Skessuhorn - 19.10.2016, Page 28
MIÐVIKUDAGUR 19. OKTÓBER 201628
Með almannahagsmunum og jöfn-
um tækifærum; gegn sérhags-
munapoti og spillingu.
Með mannréttindum og marg-
breytileika; gegn fordómum og
mismunun.
Með náttúru og umhverfi; gegn
ágangi og mengun.
Með heiðarleika og hagkvæmni;
gegn græðgi og sóun.
Með ábyrgð og langtímahugsun;
gegn lýðskrumi og skyndiredding-
um.
Með víðsýni og virðingu; gegn
þröngsýni og einangrun.
Með samstarfi og sátt; gegn sund-
urlyndi og frekju.
Fyrir þetta stendur Björt fram-
tíð og þess vegna styðjum við hana.
Og það er ekki slæmur félagsskap-
urinn sem við erum í á framboðs-
listanum í NV-kjördæmi.
Í fyrsta sæti er hann Valdi, G.
Valdimar Valdemarsson, sem ber
ekki aðeins óvenjulegt nafn, held-
ur er hann óvenjulega vel að sér
í öllum mikilvægustu hagsmuna-
málum þjóðarinnar. Óþreytandi
baráttujaxl fyrir betri og heiðar-
legri stjórnmálum og stjórnsýslu.
Og það er ekki verra að maðurinn
er líka þrælskemmtilegur og full-
komlega laus við sýndarmennsku
og hégómaskap. Eldklár og jarð-
bundinn og hefur þann eina metn-
að að fá að vinna í þágu almanna-
hagsmuna. Það myndi bæta ís-
lensku löggjafarsamkunduna heil-
an helling ef bara við höfum vit á
að kjósa Valda á þing. Við fullyrð-
um að þeir eru teljandi á fingrum
annarrar handar sem eiga jafnmik-
ið erindi þangað og hann.
Svo eru það Skagakonurnar
ungu, Kristín og Ásthildur, sem
eru í 2. og 3. sæti framboðslist-
ans. Öflugar og jákvæðar. Reknar
áfram af einlægum vilja til til að
gera þjóðfélagið betra og réttlát-
ara og engu öðru. Það er sérkenni-
legt samfélag sem vill ekki nýta sér
svona starfskrafta.
Þingmenn Bjartrar framtíð-
ar hafa staðið vörð um mannúð
og mannréttindi fólks sem stend-
ur höllum fæti, fatlaðs fólks, ör-
yrkja, flóttafólks og fátækra barna.
Þeir hafa lagt sig fram við að verja
hagsmuni almennings fyrir alls
kyns sérhagsmunapoti, skamm-
tímahugsun, spillingu og flokka-
dráttum sem einkennir íslensk
stjórnmál og íslenskt samfélag
allt of mikið og hefur gert það allt
of lengi. Umræða og ákvörðun
um búsvörusamningana var skýrt
dæmi um það. Þar stóð Björt fram-
tíð ein vörð um hagsmuni almenn-
ings í landinu. Skipting arðsins
af fiskveiðiauðlindinni er annað
dæmi um hvernig sérhagsmun-
ir eru teknir fram yfir almanna-
hagsmuni, í boði sérhagsmuna-
flokka á Alþingi. En því miður eru
þetta aðeins tvö af allt of mörgum
um vond stjórnmál sem snúast um
völd og valdabaráttu, alls kyns sér-
hagsmuni og forréttindi. Hags-
munir almennings eru aftarlega á
þeim forgangslista ef þeir eru þá
yfirleitt á honum.
Er ekki kominn tími til að breyta
þessu?
Björt framtíð telur það vera
löngu tímabært. Hún býður þér
krafta sína til að gera það.
Ingunn Anna Jónasdóttir og Árni
Múli Jónasson.
Höf. skipa 13. og 16. sæti á lista
Bjartrar framtíðar í NV-kjördæmi.
Vörur og þjónusta
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Drei bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
LAUSNIN HÖFÐASELI
Opnunartími er frá kl. 8:00-16:00
alla virka daga
Daglegar ferðir milli Reykjavíkur og Borgarness
Tvær ferðir í viku í sveitir Borgarfjarðar
Skrifstofan er opin mánudaga – föstudaga
kl. 9.00 – 12.00 og 13.00 – 15.30
Sími 437-2030 - v.v@simnet.is
DAGLEGAR FERÐIR BORGARNES - REYKJAVÍK
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is
www.skessuhorn.is
Þjónustuauglýsingar
Skessuhorns
Auglýsingasími:
433 5500
Á aðalfundi Landssamband smá-
bátaeigenda, sem fram fór í Reykja-
vík þann 13. október sl. voru lagð-
ar þrjár spurningar fyrir framboð-
in til Alþingis. Þær snérust um að
fjölga leyfilegum veiðidögum smá-
báta, koma á sanngjarnari gjöldum
í greininni og opna fyrir að trillur
geti veitt makrílinn, sem afhent-
ur var nánast í heilu lagi til örfárra
stórútgerða af síðustu „vinstri-
stjórn“.
Það var auðvelt fyrir Dögun að
svara öllum spurningunum enda
voru tillögur Landssambandsins
nánast samhljóða þeim tillögum
sem Dögun hefur sett á oddinn
fyrir komandi alþingiskosningar.
Svörin voru á allt annann veg
hjá fulltrúum Viðreisnar, Fram-
sóknarflokks og Sjálfstæðisflokks,
sem lögðust einfaldlega gegn því
að rýmkað væri til fyrir útgerð
smábáta. Ráðherra Framsóknar-
flokksins og þingmaður Sjálfstæð-
isflokksins settu á langar ræður um
kerfislæga ómöguleika að hleypa
lífi í hafnir sjávarbyggðanna. Þessi
skýra andstaða framangreindra
flokka ætti að auðvelda þeim valið
þann 29. október nk. sem vilja við-
halda núverandi strandveiðikerfi
eða hvað þá fyrir þá kjósendur sem
vilja efla það.
Það eru veigamikil líffræðileg
rök fyrir því að nýta staðbundin
fiskimið inn á flóum og fjörðum
allt í kringum landið, en það verð-
ur aðeins gert með því að dreifa
fiskveiðum. Sá misskilningur er
uppi meðal margra stjórnmála-
manna að hægt sé að veiða all-
an afla á Íslandsmiðum á örfáum
togurum. Það er mögulega hægt
í tilbúnum hag-
fræðilíkönum, en
raunveruleiknn er auðvitað allur
annar.
Dögun leggur áherslu á sann-
gjarnar breytingar á kerfinu sem
skila þjóðinni ávinningi, en ekki að
leggja sem þyngstar álögur á sjáv-
arútveginn. Í ljósi þess þá leggur
Dögun höfuðáherslu á að verð-
myndun á afla fari fram á mark-
aðsverði, en með því þá batna kjör
sjómanna. Bætt kjör sjómann leiða
síðan sjálfkrafa til þess að afrakst-
urinn af greininni flæði í gegn-
um æðar efnahagslífsins bæði til
hins opinbera og annarra í samfé-
laginu.
Sigurjón Þórðarson.
Höf. skipar 1. sæti á lista Dögunar
í Norðvesturkjördæmi.
Einn félagi minn tók brosandi á móti
mér í vinnunni um daginn og sagði
að nú sæist það að Sjálfstæðisflokk-
urinn væri besti flokkurinn. Það
væru 34% sem ætluðu að kjósa hann.
Þetta var reyndar byggt á hæpinni
könnun Fréttablaðsins um daginn.
Þessi skoðun, að flokkur hljóti að
vera bestur ef það eru margir sem
kjósa hann, er merkileg. Þessi félagi
minn er ekki einn um þá skoðun.
Gæði stjórnmálaflokka fara hinsveg-
ar miklu heldur eftir því hvort þeir
koma einhverju góðu til leiðar.
„Það vil ég að þeir ráði
sem hyggnari eru“
Það er nefnilega alls ekki alltaf rétt
sem meirihlutanum finnst. Ólaf-
ur Pá, pabbi Kjartans Ólafsson-
ar, lenti eitt sinn í hafvillum ásamt
skipshöfn sinni. Menn voru ósam-
mála hvert ætti að sigla. Stýrimað-
urinn vildi eitt, en öll áhöfnin vildi
annað. Þá sagði Ólafur: „Það vil eg
að þeir ráði sem hyggnari eru því
verr þykir mér sem oss muni duga
heimskra manna brögð er þau koma
fleiri saman.“ Þetta sannar ekki eitt
eða neitt, en þetta var vel sagt. Við
höfum fjöldann allan af dæmum um
að meirihlutinn hafi haft rangt fyrir
sér. Flokkur Hitlers var kosinn með
33% atkvæða á sínum tíma. Hann
var langstærsti flokkurinn. Fólk í
Norður Kóreu er, held ég, í raun og
veru hrifið af leiðtoga sínum, sem er
harðstjóri og kúgari. Nú eru tveir
frambjóðendur að keppa um æðsta
stjórnunarstarf í heiminum, ann-
ar virðist vera fullkominn fáviti, og
hinn lagði til á sínum tíma að fara
í Íraksstríðið, og hefur þegið háar
fjárhæðir frá bönkum í Wall street.
Þriðji frambjóðandinn (Sanders)
virðist alveg flekklaus, en komst ekki
að. Við sjáum Berlusconi á Ítalíu.
Við hristum hausinn yfir því hvern-
ig þetta fólk kemst til valda, og getur
haldið völdum.
Áróður og hræðsla
En ástæðan er máttur auglýsing-
anna og fjölmiðlanna. Og ekki síst
hræðsla. Hræðsla við að aðrir sjái
að maður er í „röngu liði“. Allt
þetta á við hér á landi. Hér eru auð-
menn sem reka eina stjónvarpsstöð,
Sjálfstæðisflokkurinn er með fast-
ar útsendingar á annarri. Búið er að
planta Sjálfstæðismönnum í stjórn-
unarstöður hjá RÚV, Morgunblað-
ið er rekið af út-
gerðarmönnum.
Hræðslan er mest í útgerðarpláss-
unum, þar sem útgerðarmaðurinn
ræður öllu um framtíð þorpsbúa. Þá
getur það verið hættulegt að láta vita
af því að maður starfi fyrir flokk sem
vill að þjóðin fái sanngjarnan skerf
af auðlindinni. Enda er fylgi hags-
munagæsluflokkanna, Framsóknar-
og Sjálfstæðisflokks mest á lands-
byggðinni.
Að vinna kosningar eða
vinna fyrir þjóðina
Ég vil biðja fólk um að fylgjast með
umræðunum, skoða um hvaða upp-
hæðir er að ræða, hvað skiptir í raun
og veru máli. Því það skiptir miklu
máli hver það er sem stjórnar land-
inu. Ég kýs flokk sem tapar oft í
kosningum, en núna er fólk farið að
sjá að aðal stefnumál Vinstri grænna:
Opnari fjármál, jafnrétti og náttúru-
vernd, eru mikilvæg. Stjórnmálin
snúast ekki um að vera stærstur held-
ur að vera bestur.
Kveðja, Reynir Eyvindsson
Höf. er á lista VG fyrir næstu al-
þingiskosningar.
Með heiðursfólki í
Bjartri framtíð
Pennagrein Pennagrein
Stór flokkur eða
góður flokkur
Pennagrein
Við viljum sanngirni
og efla sjávarútveginn
KOSNIN
GAR
2016