Skessuhorn


Skessuhorn - 10.05.2017, Page 23

Skessuhorn - 10.05.2017, Page 23
MIÐVIKUDAGUR 10. MAÍ 2017 23 Tónlistarskólinn á Akranesi auglýsir eftir kennurum í eftirtaldar stöður Sellókennara í 25% stöðu. Málmblásturskennara í 50% stöðu. Tréblásturskennara í 60% stöðu. Tónlistarskólinn var stofnaður árið 1955 og telja nemendur skólans í dag um það bil 300 og kennarar eru 21. Hlutverk Tónlistarskólans býr við mjög góðan aðbúnað til tónlistarkennslu. Menntun á sviði tónlistar er skilyrði. Til sölu eru átta samliggjandi sumarhúsalóðir á kyrrlátum stað í Borgarfirði (lóðir 11-18). Landið er hluti skipulags sumarhúsasvæðis sem nefnist Melabyggð og er úr landi Birkihlíðar í Reykholtsdal. Skipulagið nær yfir alls 40 ha og skiptist í 18 hektara lóðir en 22 ha eru skógræktarsvæði sem nú er að mestu búið að planta í. Vegur, rafmagn og neysluvatn er komið að mörkum neðstu lóðar. Hver lóð er um 10.000 fm að stærð (1,0 ha). Engin hús eru risin á þessum hluta skipulagsins en fimm hús á neðra svæðinu (á lóðum 1-10). Heimilt er að byggja allt að 100 fm hús á hverri lóð. Lóðirnar átta bjóðast nú saman fyrir 9,6 milljónir króna, en stakar lóðir verða ella seldar eftir 24. maí nk. fyrir 1,5 m.kr. Allar nánari upplýsingar gefur eigandi í síma 894-8998. Lóðir/land til sölu í Borgarfirði Hún var ekki hrædd við mannfólkið maríuerlan sem lék sér á þilfarinu á Björgunarbátnum Björg frá Rifi á dögunum. Þessi skemmtilega mynd náðist þegar Björgin var á heimleið frá Stykkishólmi síðasta föstudag þar sem hún hafði verið í slipp. Að vera úti á sjó eru ekki eðlileg heim- kynni maríuerlunnar en hún er far- fugl sem verpir ýmist til sveita, í þéttbýli, klettum við sjó, við vötn og ár og víðar á láglendi. Hún er þó ekki eini fuglinn sem hefur gert sig heimakominn á bátum í Snæfellsbæ en frést hefur af að minnsta kosti tveimur öðrum fuglum. þa Maríuerla tók sér far með björgunarskipinu Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna hefur tekið í sölu armband, hannað af gullsmiðnum Sigurði Inga Bjarnasyni (Inga í Sign). Á armbandinu stendur VON á þrem- ur tungumálum; íslensku, ensku og latínu. Félagið hefur undanfarin ár selt hálsmen og armbönd með sömu áletrun í fjáröflunarskyni og þegar farið var að huga að nýrri fjáröflun- arvöru var ákveðið að leita til Inga um að hanna gripinn. Útkoman er eilífðartáknið í leðuról með áletrun- inni VON - HOPE - SPES. Armandið er selt á heimasíðu Styrktarfélagsins krabbameinssjúkra barna, www.skb.is, og á skrifstofu félagsins í Hlíðasmára 14. Þar er opið kl. 9-16 virka daga. Á ári hverju greinast 10-12 börn með krabbamein á Íslandi. SKB styð- ur við bakið á fjölskyldum þessara barna, bæði fjárhagslega og félags- lega. Félagið nýtur engra beinna opinberra styrkja. Það er rekið fyr- ir sjálfsafla- og gjafafé og reiðir sig m.a. á afrakstur af sölu minningar- korta og ýmiss konar varnings, svo sem eins og armbandsins sem nú fer í sölu. mm Armband til stuðnings krabbameinssjúkum börnum

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.