Skessuhorn - 22.02.2017, Page 19
MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 2017 19
Fjölbrautaskóli Vesturlands
Opið hús miðvikudaginn 24. febrúar 2016 kl. 17 ̶ 19
Fjölbrautaskóli Vesturlands
Vogabraut 5, 300 Akranesi
Sími 433-2500 skrifstofa@fva.is www.fva.is
Stúdentsbrautir – 3 ára brautir
Náttúrufræðabraut
Félagsfræðabraut
Opin stúdentsbraut
Listnámssvið
Tungumálasvið
Viðskipta- og hagfræðisvið
Afreksíþróttasvið
Iðnnám
Húsasmíði
Húsgagnasmíði
Vélvirkjun
Grunndeild bíliðngreina
Rafvirkjun
Brautabrú
Viðbótarnám eftir iðn- og starfsnám
Starfsbraut
Kynning á námsframboði,
inntökuskilyrðum, heimavist,
mötuneyti, félagslífi,
afreksíþróttum o.fl.
Allir velkomnir
sérstaklega 10. bekkingar og
foreldrar/forráðamenn þeirra
pið hús mánudaginn 27. febrúar 2 7 ̶
Kynning á námsframboði,
inntökuskilyrðum, heimavist,
mötuneyti, félagslífi,
afreksíþróttum o.fl.
Allir velkomnir,
sérstaklega 10. bekkingar og
foreldrar/forráðamenn þeirra
Stúdentsbrautir – 3 ára brautir
Ná túrufr
Félagsfræðabraut
Opin stúdentsbraut
Listnámssvið
Tungumálasvið
i skipta- og hagfræðisvið
Afreksíþróttasvið
Iðn- og starfsnám
Húsasmíði
Húsgagnasmíði
Vélvirkjun
Grunndeild bíliðngreina
Rafvirkjun
Sjúkraliðabraut
Brautabrú
Starfsbraut
Viðbótarnám eftir iðn- og starfsnám
Balaton & Búdapest
sp
ör
e
hf
.
Sumar 6
Balaton vatn í Ungverjalandi er margrómað fyrir fallegar
strendur, líflega bæi og ólýsanlega fegurð og ekki að
undra að vatnið og umhverfi þess sé einn vinsælasti
ferðamannastaður landsins. Góður tími gefst til að slaka
á og eiga notalegar stundir á þessum fagra stað, kynnast
menningu og mannlífi Ungverja ásamt því að taka þátt í
ungversku sveitabrúðkaupi.
15. - 25. júní
Fararstjóri: Pavel Manásek
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 RVK
Verð: 214.900 kr. á mann í tvíbýli.
Mjög mikið innifalið!
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is
Almennt fór velta í smásöluverslun
í janúar vaxandi líkt og undanfarna
mánuði að undanskilinni fata- og
skóverslun. Í nýrri skýrslu Rann-
sóknamiðstöðvar verslunarinnar
kemur fram að sala á skóm og föt-
um dróst nokkuð saman frá janú-
ar í fyrra. Verðlag var lægra í öllum
vöruflokkum sem mælingin nær til
nema áfengi sem hækkaði um 0,5%
frá janúar í fyrra. Velta í stærsta
vöruflokknum, dagvöruverslun,
jókst í janúar um 4,3% í krónum
talið frá sama mánuði í fyrra og
um 7,5% þegar leiðrétt hefur ver-
ið fyrir verðlagi ásamt daga- og árs-
tíðabundnum þáttum. Verð á dag-
vöru var 1,3% lægra en tólf mán-
uðum áður. Þá jókst sala áfengis um
5% í mánuðinum miðað við janú-
ar í fyrra.
„Svo virðist sem frekar dauft hafi
verið yfir fataútsölum í janúar af
veltutölum að dæma. Veltan dróst
saman um 12,1% á breytilegu verð-
lagi. Hafa verður í huga að fata-
verslunum fækkaði um áramótin
og neytendur virðast ekki hafa fært
innkaupin til þeirra verslana sem
fyrir eru, allavega ekki enn sem
komið er. Verð á fötum var 2,9%
lægra en í sama mánuði í fyrra sam-
kvæmt verðmælingu Hagstofunn-
ar,“ segir um rannsóknina.
Mun meiri verðlækkun var á
útsölum með raftæki í janúar og
meiri vöxtur í sölutölum. Þann-
ig var verð á svokölluðum brún-
um raftækjum 14,5% lægra en fyr-
ir ári síðan. Í þeim flokki eru t.d.
sjónvörp, hljómflutningstæki o.fl.
Stærri heimilistæki, eða svokölluð
hvít raftæki, lækkuðu í verði um
9% á milli ára. Velta í hvítum raf-
tækjum jókst um 23,8% að krónu-
tölu og velta í brúnum raftækjum
var óbreytt á milli ára. Velta bygg-
ingavöruverslana jókst um 20,2%
frá janúar í fyrra. Þar ræður miklu
að byggingaframkvæmdir og við-
hald húsnæðis er mikið um þessar
mundir auk þess sem veðurfar hef-
ur verið einkar hagstætt til bygg-
ingaframkvæmda.
Í janúar var greiðslukortavelta
heimilanna hér innanlands 9%
meiri en í sama mánuði í fyrra.
Kreditkortavelta Íslendinga er-
lendis í janúar var 7,1 milljarður
kr. sem er 17,6% hærri upphæð en
fyrir ári síðan. Erlendir ferðamenn
sem hingað koma hafa vaxandi
áhrif á íslenska verslun. Þannig var
greiðslukortavelta útlendinga hér
á landi 17,4 milljarðar kr. í janúar
sem er 49% aukning frá síðasta ári.
mm
Vöxtur í öllum flokkum
nema fötum og skóm
Grunnskóli Borgarfjarðar, Klepp-
járnsreykjadeild, er þátttakandi í
verkefninu Leiðtoginn í mér sem
er hugmyndafræði fyrir skóla sem
byggir á bók Steven R. Covey: 7
venjur til árangurs. Hún gengur
út á það að byggja upp sterka ein-
staklinga til að takast á við áskor-
anir í lífi og starfi. Tilgangurinn
er ekki að búa til leiðtoga úr öll-
um, heldur að hjálpa hverjum ein-
staklingi að blómstra og vinna út
frá sínum eigin styrkleikum. Læra
að bera ábyrgð á eigin ákvörðunum
og þannig móta líf sitt til hins betra
ásamt því að þroska samskiptahæfni
nemenda og starfsfólks.
Einn liður í þessu verkefni er að
halda svokallaðan Leiðtogadag en
það er gert á hverju skólaári. Þá
skipuleggja nemendur og starfs-
fólk skólans dagskrá og bjóða svo
gestum að koma og njóta. Að þessu
sinni var íbúum frá Hvanneyri boð-
ið að koma og njóta dagskrárinnar
á Kleppjárnsreykjum auk þess sem
sveitarstjóra var boðið og skóla-
stjórnendum nokkurra leik- og
grunnskóla.
Dagskráin hófst í matsal skólans
þar sem fulltrúar úr nemendaráði
buðu gesti velkomna og fóru yfir
það hvernig venjurnar sjö nýtast
í skólastarfinu. Þá lásu þeir Pétur
Lárusson og Ágúst Páll Þorsteins-
son úr bókum sem þeir eru að lesa
og sigurvegarar í Söngvarakeppni
GBF fluttu eitt lag. Það eru þær
Þórunn Tinna Jóhannsdóttir, Unn-
ur Björg Ómarsdóttir og Embla
Ýr Andraóttir. Að lokum gerði Jón
Björn Blöndal grein fyrir áhuga-
sviðsvali sem nemendur í 5.-10.
Leiðtogadagur í
Grunnskóla Borgarfjarðar
bekk vinna að í tvær kennslu-
stundir á viku. Sýnd voru verkefni
frá nemendum úr þessum tímum
og m.a. myndbandið Allt er hægt
ef viljinn er fyrir hendi.
mm/iak