Skessuhorn - 22.02.2017, Side 21
MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 2017 21
WEST ICELAND
Travel
Ferðast um Vesturland 2017-2018
Fr
ee
Co
pyPublished by Skessuhorn - www.skessuhorn.is
Kynning á ferðablaðinu
Travel West Iceland 2017-2018
Útgáfuþjónusta Skessuhorns mun vorið 2017 gefa út
árlegt Ferðablað um Vesturland. Blaðið verður á ensku og
íslensku og ber nafnið Travel West Iceland 2017-2018.
Ljósmyndir og kort af einstökum svæðum og þéttbýlis-
stöðum á Vesturlandi prýða blaðið og auglýsendur
verða númeraðir inn á kortin. Lögð verður áhersla á að
auglýsendur noti alþjóðleg ferðaþjónustumerki í auglýs-
ingum.
Dreifing og form
Blaðið verður gefið út í 50.000 eintökum. Helstu dreif-
ingarstaðir nú verða á höfuðborgarsvæðinu, upplýsinga-
miðstöðvum um land allt, aðkomuleiðum ferðamanna í
landshlutann og síðast en ekki síst helstu áningar- og ferða-
mannastaðir á Vesturlandi sjálfu. Dreifing blaðsins verður
efld enn frekar frá síðustu árum með áherslu á allt árið
enda er ferðaþjónusta orðin heilsárs atvinnugrein. Lager af
blaðinu verður ætíð til dreifingar hjá Markaðsstofu Vestur-
lands í Borgarnesi. Loks verður blaðið í aðgengilegu formi á
www.skessuhorn.is þaðan sem ferðaþjónustuaðilar geta
hvenær sem er sótt það og sent viðskiptavinum sínum.
Blaðið verður litprentað í A5 broti og 120-160 blaðsíður.
Efnistök
Vesturland er „Land tækifæranna“ árið 2017-2018. Einstök
fyrirtæki og landshlutinn í heild hafa hlotið viðurkenningar
að undanförnu og nefna má að Vesturland var af ferða-
bókaútgefandanum Lonely Planet útnefnt annað áhuga-
verðasta svæði í heimi 2016 og í upphafi þessa árs eitt af
sautján áhugaverðustu svæðum í heimi af CNN-Travel.
Í blaðinu má m.a. lesa almennan kafla um Vesturland,
áhugaverðar héraðslýsingar fyrir Akranes, Hvalfjörð og
Kjós, Borgarfjörð, Snæfellsnes, Dali og Reykhóla á ensku
og íslensku auk ábendinga um markverða viðkomustaði,
náttúruundur og Vesturland að vetri. Loks verður við-
burðaskrá og sérstök þjónustuskrá fyrirtækja í ferðatengdri
starfsemi sem kynna sig og auglýsa í blaðinu.
Auglýsingasala og þjónustuskráning
Panta þarf auglýsingapláss og þjónustuskráningar tíman-
lega eða í síðasta lagi fyrir 10. mars 2017. Auglýsinga-
verð eru óbreytt frá árinu 2016. Um sölu auglýsinga og
skráningu þjónustuskrár sér Emilía Ottesen á netfanginu
auglysingar@skessuhorn.is og í síma 433-5500.
Auglýsendum standa til boða fjölbreyttir kostir:
Heilsíðuauglýsing: Stærð: 128x190 mm.
Verð kr. 231.000 en með vsk. kr. 286.440.
Hálfsíðuauglýsing: Stærð: 128x93 mm eða 61.8x190 mm.
Verð kr. 123.200 en með vsk. kr. 152.768.
1/4 síða: Stærð: 61.8x93 mm.
Verð kr. 66.000, en með vsk. kr. 81.840.
1/8 síða: Stærð: 61.8x45 mm.
Verð kr. 35.200, en með vsk. kr. 43.648.
Skráning í þjónustuskrá blaðsins kostar 18.000 kr. en
með vsk. kr. 22.320. Athugið að líkt og undanfarin ár verða
einungis skráðar upplýsingar í þjónustuskrá blaðsins um
þau fyrirtæki sem þess óska og greiða fyrir. Í skráningunni
kemur fram nafn fyrirtækis, heimili, sími, netfang og vef-
fang auk helstu þjónustuþátta. Þeir sem kaupa 1/4 auglýs-
ingu í blaðinu eða stærri, fá fría skráningu í þjónustuskrá
sem kaupauka. Hægt er að kaupa umfjallanir að hluta eða
öllu leyti í stað auglýsinga. Panta þarf slíkt tímanlega.
Við hlökkum til góðs samstarfs sem fyrr við ferðaþjónustu-
fyrirtæki og aðra samstarfsaðila á Vesturlandi.
Starfsfólk Skessuhorns
1/1
1/2 1/4
1/8
Saumastofan eftir Kjartan Ragnars-
son verður frumsýnd í félagsheim-
ilinu Lyngbrekku föstudaginn 24.
febrúar næstkomandi. Eru það félagar
í Leikdeild Umf. Skallagríms sem
færa verkið á fjalirnar og leikstjórn
er í höndum Gunnars Björns Guð-
mundssonar. Þessa dagana vinna fé-
lagar leikdeildarinnar hörðum hönd-
um við lokaundirbúning fyrir frum-
sýninguna. Ása Dóra Garðarsdóttir,
gjaldkeri leikdeildarinnar og einn af
leikurum í sýningunni, segir undir-
búninginn ganga vel, en æfingar hafa
staðið yfir nánast frá áramótum.
„Við erum búin að æfa í sjö vikur.
Æfingar hófust í janúar og hafa geng-
ið mjög vel. Við erum með svolítið
af nýjum leikurum því nokkur end-
urnýjun hefur orðið í hópnum sem
er bara ánægjulegt. Nýju leikararnir
hafa komið sterkir inn og standa sig
mjög vel,“ segir Ása Dóra. Níu leik-
arar stíga á svið í verkinu en þegar allt
er talið koma tólf manns að hverri
sýningu.
Ása Dóra hvetur leikhússunnendur
til að láta verkið ekki framhjá sér fara.
„Saumastofan er bland af gamni og
alvöru og áhorfendur mega búast við
skemmtilegri kvöldstund. Verkið er
lifandi og skemmtilegt, mikill söngur
er í sýningunni og tónlist. Flutning-
ur er allur lifandi, það eru leikararn-
ir sem syngja og spila undir á gítar,“
segir hún.
Verkið verður sem fyrr segir frum-
sýnt föstudaginn 24. febrúar næst-
komandi og hefst frumsýning, líkt
og allar sýningar á Saumastofunni,
kl. 20:30 og hægt er að panta miða í
síma 846-2293. Næstu sýningar sem
ákveðnar hafa verið eru 26. febrúar,
2. mars, 3. mars og 5. mars. „Síðan
verður bara bætt við sýningum ef vel
gengur,“ segir Ása Dóra Garðarsdótt-
ir að lokum.
kgk/ Ljósm. Olgeir Helgi Ragnarsson.
Saumastofan færð á fjalirnar