Skessuhorn


Skessuhorn - 10.05.2017, Side 19

Skessuhorn - 10.05.2017, Side 19
MIÐVIKUDAGUR 10. MAÍ 2017 19 Eftir að hafa lent í vinnuslysi fyrir þremur árum stóð fyrrum sjómað- urinn Elí Þór Þórisson á krossgöt- um. Hann hafði starfað sem sjó- maður í 17 ár þegar slysið varð en fljótlega varð honum ljóst að sjó- mannsferlinum var lokið. Með að- stoð Virk komst Elí í gegnum áfall- ið og í dag er hann í iðnnámi, líkar það vel og horfir björtum augum til framtíðar. „Ég var á frystitogaranum Helgu Maríu í tíu ár, sem háseti og badermaður til skiptis, og líkaði það mjög vel,“ segir Elí Þór í sam- tali við Skessuhorn. Um páskana 2014 breyttist líf hans þegar hann slasaðist um borð og neyddist til að fara í land og hætta á sjónum. Hann fékk slink á handlegginn með þeim afleiðingum að sinar og vöðvafestingar slitnuðu í vinstri handlegg. „Við vorum á síðasta sólarhring túrsins, þannig að ég var áfram um borð og hélt upp- runalega að ég hefði bara tognað illa. Læknarnir hér á sjúkrahúsinu héldu það líka en trúnaðarlæknir HB Granda sendi mig í segulómun þar sem þetta kom í ljós,“ útskýrir Elí. Í framhaldinu var hann send- ur í skurðaðgerð. „Þar var þetta skrúfað ofan í beinið en ég hef aldrei náð mér alveg. Þeir halda að einhverjar taugar séu í sundur.“ Eina í stöðunni Elí er kvæntur Kristínu Birnu Gísladóttur og eiga þau þrjú börn. Hjónin fluttust á Akranes árið 1991 en upprunalega er Elí úr Kópavogi. Þegar slysið varð var hann 43 ára. Hann segir það hafa verið mikið áfall að komast að því að hann kæmist ekki aftur á sjó. Eftir aðgerðina fór Elí í sjúkra- þjálfun og eftir eitt ár benti sjúkra- þjálfarinn honum á nýjar leiðir. „Ég var í pattstöðu. Ég vissi fyrst ekkert hvað myndi gerast og var bara að bíða eftir að komast aftur á sjóinn en svo var það ekki hægt. Georg sjúkraþjálfari benti mér þá á að fara í Virk, sem er snilldar apparat,“ segir Elí. Í framhaldinu fór Elí til námsráðgjafa og IÐAN setur býður honum að fara í raun- færnimat. „Ég hafði áður unnið í fimm ár við vélsmíði og náði 32 einingum í raunfærnimatinu, sem styttir námið um heilt ár.“ Hann ákvað í framhaldinu að setjast á skólabekk á fimmtugsaldri. „Ég hefði aldrei getað haldið heimili eða neitt, þetta var það eina í stöð- unni,“ segir hann. Eftir nokkra umhugsun varð rennismíði fyr- ir valinu. „Ég hef lítið þol í hand- leggnum og þurfti að taka það inn í myndina. En þetta er eitthvað sem ég get unnið við.“ Kom sjálfum sér á óvart Í byrjun árs í fyrra byrjaði Elí í náminu og stefnir hann á að ljúka því næsta vor. „Þetta eru sex ann- ir í heildina, fjórar í grunndeild málmiðna og svo restin í renni- smíði.“ Elí er að læra bæði í Fjöl- brautaskóla Vesturlands á Akranesi og í Tækniskóla Íslands í Reykja- vík. Hann mun útskrifast sem vél- virki frá FVA og sem rennismið- ur úr Tækniskólanum. „Þetta eru nefnilega mikið til sömu fög sem eru kennd í þessu og ég ákvað að gera þetta svona til að minnka keyrsluna í bæinn. Ég þurfti bara að bæta við mig þremur áföngum í rennismíði í bænum með því að gera þetta svona.“ Elí segir að það hafi verið þung skref að setjast aft- ur á skólabekk eftir svona lang- an tíma, eftir tæp 30 ár á vinnu- markaði. „Fyrstu vikurnar voru erfiðar, alveg hræðilegar. Það var til dæmis erfið tilhugsun að þurfa að tala dönsku fyrir framan aðra. En svo var þetta bara gaman þeg- ar maður var byrjaður í þessu. Við yngsta stelpan mín erum sam- an í skólanum hérna og miðstrák- urinn minn er með mér í skóla í bænum.“ Hann segir jafnframt að framvindan í skólanum hafi kom- ið á óvart. „Ég hef aðallega kom- ið sjálfum mér á óvart. Ég hélt að ég gæti ekki einbeitt mér að námi. Það er mikil stærðfræði í þessu, sem liggur vel fyrir mér og þetta hefur gengið mjög vel.“ Ánægður með Virk Elí Þór er ánægður með þjón- ustuna sem hann fékk hjá Virk á sínum tíma og mælir með því að fólk sem ekki veit hvað það á að gera leiti til þeirra eftir aðstoð. „Fólk sem hefur farið í gegnum Virk er almennt ánægt með þjón- ustuna. Það er mikið til af fólki sem veit ekki hvað það getur far- ið að gera. En þeir hjálpa fólki að fara í nám eða á vinnumarkaðinn, einmitt fólki sem til dæmis hefur lent í áföllum. Ég fékk töluverða aðstoð hjá þeim, fór til dæmis í verkjaskóla til að læra að lifa með verkjum og fékk sálfræðiaðstoð, sem var ómetanlegt. Það er rosa- legt áfall að vera kippt svona út af vinnumarkaðinum,“ segir hann. En nú stefnir Elí ótrauður á að ljúka náminu og finna svo vinnu í framhaldinu. „Maður þarf að finna sér vinnustað og spá vel í því hvar maður getur fengið framtíðarstarf. Ég held að það sé vöntun á renni- smiðum og er vongóður,“ segir Elí Þór bjartsýnn að endingu. grþ Settist á skólabekk eftir vinnuslys Elí Þór Þórisson þurfti að hætta á sjónum eftir slysið. Iðnneminn Elí Þór lærir fyrir vorpróf. Stúlkur í strandhreinsun. Ljósm. rs. Hluti þess sem kom úr höfninni í Stykkishólmi. Ljósm. rs. Hvíldarstund við hreinsunarstarf. Ljósm. rs. Norski sendiherrann tíndi plast í Þjóðgarðinum. Ljósm. rs. Boðið var til veislu í Breiðabliki þar sem um 200 manns mættu. Ljósm. rs.Birna verkefnisstjóri Umhverfisvottunar Snæfellsness með dálaglega hrúgu af rusli í Hólminum. Ljósm. rs. Tekið til hendinni í Skógarnesi. Ljósm. rs. Björt Ólafsdóttir umhverfisráðherra tók virkan þátt í hreinsuninni. Hér í fjörunni við Skógarnes. Ljósm. rs.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.