Skessuhorn


Skessuhorn - 10.05.2017, Qupperneq 9

Skessuhorn - 10.05.2017, Qupperneq 9
MIÐVIKUDAGUR 10. MAÍ 2017 9 Fréttaveita Vesturlands www.skessuhorn.is Tökum að okkur jarðvegsvinnu t.d. húsgrunna, drenun, niðursetningu rotþróa, múrbrot, niðurrif, garðavinnu og vegavinnu. Við erum með kranabíl, gámabíla, traktorsgröfu, 16t hjólagröfu, 2t, 6t og 21t beltavélar, vatnstank. Hafið samband í síma 862-1717 Stauraborun fyrir sumarhús og sólpalla. Erum með vatnstank fyrir heitt/kalt vatn og rykbindingu. Bíla-/vélaflutningar og kranavinna. Gámaleiga. Fellum tré og fjarlægum. Útvegum mold og möl. SK ES SU H O R N 2 01 7 450 Fasteignasala hefur nú feng- ið til sölu veitingaskálann Bauluna í Stafholtstungum í Borgarfirði. Hjónin Kristberg Jónsson og Sig- rún Tómasdóttir hafa undanfar- in 18 ár átt og rekið Bauluna og staðið þar vaktina flesta daga, en undanfarin ár hafa sonur þeirra og tengdadóttir starfað með þeim við reksturinn. Boðinn er til sölu allur rekstur Baulunnar sem og 406 fm fasteign og tveggja hektara land. Þjónustan samanstendur af sölu eldsneytis, veitingasölu og smá- söluverslun. Í auglýsingu kemur fram að ýmsir möguleikar séu til stækkunar og breytinga. Ekki er uppgefið verð í auglýsingu fast- eignasalans, en óskað tilboða. „Þetta er bara komið fínt. Okkur var sagt að við værum hetjur ef við dygðum í áratug í svona rekstri, en nú eru þeir að verða tveir. Við telj- um þetta vera komið gott hjá okk- ur. Konan mín er komin á sjötugs- aldurinn. Pabbi minn kenndi mér að vera góður við gamalmenni og minnimáttar! Það er ekki leggj- andi á hana að standa í þessu kom- in á þennan aldur,“ segir Kristberg í léttum tón, en sjálfur fyllir hann reyndar sex tugina í nóvember næstkomandi. „Við erum að vona að þetta sé rétti tíminn til að selja. Það hefur verið gríðarleg aukn- ing í sölu á síðustu árum og allt upp á við í augnablikinu og því er augljóslega kauptækifæri fyrir þá sem vilja taka við. Hér er allavega hægt að gera helling. Til dæmis að byggja upp gistiaðstöðu eða ann- að og nýta landið. Yngra fólk er líklegra til að ráðast í slíkar fram- kvæmdir,“ segir Kristberg og bæt- ir við að þau séu búin að stórbæta aðstöðuna frá því þau tóku við, en engu að síður sé ýmislegt hægt að gera til viðbótar. „Það ánægjulega er að við höfum enn bæði gam- an að þessu hjónin. Þetta starf er lifandi og skemmtilegt. Hingað kemur gríðarlegur fjöldi fólks og oft er glatt á hjalla,“ segir Krist- berg. Aðspurður segist hann ekki ætla að hætta að vinna þótt þau selji Bauluna. „En fyrst er að selja og síðan leggur maður drög að næsta verkefni,“ segir Kibbi í Baulunni að endingu. mm Baulan boðin til sölu Sigrún og Kristberg í Baulunni. Í kaupmannstíð þeirra hjóna hafa þau bæði stækkað húsið og bætt aðstöðu í verslun og á veitingastaðnum. Snæfellsbær Laus staða aðstoðar -og sérkennslu- stjóra við leikskóla Snæfellsbæjar Starfstöð: Kríuból/Hellisandi. Í Snæfellsbæ er einn leikskóli með tvær starfsstöðvar. Starfsstöð er á Hellisandi og hin er í Ólafsvík. Leikskólinn vinnur með stærðfræði/ numicon, læsisstefnu leikskóla Snæfellsbæjar og umhverfismennt. Við erum einnig með í vináttuverkefni Barnaheilla. Við óskum sérstaklega eftir aðstoðar- og sérkennslustjóra á Kríuból á Hellisandi. Menntunar- og hæfniskröfur: Leyfisbréf leikskólakennara.• Stjórnunarreynsla æskileg og hæfni í mannlegum samskiptum.• Laun eru samkvæmt kjarasamningi KÍ og launanefndar sveitarfélaga. Nánari upplýsingar veitir Ingigerður Stefánsdóttir, leikskólastjóri leikskóla Snæfellsbæjar 4336925/26. Umsóknir sendist til: Kríuból við Naustabúð 17, 360 Snæfellsbær eða á netfangið leikskolar@snb.is Umsóknarfrestur til 19. maí og mun viðkomandi byrja mánudaginn 14. Ágúst 2017. „Óheimilt er að ráða til starfa við leikskóla/grunnskóla einstakling sem hlotið hefur refsidóm fyrir brot á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga. Við ráðningu skal liggja fyrir sakavottorð eða heimild skólastjóra til að afla upplýsinga úr sakaskrá.“ SK ES SU H O R N 2 01 7

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.