Skessuhorn - 10.05.2017, Page 14
MIÐVIKUDAGUR 10. MAÍ 201714
Reynir Sigurðsson er einn af þeim
sem býður upp á úðun garða og
sumarhúsalóða og er starfssvæði
hans Borgarbyggð, Akranes og
svæðið sunnan Skarðsheiðar. Reynir
er Hafnfirðingur að uppruna en býr
nú í sumarhúsi skammt frá Borgar-
nesi og ferðast um með pallbíl sinn
og efni og tekur að sér garðaúð-
un. Hann er gamalreyndur í þess-
um geira, hefur úðað garða víða um
suðvestanvert landið í aldarfjórð-
ung. Reynir segir að birkikemban sé
skaðræðisfiðrildi sem nú virðist vera
í uppsveiflu hér á landi. Það leggst
á laufblöð og étur innan úr þeim
þannig að þau verða brún. Trén
ná þá ekki að laufgast það árið. Til
að koma í veg fyrir tjón segir hann
nauðsynlegt að úða gegn birkikembu
í maímánuði. Á vef Náttúrustofnun-
ar segir að birkikemba sé smávax-
ið fiðrildi. Vængirnir liggja eins og
þakris yfir afturbolnum. Það sindrar
af gylltum framvængjunum. Á hvor-
um þeirra er áberandi hvítur blettur
sem gerir tegundina auðþekkta frá
öðrum sem fljúga á vorin.
Reynir segir að með úðun garða
og trjágróðurs megi koma í veg fyr-
ir trjálús, orma og köngulær. Reyn-
ir tekur við pöntunum í garðaúðun í
síma 899-0304.
mm
Nauðsynlegt að úða gegn
birkikembu í maí
Björgunarsveitin Klakkur í Grund-
arfirði hélt aðalfund sinn laugar-
daginn 6. maí. Þá voru hefðbund-
in aðalfundarstörf ásamt því að ný
stjórn var mynduð. Erling Péturs-
son gat ekki gefið kost á sér áfram
sem formaður þar sem hann er að
flytjast búferlum og því þurfti að
finna nýjan formann. Ketilbjörn
Benediktsson, fyrrverandi formað-
ur, var kjörinn formaður á nýj-
an leik. Rekstur sveitarinnar hef-
ur verið í góðum höndum og mun
vera það áfram. tfk
Aðalfundur Björgunar-
sveitarinnar Klakks
Ný stjórn Klakks, frá vinstri: Kári Gunnarsson ritari, Andri Ottó Kristinsson með-
stjórnandi, Marinó Ingi Eyþórsson varaformaður og Ketilbjörn Benediktsson
formaður. Á myndina vantar Svavar Áslaugsson gjaldkera.
Björgunarsveitin Lífsbjörg í Snæfellsbæ hélt upp á tíu ára af-
mæli sitt síðastliðinn laugardag. Mættu fjölmargir til að fagna
afmælinu. Boðið var upp á kræsingar og ræður voru fluttar.
Þá fékk Lífsbjörg góðar gjafir sem eiga eftir að koma félaginu
að góðum notum í framtíðinni. Áður en Lífsbjörg var stofnuð
voru björgunarsveitir starfræktar á Hellissandi og í Ólafsvík.
Fyrsti formaður Lífsbjargar, Davíð Óli Axelsson, sagði í
ræðu sinni að með stofnun Lífsbjargar hafi verið stigið mikið
gæfuspor. „Í dag sjáum við hinn raunverulega árangur, eins
og öflugan félagsskap sem er vel búinn tækjum og í glæsilegri
björgunarstöð. Það voru ófáar vinnustundir og fundir til þess
að koma þessu heim og saman og er óhætt að minnast þeirrar
sem á undan komu og byggðu þann trausta grunn sem Lífs-
björg er byggð á í dag. Það voru fjölmargir sem störfuðu við
miklu erfiðari aðstæður heldur en nú eru bæði hjá Slysavarna-
deildinni Björgu, sem var stofnuð árið 1928, og Slysavarna-
deildinni Sæbjörgu sem var stofnuð árið 1930. Á það fólk
miklar þakkir skyldar fyrir,“ sagði Davíð Óli og bætti því við
að saga þeirra mætti aldrei gleymast.
af
Björgunarsveitin Lífsbjörg
fagnaði tíu ára afmæli
Þrír formenn Lífsbjargar. Viðar Hafsteinsson, Davíð Axel Ólafsson
sem var fyrsti formaðurinn, og svo Halldór Sigurjónsson núverandi
formaður. Ljósm. af.
Fjórhjólin vöktu athygli. Ljósm. af.
Klifurveggurinn var vinsæll meðal barna. Ljósm. af.
Unglingadeildin Drekinn tók í notkun nýjar peysur á afmæli Björgunar-
sveitarinnar Lífsbjargar á laugardaginn. Nýju peysurnar eru glæsilegar og voru
krakkarnir að vonum ánægðir með þær. Krakkarnir í deildinni eru búnir að vera
að safna fyrir peysunum í nokkur ár en peysurnar sem þau áttu áður voru orðnar
gamlar og þreyttar. Peysurnar nota krakkarnir þegar þau eru í fjáröflun, á mótum
eða í öðru starfi sem þau taka þátt í á vegum Drekans. Ljósm. þa.
Björgunarstöðin Von í Rifi. Ljósm. af.
Þorsteinn Bárðarson, stjórnarformaður Fiskmarkaðar Snæfellsbæjar, afhenti
Björgunarsveitinni Lífsbjörgu hjartastuðtæki í tilefni 10 ára afmælis sveitarinnar.
Það voru þeir Halldór Sigurjónsson formaður ásamt Patryk Zolobow með-
stjórnanda sem tóku við gjöfinni. Ljósm. þa.