Skessuhorn - 10.05.2017, Síða 6
MIÐVIKUDAGUR 10. MAÍ 20176
Aðalfundur HB
Granda
RVK:Aðalfundur var hald-
inn í HB Granda síðastlið-
inn föstudag. Í stjórn voru
kjörin Anna G. Sverrisdóttir,
Halldór Teitsson, Hanna Ás-
geirsdóttir, Kristján Lofts-
son og Rannveig Rist. Fund-
urinn samþykkti greiðslu
arðs upp á rúmlega 1,8 millj-
arð króna vegna ársins 2016,
en sú upphæð jafngildir einni
krónu á hlut í félaginu.
-mm
Í hafvillu
í þokunni
BREIÐAFJ: Berserkir,
björgunarsveit Slysavarna-
félagsins Landsbjargar í
Stykkishólmi, var kölluð út
um klukkan hálf níu að kvöld
laugardags til að aðstoða bát
sem var í hafvillu vegna þoku
á Breiðafirði. Greiðlega gekk
að finna bátinn sem björgun-
arsveitamenn fylgdu til hafn-
ar í Skarðsstöð á Skarðs-
strönd.
-mm
Jákvæðar
horfur hjá OR
SV-LAND: Matsfyrirtæk-
ið Reitun hefur breytt horf-
um í lánshæfismati á Orku-
veitu Reykjavíkur úr stöðug-
um í jákvæðar. Matseinkunn-
in er áfram AA3. Í tilkynn-
ingu um matið segir meðal
annars: „Planinu, aðgerðar-
áætlun vegna fjárhagsvanda
OR 2011 – 2016 er lok-
ið og árangurinn er umtals-
vert betri en þau markmið
sem sett voru. Stjórnendur
hafa undanfarin ár náð mikl-
um árangri í að byggja upp
fjárhagslegan styrk Orku-
veitunnar. Dregið hefur úr
skuldsetningu og markaðs-
áhættu, fyrirtækið starfar í
talsvert betra rekstrarum-
hverfi og fjárhagskennitöl-
ur hafa batnað til muna.“ Þá
segir að til að bæta lánshæfi
fyrirtækisins enn frekar þurfi
OR að halda áfram á sömu
braut; að lækka skuldir, draga
úr markaðsáhættu og styrkja
lausafjárstöðuna. Standa
þurfi við þau arðgreiðslu-
skilyrði sem fyrirtækið hef-
ur sett sér og tryggja áfram-
haldandi aðgengi að fjár-
málamörkuðum.
-mm
Atvinnuleysi það
minnsta í áratug
LANDIÐ: Atvinnuleysi nú
reiknast til að vera 1,7% af
vinnufærum mannafla og hef-
ur ekki mælst jafn lágt í Vinnu-
markaðsrannsókn Hagstofu Ís-
lands síðan í nóvember 2007
þegar atvinnuleysi mældist
1,3%. Samkvæmt vinnumark-
aðsrannsókn nú voru að jafn-
aði 202.800 manns á aldrin-
um 16–74 ára á vinnumarkaði
í mars síðastliðnum, sem jafn-
gildir 84,9% atvinnuþátttöku.
Af þeim voru 199.300 starfandi
og 3.400 án vinnu og í atvinnu-
leit. Hlutfall starfandi af mann-
fjölda var 83,4% og hlutfall at-
vinnulausra af vinnuafli var
1,7%. Samanburður mælinga
fyrir mars 2016 og 2017 sýn-
ir að atvinnuþátttaka jókst um
3,1 prósentustig. Fjöldi starf-
andi jókst um 15.500 manns og
hlutfall starfandi af mannfjölda
um 4,7 stig. Atvinnulausum
fækkaði um 3.800 manns og
hlutfall þeirra af vinnuaflinu
lækkaði um 2,1 stig. -mm
Mynduðu hross
með dróna
SNÆFELLSNES: Lögreglu-
menn af Vesturlandi, sem ný-
verið voru á leiðinni í verkefni
á Snæfellsnesi, komu að er-
lendum ferðamönnum þar sem
þeir voru að mynda hrossastóð
með dróna. „Voru hestarnir á
hlaupum undan drónanum.
Gátu lögreglumennirnir ekki
annað en stoppað hjá fólkinu
og gert þeim grein fyrir því að
þessi háttsemi væri ekki í lagi.
Lofuðu ferðamennirnir öllu
fögru og sögðust ekki hafa
gert sér grein fyrir því að þetta
væri bannað,“ segir í frétt frá
LVL. -mm
Akranes bar sigur af liði Hafnar-
fjarðar í fyrri undanúrslitaþætti
Útsvars, spurningakeppni sveit-
arfélaganna, sl. föstudag. Athygli
vakti að Skagamenn tefldu fram
breyttu liði frá fyrri viðureignum.
Vilborg Þórunn Guðbjartsdóttir
hafði verið stödd á Ísafirði fyrr um
daginn og lenti í því að flugi sem
hún ætlaði að taka til Reykjavík-
ur var frestað vegna þoku. Vilborg
fékk far frá Ísafirði og komst á
áfangastað rétt áður en útsending-
in hófst og mátti sjá henni bregða
fyrir meðal áhorfenda í sjónvarps-
sal. Hún var þó ekki nógu tím-
anlega fyrir smink og undirbún-
ing. Í aðdraganda keppninnar var
varamaðurinn Valgarður Lyngdal
Jónsson því ræstur út og keppti í
undanúrslitunum ásamt Erni Arn-
arsyni og Gerði Jóhönnu Jóhanns-
dóttur. Mannabreytingar á síð-
ustu stundu komu þó ekki að sök
því Akranes sigraði með 65 stig-
um gegn 46 stigum Hafnarfjarðar.
Skagamenn sóttu í sig veðrið í síð-
ari hluta keppninnar og innsigluðu
sigurinn í stóru spurningunum í
lokin.
Akranes mætir annað hvort
Fjarðarbyggð eða Grindavík í úr-
slitaviðureigninni sem fram fer 26.
maí næstkomandi.
kgk
Akranes í úrslit Útsvars
Útsvarslið Akraness eins og það var skipað sl. föstudag. F.v. Örn Arnarson,
Valgarður Lyngdal Jónsson sem hljóp í skarðið fyrir Vilborgu Þórunni Guðbjarts-
dóttur, og Gerður Jóhanna Jóhannsdóttir. Ljósm. RÚV.
Um liðna helgi var meiri umgangur
um gömlu E deild sjúkrahússins á
Akranesi en alla jafnan. Fjölmennt
tökulið ásamt leikurum, leikstjórum
og öllu tilheyrandi vann um helgina
við tökur á þáttaröð um lögfræð-
inginn Stellu Blómkvist. Sagafilm
framleiðir þættina og verða þeir sex
talsins. Sýningar á þáttunum hefj-
ast í haust og hefur sýningarréttur
þeirra jafnframt verið seldur víða
erlendis. Heiða Rún Sigurðardótt-
ir, eða Heida Reed, fer með hlut-
verk Stellu, en hún er þekkt af hlut-
verki sínu í hinum bresku Poldark
þáttum.
Skessuhorn hitti Þorstein Guð-
mundsson leikara að máli fyrir utan
sjúkrahúsið á Akranesi í hádegis-
hléi tökuliðsins á laugardag. Hann
sagði tökurnar ganga vel og upp-
lýsti að nokkuð væri vikið frá sögu-
þræði bókanna í þáttunum. Þeir
væru hins vegar álíka blautlegir og
bækurnar og Stella Blómkvist sem
birtist á skjánum væri sú sama og
lesendur bókanna þekkja; dularfull-
ur lögræðingur sem sefur hjá hverj-
um sem er og gerir ýmislegt til að
fá sínu framgengt. kgk
Stella Blómkvist á Skaganum
Hluti tökuliðsins nýtti hádegishléið til að njóta blíðviðrisins á Akranesi um
helgina.