Skessuhorn - 09.11.2016, Side 18
MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 201618
Asco Harvester ehf. er ungt fjöl-
skyldufyrirtæki á sviði nýsköp-
unar og starfrækt í húsnæði fyrr-
um mjólkursamlags við Engjaás í
Borgarnesi. Fyrirtækið var stofnað
í byrjun þessa árs af þremur systk-
inum og fjölskyldum þeirra. Þetta
eru þau Ómar Arndal, Ingvar Arn-
dal og Anna Ólöf Kristjánsbörn.
Hjá Asco Harvester er unnið að
þróun þangskurðarvélar. Vélin hef-
ur fengið nafnið Sigri og er í skipa-
skrá með númerið 9057. Anna Ólöf
er framkvæmdastjóri Asco Harves-
ter, en hún er menntaður viðskipta-
fræðingur frá Háskólanum á Bifröst
og er að ljúka mastersnámi sínu þar.
Bræður hennar leggja hins vegar til
reynslu úr ýmsum störfum, en ung-
ir að árum stofnuðu þeir verktaka-
fyrirtæki í vélaútgerð. Ómar er hug-
myndasmiðurinn að Sigra.
Fengið góðan stuðning
„Okkur systkinunum og hug-
myndum okkar hefur verið vel tek-
ið. Meðal annars höfum við feng-
ið styrki frá Tækniþróunarsjóði,
Uppbyggingarsjóði Vesturlands
og fengum í sumar hæsta styrkinn
sem úthlutuð var frá Frumkvöðla-
sjóði Íslandsbanka. Með þessum
góða stuðningi og hvatningu með-
al annars frá þingmönnum, ýms-
um birgjum, Atvinnuráðgjöf Vest-
urlands og með mikilli vinnu erum
við nú komin nálægt því að ljúka
smíði á frumgerð sjávarsláttuvélar-
innar Asco Viking. Nú eigum við
von á vél í þangskurðarprammann
og setjum stefnuna á að geta sjósett
hann fyrir næstu áramót. Við erum
sannfærð um að Asco getur skapað
tækifæri bæði hér heima og erlendis
á þangsvæðum sem aldrei hafa ver-
ið slegin. Ástæðan er einfaldlega sú
að ekki hafa fengist vélar sem henta
til þangskurðar á þessum svæðum,“
segir Anna Ólöf.
„Hugmyndin að fyrirtækinu
kviknaði hjá Ómari,“ bætir hún við.
„Hann hefur reynslu m.a. í skipa-
smíði, af vinnuvélum, sjómennsku
og þangslætti. Hann vantaði aftur á
móti einhvern með sér til að sækja
um styrki til að hægt væri að hrinda
hugmyndinni í framkvæmd. Ég kom
þá inn í þetta með bræðrum mínum
og sé um rekstur fyrirtækisins. Kom
að verkefninu fyrir rúmlega ári síð-
an,“ segir Anna Ólöf.
Vannýtt auðlind
Þang vex víða við strendur Ís-
lands, en er einkum slegið og nýtt
í Breiðafirðinum eins og lesendur
Skessuhorns þekkja og þangslátt-
ur hefur fram til þessa einkum ver-
ið á vegum Þörungaverksmiðjunn-
ar á Reykhólum sem starfrækt hef-
ur verið frá 1975. Þar fékk Ómar
Arndal einmitt áhugan fyrir verk-
efninu. „Það geta orðið til ný tæki-
færi víða um land með því að nýta
þang ef tækninni fleytir fram,“ seg-
ir Anna Ólöf. „Í dag eru það verk-
smiðjur sem sjá um þangsláttinn, en
víða erlendis eru það einnig bænd-
ur og landeigendur sem gera slíkt í
verktöku eða smærri vinnslu. Þang-
skurðartæki okkar gæti skapað mikil
tækifæri fyrir landeigendur á sjávar-
jörðum við Ísland. Þang er vannýtt
afurð en Ísland hefur þá sérstöðu að
sjávarföll eru mikil, fjörurnar langar
og mikill hreinleiki er þar sem lít-
ill úrgangur rennur til sjávar. Sigri
hefur þann eiginleika að geta slegið
lengra upp í fjöru og náð til þara- og
þangtegunda sem hafa verið algjör-
lega vannýttar en eru engu að síð-
ur mjög verðmætar. Það þang sem
ekki er slegið tapast vegna hafíss,
brims og strauma, sem ná að taka
með sér gróðurinn og rífa hann upp
með rótum. Okkar hugmynd nú
snýst um að sjósetja Sigra og prufu-
keyra hann. Síðan munum við geta
breytt ýmsum búnaði sem hentar
kaupendum svona tækja. Sumir vilja
kannski stærri lest, aðrir vilja öðru-
vísi sláttutækni og svo framvegis. En
grunnurinn verður sá sami og nýtist
að stórum hluta þrátt fyrir séróskir
kaupenda.“
Anna Ólöf segir að þær vélar sem
framleiddar eru í dag til þangskurð-
ar séu einkum hannaðar fyrir vatna-
svæði. Sigri frá Asco hafi hins veg-
ar þann eiginleika að geta slegið við
erfiðar aðstæður eins og myndast
hér við land en auk þess við strendur
í Færeyjum, Grænlandi, Noregi og
víðar. Hún segir að bæði aðilar er-
lendis og hér á landi hafi sýnt verk-
efninu mikinn áhuga og gefur það
góða von um að hægt sé að fram-
leiða og selja fleiri tæki.
Þang í fóður getur unnið
gegn gaslosun
Í síðasta Bændablaði birtist áhuga-
verð frétt þar sem fjallað er um
hvernig nýta megi þang til að
minnka mengun frá landbúnaði. Þar
segir meðal annars: „Nýjustu rann-
sóknir frá Ástralíu benda til að hægt
sé að minnka gaslosun hjá jórtur-
dýrum um 50-99% með því einu
að blanda þangi í fóður skepnanna
í litlu hlutfalli.“ Þá segir að 47% af
losun gróðurhúsalofttegunda er af
völdum orkuframleiðslu, en 21% af
völdum landbúnaðar og landnýting-
ar. Þang getur því haft mikil áhrif á
losun gróðurhúsaloftegunda í heim-
inum og við því er búist að sjónum
verði beint að aukinni nýtingu þess.
„Þetta eru mjög áhugaverðar niður-
stöður og verður gaman að sjá hvort
virknin í bóluþangi eða jafnvel kló-
þangi sé svipuð. Það er alltaf verið
að bæta við stóriðjur og það er stór-
mál ef hægt væri að minnka meng-
un með ekki stærri framkvæmd en
þessari,“ segir Anna Ólöf.
Hreinsun sjávar
Sigri frá Asco er ekki bara hugsaður
sem þangskurðarprammi heldur get-
ur hann einnig nýst sem hreinsunar-
prammi við strandlengjur, ár og vötn.
Því felast enn fleiri tækifæri í þessari
nýsmíði Borgnesinga, en einvörðu
við þangslátt. Við strendur getur bæði
orðið mengun út frá starfsemi verk-
smiðja og frá landbúnaði en einn-
ig er ýmislegt rusl orðið viðvarandi
vandamál víða um heim. Þetta vanda-
mál veldur því að súrnun sjávar hef-
ur verið að aukast og súrefni minnk-
ar við strendur. Ein af meðfylgjandi
myndum er tekin við Jersey í Bret-
landi. Þar var hvít baðströnd en í dag
er hún þakin sjávargróðri sem kemur
vegna mengunar. Þennan sjávargróð-
ur má nýta sem áburð eða dýrafóður
ef hægt er að hreinsa strandlengjuna.
Við þessar aðstæður lifa hvorki fugl-
ar né fiskar og benda nýjar rannsókn-
ir til þess að aðstæðurnar séu krabba-
meinsvaldandi fyrir íbúa nágrennis-
ins. Sigri gæti einmitt nýst við hreins-
un strandlengju eins og við Jersey.
mm
Nýsköpunarfyrirtæki vinnur að
frumsmíði þangskurðarvélar
Þangskurðarvélin Sigri verður til hjá Asco Harvester í Borgarnesi
Nýmálaður skrokkurinn á Sigra, nýju þangskurðartæki Asco Harvester í Borgarnesi. Þessi mynd var tekin í liðinni viku og var
sprautuvinnunni ekki lokið þá.
Asco Harvester vinnur að hönnun vélar sem er betur í stakk búin að slá þang við
íslenskar aðstæður.
Í aðdraganda kosninga var gestkvæmt í Asco Harvester þegar stjórnmálamenn
litu við. Hér er Sigurður Ingi Jóhannsson forsætisráðherra ásamt þeim systkinum.
F.v. Anna Ólöf, Sigurður Ingi, Ómar og Ingvar. Finnur Árnason framkvæmdastjóri Þörungarverksmiðjunnar á Reykhólum er hér
að kynna sér smíðina á Sigra.
Við Jersey í Bretlandi. Þarna var
hvít baðströnd en í dag er hún
þakin sjávargróðri sem myndast út frá
mengun. Myndin er fengin af Mandy
Nielson Snook.