Skessuhorn


Skessuhorn - 22.02.2017, Síða 24

Skessuhorn - 22.02.2017, Síða 24
MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 201724 Í hádeginu síðastliðinn föstudag var dansað gegn ofbeldi víða um heim, meðal annars á ellefu stöðum á Ís- landi. Átak þetta nefnist „Milljarður rís 2017“ og er dansgjörningur til að vekja umræðu gegn ofbeldi á konum sem er vandamál um allan heim. Hér á Vesturlandi var dansað í Frystiklef- anum í Rifi og í Hjálmakletti í Borg- arnesi. Í ár var dansað til minningar um Birnu Brjánsdóttur sem myrt var í síðasta mánuði. „Milljarður rís er dansbylting sem haldin er víða um heim. Með sam- takamætti lætur heimsbyggðin til sín taka. Yfir milljarður karla, kvenna og barna kom saman til að dansa fyr- ir réttlæti, fyrir heimi þar sem all- ir fá að njóta sömu tækifæra án ótta við ofbeldi. Óttanum og óörygginu sem konur finna fyrir á götum úti og hvernig þær axla ábyrgð á mögulegu ofbeldi með því að forðast augnsam- band, velja ákveðnar götur fram yfir aðrar, halda á lykli milli fingra sinna í annarri hendi og símanum í hinni með 112 á hraðvali er þær ferðast milli staða að kvöld- og næturlagi. Ofbeldi eða ótti við að verða fyrir því er hluti af daglegu lífi kvenna víða um heim. Ofbeldið á sér stað hve- nær sem er dagsins, á heimilum, úti á götum, í almenningssamgöngum, á vinnustöðum og í kringum skóla svo dæmi séu nefnd,“ segir í kynningu um verkefnið. Vel var mætt í hátíðarsal Hjálm- akletts í Borgarnesi. Gunnlaugur A Júlíusson sveitarstjóri bauð fólk vel- komið en síðan var byrjað að dansa eftir fjörugum og skemmtilegum lögum. Nemendur og starfsfólk mætti úr Grunnskóla Borgarness, Menntaskóla Borgarfjarðar og þá átti starfsfólks Ráðhússins sterka inn- komu. Auk þess voru gestir víðar að enda allir hvattir til að taka þátt og leggja þannig sitt lóð á vogarskálina gegn ofbeldi á konum. mm Milljarður rís 2017 Það var margt um manninn á Júlí- önu, hátíð sögu og bóka, sem fram fór í Stykkishólmi um liðna helgi. Hátíðin var sett í Vatnasafninu á fimmtudagskvöldið. Þar var Har- aldur Sigurðsson eldfjallafræðingur heiðraður fyrir framlag sitt til vís- inda og lista. Hátíðin bauð upp á ýmsa viðburði víðsvegar um bæinn og gekk vel fyrir sig. jse Vel var mætt á bókahátína í Stykkishólmi Gréta Sigurðardóttir afhendir Haraldi Sigurðssyni viðurkenningu fyrir framlag sitt til vísinda og lista. Gestir hlusta á sögur í heimahúsi. Kristín Marja Baldursdóttir fjallar um söguþorp við sjó í gömlu kirkjunni. Guðrún Eva Mínervudóttir ræðir bók sína Englaryk yfir súpu og brauði á Hótel Egilsen. Hermann Hermannsson les sögu fyrir börnin. Kött Grá Pje greinir frá samstarfi sínu við Grunnskólann í tengslum við hátíðina. Föstudaginn 24. febrúar klukk- an 19:30 verða tónleikar í Tón- bergi, sal Tónlistarskólans á Akra- nesi. Þar mun Ari Þór Vilhjálms- son fiðluleikari leika fjölbreytta efnisskrá verka fyrir fiðlu og píanó ásamt finnska píanóleikaranum Roope Gröndahl. Þeir eru í stuttu stoppi á landinu til tónleikahalds. Ari Þór er einn af fremstu fiðlu- leikurum Íslendinga. Hann starf- ar nú sem leiðandi fiðluleikari Fíl- harmóníusveitarinnar í Helsinki. Hann hefur á undanförnum árum einnig starfað sem gestakonsert- meistari Konunglegu Fílharm- óníusveitarinnar í Stokkhólmi og Orchestre National du Capitole de Toulouse í Frakklandi. Áður hefur hann leikið með Sinfóníuhljóm- sveit Íslands og komið víða fram sem einleikari. Hann hóf fiðlunám fimm ára gamall og lærði sam- kvæmt Suzuki-aðferð. Hann lærði síðar hjá Guðnýju Guðmunds- dóttur og hélt síðan til Bandaríkj- anna til framhaldsnáms þar sem helstu kennarar hans voru Almita og Roland Vamos, Rachel Barton Pine og Sigurbjörn Bernharðs- son. Ari útskrifaðist með masters- gráðu frá Northwestern Univer- sity í júní 2008. Hann hefur marg- sinnis leikið einleik með Sinfóníu- hljómsveit Íslands en einnig með Sinfóníuhljómsveit Norðurlands og hljómsveit Northwestern Uni- versity. Hann hefur haldið fjölda kammer-og einleikstónleika og starfað sem kennari. Ari Þór var í eitt ár nemandi við Tónlistarskól- ann á Akranesi á uppvaxtarárum sínum. Hann hefur auk þess leið- beint fiðlunemendum Tónlistar- skólans. -fréttatilkynning Tónleikar í Tónbergi á föstudaginn

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.