Skessuhorn - 10.05.2017, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 10. MAÍ 2017 13
Íbúafundur um heilsueflandi
samfélag í Borgarbyggð
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
7
Í tilefni af því að Borgarbyggð er að verða heilsueflandi samfélag er boðað
til íbúafundar fimmtudaginn 18. maí kl. 20:00 í Hjálmakletti
Dagskrá:
o Allt til alls – í heimabyggð – Íris Grönfeldt
o Áfram Borgarbyggð! – Magnús Scheving
o Samningur undirritaður – Héðinn Svarfdal Björnsson, Embætti landlæknis
o Umræður í hópum um helstu þætti heilsueflandi samfélags:
Hreyfing – Næring – Líðan – Lífsgæði
o Helstu niðurstöður og næstu skref
Íbúar eru hvattir til að mæta og taka þátt í umræðu
um heilsueflandi aðgerðir í Borgarbyggð
Stýrihópur um heilsueflandi samfélag í Borgarbyggð
Kristján Andrésson húsasmíða-
meistari á Hvanneyri fagnaði í liðn-
um mánuði sextugsafmæli sínu. Líkt
og gjarnan við slík tækifæri fá menn
fallega pakka, blóm og frómar ósk-
ir. Ein gjöfin var þó sýnu umfangs-
mest, en hana gaf Kristján sjálfum
sér. Það var eitt stykki slökkviliðs-
bíll. Bíll þessi þjónaði upphaflega
Slökkviliðinu á Keflavíkurflugvelli
þar sem hann var fyrsti útkallsbíll
á vellinum. Bíllinn þjónaði á Kefla-
víkurflugvelli til 1983 en fer árið
1985 í eigu Landsvirkjunar sem
hafði hann til taks í Búrfellsvirkj-
un. Eins og títt er um slökkvibíla er
bíll þessi lítið ekinn, 15.000 mílur,
eða um 22 þúsund kílómetra. Það
gafngildir 423 kílómetra meðal-
akstri á ári. Bíllinn er amerískur
að gerð, framleiddur af Americ-
an - LaFrance sem er sérhæft fyr-
irtæki í framleiðslu á tækjum fyrir
slökkvilið. Kristján segir að bíllinn
sé byggður á International grind en
Landsvirkjun lét þegar fyrirtækið
eignaðist hann setja í hann Weapon
framdrif.
Kristján starfar sjálfur í Slökkvi-
liði Borgarbyggðar og er jafnframt
í stjórn Fornbílafjelags Borgarfjarð-
ar, en hann ráðgerir að koma bíln-
um þar til geymslu. „Bíllinn átti að
fara til geymslu í Slökkviliðsminja-
safninu í Keflavík. Nú er hins vegar
það safn að missa húsnæðið og verð-
ur tekið niður og því stóð jafnvel til
að henda bílnum. Það þótti mér al-
veg glatað, svo ég ákvað að kaupa
hann, skrá á mitt nafn og leigja svo
húsnæði undir hann á safninu okkar
í Brákarey. Þetta verður skemmti-
leg viðbót við safnið og eykur fjöl-
breytileikann þar,“ segir Kristján.
Bíllinn verður frumsýndur í Brák-
arey næstkomandi laugardag þeg-
ar hin árlega Bifhjóla- og fornbíla-
sýning Raftanna og Fornbílafjelags
Borgarfjarðar verður haldin.
Kristján hélt á sunnudaginn sér-
staka forsýningu á bílnum fyr-
ir áhugasöm börn á Hvanneyri og
mætti fullt af fólki. „Krakkarnir
höfðu sérlega gaman að fá að máta
bílinn og skoða hann. Reyndar var
Sveinn Hallgrímsson sem kom í
lokin einna áhugasamastur gesta
og bókstaflega ljómaði þegar hann
skoðaði gripinn,“ sagði Kristján.
mm/ Ljósm. úr einkasafni.
Dellan tekin alla leið þegar
afmælisbarnið fékk sér slökkvibíl
Amercan LaFrance í hlaðinu á Hvanneyri heima hjá Kristjáni og Rósu Marinósdóttur eiginkonu hans.
Börnin ljómuðu þegar þau fengu að setjast undir stýri.
Sveinn Hallgrímsson var afar áhugasamur um bílinn.
Kristján með afmælisköku, en hann
fagnaði sex tugum í liðnum mánuði.
FRUMHERJI HF. – ÞEGAR VEL ER SKOÐAÐ
www.frumherji. is
Búðardalur 2017
Bifreiðaskoðun verður hjá K.M. þjónustunni ehf.
Vesturbraut 20
Fimmtudagur 11. maí
Föstudagur 12. maí
Lokað í hádeginu kl. 12.00 – 13.00
Tímapantanir í síma 570 – 9090 SKE
SS
U
H
O
R
N
2
01
7
Innritun stendur yfir fyrir skólaárið 2017-2018.
Umsóknarfrestur er til 1. júní.
Innritun fer fram rafrænt á heimasíðu skólans, toska.is,
undir flipanum „Umsókn“
Athugið að núverandi nemendur þurfa að staðfesta
áframhaldandi nám með umsókn.
Einnig þarf að endurnýja umsóknir þeirra sem eru á
biðlista.
Vakin er athygli á því að tómstundastyrkur
Akraneskaupstaðar gildir vegna náms við
Tónlistarskólann.
Upplýsingar á skrifstofu skólans
mán-fim 12-16 og fös 9-13,
sími 433-1900.
Skólastjóri
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
7
Innritun og staðfesting á námi
Tónlistarskólinn á Akranesi