Skessuhorn - 13.07.2016, Side 30
MIÐVIKUDAGUR 13. JÚLÍ 201630
„Hvernig er sumarið
búið að vera?“
Spurning
vikunnar
(Spurt í Ólafsvík)
Leifur Ingólfsson
„Ég hef notið þess. Það hefur
verið frábært.“
Berglind Long og Daníel Berg
„Frábært. Veðrið er búið að vera
gott og ekki spillti EM fyrir.“
Þórhildur Þorsteinsdóttir
„Ljómandi gott. Gott veður.
Hinrik Pálsson
„Gott hjá okkur sem búum hér.
Veðrið hefur verið frábært, sjald-
an svona gott.“
Hafdís Alda
„Alveg yndislegt. Hefur verið
gaman að fylgjast með EM og
Víkingi í sumar.“
Dagana 4. til 9. júlí fór Meistaramót
Golfklúbbsins Leynis fram á Garða-
velli. Í tilkynningu frá klúbbnum
segir að þátttakan hafi verið góð
og 130 félagsmenn hafi tekið þátt í
mótinu að meðtöldum þátttakend-
um á meistaramóti barna og ung-
linga. Aðstæður voru góðar á meðan
á mótinu stóð og sólin skein meira
og minna alla mótsdaga og völlur-
inn var í góðu standi.
Úrslit urðu eftirfarandi:
Meistaraflokkur karla (72 holur)
1. sæti Stefán Orri Ólafsson 305
högg
2. sæti Hróðmar Halldórsson 314
högg
3. sæti Jón Örn Ómarsson 316
högg
1. flokkur kvenna (72 holur,
ekki var keppt í meistaraflokki
kvenna)
1. sæti María Björg Sveinsdóttir,
352 högg
2. sæti Elín Dröfn Valsdóttir, 368
högg
1. flokkur karla (72 holur)
1. sæti Einar Lyng Hjaltason, 317
högg
2. sæti Búi Örlygsson, 326 högg
3. sæti Guðmundur Hreiðarsson,
331 högg
2. flokkur kvenna (72 holur)
1. sæti Sigríður E Blumenstein, 387
högg
2. sæti Elín Rós Sveinsdóttir, 390
högg
3. sæti Elísabet Valdimarsdóttir,
398 högg
2. flokkur karla (72 holur)
1. sæti Hallgrímur Gíslason Kvar-
an, 344 högg
2. sæti Guðjón Theódórsson, 345
högg
3. sæti Vilhjálmur E Birgisson, 346
högg (Vilhjálmur vann eftir bráða-
bana við Ísak Örn Elvarsson).
3. flokkur kvenna (54 holur)
1. sæti Bára Valdís Ármannsdóttir
309 högg
2. sæti Kristjána Jónsdóttir, 312
högg
3. sæti Ingibjörg Stefánsdóttir, 324
högg
3. flokkur karla (72 holur)
1. sæti Guðjón Viðar Guðjónsson
374 högg
2. sæti Emil Kristmann Sævarsson
,382 högg
3. sæti Gunnar Davíð Einarsson,
383 högg
4. flokkur karla (72 holur)
1. sæti Bjarki Jens Gunnarsson Scott
402 högg
2. sæti Sigurður Sigurjónsson, 409
högg
3. sæti Oddur Pétur Ottesen, 415
högg
Konur 50 ára og eldri (54 holur)
1. sæti Hrafnhildur Sigurðardóttir
273 högg
2. sæti Ellen Ólafsdóttir, 290 högg
3. sæti Ásdís Kristjánsdóttir,311 högg
Karlar 50 ára og eldri (54 holur)
1. sæti Hlynur Sigurdórsson, 243
högg
2. sæti Birgir Arnar Birgisson, 247
högg
3. sæti Jón Alfreðsson, 248 högg
Karlar 65 ára og eldri (54 hol-
ur)
1. sæti Reynir Þorsteinsson, 251
högg
2. sæti Jón Ármann Einarsson,
259 högg
3. sæti Jón Smári Svavarsson, 276
högg
16 – 18 ára flokkur (72 holur)
1. sæti Jón Karl Kristján Trausta-
son, 416 högg
2. sæti Aron Bjarki Kristjánsson,
444 högg
15 ára og yngri (54 holur)
1. sæti Valdimar Ólafsson, 266
högg
2. sæti Gabriel Þór Þórðarson,
279 högg
3. sæti Ingimar Elfar Ágústsson,
306 högg
Nándarverðlaun
(lokadagur meistaramóts)
3. hola Jón Smári Svavarsson,
2,37m
8. hola Sigurður Þór Sigursteins-
son, 1,14m
14. hola Búi Örlygsson, 1,61m
18. hola María Björg Sveinsdótt-
ir 3,64m
bþb/ Ljósm. Viktor
Elvar Viktorsson.
Meistaramót GL spilað við úrvals aðstæður
Skagamenn er á miklu skriði þessa
dagana en þeir unnu sinn þriðja leik
í röð þegar þeir mættu Breiðabliki
í tíundu umferð Pepsi deild karla á
mánudagskvöldið. Skagamenn sigr-
uðu leikinn sem fram fór á Kópa-
vogsvelli 1–0 með marki Garðars
Gunnlaugssonar. Með sigrinum
hoppuðu Skagamenn upp um tvö
sæti og eru nú í áttunda sæti með
þrettán stig.
Blikar byrjuðu leikinn vel og fyrstu
tíu mínúturnar var nokkuð þung
sókn að marki Skagamanna. Á upp-
hafsmínútum leiksins vildu Skaga-
menn fá vítaspyrnu þegar Jón Vil-
helm féll við í teignum en dómarinn
dæmdi ekkert. Eftir ellefu mínútna
leik fengu Skagamenn aukaspyrnu
við endalínu hægra megin. Iain
Williamson tók spyrnuna og sendi
boltann fyrir; Garðar Gunnlaugsson
hoppaði manna hæst og glæsileg-
ur skalli hans fór í bláhornið. Staðan
orðin 1–0 Skagamönnum í vil. Garð-
ar er sjóðandi heitur í markaskor-
un þessa dagana en í síðustu þremur
leikjum hefur hann skorað sex mörk;
allt í allt hefur hann skorað níu mörk
í deildinni sem gerir hann að marka-
hæsta leikmanni deildarinnar. Það er
einnig vert að nefna það að markið
var fimmtugasta mark Garðars í efstu
deild.
Blikar voru mikið meira með bolt-
ann í fyrri hálfleik en náðu að skapa
sér fá góð marktækifæri. Skagamenn
beittu hröðum upphlaupum og voru
þau alltaf ógnandi þó lítið hafi orðið
úr þeim. Staðan þegar flautað var til
hálfleiks 1–0 fyrir Skagamönnum.
Seinni hálfleikurinn var ein alls-
herjar sókn Blika. Þeir sóttu án af-
láts að marki Skagamanna. Skaga-
menn vörðust og voru mjög bar-
áttuglaðir, þeir gáfu ekki tommu eft-
ir. Þrátt fyrir þunga sókn Blika náður
þeir, rétt eins og í fyrri hálfleik, ekki
að skapa sér dauðafæri og voru fyr-
irgjafir þeirra oft á tíðum mjög slak-
ar. Jonathan Glenn kom boltanum í
mark Skagamann á 88. mínútu en var
réttilega dæmdur rangstæður.
Skagamenn náðu að halda mark-
inu hreinu í leiknum og lauk hon-
um með 1–0 sigri. Gríðarlega sterk-
ur sigur hjá Skagamönnum sem taka
á móti Valsmönnum á heimavelli
næstkomandi sunnudag, 17. júlí.
bþb
Skagamenn sigruðu
sinn þriðja leik í röð
Garðar Gunnlaugsson hefur skorað sex mörk í síðustu þremur leikjum. Hann
skoraði einnig sitt fimmtugasta mark í efstu deild á móti Breiðabliki.
Meistaramót Golfklúbbsins Vest-
arr í Grundarfirði var haldið dag-
ana 6. til 9. júlí sl. Góð þátttaka var
í mótinu og veður mjög gott utan
síðasta daginn. Bárarvöllur hefur
sjaldan verðið í betra ástandi, bæði
brautir og grín.
Um næstu helgi verður Snæfells-
neshringurinn spilaður. Um tveggja
daga mót er að ræða þar sem allir
vellirnir á Snæfellsnesi verða spil-
aðir. Leikmaður skráir sig á þeim
velli sem hann vill byrja á og spil-
ar svo réttsælis um nesið, tvo velli
á dag. Nýtt og spennandi mót
sem allir klúbbar á nesinu koma
að; Vestarr, Mostri, Staðarsveit og
Jökull. Nánar var fjallað um mót-
ið í Skessuhorni í síðustu viku og á
golf.is
Sigurvegarar á meistaramóti
Vestann voru:
1. fl. karla: Pétur Vilberg Georgs-
son á 305 höggum.
1. fl. kvenna: Jófríður Friðgeirs-
dóttir á 360 höggum.
Öldungaflokkur: Guðni E Hall-
grímsson á 360 höggum.
2. fl. karla: Steinar Þór Alfreðsson
á 344 höggum.
2. fl. kvenna: Freydís Bjarnadóttir
á 394 höggum.
Punktameistari: Ragnar Smári
Guðmundsson með 142 punkta.
Öll önnur úrslit má finna á golf.is
amr/mm/ Ljósm. Sverrir Karlsson.
Meistaramót Vestarr og fram-
undan er Snæfellsneshringurinn
Punktameistarinn Ragnar Smári og
mótsstjóri var Ágúst Jónsson.
Frá vinstri: Ragnar Smári, Steinar Þór, Jófríður, Guðni, Pétur, Freydís.