrir héraðsbúar!