Skessuhorn


Skessuhorn - 31.08.2016, Blaðsíða 19

Skessuhorn - 31.08.2016, Blaðsíða 19
MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 2016 19 Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi verður laugardaginn 3. september 2016 kl. 11:00 til 19:00 Kjörstaðir verða þessir: Akranes: Smiðjuvellir 32 Borgarnes: Menntaskóli Borgarfjarðar Hvanneyri: Skemman Ólafsvík: Ennisbraut 1 Grundarfjörður: Grundargata 24 Stykkishólmur: Hafnargata 9 Patreksfjörður: Safnaðarheimilið Ísafjörður: Aðalstræti 20 Búðardalur: Vesturbraut 12 Hólmavík: Kópnesbraut 7 Hvammstangi: Félagsheimilið Blönduós: Húnabraut 13 Skagaströnd: Bjarmanes kaffihús Sauðárkrókur: Kaupvangstorg 1 Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi Sjálfstæðisflokkurinn SK ES SU H O R N 2 01 6 Umsóknarfrestur á haustönn 2016 er til 15. október n.k. Nemendur á framhaldsskólastigi sem ekki njóta lána hjá LÍN geta sótt um styrk til jöfnunar á námskostnaði. Styrkurinn ræðst af búsetu og er fyrir þá sem stunda nám fjarri heimili sínu. Dvalarstyrkur (fyrir þá sem að dvelja fjarri lögheimili og fjölskyldu sinni vegna náms). Styrkur vegna skólaaksturs (fyrir þá sem sækja nám frá lögheimili og fjarri skóla). Nemendur og aðstandendur þeirra eru hvattir til að kynna sér reglur um styrkinn á vef LÍN (www.lin.is). Lánasjóður íslenskra námsmanna Námsstyrkjanefnd S K E S S U H O R N 2 01 6 Jöfnunarstyrkur til náms Ljósmyndun hefur þróast og tekið stakkaskiptum í tímans rás. Til gam- ans birtum við hér tvær myndir sem teknar voru á svipuðum stað með 146 ára millibili, eða mesta mögu- lega tímamun. Myndefnið í báðum tilfellum er náttúruundrið Árhver sem kemur upp í miðri Reykjadalsá í Borgarfirði. Hverinn hefur ým- ist verið nefndur Vellir eða Vellines- hver, eftir því hvar flett er upp í sagn- fræðilegum heimildum. Engu að síð- ur er þetta eini hverinn sem vitað er um að komi upp í miðri á. Hægt er að láta hverinn gjósa og hafa ýms- ir reynt það í áranna rás með aðstoð sápu. Gömlu myndina tók Sigfús Ey- mundsson árið 1870, en þá var ljós- myndarinn nýlega kominn heim úr áralangri dvöl í Danmörku og Nor- egi þar sem hann nam ljósmyndun. Mynd þessi er merk fyrir þær sakir að hún telst meðal þriggja elstu lands- lagsljósmynda Sigfúsar og þar með íslensks ljósmyndara. Myndefni Sigfúsar er hver í miðjum árfarvegi, bunga hefur hlaðist umhverfis hverinn og gufu- strók leggur upp af honum. Í for- grunni stendur hestur með klifsöðli sem hefur flutt varning ljósmyndar- ans á vettvang. Hestinum er meðvit- að stillt upp í forgrunni myndarinn- ar, líklega sem stærðartákni. Á mynd Sigfúsar sér þvert norður yfir dalinn til hlíðar handan hans og þar má sjá móta fyrir torfbæjarröð sem fellur að landinu á bænum Sturlu-Reykjum. Nýju myndina tók Guðlaugur Óskarsson áhugaljósmyndari í Reyk- holti 146 árum á eftir Sigfúsi. Mynd- ina tók hann á einum mesta góðviðr- isdegi sumarsins í síðustu viku. Rétt við Árhverinn úti í miðri ánni stend- ur ofan á hverahrúðrinu franskur fræðimaður að nafni François-Xav- ier Dillman. Sjónarhorn mynda- tökumannsins er eilítið annað. Ljós- myndarinn stendur nær sjálfum hvernum, úti í ánni, og sjónarhorn- inu beint ofar í dalinn. mm Tvær ljósmyndir teknar á sama stað með 146 ára millibili Rallý Reykjavík, þriggja daga alþjóð- leg keppni og jafnframt fjórða um- ferð á Íslandsmótinu í rallý, fór fram 25. - 27. ágúst sl. Ekið var víðs veg- ar um Suður- og Vesturland, m.a. um Kaldadal og Tröllháls, Djúpavatn og í nágrenni Heklu. Eknir voru alls yfir þúsund kílómetrar og þar af rúmlega 300 km á sérleiðum. Tuttugu áhafn- ir hófu keppni seinnipart fimmtu- dags, spenningur var mikill og líklegt að hart yrði barist um verðlaunasæt- in enda margir fyrrverandi og núver- andi Íslandsmeistarar meðal þátttak- enda. Rallý snýst ekki eingöngu um að aka hratt heldur er skynsemi og yf- irvegun ásamt góðum undirbúningi áhafna gríðarlega mikilvægur, m.a. hvað varðar ástand keppnisbifreiða. Strax á fimmtudag fór að bera á bil- unum í sumum bifreiðum og fór svo að einungis 15 áhafnir luku keppni á laugardag. Daníel og Ásta Sigurðar- börn á Subaru stóðu uppi sem sigur- vegarar með tæplega 8 mín. forskot á þá Sigurð Braga Guðmundsson og Borgnesinginn Aðalstein Símonarson á MMC Evo 7 sem óku öruggt í ann- að sætið. Þeir Sigurður Bragi og Að- alsteinn leiða nú Íslandsmótið með gott forskot á Daníel og Ástu. Þar sem aðeins ein umferð er eftir næg- ir þeim fimmta sætið í síðustu keppn- inni til að tryggja sér titilinn. Mikil barátta var alla keppnina um þriðja sætið en allt fram að næst síð- ustu sérleið leit út fyrir að Eyjólf- ur Melsteð og Heimir Snær Jóns- son yrðu í þriðja sæti eftir gríðarlega góðan akstur alla keppnina. Þeir urðu hins vegar fyrir því óhappi að vélin gaf sig í Cherokee jeppa þeirra þegar ein- ungis um 25 sérleiðakílómetrar voru eftir og féllu þeir þar með úr keppni. Eftirleikurinn var því auðveldur hjá Marian Sigurðsyni og Ísak Guðjón- syni en þeir höfðu með góðum akstri á laugardeginum saxað jafnt og þétt á forskot þeirra Eyjólfs og Heimis. Biluð vél þeirra Eyjólfs og Heim- is hafði einnig gríðarleg áhrif á sæta- röðun í jeppaflokki en þeir voru nær öruggir með sigur í þeim flokki fyr- ir síðustu sérleiðina. Guðmundur Snorri Sigurðsson og Magnús Þórð- arson stóðu hins vegar uppi sem sig- urvegarar og tryggðu sér um leið Ís- landsmeistaratitilinn. Í öðru sæti urðu Vestlendingurinn Þorkell Sím- onarson, Keli vert, og Þórarinn K. Þórsson. Akurnesingurinn Gunnar Freyr Hafsteinsson er þaulreyndur rallöku- maður sem þó hefur lítið keppt und- anfarin ár. Hann mætti til leiks ásamt bróðursyni sínum, Guðmundi Orri Arnarsyni, en þeir óku á framdrifn- um Ford Focus. Þrautseigja þeirra ásamt góðu viðgerðarliði skilaði þeim af harðfylgi í endamark á laugardag en ýmislegt gaf sig í bifreið þeirra á þessum þremur dögum. Verður það að teljast góður árangur þar sem akst- ursleiðir voru ekki alltaf heppilegar fyrir svo smáa og afllitla bifreið eins Focus í raun er. gjg Aðalsteini og Sigurði dugar fimmta sæti í síðasta rallýi ársins Gunnar og Guðmundur Orri óku á Ford Focus. Hér eru þeir við Djúpavatn. Þeir frændur sýndu mikla þrautseigju í keppninni. Mikið gekk á í keppninni en allt hafðist þetta þótt fimm áhafnir næðu ekki að ljúka keppni. Aðalsteinn og Sigurður Bragi juku forskot sitt, Keli vert kláraði og Akurnesingarnir líka þrátt fyrir mikil skakkaföll. Hér eru þeir Alli og Siggi við Hvaleyrarvatn. Fréttaveita Vesturlands www.skessuhorn.is

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.