Skessuhorn - 09.11.2016, Síða 8
MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 20168
Komu
göngumanni til
aðstoðar
HVALFJ: Björgunarsveitir frá
Akranesi og höfuðborgarsvæð-
inu voru kallaðar út síðdeg-
is á laugardaginn til aðstoðar
göngumanni á Leggjabrjóts-
leið, en hún liggur frá Hval-
firði í Þingvallasveit. Mað-
urinn var orðinn blautur og
kaldur eftir að hafa tapað átt-
um þar sem hann var á göngu
í þoku. Björgunarsveitir héldu
til leitar bæði upp úr Hvalfirði
og Öxarárdal við Þingvelli.
Þokunni létti á sjötta tíman-
um síðdegis og kom maðurinn
þá auga á bíla björgunarsveita-
fólks. -mm
Úthlutað úr
Styrktarsjóði
Hvalfjarðar-
sveitar
HVALFJ.SVEIT: Sveitar-
stjórn Hvalfjarðarsveitar hef-
ur samþykkt að veita átta að-
ilum styrki úr Styrktarsjóði
Hvalfjarðarsveitar. Alls bár-
ust 14 umsóknir í sjóðinn. Alls
er úthlutað 590 þúsund krón-
um úr sjóðnum í þetta skipti.
Hæsti styrkurinn hljóðar upp
á 150 þúsund krónur og renn-
ur hann til Skógræktarfélags
Skilmannahrepps vegna um-
hirðu á skógræktarreit. Skóg-
armenn KFUM fá 100 þús-
und krónur vegna nýbygging-
ar Birkiskála, Fimleikafélag
Akraness 80 þúsund krónur
vegna búnaðarkaupa og For-
eldrafélag Leik- og grunn-
skóla Hvalfjarðarsveitar hlýt-
ur 75 þúsund króna styrk
vegna fræðslu og forvarna. Þá
renna 50 þúsund krónur til
Ástu Marý Stefánsdóttur o.fl.
vegna jólatónleika í Hvalfjarð-
arsveit og Borgarbyggð, 50
þúsund krónur til Skógrækt-
arfélags Akraness vegna skóg-
ræktar í Slögu og Landbúnað-
arháskóli Íslands fær einnig 50
þúsund krónur vegna lands-
lagsgreiningar í Hvalfjarð-
arsveit. Sveitarstjórn ákvað
einnig að styrkja Stígamót um
35 þúsund krónur vegna starf-
semi þeirra.
-grþ
Atvinnuleysi
1,9% á lands-
byggðinni
LANDIÐ: Á þriðja ársfjórð-
ungi þessa árs voru 5.200 ein-
staklingar án vinnu og/eða
í atvinnuleit hér á landi. At-
vinnuleysi mælist 2,6%. At-
vinnulausum fækkaði frá því á
sama tíma og í fyrra um 1.500
manns og hlutfallið lækk-
aði um 0,9 prósentustig. At-
vinnulausar konur voru 2.700
og var atvinnuleysi á með-
al kvenna 2,9%. Atvinnulaus-
ir karlar voru 2.500 eða 2,3%.
Atvinnuleysi var 3% á höfuð-
borgarsvæðinu og 1,9% utan
þess. Það er Hagstofan sem
heldur utan um þessa skrán-
ingu. -mm
Því er spáð að
jólaverslun
aukist
LANDIÐ: Áætlað er að
jólaverslunin að þessu sinni
aukist um 10,3% frá síðasta
ári og að velta í smásölu-
verslun verði um 85 millj-
arðar kr. án virðisauka-
skatts í nóvember og des-
ember. Þetta er mesti vöxt-
ur í jólaverslun á milli ára
frá bankahruninu. Rann-
sóknasetur verslunarinnar
birtir þessa spá. Af henni
má draga þá ályktun að
hver Íslendingur verji að
jafnaði 53.813 kr. til inn-
kaupa í nóvember og des-
ember, sem rekja má til árs-
tímans sérstaklega. Í fyrra
nam þessi upphæð 49.156
kr.
-mm
Gylfi ráðinn
aðstoðarmaður
Benedikts
Benedikt Jóhannesson, for-
maður Viðreisnar og ný-
kjörinn þingmaður í NA
kjördæmi, hefur ráðið
Gylfa Ólafsson sem að-
stoðarmann sinn. Sam-
kvæmt reglum Alþingis
geta formenn flokka ráð-
ið sér aðstoðarmann. Gylfi
var oddviti Viðreisnar í
Norðvesturkjördæmi en
náði ekki kjöri, þrátt fyrir
að hafa hlotið ríflega þús-
und atkvæði. Hann er með
meistarapróf í hagfræði
frá Stokkhólmsháskóla og
hefur sinnt ráðgjafarstörf-
um á Íslandi og Svíþjóð og
kennslu í heilsuhagfræði
við Háskóla Íslands síðustu
ár meðfram doktorsnámi
í faginu. Áður hafði Gylfi
lokið grunnskólakennara-
prófi frá Háskólanum á
Akureyri. Hann var annar
stofnenda Vía, nýsköpun-
arfyrirtækis í skordýraeldi,
sem lagt var niður nýver-
ið á grundvelli neikvæðra
niðurstaðna úr rannsókn-
um fyrirtækisins. Gylfi er
kvæntur Tinnu Ólafsdóttur
fjölmiðlafræðingi og saman
eiga þau eina eins árs gamla
dóttur.
-mm
Ármann Smári Björnsson, fyrirliði
knattspyrnuliðs ÍA, missti af síð-
ustu þremur leikjum sumarsins eft-
ir að hann varð fyrir því óláni að
slíta hásin í leik gegn KR í 19. um-
ferð Pepsi deildar karla. Ármann,
sem er 35 ára gamall, hefur verið
einn af lykilmönnum ÍA undanfar-
in ár eða allt síðan hann sneri heim
úr atvinnumennsku árið 2012.
Ljósmyndari Skessuhorns gekk
fram á Ármann Smára á Heilbrigð-
isstofnun Vesturlands á Akranesi í
gær og bar fyrirliðinn sig vel. „Há-
sinin er öll að koma til,“ sagði kapp-
inn. „Ég er aðeins farinn að tylla í
fótinn og á einhverjar tvær vikur
eftir í spelkunni. Eftir það hefst
vinnan fyrir alvöru að koma sér í
gang. En annars er heilsan bara
góð,“ segir hann.
Ármann íhugaði að leggja skóna
á hilluna í fyrra en samdi við ÍA til
eins leiktímabils og lék með liðinu í
sumar, sem fyrr segir. Eftir sumarið
og meiðslin sem hann varð fyrir í
lok móts gaf hann það út að hann
hygðist bíða og sjá hvernig honum
gengi að jafna sig áður en hann tæki
ákvörðun um framtíð sína á knatt-
spyrnuvellinum. Hann segir að sú
staða sé óbreytt, nú sé einfaldlega
framundan krefjandi verkefni við að
komast af stað aftur. „Við verðum
bara að sjá hvað tíminn leiðir í ljós.
Ég ætla að byrja á að fara í gegnum
sjúkraþjálfunina en með því hugar-
fari að reyna að komast inn á fót-
boltavöllinn aftur. En ef það geng-
ur ekki þá bara gengur það ekki,“
segir Ármann Smári Björnsson.
kgk
Hásinin er öll að koma til hjá fyrirliðanum
Í fyrrinótt kom upp eldur í fiskvinnslu
hlutdeildarfélags HB Granda í Pu-
erto Chacabuco í Síle. Bolfisksvinnsla
félagsins eyðilagðist að mestu og að-
staða til vinnslu á eldislaxi gjör-
eyðilagðist í eldsvoðanum en eng-
in slys urðu á fólki. Tryggingaverð-
mæti eignanna er 12 milljónir doll-
ara. Eldsupptök eru ókunn. Í frétt HB
Granda segir að leitað verði til fyrir-
tækisins Marine Harvest um að taka
að sér vinnslu á laxi fyrst um sinn en
Marine Harvest rekur slíka vinnslu á
svæðinu. Pesquera Friosur lokaði bol-
fisksvinnslu sem félagið rak í Concep-
tion í lok síðasta árs en mun nú setja
starfsemi hennar í gang aftur í stað
vinnslunnar sem brann í Chacabuco.
Félagið Deris SA sem HB Grandi á
20% hlut í rekur útgerðar- og fisk-
vinnslufélagið Pesquera Friosur, út-
gerðarfélagið Pesca Chile og laxeldis-
félagið Salmones Friosur.
mm
Framkvæmdir við stækkun gisti-
hússins að Langaholti í Staðar-
sveit á Snæfellsnesi ganga vel. Þeg-
ar þeim lýkur tvöfaldast herbergja-
talan, fer úr 20 í 40. Nýju herberg-
in eru öll tveggja manna með baði.
Einnig verður tekin í notkun ný
móttaka og mun gamli inngang-
urinn leggjast af þegar nýi hlutinn
verður kominn í gagnið.
Þorkell Símonarson, Keli vert, er
eigandi gistihússins. Hann kveðst
í samtali við Skessuhorn von-
ast til að sex herbergi verði tilbú-
in í næstu viku. Stefnt sé að því að
framkvæmdunum ljúki svo í janúar
á næsta ári ef allt gengur að óskum.
Aðspurður um ástæðu þess að farið
var í þessar framkvæmdir segir Keli
að eftirspurn eftir gistingu á svæð-
inu hafi aukist til muna og starfið sé
orðið þannig að það þurfi að vera
til taks alltaf. Það kallar svo á að
hafa nægt starfsfólk sem auðvitað
þurfi aðstöðu fyrir og því sé erfitt
að vera með litla einingu. Keli seg-
ir að það sem hafi einkennt ferða-
þjónustu í sveitum landsins fyrir 20
til 25 árum sé nú liðin tíð. Nú dugi
ekki að reka ferðaþjónustu sam-
hliða búskap og einingin verði að
vera ákveðið stór til að stærðarhag-
kvæmni náist fram. Telur hann að í
raun megi þessi stækkun ekki vera
seinna á ferðinni.
þa
Fiskvinnsla hlutdeildarfyrirtækis
HB Granda í Síle varð eldi að bráð
Styttist í að stærra hótelrými verði
tekið í notkun í Langaholti
Þessi mynd sýnir hvernig tvær nýbyggingar tengjast þeim mannvirkjum sem fyrir voru, í sitthvorn endann.