Skessuhorn


Skessuhorn - 10.05.2017, Blaðsíða 7

Skessuhorn - 10.05.2017, Blaðsíða 7
MIÐVIKUDAGUR 10. MAÍ 2017 7 Jákvæðni, metnaður og víðsýniwww.akranes.is SK ES SU H O R N 2 01 7 Akraneskaupstaður veitir 10,9 milljónum til íþrótta- og tómstundafélaga á Akranesi. Markmiðið er að styðja virk íþrótta- og tómstundafélög á Akranesi til að halda uppi öflugu íþrótta-, félags- og tómstundastarfi fyrir börn og unglinga. Styrkir þessir eru veittir til þjálfunar og leiðsagnar barna og unglinga 3 - 18 ára. Skilyrði er að félagið hafi starfað í a.m.k. 2 ár og staðið skil á lögformlegum skyldum sínum. Sótt er um rafrænt á heimasíðu Akraneskaupstaðar eða í þjónustuveri bæjarins að Stillholti 16-18, 1. hæð. Styrktímabil er 1. janúar - 31. desember 2016. Umsóknarfrestur er til 29. maí 2017. Nánari upplýsingar veitir skóla- og frístundasvið Akraneskaupstaðar í síma 433 1000 eða með tölvupóst á netfangið skoliogfristund@akranes.is Styrkir til íþrótta- og æskulýðsfélaga á Akranesi Í síðasta tölublaði Skessuhorns var greint frá hvar könnunarviðræður milli sveitarfélaga á norðanverðu Snæfellsnesi standa. Viðræður þessar hafa staðið yfir milli íbúa í Stykkishólmsbæ, Helgafellssveit og Grundarfjarðarbæ og verður framhaldið á þessu ári og stefnt að íbúakosningu fyrir árslok. Sveitar- stjórn Snæfellsbæjar vildi ekki taka þátt í undirbúningi hugsanlegrar sameiningar og sveitarstjórn Eyja- og Miklaholtshrepps samþykkti í ljósi þess að lýsa sig frá slíkum við- ræðum, þar sem hún taldi að öll sveitarfélögin á Snæfellsnesi hefðu þurft að taka þátt ef vænta skyldi árangurs. Hópur íbúa í Eyja- og Miklaholtshreppi hefur hins veg- ar lengi haft áhuga á að sveitarfé- lagið tæki þátt í þeim viðræðum. Dagana 30. apríl til 3. maí síðast- liðinn var í gangi undirskriftasöfn- un í Eyja- og Miklaholtshreppi meðal áhugasamra aðila um þátt- töku sveitarstjórnar í þessum við- ræðum. Þeir Valgarð S Halldórs- son í Gröf og Gísli Guðmunds- son í Hömluholti stóðu fyrir söfn- un undirskrifta og segja þeir söfn- unina hafa gengið vel. Áskorunin hljóðaði þannig: „Eftirtaldir aðilar óska eftir að sveitarstjórn Eyja- og Miklaholts- hrepps taki þátt í greiningarvinnu um sameiningu/samstarf sveitar- félaga sem nágrannasveitarfélögin, Stykkishólmsbær, Grundarfjarð- arbær og Helgafellssveit, eru að hefja, um sameiginleg hagsmuna- mál. Viðræður sem mögulega gætu leitt til sameiningar sveitarfélag- anna. Engin sameining á sér stað án undangenginna íbúakosninga.“ Þeir Valgarð og Gísli segja að afar góð þátttaka hafi verið í und- irskriftasöfnuninni, þar sem allir bæir í sveitinni hafi verið heim- sóttir, en eingöngu var leitað eftir stuðningi kosningabærra íbúa. „Af 84 kosningabærum íbúum skrifuðu 47 undir áskorun til sveitarfélags- ins um þátttöku í þeirri greiningar- vinnu - eða um 56% íbúa og fleiri sýndu áhuga án þess að vilja láta nafns síns getið. Það er von okk- ar að sveitarstjórn verði við óskum okkar um þátttöku í þeirri vinnu sem nú er að hefjast - hver sem niðurstaðan yrði í kosningu um sameiningu sveitarfélaganna. Við sem að söfnuninni stóðum viljum koma á framfæri bestu þökkum til þeirra sem veittu málinu stuðning, án ykkar hefði þessi góði árangur ekki náðst,“ segja þeir Valgarð og Gísli. Boðað verður til borgarafundar Á hreppsnefndarfundi í Eyja- og Miklaholtshreppi 4. maí síðastlið- inn var undirskriftalistinn lagður fram. Einnig var lagður fram und- irskriftalisti frá 18 íbúum dagsettur 2. maí um að boðað verði til borg- arafundar um stöðu sveitarfélagsins í ýmsum málum og verkflokkum með tilliti til sameiningarviðræðna við önnur sveitarfélög. Í fundar- gerð segir að; „Eins og fram kem- ur í sveitarstjórnarlögum gr. 108 verður sveitarstjórn að verða við ósk um borgarafund ef yfir 10% íbúa á kjörskrá óska eftir því. Odd- viti leggur því til að haldinn verði borgarafundur eins fljótt og hægt er þar sem m.a verður rætt samstarf við önnur sveitarfélög / sameining- ar. Jafnframt leggur oddviti til að afgreiðslu erindis Gísla og Valgarðs fyrir hönd áhugafólks um samein- ingu / samstarf sveitarfélaga verði frestað þangað til íbúar hafa kom- ið saman og rætt málin á borgara- fundi.“ Var tillagan samþykkt með þremur atkvæðum gegn tveim- ur. Þau Halldór Jónsson og Harpa Jónsdóttir lögðu fram bókun þar sem segir: „Undirritaðir hrepps- nefndarmenn harma að ekki hefur verið tekið tillit til vilja þeirra íbúa sveitafélagsins sem vilja að sveit- arstjórn taki þátt í þeirri greining- arvinnu sem nú er að hefjast milli Helgafellsveitar, Grundarfjarðar- bæjar og Stykkishólmsbæjar um sameiningu / samstarf sveitarfélag- anna. Greiningarvinnu sem hefði varpað skýrara ljósi á kosti og galla sameiningar fyrir Eyja- og Mikla- holtshrepp. Íbúar sveitarfélagsins hefðu alltaf haft síðasta orðið um þá framvindu.“ Þá lagði Eggert Kjartansson fram eftirfarandi bókun. „Að mati oddvita er mikilvægt að gefa öllum íbúum kost á að koma skoðunum sínum á framfæri á jafn viðkvæmu máli og sameiningarmál sveitarfé- laga eru. Besta og lýðræðislegasta leiðin til þess er að gefa öllum færi á að koma á framfæri sjónarmiðum sínum á borgarafundi.“ mm/ Ljósm. Mats Wibe Lund. Meirihluti íbúa vill viðræður um sameiningu á Snæfellsnesi Boðað verður til íbúafundar í Eyja- og Miklaholtshreppi Hlíðasmára 11 201 Kópavogur Sími: 534 9600 Netfang: heyrn@heyrn.is Aldrei hefur verið auðveldara að heyra Þverholti 2 • 270 Mosfellsbær Sími 525 6700 • mos@mos.is • www.mos.is VIRÐING • JÁKVÆÐNI • FRAMSÆKNI • UMHYGGJA SK ES SU H O R N 2 01 7 LEIKSKÓLINN HLAÐHAMRAR Í MOSFELLSBÆR AUGLÝSIR EFTIR DEILDARSTJÓRA Á ELSTU DEILD LEIKSKÓLANS. Hlaðhamrar er um 80 barna leikskóli, sem skipt er í 4 deildir. Leikskólinn vinnur í anda „Reggio“ stefnunnar en sú stefna leggur áherslu á gæði í samskiptum og skapandi starf. Fjölbreytt og skemmtilegt starf er unnið með börnunum í fallegu umhverfi leikskólans í nálægð við náttúruna. Mosfellsbær er öflugt og framsækið sveitarfélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi. Menntunar- og hæfnikröfur: Leikskólakennaramenntun. Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum. Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður er skilyrði Starfið krefst mikillar færni í samskiptum Sjálfstæði, lausnamiðuð hugsun og skipulögð vinnubrögð. Umsóknarfrestur er til og með 19. maí 2017. Umsóknir ásamt starfsferilsskrá og kynningarbréfi sem greinir frá ástæðu umsóknar og rökstuðningi fyrir hæfni í starfið skulu berast á netfangið hlad@mos.is. Nánari upplýsingar um starfið veitir Sveinbjörg Davíðsdóttir, leikskólastjóri Hlaðhamra eða María Birna aðstoðarleikskólastjóri í símum 566-6351 eða 661-9581. Um framtíðarstarf er að ræða. Öllum umsóknum verður svarað. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Við hvetjum fólk af báðum kynjum til að sækja um starfið.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.