Skessuhorn - 22.02.2017, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 2017 13
Móttökustjóri
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
7
Helstu verkefni
Umsjón með bókunarkerfi og samskipti við viðskiptavini•
Innritun, bókanir, reikningagerð og uppgjör•
Skipulag, áætlanagerð, afstemmingar og upplýsingagjöf•
Önnur tilfallandi verkefni•
Hæfniskröfur
Haldgóð menntun og tölvukunnátta•
Fagmannleg framkoma og rík þjónustulund•
Góð íslensku- og enskukunnátta, þriðja tungumál kostur•
Mikilvægt að viðkomandi sé töluglöggur og nákvæmur í vinnubrögðum•
Áhugasamir sendi umsókn ásamt ferilskrá á hotelbo@simnet.is fyrir 10. mars n.k.
Um framtíðarstarf er að ræða og samkeppnishæf kjör í boði fyrir réttan aðila. Farið verður með
allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Hagkaup í Borgarnesi leitar að starfsmanni. Starfið felst í sölu og
þjónustu við viðskiptavini, aðstoð við vöruframstillingar og áfyllingar.
Hægt er að sækja um á www.hagkaup.is.
Einnig er hægt að fá umsóknareyðublöð á staðnum.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Linda Lovísa Sigurbjörnsdóttir
Verslunarstjóri í síma 431-3490/693-5065 eða tölvupósti linda@hagkaup.is.
Við leitum að einstaklingum sem eru þjónustuliprir, duglegir, samviskusamir,
skemmtilegir og geta tekið ábyrgð. Við hvetjum einstaklinga með reynslu af
þjónustu- og/eða verslunarstörfum til að sækja um.
Umsækendur yngri en 18 ára koma ekki til greina.
ATVINNA Í BOÐI
Í BORGARNESI
Jákvæðni, metnaður og víðsýniwww.akranes.is
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
7
1249. fundur bæjarstjórnar Akraness verður haldinn í
bæjarþingsalnum að Stillholti 16-18, þriðjudaginn 28. febrúar
kl. 17:00. Fundirnir eru öllum opnir og eru bæjarbúar hvattir
til að mæta og kynna sér bæjarmálin. Vakin er athygli á því að
hægt er að hlusta á beina útsendingu frá fundinum á FM 95,0.
Bæjarmálafundir flokkanna verða sem hér segir:
Sjálfstæðisflokkurinn í Stúkuhúsinu, laugardaginn •
25. febrúar kl. 10.30.
Björt framtíð að Smáraflöt 1, mánudaginn •
27. febrúar kl. 20.00.
Samfylkingin í Stjórnsýsluhúsinu, 1. hæð, Stillholti 16-18, •
laugardaginn 25. febrúar kl. 11.00.
Frjálsir með Framsókn í Haraldarhúsi, Vesturgötu 32, •
kjallara, gengið inn frá palli, mánudaginn 27. febrúar kl. 20.00.
Bæjarstjórnarfundur
Síðdegis á miðvikudaginn í liðinni
viku barst stjórnstöð Landhelgis-
gæslunnar beiðni um aðstoð frá
skipverjum um borð í línubátnum
Hjördísi HU-16. Báturinn var þá
staddur á Breiðafirði, um fjórtán sjó-
mílur norðvestur af Gufuskálum, og
var farinn að taka inn á sig sjó. Tveir
menn voru um borð. Reynt var að
hafa samband við báta í grennd-
inni á rás 16, neyðarrás sjómanna,
en aðeins einn bátur svaraði kalli.
Skömmu eftir tilkynnti skipstjórinn
að hann væri búinn að rétta sig af,
sjór gengi ekki lengur inn í bátinn
og hann væri á landleið. Landhelg-
isgæslan segir að svo virðist sem bát-
urinn hafi verið ofhlaðinn og þegar
skorið hafi verið á línuna hafi hann
náð að rétta sig af að nýju. Ákvörð-
un var engu að síður tekin um að
senda á vettvang björgunarskipið
Björgu frá Rifi. Þegar Björgin nálg-
aðist bátinn um sexleytið um kvöld-
ið kom í ljós að sjór var þá farinn að
ganga yfir lunninguna og útlitið ekki
gott. Skipverjarnir á Hjördísi fóru
því um borð í Björgu en björgunar-
sveitarmenn skömmu síðar um borð
í Hjördísi og hentu út veiðarfær-
um og afla til að létta bátinn. Björg-
in tók Hjördísi í tog og lauk björg-
unaraðgerðum um áttaleytið um
kvöldið þegar bátarnir komu til Rifs.
Hófst þá löndun úr Hjördísi HU og
var aflinn 8,5 tonn. Veður var gott á
Breiðafirði á miðvikudaginn.
Ástæðuna fyrir þessu óhappi út-
skýrir Árni skipstjóri á Hjördísi HU
í yfirlýsingu sem birt var á vefnum
aflafrettir.is. Í henni segir m.a.: „Eng-
inn sjór komst í vélarrúm, lúgar eða
lest og því engar skemmdir á bátnum
og hellings loftrými eftir. Við lönd-
un kom svo í ljós að mannleg mis-
tök höfðu átt sér stað og var fremsta
karið stjórnborðsmeginn tómt sem
hafði neikvæð áhrif á þyngdarpunkt-
inn á bátnum.“ Þá segir Árni: „Sem-
sagt þrennt sem þarna var í gangi;
báturinn er orðinn þungur og hallast
í bak, tómt kar í stjór og fiskur fyrir
lensportum. Upp úr bátnum vigtaði
8,5 tonn og er báturinn 10,5 brútto-
tonn.“
Landhelgisgæslan segir að þótt
þarna hafi farið betur en á horfðist
þá veki það athygli að bátar á svæð-
inu hafi ekki verið á hlusta á neyð-
arrás sjómanna. „Þessi rás er eitt af
mikilvægustu öryggistækjum sjófar-
enda en ef virk hlustun á hana er ekki
fyrir hendi veitir hún falskt öryggi.
Afleiðingarnar af því geta reynst
mjög alvarlegar.“
mm
Þannig var aðkoman þegar Björgin kom að Hjördísi HU um sexleytið um daginn.
Ljósm. þa.
Landað úr Hjördísi um kvöldið. Aflinn sem á land kom reyndist 8,5 tonn. Ljósm. af.
Lentu í erfiðleikum
með mishlaðinn bát
Björgin kom með Hjördísi HU til Rifs um átta leytið um kvöldið. Ljósm. af.