Skessuhorn


Skessuhorn - 31.08.2016, Blaðsíða 14

Skessuhorn - 31.08.2016, Blaðsíða 14
MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 201614 Nýverið var tekið í notkun nýtt nautaeldisfjós í Hvítanesi í Hval- fjarðarsveit. Af því tilefni var opið hús síðastliðinn laugardag, þegar hátíðin Hvalfjarðardagar stóð sem hæst. Skessuhorn ræddi við Jón Þór Marinósson, bónda í Hvítanesi, um byggingu fjóssins og fleira. Hann var að vonum ánægður og sagði að fram- kvæmdir hefðu gengið afskaplega vel. „Þetta gekk eiginlega bara lyg- inni líkast. Fyrsta skóflustungan var tekin 18. desember í fyrra. Skömmu síðar voru menn frá Smellinn mætt- ir að steypa og voru að mestu búnir eftir áramót. Reyndar tafðist verkið aðeins vegna frosts í jörðu. Við ætl- uðum að vera búin að steypa plöt- una í febrúar en það var ekki hægt fyrr en í mars vegna frosts,“ seg- ir Jón Þór. „En engu að síður gekk þetta vel. Menn frá Landstólpa voru mættir fyrstu vikuna í apríl og hús- ið var risið kringum 20. apríl,“ bæt- ir hann við. En bygging nýja eldisfjóssins í Hvítanesi á sér forsögu. Eins og Skessuhorn greindi frá á síðasta ári þá eyðilagðist gamla fjósið og sam- byggð hlaða í Hvítanesi í óveðri í mars 2015. Þakið fauk af húsunum svo aðeins steypuveggirnir stóðu eft- ir. Mikil mildi var að enginn slasað- ist þegar óveðrið gekk yfir því feðg- arnir í Hvítanesi voru á leið til gegn- inga þegar mikil vindhviða reið yfir og eyðilagði húsin. „Eftir að það fauk hjá okkur þá var annað hvort að byggja eða hætta. Ég og foreldrar mínir, Marinó Tryggvason og Mar- grét Magnúsdóttir, vorum ekki til- búin að gefast upp og ákváðum að byggja nýtt fjós,“ Jón Þór. „Ég hafði vissulega velt fjósbyggingu fyrir mér áður en ekkert gert í því og var ekk- ert byrjaður að vinna í að fjármagna slíkt. En tryggingaféð sem við feng- um fyrir gamla fjósið veitti okk- ur hins vegar ákveðið svigrúm til að byggja nýtt,“ bætir hann við. 144 gripir á húsi Nýja fjósið í Hvítanesi er 564 fer- metrar að flatarmáli, byggt úr for- steyptum einingum frá Smellinn en stálgrindin, innréttingar og fleira kemur frá Landstólpa. Pláss er fyr- ir 144 gripi og hugmyndin er að sex nautum verði slátrað úr fjósinu í hverjum mánuði, samtals 72 á ári. Fyrstu gripirnir voru reknir á hús 7. ágúst síðastliðinn og rúmri viku síð- ar voru ellefu naut send til slátrun- ar. Framleiðslan fer þannig fram að kálfar sem keyptir eru ungir að aldri eru hafðir á góðu fóðri þar til þeir eru orðnir fullvaxta, 18 til 20 mán- aða gamlir. Þá er þeim slátrað og af hverju nauti fást um 200 kíló af hreinu kjöti. „Við erum líka með holdanautakvígur, Galloway blend- inga, sem við látum bera í fjósinu. Stefnan er að reyna að fjölga þeim hægt og rólega í framtíðinni,“ seg- ir Jón Þór. Fallþungi aukist mikið Aðspurður kveðst hann alltaf hafa heillast meira af kjötframleiðslu en mjólkurframleiðslu. „Mamma og pabbi voru alltaf með smá kjötfram- leiðslu með, eins og algengt er hér á landi, að bændur slátri nokkrum nautum á ári sem aukabúgrein,“ seg- ir hann. „Þar að auki er maður ekki alveg jafn bundinn af búskapnum, en svo er það auðvitað þannig að það er alls ekkert auðvelt að komast af stað í mjólkurframleiðslu. Það þarf að kaupa kvóta, mjaltatæki og fleira slíkt,“ bætir hann við en útilokar ekki að fara að framleiða mjólk ein- hvern tímann síðar. Hins vegar ætl- ar hann að einbeita sér að kjötinu að minnsta kosti fyrst um sinn. „Ég held að við getum náð miklu betri árangri í nautakjötsframleiðslu en við höfum gert hingað til. Það er hægt með því að ala nautin á topp fóðri til að ná því besta út úr þeim,“ segir Jón Þór og telur að kjöt- og mjólkurframleiðsla á Íslandi eigi eftir að aðgreinast enn frekar í framtíðinni, eins og þekkist í öðrum löndum. „Þetta hefur allt- af verið mjög blandað hér á landi. Bændur hafa verið með mjólkurbú en framleitt smávegis kjöt með en ég held að þetta sé að breytast og við munum sjá meiri aðgreiningu í framtíðinni og enn betra nautakjöt, því nautin fá þá alltaf topp fóður,“ segir hann og telur eitt merki þess hve mikið fallþungi íslenskra naut- gripa hefur aukist undanfarinn ára- tug. „Við miðum við að skrokkur- inn sé ekki undir 250 kílóum hjá 18 mánaða nautum. Það er miklu meiri fallþungi en fyrir tíu árum og tala nú ekki um fyrir 20 árum síðan, en það er vel hægt að þyngja nautin aðeins meira,“ segir hann. Til þess þarf hins vegar að bæta stofninn. „Íslenska kynið er frekar geðstirt og það fer heldur mikið af orku nautanna í að berjast,“ segir hann og hlær. „Stofn- inn er bara það lítill að við höfum í gegnum tíðina ekki getað leyft okk- ur að rækta skapgerð. En það verð- ur vonandi hægt í framtíðinni,“ segir hann og kveðst ánægður með áform um einangrunarstöð að Stóru-Ár- mótum á Suðurlandi. „Það hefur lítil framþróun orðið í holdakyninu á Ís- landi og þarf að fara að huga að því að bæta íslenska stofninn og þessa Galloway blendinga sem hér eru.“ Hyggst selja beint frá býli Jón Þór segir mikla eftirspurn vera eftir nautakjöti og telur það ekki síst vera vegna þess mikla fjölda ferða- manna sem leggur leið sína til lands- ins á ári hverju. „Það komu meira að segja nokkrir í fjósið á laugardag- inn. Sáu að það var eitthvað í gangi, ákváðu að líta við og keyptu kjöt af okkur,“ segir Jón Þór. Hann kveðst ætla að selja nautakjöt í Hvítanesi í framtíðinni. „Vinnan við eldið sjálft er ekkert ofboðsleg. Þetta snýst fyrst og fremst um að gefa og halda snyrtilegu í kringum dýrin. En ég vil gefa oft á dag, ég er sannfærð- ur um að þannig náist bestur árang- ur. En það er samt minni vinna en við mjaltir tvisvar á dag og því mætti leggja vinnu í að selja kjötið beint frá býli. Þá sleppir maður milliliðunum og fær meira fyrir kjötið,“ segir Jón Þór og áætlar að hann fái um það bil hundrað þúsund krónum meira fyr- ir hvern skrokk ef hann selur hann sjálfur. „Auk þess er betra að fara oft í fjósið og vera í kringum dýrin. Þá læra þau að þekkja mann og eru ró- legri. Þá eru dýrin ekki stressuð því það skiptir öllu máli að þeim líði vel á meðan þau eru hérna. Það hef- ur líka áhrif á gæði kjötsins. Það eru hagsmunir bænda að dýrunum líði vel því ef þau eru stressuð og líður illa þá bitnar það á afurðunum sem þeir eru að framleiða,“ segir hann. Vill að allir sitji við sama borð Mikil eftirspurn eftir nautakjöti hef- ur leitt til mikils innflutnings á síð- ustu árum. Jón Þór segir erfitt fyr- ir íslenska nautakjötsframleiðendur að keppa við innflutt kjöt. „Ástæðan er sú að við búum við mjög strangt dýravelferðarkerfi, sem er mjög já- kvætt. Hins vegar er verið að flytja inn kjöt frá löndum eins og Spáni og Þýskalandi þar sem eru ekki sömu kröfur um dýravelferð. Til dæmis má vera þrengra um nautin þar en hér og framleiðslan er keyrð áfram á fúkkalyfjagjöf á meðan hér eru eng- in fúkkalyf notuð,“ segir hann. „Það er ekkert að því að flytja inn kjöt. Ég vil bara að allir sitji við sama borð. Það er óréttlátt að menn geti flutt inn kjöt sem lýtur ekki sömu kröfum og það sem er framleitt hér heima,“ segir Jón Þór. Aðspurður kveðst hann líta björt- um augum til framtíðar. Hann muni stunda búskap í Hvítanesi með að- stoð foreldra sinna, auk þess sem kærasta hans, Þorbjörg Eva Ellings- en, ætlar að búa með honum við bú- skapinn í Hvítanesi. Hún deilir dýra- áhuganum að vissu leyti með Jóni Þór því hún hyggur á nám í dýra- lækningum. „Það er ekki sjálfgef- ið að fólk vilji flytja út í sveit og það er æðislegt að eiga kærustu sem hef- ur sjálf svona mikinn áhuga á dýr- um, deilir áhuga fyrir búskapnum og sýnir honum mikinn skilning. Því vinnutíminn getur verið ansi teygj- anlegur, sérstaklega á sumrin,“ seg- ir Jón Þór að lokum. kgk „Held að við getum náð miklu betri árangri í nautakjötsframleiðslu“ - rætt við Jón Þór Marinósson um nýtt fjós í Hvítanesi og sitthvað fleira Jón Þór Marinósson, bóndi í Hvítanesi. Nýja nautaeldisfjósið í Hvítanesi er 564 fermetrar að stærð og getur hýst 144 gripi. Jón Þór segir að stefnan sé að sex gripum verði slátrað úr fjósinu á mánuði. Opið fjós í Hvítanesi var hluti af dagskrá Hvalfjarðardaga um síðustu helgi. Gestum og gangandi var boðið að koma og skoða nýja fjósið. Dýrin virtust ekkert kippa sér upp við heimsóknirnar og voru hin rólegustu. Ábúendur í Hvítanesi í nýja fjósinu; Margrét, Jón Þór og Marinó.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.