Skessuhorn - 10.05.2017, Síða 11
MIÐVIKUDAGUR 10. MAÍ 2017 11
Verslunin Samkaup Strax Búðardal leitar að öflugum starfskröftum í
eftirtalin störf
• Vaktstjóra
• Starfsmenn í sumarafleysingar
• Starfsmenn í vaktavinnu
Áhersla er lögð á styrkleika í mannlegum samskiptum,
sjálfstæð vinnubrögð, skipulagshæfni, reglusemi og
árvekni í hvívetna.
Umsóknir sendist á budardalur@samkaupstrax.is
Umsóknarfrestur er til 21. maí nk.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Ingvar Kristján Bæringsson verslunarstjóri á staðnum eða í síma 861-5462
SAMKAUP STRAX BÚÐARDAL
VAKTSTJÓRI OG SUMARAFLEYSINGAR
LÆKNA
R
MÆLA
MEÐ
HUSK!
NÁTTÚRULYF
Á SÉRLYFJASKRÁ
Náttúrulegar trefjar sem halda
meltingunni í góðu formi
ehb@ebridde.is, www.ebridde.is
HUSK fæst í apótekum, heilsubúðum og Fjarðarkaupum
Óskum eftir að ráða næturvörð og
starfsfólk í sal sem fyrst
Umsóknir ásamt upplýsingum sendist á netfangið
info@hotelborgarnes.is
ATVINNA
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
7
Síðastliðinn fimmtudag var fjórum
byggingalóðum úthlutað í Bjargs-
landi í Borgarnesi. Það er svo sem
ekki í frásögu færandi nema fyrir
þær sakir að vegna fjölda umsókna
þurfti að varpa upp hlutkesti hverj-
ir hlytu þrjár þessara lóða. Að und-
anförnu hefur fasteignaverð verið
á hraðri uppleið í Borgarbyggð og
nú er eftir hlé í rúman áratug aft-
ur kominn skriður á nýbyggingar
bæði af hálfu einstaklinga og fyrir-
tækja. Á það við helstu þéttbýlis-
staði í sveitarfélaginu. Af þess-
um sökum er mikil eftirspurn eft-
ir lausum byggingalóðum. Á fundi
byggðarráðs var fulltrúi sýslu-
manns kallaður til og var hann
viðstaddur þegar krónu var kast-
að til að skera úr um hverjum yrði
úthlutað þremur lausum lóðum
við Stöðulsholt, íbúðagötuna næst
húsi Kaupfélags Borgfirðinga.
Að sögn Geirlaugar Jóhanns-
dóttur formanns byggðarráðs er
mikill stígandi í lóðaúthlutun í
sveitarfélaginu. Þessi þróun hófst
í rauninni með því að Magnús B
Jónsson fékk úthlutað lóð fyrir
einbýlishús við Lóuflöt á Hvann-
eyri, sem nú er búið að byggja, og
eftir það má segja að boltinn hafi
tekið að rúlla. „Nú er búið að út-
hluta nokkrum lóðum til viðbótar
á Hvanneyri. Þá úthlutuðum við
nýverið lóðum við Brákarsund í
Borgarnesi þar sem samtals verða
byggðar átta íbúðir. Nú er verið
að skipuleggja fjölbýlishúsalóðir
í Bjargslandi í Borgarnesi en auk
þess er deiliskipulagsvinna á loka-
metrunumm fyrir blandaða byggð
einbýlishúsa, raðhúsa og fjölbýlis-
húsa. Sveitarfélagið á nú tilbúnar
íbúðarhúsalóðir á Hvanneyri,
Varmalandi, Bæjarsveit og í Borg-
arnesi, ýmist fyrir einbýlis- par-,
rað- eða fjölbýlishús,“ segir Geir-
laug. Hún segir fasteignamarkað-
inn heldur betur hafa tekið við sér
að undanförnu og í mörgum tilfell-
um hefur verið umfram eftirspurn
eftir fasteignum og nú lóðum,
samanber lóðaúthlutun byggðar-
ráðs sl. fimmtudag. „Menn eru að
fá tilboð í húseignir sem þeir bjóða
til sölu, jafnvel samdægurs og fá
gjarnan uppsett verð. Allt er þetta
mjög jákvætt,“ segir Geirlaug.
Þá segir Geirlaug að sveitarfé-
lagið eigi alls 20 lausar iðnaðarlóð-
ir til úthlutunar, bæði á Hvanneyri
en flestar á iðnaðarsvæðinu með-
fram þjóðveginum ofan við Borg-
arnes. Nýverið var iðnaðarlóð út-
hlutað í Sólabakka í Borgarnesi til
nokkurra iðnaðarmanna, auk þess
sem björgunarsveitin Brák fékk
niðurfelld lóðagjöld við Fitja, ofan
við Borgarnes, í tilefni 150 ára af-
mælis Borgarness.
mm
Krónu kastað. Gunnlaugur A Júlíusson sveitarstjóri og Jón Einarsson fulltrúi sýslu-
manns fylgist með að öllum reglum sé fylgt þegar hlutkesti réði hverjir hlytu þrjár
lausar lóðir við Stöðulsholt í Borgarnesi. Ljósm. gj.
Hlutkesti réði hverjir fengju
lausar lóðir í Borgarnesi